NT - 11.10.1985, Blaðsíða 10

NT - 11.10.1985, Blaðsíða 10
flokksstarf Konur Vestmannaeyjum Landssamband framsóknarkvenna heldur námskeið í Vest- mannaeyjum fyrir konur á öllum aldri dagana 11., 12., og 13., október n.k. í Gestgjafanum við Heiðarveg, námskeiðið hefst 11. október kl. 20.00. Veitt verður leiðsögn í styrkingu sjálfstrausts, ræðumennsku, fundarsköpum og framkomu í útvarpi og sjónvarpi. Leiðbeinandi verður Unnur Stefánsd. Pátttaka tilkynnist til Guðbjargar í síma 98-2423. Framsóknarfélag Garðabæjar heldur fund laugardaginn 12. október kl. 5 að Goðatúni 2. Fundarefni: Kjördæmisþing 19. október n.k. Kjördæmisþing á Reykjanesi Kjördæmisþing framsóknarmanna í Reykjaneskjördæmi verður haldið í Garðaholti laugardaginn 19. okt. Dagskrá auglýst síðar. Stjórnin. Akranes Aðalfundur fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna á Akranesi verður haldinn miðvikudaginn 16. okt. n.k. kl. 20.30 í Framsóknarhúsinu, Sunnubraut 21, Akranesi. 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Undirbúningur bæjarstjórnarkosninga 1986. 3. Önnur mál Stjórnin Fulltrúaráðið í Kópavogi Aðalfundur fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna i Kópavogi verður.haldinn fimmtudaginn 17. okt. kl. 20.30 í Hamraborg 5. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin Konur Árnessýslu Aðalfundur Félags framsóknarkvenna í Árnessýslu verður haldinn að Flúðum fimmtudaginn 17. október og hefst hann kl. 21.00. Framsöguerindi: Drífa Sigfúsdóttir, ræðir um'Jram- boðsmál. Kosnar verða konur á kjördæmisþing. Nýir félagar velkomnir. Mætum allar eldhressar. Stjórnin. íbúð óskast 3ja herbergja íbúö óskast í Vesturbæ. Upplýsing- ar í síma 12153 eftir kl. 7.00. t Helgi Helgason, Hjallavegi 3, Ytri Njarðvík, verður jarðsunginn frá Ytri-Njarðvikurkirkju laugardaginn 12. október kl. 14. Margrét Kristjánsdóttir, Bára Helgadóttir, Halldór Arason, Jenný Jónsdóttir, Grétar Helgason, Guðrún Þorsteinsdóttir, ValgeirHelgason, GuðlaugBergmann, SævarHelgason, Ragnheiður Skúladóttir, Guðjón Helgason, Sveinborg Daníelsdóttir, Jón Helgason, ValdísTómasdóttir og barnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Soffíu Ólafsdóttur, Leifsgötu 10, áöur Hverfisgötu 58A. Guðmundur Guðlaugsson, Gunnar Guðlaugsson, Pétur Guðlaugsson, Ásólfur Guðlaugsson, Margrét Guðlaugsdóttir, Sigrún Guðlaugsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn. EC Föstudagur 11. október1985 10 H| ónamiimi Asgerður Bjarnadóttir og Jón Snæbjörnsson Aldrei er svo bjurt yfir öðlingsmanni að eigi geti syrt eins sviplega og nú; og aldrei er svo svart yfir sorgarranni, að eigi geti birt fyrir eilífa trú! MJ í dag verður jarðsett mág- kona mín Ásgerður Bjarnadótt- ir Háaleitisbraut 30, aðeins tæp- um mánuði síðar en eiginmaður hennar. Vart getur ólíkari aðdrag- andi að andláti en það hvernig þeirra bar að. Ása, eins og hún var oftastköliuðafvinumsínum, I liáði sitt langa og erfiða dauða- stríð og heita mátti allt frá því að sjúkdóms hennar varð vart í febrúarsl. og til hinstu stundar. Eiginmaður hennargekk heill til skógar, að því vitað var, allt til þess að hann hneig niður fyrir framan vinnustað sinn og lést hálfum sólarhring síðar, án þess að hafa komist til meðvitundar. Síðustu mánuðir hafa vafa- laust verið honum erfiðir þótt ekki bæri hann það á torg, enda slíkt ekki líkt Jóni. Hann eins og aðrir ástvin- ir Ásgerðar áttu mörg þung spor að og frá sjúkrabeði hennar, þar sem þeir voru svo vanmáttugir. Þrátt fyrir það var Herdís dóttir hennar alla stund óþreytandi í umönnun sinni. Læknum og hjúkrunarfólki eru þakkir færðar fyrir að gera allt sem í mannlegu valdi stóð til að létta henni síðustu stundirnar. Ástrík santbúð þeirra hafði varað í fjörutíu ár, því trúlofun sína opinberuðu þau I7. júní I945 og gengu í hjónaband á annan í jólum það sama ár. Lengst af þeim tíma hefi ég notið þess að geta talið niig til vina þeirra og tel það hverjum lán að eiga slíka að virium. Eins og fram kom í minning- argreinum um Jón kom hann víða við og mun alstaðar hafa verið vel látinn. Það sem þá var skrifað um Jón og störf hans verður ekki frekar rakið hér. Hans aðeins minnst og þakkað. Ásgerður fæddist, eins og áður gat, fyrsta dag ársins 1920 að Svertingsstöðum í Miðfirði og hlaut síðar nafn föðurömmu sinnar. Foreldrar hennar munu ekki fyrr né síðar hafa hlotið betri nýársgjöf. Hún ólst upp hjá foreldrum sínum Margréti Sigfúsdóttur og Bjarna Björnssyni, í stórum systkinahóp, sú þriðja af átta börnum þeirra hjóna. Frá Svert- ingsstöðum fluttust þau að Upp- sölum þar sem þau bjuggu lengstum. Skólaganga Ásu var líkt og annarra barna þá, í forskóla sveitarinnar, en þó mun hún mest hafa notið tilsagnar móður sinnar, sem á sínum yngri árum var mjög vel látinn barnakenn- ari í sveit sinni en hafði þá látið af því starfi sem henni mun alla tjð hafa verið mjög hugleikið. Ása brást heldur ekki vonum hennar því barnaskólaprófi lauk hún meðfyrstuágætiseinkunn. Fljótlega eftir að Ása fluttist úr foreldrahúsum fór hún til ísa- fjarðar og lauk þar námi í Hús- mæðraskóla ísafjarðar. Eftir það fluttist hún til Reykjavíkur og vann þar um tíma við vefnað en tók síðar við forstöðustarfi á saumaverkstæði bróður síns Sigfúsar sem lengst af var kenndur við Heklu. Á þeim tíma kynntist hún manni sínum. Eftir það helgaði hún sig heimili sínu, eiginmanni og börnum, eftir að þau komu. Nokkra vinnu stundaði hún þó af og til utan heintilis og árið 1977 stofnaði hún ásamt systur sinni hannyrðaverslun í Kópa- vogi og rak hana með henni í nokkur ár þar til hún hætti og seldi systur sinni hlut sinn. Börn Ásgerðar og Jóns eru: Bjarni rafmagnsverkfræðingur kvæntur Þuríði Stefánsdóttur kennara og eiga þau fjögur börn. Herdíshjúkrunarfræðing- ur gift Stefáni Rögnvaldssyni verkstjóra, börn þeirra eru tvö. Snæbjörn sem stundar nám í rafmagnsverkfræði í Þýska- landi. Börnum sínum þremur reyndust þau hjónin eins og foreldrum er best unnt og hefðu aldrei talið þakkavert, slíkt var of sjálfsagt. Hin síðari ár, eftir að börnin voru uppkomin, sneru þau sér meir að því að sinna eigin áhugamálum og vakti aðdáun hversu vel þau nutu lífsins heima og heiman og þess að ferðast saman víða á framandi stöðum, enda munu þau hafa gist eða heimsótt flest lönd þess- arar álfu. Jón hafði einnig mikla ánægju af ferðalögum innanlands, ekki hvað síst af gönguferðum um fjöll og óbyggðir. Þeirrar ánægju urðum við hjónin að- njótandi að fara með honum ásamt fleirum, á vegum Ferðafé- lags fslands, undir lians farar- stjórn, í hans síðustu fjallgöngu sem farin var um sl. verslunar- mannahelgi. Margt ógleymanlegt hafa góð skáld okkar ícveðið um móður sína og móðurástina. Sú móðir var Ásgerður að flest það sem þar hefur best verið sagt og ég hefi lesið finnst mér gæti átt við um hana. Guð blessi ykkur hjónin á þessari langferð sem nú er hafin. Börnum ykkar, tengdabörnum og barnabörnum sendum viö hjónin innilegar samúðarkveðj- ur og óskir um styrk á þrauta- tímum. Ég veit að Ása og Jón myndu vilja þakka börnum sínum fyrir alla samveruna og hve vel þau vanda sína hinstu umönnun og kveðjur og þetta fallega vers Matthíasar leyfi ég mér að velja sem kveðju þeirra. Bcr nú, minn blíði börnum okkar elsku mína og andlátsbænir; inn þeim og inn allt hið besta, seg milt og mjúkt: „mömmu er batnað Kjartan Ólafsson. Ásgerður tengdamóðir mín lést á Borgarspítalanum 3. október eftir þungbært stríð. Hún var fædd I. janúar 1920 að Svertingsstöðum í Miðfirði, V-Hún. Foreldrar hennar voru hjónin Margrét Sigfúsdóttir kennari og Bjarni Björnsson bóndi. Hún var þriðja í röð átta systkina. Fjölskyldan fluttist seinna að Uppsölum í sömu sveit þar sem Ásgerður ólst upp og kenndi hún sig jafnan við þann stað. 18 ára gömul fer hún til Reykjavíkur og dvelur hjá Sigfúsi bróður sínum og konu hans Rannveigu. Veturinn 1940 fer hún til ísafjarðar á Hús- mæðraskóla. Eftir það heldur hún aftur til Reykjavíkur og vinnur við vefnað um tíma, en gerðist síðar verkstjóri í fata- verksmiðjunni Herkúles sem Sigfús bróðir hennar rak. Þar starfaði hún þangað til hún giftist lífsförunaut sínum Jóni Snæbjörnssyni á annan dag jóla 1945. Eftir það snýr hún sér alfarið að heimilsstörfum og býr þeim hlýlegt heimili sem lengst af var að Háaleitisbraut 30. Þau eignuðust þrjú börn, Bjarna rafmagnsverkfræðing kvæntan Þuríði Stefánsdóttur, Herdísi hjúkrunarfræðing gifta Stefáni Rögnvaldssyni og Snæbjörn verkfræðinema sem er ókvænt- ur. Barnabörnin eru orðin sex. Reyndist Ásgerður börnum sín- um hin besta móðir og voru þau umvafin kærleika og ástúð frá fyrstu tíð. Þegar börnin uxu úr grasi breytti Ásgerður um lífsstíl, setti meðal annars á stofn versl- un ásamt systur sinni og versl- uðu þær með hannyrðavörur. Var það engin tilviljun að hann- yrðavörur urðu fyrir valinu því hún var mjög snjöll saumakona og mikið gefin fyrir alla handa- vinnu. Það var þeim Ásgerði og Jóni sameginlegt áhugamál að ferðast um heiminn og njóta lífsins saman sem þau og gerðu óspart hin seinni ár. Svo sam- rýmd og samtaka voru þau að undrun sætti. Að mörgu leyti voru þau eiginlega eins og nýtrú- lofuð. Kynni okkar hófust árið 1974 þegar ég kém inn á heimili Ásgerðar og Jóns sem kærasti einkadóttur þeirra. Það voru mín mestu gæfuspor. Ásgerður var eintaklega góð í viðkynn- ingu og var hún mér mjög kær. Minnisstæðareru mérallarmín- ar heimsóknir á Háaleitisbraut- ina vegna þeirrar ánægju sem þær veittu mér. Ljóst var snemma á þessu ári að Ásgeíður var haldin banvæn- um sjúkdómi. Jón reyndist henni einstaklega vel í þessu veikindastríði, en hans naut ekki við síðustu 4 vikurnar sem hún lifði, þar sem hann lést af völdum hjartaáfalls hinn 6. sept- ember sl. Það er sárt að sjá á bak svo góðu fólki sem tengdaforeldrar mínir voru og sorglegt að litli Jón Hannes og Ásgerður Drífa skyldu ekki geta notið lengur samvista við „ömbu“ sína og afa, en það kölluðu þau hana alltaf. En það er mér og fjölskyldu minni huggun harmi gegn að minningarnar um þau er allar Ijúfaroggóðar. Betri tengdafor- eldra hefði ég ekki getað hugsað mér. Að lokum vil ég þakka lækn- um og hjúkrunarfólki á deild A-3 við Borgarspítalann fyrir alla þá góðu umönnum og aðhlynningu sem Ásgerður naut. Stebbi tcngdasonur. Kyrrð dauðans er komin yfir. Hún er laus úr viðjum hins þungbæra sjúkdóms. Dagurinn eilífi er runninn upp. Minn- ingarnar streyma fram um hana, sem ætíð átti gnægð ástúðar og umhyggju að gefa, livað sem á bjátaði. Fagrar, dýrmætar perlur, sem ekkert fær eytt og aldrei fellur á. Lifandi áhuginn og glöggur skilningur á öllu, er verða mætti börnum og barnabörnum til far- sældar og þroska, hvort sem það var skólastarf af einhverju tagi eða annað, verður ógleym- anlegt. Ávallt svo hvetjandi og skap- andi í lífi og starfi. Hlutverkið móðir, lífsförnunautur, hús- móðir. Hversu stórt og fagurt það verður í höndum slíkrar konu, öllum hlutverkum stærra. Sem bliknar fagurt blóm á engi. Svo bliknar allt, sem jarð- neskt er. Ei standa duftsins dagar lengi. Þótt dýran fjársjóð geymi í sér. Það eitt, er kemur ofan að, um eilífð skín og blómgast það. Eg þakka af hjarta að hafa fengið að kynnast þér sem Tengdadóttir

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.