NT - 19.09.1985, Blaðsíða 13
rrr Fimmtudagur 19. september 1985 17
ul |i
■ Meðal kennara við Dansskóla Heiðars í vetur verður hin v-þýska Bettina Welkenbach, sem mun
kenna jassballett, stepp, aerobic og spænska dansa.
Dansskóli Heiðars:
29. námsárið að hefjast
Yfir 70.000 nemendur hafa verið skráðir frá upphafi
Gpps, klaufi varstu
... en þetta gerir svo sem ekkert til
Effco þurrkan gerir hluti sem þessa að smámáli
■ Nú stendur yfir innritun á
námskeið á 29. námsári Dans-
skóla Heiðars Ástvaldssonar, en
hann hefur starfað lengst dans-
skóla hérlendis.
f skólanum er boðið upp á
kennslu fyrir fólk á öllum aldri.
í barnaflokkum er börnum frá
fjögurra ára aldri kennd létt
spor úr samkvæmisdönsum, en
eldri börn eiga síðan kost á að
æfa flóknari dansa.
í unglingaflokkum er mest
áhersla lögð á kennslu á diskó-
dansi og free-style. Meðal full-
orðinna njóta samkvæmisdans-
arnir mestrar hylli, í þeim
flokkum er mest um fólk frá
tvítugu til fertugs, en þó má þar
finna nemendur sem nálgast
sjötugt, og hafa elstu nemend-
urnir sótt námskeið í skólanum
í 25 ár og hyggjast halda áfram.
Kennarar í vetur verða tæp-
lega 20. Þ.á m. verður kunnur
danskennari frá V-Þýskalandi,
Bettina Welkenbach, sem mun
kenna jassballett, stepp, aero-
bic og spænska dansa. Hún
hefur undanfarin ár m.a. kennt
við heimsfrægan dansskóla jass-
ballettdansarans June Taylor í
Bandaríkjunum. Kennarar
skólans fara reglulega til út-
landa til þess að fylgjast sem
best með því sem þar er að
gerast, og þannig veitir skólinn
hingað nýjustu straumum úr
erlendri dansmennt. Kennt
verður á þremur stöðum í
Reykjavík, í Brautarholti,
Drafnarfelli 4 og í Árseli í
Árbæjarhverfi, en dansskólinn
heldur einnig uppi kennslu á um
20 stöðum um land allt.
Mosfellssveit:
Minnisvarði
afhjúpaður
■ Nú nýverið var afhjúpaður
minnisvarði á skólasvæðinu að
Varmá í Mosfellssveit um skóla-
stjórahjónin Kristínu Magnús-
dóttur og Lárus HaUdórsson frá
Brúarlandi.
Þau hjón bjuggu lengst af í
Brúarlandi og stýrðu þar stóru
heimili.
Þau gegndu margvíslegum fé- ■
lags- og menningarstörfum í
Mosfellssveit á langri og farsælli
starfsævi í Mosfellssveit segir í
fréttatilkynningu.
Við útför Lárusar Halldórs-
sonar skólastjóra kom fram sú
hugmynd að reisa þeim hjónum
minnisvarða á skólasvæðinu að
Varmá.
Margir hafa lagt hönd á plóg-
inn til þess að þetta gæti orðið
að veruleika, bæði einstaklingar
og Mosfellhreppur og má þess
geta að yngsti sonur Kristínar
og Lárusar hefur hannað og
teiknað minnisvarðann og gert
lágmyndina sem er fest á stöpul-
inn.
Rauði krossinn:
Grænhöfða-
deildin
fullgild
■ Rauði krossinn á Græn-
höfðaeyjum hefur nú fengið
fullgilda aðild að Alþjóðasam-
bandinu í Genf, segir í frétta-
tilkynningu frá Rauða krossi
íslands.
Með tilkomu Grænhöfðaeyja
í sambandið eru aðildarríkin nú
orðin 136 frá jafn mörgum
ríkjum.
Rauði kross íslands hefur tek-
ið þátt í uppbyggingu Rauða
krossins á Grænhöfðaeyjum
m.a. með því að reisa einskonar
félagsmiðstöð.
Hana á að nota á ýmsan hátt
m.a. til námskeiðahalds,
kennslu í skyndihálp og margs
fleira.
Rauði kross íslands, segir í
fréttatilkynningunni, hyggur á
áframhaldandi aðstoð við
Grænhöfðamenn.
Enginn sem a Effco þurrku kipp-
ir ser upp við svona smaslys, Enda
þurrkar Effco þurrkan upp allt sem
sullast og hellist niður. Með Effco
þurrkunni er enginn vandi að halda
eldhúsinu finu. sama hvað gengur
a. Hun gerir eldhusstörfin ánægju-
legri en nokkru sinni fyrr. En hun
er ekki bara til að þrifa þess hattar
ósköp. Þu notar hana lika til að
þrifa bilinn - jafnt að innan sem
utan. Það er alltaí óruggara að hafa
Effco þurrkuna við hendina. hvort
sem það er á heimilinu. í sumar-
bustaðnum, batnum eða bilnum.
Ja. það er fatt sem reynist Effco
þurrkunni ofraun.
Effco-þurrkan fæst a betri bensinstoðvum
og verslunum.
I 0RKUST0FNUN
Orkustofnun auglýsir lausa til umsóknar
stööu deildarstjóra jaröeðlisfræðideildar,
jarðhitadeildar. f starfinu felst meðal annars
umsjón jarðeðlisfræðilegra mælinga á jarð-
hitasvæðum, þróun mæliaðferða auk verk-
efnis stjórnar í jarðhitaverkefnum.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi
í eðlisfræði, jarðeðlisfræði, eða skyldum
greinum, og hafa reynslu í jarðeðlisfræði-
rannsóknum.
Skriflegar umsóknir er veita ýtarlegar upplýs-
ingar um aldur, menntun og fyrri störf skulu
berast eigi síðar en 11. október n.k. til
starfsmannastjóra Orkustofnunar er veitir
frekari upplýsingar.
Starfsmannastjóri Orkustofnunar
Grensásvegi 9
108 Reykjavík sími 83600
UMFÍ skrifstofustörf
Óskum eftir að ráða nú þegar starfsmann á
skrifstofu UMFÍ. Þarf að vera góður í vélritun
og íslensku og gjarnan að hafa áhuga og
þekkingu á starfi ungmennafélaganna.
Upplýsingar hjá framkvæmdastjóra UMFÍ,
Mjölnisholti 14, Reykjavík.
□
Óskar Níelsson
Fæddur 12. maí 1895
Dáinn 9. september 1985
Afi var orðinn gamall þegar
hann dó. Síðustu árin hrörnaði
hann jafnt og þétt, undir lokin
var hann lagstur í kör. Ekki
duldist að hverju stefndi, og var
hann sjálfur sáttur við það.
Engu að síður er sárt að geta
ekki lengur hugsað til hans í
rúminu á Framnesvegi og geta
ekki lengur litið til hans svolitla
stund, virt hann fyrir sér og
minnst hans eins og hann var.
Hann leiddi mig lítinn niður að
sjó, sýndi mér fjöruna, eiðið og
grandann. Þegar ég var kominn
til nokkurs vits og ára spjölluð-
um við unt karla og kerlingar
sem hann hafði þekkt og bú-
skaparhætti í Breiðafirði fyrr á
öldinni eða hann talaði rámri
röddu um verðbólguna, Frant-
sókn og stjórnmálaástandið.
Einatt bar hann það saman við
atburði sem lýst er í Sturlungu
og Biblíunni. Þá sat hann í
stólnum sínum í stofunni, með
gluggann og tréð til hægri
handar, tók í nefið og þurrkaði
sultardropann, saug brjóstsykur
svo hálsinn héldist mjúkur.
Amma átti kaffi eða mjólk og
hafði stundum bakað ástarp-
unga. Alltaf var mér tekið vel,
en kom of sjaldan.
Afi fæddist í Bjarneyjum í
Breiðafirði 12. maí 1895. For-
eldrar hans voru Níels Gíslason
bóndi þar og Ingveldur Magnús-
dóttir. Níels drukknaði árið
1905. Þau fluttu í Bíldsey þegar
afi var sjö ára og þar bjó hann
með móður sinni til þrítugs.
Einu sinni sagði hann mér að sig
hefði langað á bændaskóla, en
hann hefði ekki komist af því
hann þurfti að vinna við búið.
Afi hóf síðan eigin búskap í
Svefneyjum árið 1924. Þann 11.
mars 1925 kvæntist hann Önnu
Magnúsdóttir frá Svefneyjum.
Þau eignuðust tvær dætur,
Önnu sem fæddist 20. desember
1927 og Guðnýju sem fæddist
14. desember 1929. Anna kona
afa lést eftir fimrn ára hjóná-
band, 6. janúar 1930. Hann
kvæntist öðru sinni fimm árum
síðar, 13. ágúst 1935, eftirlifandi
konu sinni Guðríði Sveinbjarn-
ardóttur. Þau eignuðust fjögur
börn: Jón fæddist 15. maí 1936,
Þorkatla fæddist 21. mars 1939,
Ólafur Aðalsteinn fæddist 15.
maí 1942 og Níels fæddist 23.
ágúst 1944. Ólafur lést 11 ára
garnall. Afi og amma bjuggu í
Svefneyjunt til 1.939. Þá fluttu
þau til Flateyjar, höfðu búskap
og afi var hreppstjóri. Til
Reykjavíkur fluttu þau strax
þegar stríðinu lauk, vorið 1945.
Þau bjuggu í Engey í nokkur ár
en fluttu alkomin til Reykjavík-
úr árið 1956. Á Framnesveginn
komu þau haustið 1958. Afi
vann hjá Sambandinu til 1962
að hann komst á eftirlaun. Eftir
það var hann mest heima; góður
við börn og barnabörn og kon-
una sína.
Allar matar-
kartöflur flokkaðar
Frá og með mánudeginum 23. september
skulu allar matarkartöflur er koma til sölu
vera flokkaðar og metnar miðað við gildandi
matsreglur.
Óheimilt er að selja ómetnar kartöflur.
Yfirmatsmaður garðávaxta
Bændahöllinni
Sími19200
t
Útför móöur minnar
Önnu Árnadóttur
Þórarinsstöðum
Hrunamannahreppi
verður gerð frá Hrunakirkju laugardaginn 21. september kl. 3
eftir hádegi.
Árni Magnússon
Mási