NT - 19.09.1985, Blaðsíða 24
* a- ' ■■ "■*
lapaaEg
■■' ^f^læs^ífe- " 5%*?i:5»í3í */«-»^^itmpnr »"<
isByðr1 '^-
v^mm*<***%'
Tang og Tshabalala ásamt Sigurði Péturssyni og Ragnari Ólafssyni eftir 18 holur á Grafarholtsvelli í gær.
NT-mynd: Árni Bjarna
Umhverfis jörðina
í áttatíu höggum!
Goifarar leika á nyrsta golfvelli heims og víðar... íclonclra fielr
----------------—--------- ■ Nokkrir erlendir golfmenn Opna iúgóslavneska meistara- 1^91 m5n (Jl I IMEm^
^ ' *»&£.* ■ —- , r , ^ r ! 1. K.. J ? n . rn m m ^^ ■ ■ ■ ^^ ■ m
eldissýningin
Tt^P’ "' “®*“ '* •**■ -**.*% 4*m 4». * . ,
m [f- ^ ^ ||l ^
v , ' ¥ .'»»* an>- «• i "* SÉsS
Pm W jggnPI
Nokkrir erlendir golfmenn
hafa það fyrir stafni þessa dag
ana að þeysast um heiminn og
spila á golfvöllum sem staðsettir
eru nyrst eða syðst, hæst uppi
ellegar lægst niðri o.s.frv. á
blessaðri jarðarkringlunni. Peir
eru nú staddir hér á landi og
hyggjast leika á Akureyri á
fimmtudag en þar ku nyrsti 18
holu golfvöllur heimsbyggðar-
innar vera.
í forsvari hópsins er Pat
O’Bryan sem þekktur er fyrir
alls kyns ferðalög og óbyggða-
göngur. Með honum í för eru
Arnost Kopta, sigurvegari á
Opna júgóslavneska meistara-
mótinu í golfi, Peter Tang,
þjálfari kínverska landsliðsins í
golfi og Vincent nokkur Tsha-
balala frá S-Afríku - skrautlegt
lið eins og sjá má.
Kapparnir rnuhu meðal ann-
ars koma við á Nýja-Sjálandi og
Fiji eyjum og einnig mun þá
bera að Bolivíu og Dauðadaln-
um fræga í Kaliforníu. Með
þeim í för eru blaðamenn frá
Golf Digest í Ameríku sem sjá
munu um að heimsreisan fari
ekki fram hjá sauðsvörtum ai-
múganum.
■ Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra, ásamt Jóni
Helgasyni landbúnaðarráð-
herra voru við opnun fyrstu
fiskeldissýningarinnar sem
haldin hefur verið á Islandi.
Álls eru um fjörutíu fyrirtæki
sem sýna framleiðslu sína í
Laugardalshöll. Það hefur
vakið athygli að fá fyrirtæki
eru frá Noregi, þó að Norð-
menn séu manna fremstir í
fiskeldi. John Legate fram-
kvæmdastjóri ITF hefur skýr-
ingu á því. Sjá nánar bls. 11.
NT-mynd Róhcrl
■ Taktarnir eru þeir sömu hvort sem um íslenskan golfvöll er að
ræða eða erlendan.
Góðar horfur í laxeldi:
300-400% betri
heimtur en áður
- í haf beitarstöðvum; 18.500 laxar komnir „heim“
■ Þrjú til fjögur hundruð
prósenta betri heimtur hafa
verið í hafbeitarstöðvum í ár
en síðastliðin tvö ár. Alls hafa
rúmlega 18.500 laxar snúið aft-
ur til sleppingarstaða. í fyrra
voru fiskar sem sneru aftur til
stöðvanna um land allt rúm-
lega fimm þúsund.
Samkvæmt þeim upplýsing-
um sem Veiðimálastofnun lét
NT í té í fyrradag hafa um 14
þúsund laxar komið í þrjár
stöðvar. þ.e. Kollafjarðar-
stöðina, Pólarlax og Lárós.
Aðrar stöðvar hafa fengið
minna. Einar Hannesson hjá
Veiðimálastofnun sagði í sam-
tali við NT að greinilegt væri
að heimta hjá sumum stöðvun-
um væri mjög góð í ár, og að
talað væri um allt að 12%
heimtur, miðað við sleppingar
í fyrra. Einar sagði að minni
heimtur væru víða, þar sem
menn væru styttra á veg komn-
ir með tilraunir. „Það fer mikið
eftir því hvar á landinu stöðv-
arnar eru staðsettar. Það er
ljóst að búið er að þróa hafbeit
við Faxaflóa t.d., í þá veru
að það er komið grænt Ijós á
stórfelldar sleppingar. Tilraun-
ir hafa staðið lengi og gefið
góða raun,“ sagði Einar.
í laxeldisstöð ríkisins í
Kollafirði hafa heimtur verið
50% betri en í fyrra. Rúmlega
fjögur þúsund laxar hafa skilað
sér, af rúmlega 50 þúsund
seiðum sem sleppt var í fyrra.
Síðasta ár var þetta hlutfall
2200 laxar af 50 þúsund seið-
um.
Sennilegasta skýringin á
þessu mun vera betri skilyrði í
sjó síðastliðið ár.