NT - 11.10.1985, Blaðsíða 24
HRINGDU ÞÁ í SÍIX/IA 68-65-62
. 1
Við tökum við abendingum um fréttir allan solarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrirhverja abendingu sem leið ir til
fréttar i blaðinu og 10.000 krónurfyrir ábendingu sem leiðirtil bitastæðustu fréttar manadarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT, Sídumúla 15, Reykjavík, simi: 686300, auglýsingar 18300
Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687598 • íþróttir 686495
Þingflokkar:
Formenn
kjörnir
■ Að lokinni hefðbund-
inni þingsetningarathöfn í
gær funduðu þingmenn og
kusu stjórnir þingflokka.
Framsóknarflokksmenn
völdu Pál Pétursson sem
þingflokksformann, Ingvar
Gíslason sem varaformann
og Davíð Aðalsteinsson
sem ritara.
Sjálfstæðisflokksmenn
kusu Ólaf G. Einarsson í
formannssætið, Alþýðu-
flokksmenn Eið Guðnason,
Alþýðubandalagsmenn
Ragnar Arnalds, Kvenna-
listakonur Sigrfði Dúnu
Kristmundsdóttur og
Bandalag jafnaðarmanna
Guðmund Einarsson.
Á þriðjudag verður þing-
mönnum úthlutað sætum,
þingforsetar og ritarar
kjörnir og kosið í hinar
ýmsu nefndir Alþingis.
■ Þingsetning kallar á athygli fjölmiðla. Hér er það sjónvarpið sem á í vandræðum - bfllinn rafmagnslaus og þá kemur
yfirvaldið til hjálpar. NT myndir Sverrir
Alþingi:
108. löggjafarþing ís-
lendinga sett í gær
■ Alþingi var sett í gær og
er þar með 108. löggjafar-
þing íslendinga hafið. Að
lokinni guðsþjónustu í Dóm-
kirkjunni þar sem séra
Heimir Steinsson prédikaði
gengu viðstaddir til þinghúss
og hlýddu á er Vigdís Finn-
bogadóttir forseti lýðveldis-
ins las forsetabréf um þing-
setningu. Að venju stýrði
aldursforseti Alþingis þess-
um fyrsta fundi þessa þings
en það var að þessu sinni
Stefán Valgeirsson.
I ræðu sinni benti séra
Heimir á þá staðreynd að
upphaf þinghalds hefur frá
byrjun á Þingvöllum markast
af einhvers konar helgun og
nú á tímum er það guðsþjón-
usta við þingsetningu. Hann
sagði að þannig sameinuðust
„arfleifð íslendinga og skír-
skotun til hinstu raka mann-
Iegrar veru“. Hann benti á
að þó svo ætti að heita að
verkaskipting þings og
kirkju væri næstum alger þá
hefðu báðar stofnanir
„manninn“ og hans velferð
sem viðfangsefni og ættu því
meira sameiginlegt en ætla
mætti í fyrstu.
Að guðsþjónustunni lok-
inni gengu forseti, biskup,
þingmenn, sendimenn er-
íendra ríkja og gestir til þing-
húss þar sem Vigdís Finn-
bogadóttir las upp bréf hand-
hafa forsetavalds frá 23.
september um setningu Al-
þingis. Er þingmenn höfðu
hyllt forseta og fósturjörð
bauð forsetinn aldursforseta
þingsins að taka að sér fund-
arstjórn.
Stefán Valgeirsson hóf
mál sitt á að bjóða þingmenn
og starfsmenn Alþingis vel-
komna til starfa en minntist
þvínæst Axels Jónssonar
fyrrverandi þingmanns sem
lést í sumar 63 ára að aldri.
Að því loknu var fundi frest-
að til þriðjudags.
■ Kökur og mjólk.Tilvonandi iðnaðarráðherra, Albert Guð-
mundsson og Guðmundur J. Guðmundsson.
■ Gengið til þings. Forseti íslands í fararbroddi.
■ Þingmenn taka sér sæti.