NT - 16.08.1985, Blaðsíða 5
Föstudagur 16. ágúst 1985 5
■ A myndinni sjáum við Arthur Bogason formann undirbúnings-
nefndar trillusjómanna sem undirbýr stofnun landssamtaka smá-
bátasjómanna. NT-mynd: Arni Bjama.
Organista-
skipti í Laugar-
neskirkju
■ Um þessarmyndirerGústaf
Jóhannesson organisti í Laug-
arneskirkju að láta af störfum
en við starfinu taka hjónin Ann
Toril Lindstad og Þröstur
Eiríksson.
Gústaf hefur starfað sem org-
anisti kirkjunnar í 22 ár og nam
orgelleik á sínum tíma hjá Páli
lsólfssyni en nýju organistarnir
eru nýkomin heim frá námi í
Noregi. Þau stunduðu bæði nám
við tónlistarháskólann í Osló í 6
ár og luku magisterprófi í
kirkjutónlist fyrir tveimur
árum. Ann Toril fór síðan í
framhaldsnám í einleik á orgcl
en Þröstur nam liturgiska söng-
fræði og lokaritgerð hans fjall-
aöi um íslenskar sálmabækur
frá upphafi.
Selfoss:
Allir á
háalofti
- á flugkeppni
■ Á laugardag verður íslands-
mót í vélflugi á flugvellinum á
Selfossi. Mótið hefst kl. 8:30 og
stendur fram eftir degi.
Flugmálafélag íslands stend-
ur fyrir mótinu en framkvæmd
þess er í höndum Flugklúbbs
Selfoss. með aðstoð um 50 sjálf-
boðaliða m.a. úr FR klúbbunum
í Árnessýslu og Rangárvalla-
sýslu.
Keppnin er þríþætt. Fyrst
verður keppt í flugáætlunargerð
og þá í yfirlandsflugi og síðast í
marklendingu.
Keppt cr um Shellbikarinn.
Ökumenn!
Radarmælingar
á Óshlíðarveg
■ Ökumenn fylgist með
hraðamælinum, á leið um Ós-
hlíðarveg við ísafjarðardjúp.
Lögreglan liggur fyrir ykkur, í
þeim tilgangi einum að standa
ykkur að of hröðum akstri.
Ritstjórn NT ráðlcggur mönn-
um sem leið eiga um þessar
slóðir að halda um budduna og
vera léttstígir á bensíngjöfinni.
Hámarkshraði bifreiða er 70
km um Óshlíðarveg. Umfrarn
kílómetrinn getur verið dýr.
Trillukarlar:
Erum hlunnfarnir
Flókið mál, segir Gylfi G. Pétursson í Sjávarútvegsráðuneytinu
■ Trillukarlar telja að fisk-
veiðikvótinn og helgarbönn hafi
leikið sig grátt og ætla að stofna
með sér landssamtök til að
standa vörð um rétttindi sín.
Gylfi G. Pétursson lögfræðingur
í sjávarútvegsráðuneytinu sem
aðallega hefur með mál þeirra að
gera segir málið hins vegar
flóknara en svo að hægt sé að
leysa það í fljótu bragði.
Trillukarlar héldu fund um
helgina þar sem þeir settu fram
kröfur um að handfæraveiðar
verði gefnar frjálsar, með
nokkrum undantekningum, að
smábátasjómenn sætu við sama
borð og aðrir útgerðaraðilar
gagnvart línuveiðum og að við-
ræðna við viðkomandi yfirvöld
um stjórnun netaveiðabáta und-
ir I0 tonnum væri óskað. Auk
þess gerði fundurinn skilyrðis-
lausa kröfu um að væntanlegt
félag þeirra hefði fullgildan full-
trúa í ráðgjafanefnd um fisk-
veiðistefnu.
„Já við erum reiðir," sagði
Arthur Bogason formaður
bráðabirgðafélags trillusjó-
manna í samtali við NT. „En
menn komast hins vegar stutt á
reiðinni einni saman. Þess
vegna munum við allir standa
saman, atvinnumenn sem og
þeir sem róa út í frítíma sínum
og landsbyggðarmenn sem og
þeir sem búa í þéttbýli, en
ráðuneytið hefur verið að reyna
að stía mönnum sundur á þess-
um forsendum."
Arthur sagði að LÍÚ og fleiri
hagsmunaaðilar hefðu ráðskast
með mál trillusjómanna og
kvótaúthlutunarnefndin hefði
skammtað trillukörlum skít úr
hnefa eða 10 þúsund tonn í
heild og nú mættu menn sínir
búa við stanslausar veiðihömlur
því á árinu hefðu gæftir verið
miklar og mikið af fiski á grunn-
sævi og því væri löngu búið að
fiska upp í kvótann. Og í fyrra
hefði glögglega komið í ljós
misræmið milli báta undir 10
tonnum annars vegar og yfir 10
tonnum hins vegar því þá hefðu
hinir síðarnefndu fengið auka-
kvóta sem trillumenn hefðu
ekki fengið þótt nægan kvóta
hefði verið að finna.
Gylfi G. Pétursson í sjávarút-
vegsráðuneytinu sagði aðtrillu-
menn réru bæði á opnum bátum
og dekkbátum en aflageta bát-
anna væri mjög mismunandi og
veiðarfærin sem notuð væru
mismunandi að auki. Því væru
málin töluvert flókin. Sjálfum
virtist sér krafa þeirra um að
handfæraveiðar yrðu gefnar
frjálsar ekki ósanngjörn og aðr-
ar kröfur ekki óhóflegar. En
trillusjómenn hefðu fengið 8
þúsund tonna viðbótarkvóta nú
nýverið og gæta þyrfti jafnræðis
meðal þeirra og þeirra manna
sem gerðu út 10-20 tonna báta.
■ Frá Reykjavíkurhöfn.
Slysavarnardeildin Ingólfur:
Fjölskylduhátíd
á Grandagarði
■ Slysavarnardeildin Ingólfur
gengst fyrir fjölskylduhátíð á
sunnudaginn. á 199. afmælis-
degi Reykjavíkurborgar. Við
það tækifæri verða fomilega tekin
í notkun tvö ný björgunartæki,
nýr björgunarbátur og mikil-
virkur torfærubíll.
Hátíðin hefst klukkan 13.30
við Slysavarnarfélagshúsið við
Grandagarð, með því að Davíð
Oddsson borgarstjóri flytur
ávarp og gefur nýja björgunar-
bátnum nafn.
Að því búnu verða ýmis
skemmtiatriði ádagskrá. Björg-
unarsveitarmenn sýna listir sín-
ar í lofti, á láði og legi. Slökkvi-
liðið verður með útbúnað sinn
til sýnis, og einnig gefst fólki
Húðdeild Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur:
Opin fram
á kvöld
■ Húðdeildin á Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur.
sem til þessa hefur aðeins
verið opin virka daga frá
klukkan 8-9 og 12-15, verður
framvegis opin fram á kvöld
mánudaga til föstudaga.
Þannig er ætlunin að gefa
þeim sjúklingum, sem kom-
ast ekki á fyrrnefnda tíman-
um í UVB Ijósaklefann
möguleika á ljósaböðum á
öðrum tíma dagsins.
UVB ljósaklefinn, sem
scttur var upp fyrir aðallega
psoriasis og exemsjúklinga,
hefur reynst mjög vel.'
Ljósaklefinn er ntjög fljót-
virkur og Ijósabaðið tekur
aðeins örfáar mínútur. Það
dugar hins vegar ekki að fara
aðeins einu sinni í Ijósabað
ef ná á góðum árangri. Helst
verður að fara daglega eða
annan hvorn dag í tvær til
þrjár vikur samfellt eða
lengur.
Talið er að UVB ljósgeislar
geti hjálpað í 70-80% tilfella
og því er það vel til vinnandi
fyrir psoriasissjúklinga að
nota Ijósaklefann. Hægt er
að panta tíma í síma 22400
milli kl. 15-16 daglega.
kostur á að líta augum útbúnað
slysavarnardeildarinnar. Síðan
fá allir eitthvað í munninn, bæði
vott og þurrt, en kvennadeild
Ingólfs sér um kaffisölu á hátíð-
inni.
Dagskránni lýkur með ávarpi
Haraldar Henrýssonar forseta
SVFÍ, og veitir hann hciðurs-
merki við það tækifæri.
Víkingaskipið:
■ Húsvörðurinn á Korpúlfsstöðum Sigríður Einarsdóttir og
víkingaskipið í baksýn. Á því brotnuðu fimm til sex borð, skutur og
stefni auk þess bönd og jtverbitar en ekki er vitað hversu mikið
tjónið er.
NT-mynd Sverrir
Einhver hef ur
fært skipið til
„Það er engu líkara en ein-
hver hafi verið að færa skipið til
þessa nótt. Það var komið hing-
að á mitt hlað um morguninn en
stóð þó á réttum kili og ekkert
annaó hér við húsið hafði færst
úr stað, sagði húsvörðurinn á
Korpúlfsstöðum Sigríður Ein-
arsdóttir í samtali við NT í gær.
„Ég hef búið hérna í um 13 ár
og það hafa oft verið aftakaveð-
ur - ég varð ekki vör við svo mikið
veður þessa nótt að skipið hefði
getað færst til vegna þess. Ég
get ekki ímyndað mér að það
hafi fokið," sagði hún.
Hún sagði að sér virtist sem
þetta mál væri allt saman svolít-
ið furðulegt. Það væri hálfilla
farið með skipið, að sínu mati
og lítið um það hirt.
Gunnar Hvamm veður-
fræðingur hjá Veðurstofu ís-
lands sagði að í Reykjavík og
Mosfellssveit hefði verið þetta
tíu-tuttugu hnútar á miðnætti
og klukkan þrjú þessa nótt. Það
væri að vísu sviptingasamt í
Mosfellssveit, en hann efaðist
stórlega um að skipið hefði
fokið.
Gísli Árni Eggertsson
æskulýðs- og tómstundafulltrúi
Reykjavíkurborgar sagði við
NT að þeir hjá Æskulýðsráði
teldu aó skipið hefði fokið.
Lögreglan hefði verið kvödd á
vettvang á þriðjudagsmorgun
og talið væri að skipið hefði
fokið yfir vegg, sem það stóð
við, og 14 metra í lofti áður en
það lenti þarna á hlaðinu. Hann
sagði að skemmdirnar yrðu
sennilegast teknar út í næstu
viku og þá yrði Ijóst hversu
mikið tjónið væri. Síðan yrði
gert við það.
Það hefði alltaf verið ntjög
vel gengið frá þessu skipi en það
væri dýrt í rekstri og því vildi
Æskulýðsráð gjarnan fá það í
hendur aðilum sem gætu rekið
það er viðgerðum væri lokið.
Það þyrfti krana til að færa
þetta þriggja tonna skip til og
því væri útilokað að einhver
hefði fært það til.