NT - 11.10.1985, Blaðsíða 2
Föstudagur 11. október1985
■ Breska skautaparið
Jane Torvill og Christop-
her Dean vann hug og
hjörtu áhorfenda jafnt
sem dómara á vetraról-
ympíuleikunum, sem fram
fóru í Sarajevo í febrúar á
síðasta ári. Það var ekki
nóg með að þau ynnu til
gullverðlauna, heldur var
það metfjöldi af 6-um
(hæsta einkunnagjöf) sem
þeim féll í skaut. Pau
höfðu þar með náð eins
hátt í heirni áhugamanna
og náð varð
Það hefur verið hljótt
um þau Torvill og Dean
síðan. Þau höfðu að vísu
látið verða þess vart að
þau væru nú um það bil að
segja skilið við áhuga-
mennskuna og ætluðu nú
að gerast atvinnumenn í
skautaíþróttinni.
Þau hafa nú sýnt hvað
fyrir þeim vakíi. Þau eru
ekki lengur ein á ferð,
heldur hafa safnað um sig
13 manna hópi, sem sýnir
slíkar listir á skautasvell-
inu að slíkt hefur ekki fyrr
sést, segja þeir sem séð
hafa. Að loknum æfingum
í Þýskalandi og ferð til
Ástralíu héldu þau síðan
frumsýningu á Wembley í
júlí-lok og góðgerðasýn-
ingu, sem Diana prinsessa
var viðstödd. Þá héldu þau
með sýninguna sína til
heimabæjar síns, Notting-
ham, þar sem þau ætla að
sýna gömlum nágrönnum
og vinum, listir sínar fram
í september. Þaðan liggur
svo leiðin til Kanada
o.s.frv., o.s.frv., tveggja
ára ferðalag um víða.
veröld.
Þau Jane Torvill og
Chris Dean hafa haldið
saman í 8 ár og aðdáendur
þeirra hafa verið fullir
forvitni um hvernig pers-
ónulegu sambandi þeirra
muni vera háttað. Þau eru
sagnafá um það, segja þó
hjónaband ekki útilokað,
en það taki sinn tíma að
koma því'í kring og það sé
einmitt tími sem þau hafi
ekki nóg af þessa dagana.
„Það getum við gert þegar
við erum orðin sextug, en
þá getum við ekki lengur
skautað af hjartans lyst,“
segir Jane. Og einn fróður
bætir því við að öll þau 8
ár sem þau hafi verið sam-
an hafi þau alltaf sofið
hvort í sínu herbergi.
En þau eru mjög
samrýnd. T.d. eyða þau
öllum fríum saman.
Hvernig stendur á því,
heimta sumir að fá að vita.
Jú, ástæðan er ofur ein-
föld. Þau slaka ekki eins
vel á í nokkrum öðrum
félagsskap og hvort með
öðru!