NT - 19.09.1985, Síða 6
NEWSIN BRIEF~
September 18 - Reuter
CONCORD, NEW
HAMPSHIRE - Presi-
dent Reagan announced
that Benjamin Weir, an
American Presbyterian
minister held hostage in
$ Lcbanon for 16 months,
QC had becn released. A
spokcswoman for the
^ Presbyterian Church said
Weir was in good health
^ and wouid appear at the
U| news conference tomor-
^ row with his family.
•
MOSCOW-The Kremlin
ordered out six more
Britons, induding fívc
embassy staff and a Reut-
er journalist, equalling thc
total of 31 Soviet citizens
expelled by Britain in the
past week. Britain said it
would not rctaliate
further.
•
BONN - Chancellor Hel-
mut Kohl personally re-
jected security survcill-
Ul ance of a secretary in his
QC offíce who has sincc de-
fected to East Germany
^ and is suspected of espio-
(/j nage, a senitor govern-
ment olfícial said.
^ PARIS - French Defence
Minister Charles Hernu,
at the centre of a political
storm over the sinking of
the Greenpeace ship Ra-
inbow Warrior, defícd
calls for his resignation
and said he wanted to
I establish the truth.
•
CORK, IRELAND -
Some of the 329 people
who died when an Air
India Boeing 747 crashed
off Ireland in June were
alive when they hit the
Uj water, an inquest heard.
QC But the hcaring, in its
second day, failed to shed
^ any new light on what
(/) caused one of the world’s
^ worst air disasters.
Ul
^ GENEVA - Mexico call-
ed on the United States,
Ithe Soviet Union and Brita-
I in to stop all nuclear arms
tests and won wide supp-
I ort ainong some 100 eoun-
, tries at a conference org-
aniscd to review the 1968
| Nuclear Non-Proliferat-
, ion Treaty.
1 •
| WASHINGTON - A spot
check of Boeing 747 air-
' craft requested by U.S.
| aviation authorities aftcr
the Japan Air Lines crasb
' whicli killcd 520 people
has found no safcty
problems, a U.S. Federal
U. Aviation Administration
g spokcsman said.
í® LUXEMBOURG - A
^ compromise agreement
JO on the European Com-
S munity Draft Budget for
3Í 1986 will not cover the fuil
cost of bringing Spain and
Portugal into the 10-nat-
ion block next January,
Community leaders said.
•
WARSAW - A Polish
I government leader has
I acccused the country’s
Catholic Church of harbo-
I uring political extremists
■ and radical priests of wag-
ing „an unprecedented
I fíght with the socialist
■ system.“
•
LUXOR, EGYPT -
Primc Minister Margarct
' Thatcher ended a two-day
' visit to Egypt and llew to
| Jordan for talks vith King
Hussein on deadlock in
his Middle East peace Init-
iative.
newsinbriefA
Fimmtudagur 19. september 1985 6
Yngingarráðstefna kommúnista:
Öldungarnir
víkja fyrir nýjum
leiðtogum í Kína
Pcking-Kculcr:
■ Nú stendur yfir sérstök
ráðstefna forystumanna í Kom-
múnistaflokki Kína sem hefur
meðal annars það markmið að
tryggja að ungir og velmenntað-
ir leiðtogar komi í stað gamalla
byltingarforingja sem hafa
stjómað Kína frá því að kom-
múnistar náðu völdum þar árið
1949.
Rúmlega hundrað leiðtogar í
æðstu stöðum báðust lausnar úr
1 embættum sínum fyrr í þessari
viku fyrir aldurs sakir. Þeirra
frægastur og valdamestur er Ye
Jianying hershöfðingi sem nú er
88 ára gamall. Ye er maoisti af
gamla skólanum sem er sagður
hafa efasemdir um ágæti sumra
breytinga sem nú eiga sér stað í
Kína þótt hann hafi ekki lýst
yfir beinni andstöðu við þær.
Hann hefur verið mjög sjúkur
að undanfömu og liggur hann
nú á sjúkrahúsi þar sem læknar
fylgjast með líðan hans dag og
nótt.
Frá því að kínverskir
kommúnistar hófu herferð fyrir
yngingu embættismanna fyrir
tæpum tveim árum hefur rúm-
lega ein milljón aldinna em-
bættismanna látið af störfum.
Flokksforystunni þótti ekki
annað fært en að æðstu leið-
togamir fylgdu fordæmi
undirmanna sinna og settust
líka í helgan stein.
Alls taka 1.318 fulltrúar þátt
í ráðstefnu kommúnistaflokks-
■ Deng Xiaoping valdamesti Ieiðtogi Kínverja bendir
öldruðum leiðtogum á að fara sér hægt í ellinni og hætta að
skipta sér að stjóm ríkisins. Sjálfur telur hann sig samt ekki
geta hætt þótt hann sé orðinn 81 eins árs gamall, hann verði
að halda verndarhendi yfír ungum frumkvöðlum umbóta í
Kína enn um sinn.
ins, sem hófst í gær. Auk öldr- ræða drög að fimm ára áætlun
unarmála nrunu þeir einnig fyrir 1986 til 1990.
Verkalýosforingjar
svelta sig í Bólivíu
- hóta allsherjarhungurverkfalli
gegn hungurlögum
La Paz-Reuler:
■ Verkalýðsforingjar í
Bólivíu hófu hungurverk-
fall á þriðjudag til að mót-
mæla aðhaldsstefnu
stjórnarinnar og til að
þrýsta á samninga við
verkalýðsfélögin sem hafa
verið í allsherjarverkfalli í
rúmar tvær vikur.
Verkalýðssamband
Bólivíu hótar allsherjar-
hungurverkfalli allra
verkamanna sambandsins
dragi stjórn Victors Paz
Estenssoros ekki til baka
aðhaldsaðgerðirnar sem
hún tilkynnti í seinasta
mánuði.
Fyrr í vikunni lýstu kaþ-
ólskir biskupar í Bólivíu
líka yfir andstöðu við
efnahagsaðgerðir stjórn-
arinnar sem þeir segja að
muni auka hungur og at-
vinnuleysi. Aðgerðirnar
fólust meðal annars í því
að stjórnin frysti laun
opinberra starfsmanna og
felldi gengið um 90%.
Stjórnin segir þessar
ströngu efnahagsaðgerðir
nauðsynlegar til að stöðva
gegndarlausa óðaverð-
bólgu, sem fór nýlega upp
í 14.000% á ári , og til að
rétta efnahag landsins við.
Paz tók við embætti
forseta í seinasta mánuði.
Þá lofaði hann að gera
ráðstafanir til að vinna
bug á efnahagskreppunni
í Bólivíu. Helstu viðbrögð
hans við allsherjarverk-
falli verkalýðssambands-
ins voru að fyrirskipa
hernum að gæta raforku-
vera og fjarskiptamið-
stöðva.
Frjálslynt kosningaloford:
Skotum lofuð
heimastjórn
Dundec-Reuter:
■ Bandalag frjálslyndra og
jafnaðarmanna í Bretlandi hef-
ur lofað Skotum heimastjórn
komist flokkurinn í stjórn.
David Owen leiðtogi flokks
sósíaldemokrata sagði m.a. á
ársfundi Frjálslyndaflokksins í
Dundee: „Við viljum að Skotar
stjórni sér sjálfir. „Hann sagði
að bandalag frjálslyndra og jafn-
aðarmanna myndi beita sérfyrir
því að Skotar fengju rétt til að
kjósa eigið þing sem hefði
tryggar fjáröflunarleiðir.
Mikill stuðningur er við
heimastjórnarhugmyndir á
Skotlandi. Sem stendur hefur
Verkamannaflokkurinn mjög
sterka stöðu í Skotlandi en
bandalag frjálslyndra og jafnað-
armanna gerir sér vonir um að
auka fylgi sitt þar.
Skoðanakannanir á Bretlandi
hafa að undanförnu bent til þess
að enginn einn stjórnmálaflokk-
ur hafi nægjanlegt fylgi til að
mynda meirihlutastjórn.
Bandalag frjálslyndra og jafnað-
armanna hefur sett sér það
markmið að binda enda á
tveggjaflokkakerfið sem hingað
til hefur ráðið lögum og lofum í
Bretlandi. Forystumenn banda-
lagsins eru sannfærðir um að
það muni eiga aðild að stjórn-
inni sem verði mynduð eftir
kosningarnar 1988.
Zimbabwe:
Tekst Banana að
sameina flokka?
Hararc-Kculcr
■ Leiðtogar stjórnarflokksins
í Zimbabwe, Zanu-PF og PF-
Zapu, sem er í stjórnarands-
töðu, hafa að undanförnu notið
aðstoðar Canaan Banana við
samningaviðræður sem hafa
sameiningu flokkanna að mark-
miði.
Zanu-PF hefur hreinan þing-
meirihluta, 64 þingsæti af 100.
En PF-Zapu flokkurinn fékk öll
15 þingsætin sem kosið var um í
Matabelandi þar sem leiðtogi
flokksins, Joshua Nkomo sækir
fylgi til fólks af eigin ættbálki.
Robert Mugabe forsætisráð-
herra og flokksleiðtogi Zanu-PF
segist stefna að því að stofna
eins flokks stjórnkerfi í
Zimbabwe og hefur oft hvatt
stjórnarandstæðinga til að
ganga í flokk sinn. Eftir seinustu
kosningar sem fóru fram í júlí
styrktist staða Mugabe cnn frek-
ar og hafa stjórnarandstæðingar
kvartað yfir því að þeir séu
ofsóttir.
Joshua Nkomo mun hafa far-
ið á fund Banana forseta fyrir
rúmum mánuði og beðið hann
að hafa milligöngu um umræður
við Zanu-PF um sameiningu.
Óformlegar viðræður á milli
flokksleiðtoganna eru sagðar
hafa gengið vel þrátt fyrir and-
stöðu nokkurra miðstjórnarm-
anna í Zanu-PF. Enn er þó deilt
um nafn hins nýja flokks og
skipulagsform hans.
Iðnaðarfram-
leiðsla Breta
dregst saman
London-Rcutcr
■ Iðnaðarframleiðsla
Breta dróst saman um
1,1% í júlímánuði sam-
kvæmt upplýsingum
bresku hagstofunnar.
Þetta er mesti samdráttur
í iðnaðarframleiðslu Breta
á einum mánuði á þessu
ári.
Bresk stjórnvöld segjast
samt ekki hafa áhyggjur af
þessum samdrætti og
skýra hann með óregluleg-
umefnahagssveiflum. Þeir
benda á að iðnaðarfram-
leiðslan í maí til júlí var
fimni prósentum hærri en
á sama tímabili fyrir ári
þegar verkfall kolanámu-
manna dró mjög úr at-
vinnustarfsemi.
N-Írland:
írski lýðveldis-
herinn kominn í
mafíuhlutverk
Belfast-Reuler
■ Háværar raddir heyrast nú
á N-írlandi sem saka IRA um
að beita starfsaðferðum hinnar
alræmdu mafíu til þess að við-
halda áhrifum sínum yfir
kaþólska minnihlutanum. Sagt
er að nýleg alda morða og
líkamsmeiðinga fylgi að harð-
skeyttari fjáröflunaraðferðum
IRA-manna.
Kaþólski presturinn Denis
Paul er einn þeirra sem hefur
gagnrýnt framferði IRA opin-
berlega en þess ber að geta að
hann er jafnframt þekktur sem
andstæðingur breskrar íhlut-
unar á N-Irlandi. Hann heldur
því fram að IRA treysti nú
m.a. á „verndarpeninga" og
þá sérstaklega þar sem bygg-
ingaframkvæmdir eru annars
vegar, Svokallaðir verndar-
peningar felast í því að t.d.
1 eigandi fyrirtækis greiðir
glæpasamtökum reglulega
peningaupphæð gegn því að
ekkert verði gert honum til
tjóns af viðtakendum pening-
anna eða öðrum. Að sögn er
þetta nú orðin ein helsta tekju-
lind IRA.
Af átta einstaklingum sem
hafa verið niyrtir af IRA ný-
lega misstu tveir þeirra lífið
vegna þess að þeir neituðu að
beygja sig fyrir fjárkúgunartil-
raunum IRA. Fjöldi annarra
hefur verið særður skotsárum
til viðvörunar. Ennfremur hef-
ur IRA skipað mörgum smá-
glæpamönnum að hafa sig á
brott frá borgum eins og Bel-
fast svo að þeir séu ekki til
truflunar.
Það hefur reynst erfitt að fá
fólk til þess að bera vitni gegn
lýðveldishernum í tengslum
við fyrrnefndar fjáröflunarað-
ferðir. Af þeim sökum hefur
yfirvöldum ekki tekist að láta
til skarar skríða sem skyldi. En
það eru ekki einungis hin
slæmu skammtímaáhrif sem
margir írar óttast. Að sögn
Denis Paul þrífst ótrúleg spill-
ing í skjóli þessarar starfsemi
IRA sem getur vaxið meðan
lýðveldisherinn lætur sér vel
líka.