NT - 11.10.1985, Blaðsíða 19
MOLAR... MOLAR
Auglýsing um deiliskipulag og
breytingu á Aðalskipulagi Reykjávíkur
TILLAGA AÐ DEILISKIPULAGI SKÚLAGÖTUSVÆÐISINS
Föstudagur 11, októberl 985 19
íþróttalæknar
- stofna með sér samtök
■ Fyrir stuttu var haldinn framhalds-
stofnfundur íþróttalækningafélags ís-
lands að Hótel Loftleiðum.
Undirbúningur hefur staðið síðan í
fyrravetur og var fyrri fundur að stofnun
félagsins haldinn í apríl á þessu ári.
Til stofnunar félagsins var boðið
læknum, sjúkraþjálfurum og öðrum sem
starfa við skyldar greinar.
Markmið félagsins er að auka innlent
samstarf um íþróttalæknisfræðileg efni,
bæði hvað varðar almenningsíþróttir og
keppnisíþróttir.
Iþróttalæknisfræði fjallar um:
a) Fyrirbyggingu meiðsla
b) Meðferð á íþróttameiðslum
c) Leiðbeiningu um þjálfun
d) Endurhæfingu eftir íþróttameiðsl.
Félagið aétlar að láta til sín taka við
kennslu, námskeiðahald og rannsóknir
innan íþróttalæknisfræði.
Félagið mun ganga í alþjóða íþrótta-
læknisfræðifélagið (F.I.M.S., Federat-
ion Internationale de Medicien Sportive,
sem hefur 80 aðildarþjóðir.) Einnig mun
félagið leita eftir samstarfi við sambæri-
leg félög á hinum Norðurlöndunum.
Til fundarins nú var boðið tveimur
erlendum fyrirlesurum, þeim Einari Eir-
íkssyni, sem er þekktur sænskur læknir
frá Stokkhólmi og er hann núverandi
forseti F.I.M.S. og Ingu Arvidsson,
sjúkraþjálfara, frá Karolinska sjúkrahús-
inu í Stokkhólmi.
Til þessa undirbúningsstarfs hefur fé-
lagið notið styrkja frá Sjóvá, Pharmaco,
Austurbakka hf. o.fl.
í lok fundarins var kosin 5 manna stjórn, sem í
eiga sæti:
Stefán Carlsson læknir, sem er formaður
Grímur Sæmundsen, læknir
Andrés F. Kristjánsson, sjúkraþjálfari
Kristin Guðmundsdóttir, sjúkraþjálfari
örn Ólafsson, stoðtækjasmiður
Guðmundur R. Magnússon, stoðtækjasmiður.
LindarcaCa
Sölvliólsgata
Handknattleikur:
Landsliðið valið
Með vísan til 17. og 18. gr. laga nr. 19/1964, er hér með auglýst
deiliskipulagstillaga Skúlagötusvæðisins sem afmarkast af Sætúni,
Snorrabraut, Hverfisgötu og Ingólfsstræti.
Tillagan felur í sér landnotkunarbreytingu og breytingu á umferðarkerfi á
staðfestu Aðalskipulagi Reykjavíkur.
Uppdrættir, ásamt líkönum og greinargerð liggja frammi almenningi til
sýnis á skrifstofutíma í Byggingarþjónustunni, Hallveigarstíg 1, fráog með
föstudeginum 11. okt. til 22. nóv. 1985. Á miðvikudögum milli kl. 16.00 og
18.00 munu höfundar og/eða fulltrúi Borgarskipulags mæta á staðinn og
svara fyrirspurnum varðandi tillöguna.
Athugasemdir, ef einhverjar eru, skal skila skriflega á sama stað eigi síðar
en kl. 18.00, föstudaginn 6. des. 1985.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir
breytingunni.
Reykjavík, 11. október 1985.
Borgarskipulag Reykjavíkur
Þverholti 15,
105 Reykjavík.
■ Landsliðið í handknattleik
heldur utan þann 17. október
og verða Þjóðverjar fyrst sóttir
heim. Par leikur liðið þrjá leiki
og eru mótherjarnir allir svo-
kölluð „íslendingalið". Fyrst er
að nefna Lemgo, lið Sigurðar
Sveinssonar. Þá verður leikið á
móti Wanne-Eickel sem Bjarni
Guðmundsson leikur með og
loks liði Kristjáns Arasonar,
Hameln.
Eftir Þýskalandsförina verð-
ur skroppið yfir til Sviss en þar
tekur liðið þátt í alþjóðlegu
móti. Lið frá R,úmeníu, A-
Þýskalandi, Svíþjóð og að sjálf-
sögðu Sviss taka einnig þátt í
mótinu og verður örugglega um
hörkukeppni aðræða. Landslið-
ið kemur síðan heim 29. okt-
óber og verður þá 1. deildar-
keppninni startað á fullt aftur.
Ekki er alveg víst hverjir fara
út með liðinu en eftir því sem
NT komst næst í gær eru eftir-
taldir örugglega í hópnum:
Kristján Sigmundsson, Víkingur
Brynjar Kvaran, Stjarnan
Þorbjörn Jensson, Valur
Þorgils Óttar Matthiesen FH.
Geir Sveinsson, Valur
Jakob Sigurðsson, Valur
Valdimar Grímsson, Valur
Guðmundur Guðmundsson, Víkingur
Jón Árni Rúnarsson, Fram.
HSÍ helfur reyndar átt í tals-
verðum erfiðleikum með að
stilla upp hópnum þar sem í
mörg horn
hornið
er að líta. Versta
er sjálfsagt hvernig
mennirnir sem leika erlendis
komi til með að passa inn í allt
heila prógrammið. NT hafði
samband við Jón Erlendsson
hjá HSÍ og sagði hann að nokk-
uð vel liti út með þátttöku
„útlendinganna“. Þeir verða
því líklega þessir:
Einar Þorvar&arson, Tres de Mayo
Sigurður Gunnarsson, Tres de Mayo
Hans Guðmundsson, Canteras
Páll Ólaísson, Dankersen
Kristján Arason, Hameln
Bjarni Guðmundsson, Wanne-Eickel
Þorbergur Aðalsteinsson, Saab
Atli Hilmarsson, Gúnsburg
Alfreð Gislason, Essen.
Þrír fyrsttöldu - þeir sem
leika á Spáni - eru ekki alveg
öruggir og var beðið niðrá skrif-
stofu HSI í gær eftir að þeir
hefðu samband. Hinir eru nær
pottþéttir. Sigurður Sveinsson
er meiddur. Menn eins og Júlíus
Jónasson og Ellert Vigfússon úr
Val og Egill Jóhannesson Fram
eru svo inní myndinni ef eitthvað
skyldi bregða útaf.
Hópurinn kemst svo líklega
alveg á hreint eftir helgina og
verður þá „opinber" tilkynning
væntanlega birt. Á meðan getur
fólk tuðað yfir valinu en óneit-
anlega er hópurinn sterkur á
pappírunum.
Knattspyrna:
Ölæti í Leicester
■ Mikil ólæti brutust út í Leic-
ester eftir leik Leicester og
Derby í deildarbikarnum í fyrra-
kvöld. Éins og menn kannast
við þá sigraði Derby í leiknum
en þeir spila í 3. deild. Nokkur
hundruð ungmenni veittust að
lögreglunni og köstuðu að henni
öllu lauslegu auk þess að velta
bílum og brjóta rúður í verslun-
um og kveikja í.
Fréttaskýrendur telja að þessi
ólæti tengist á vissan hátt þeim
óeirðum sem átt hafa sér stað í
borgum í Bretlandi að undan-
förnu og stafa mikið til af at-
vinnuleysi og svartri framtíð
ungs fólks í Bretlandi. Knatt-
spyrnuleikurinn og tapið fyrir
Derby hafi bara verið neistinn
sem vantaði.
Kennsla í tennis
Byrjendanámskeið að hefjast - Gott tækifæri fyrir áhugafólk
marksfjöldi á námskeið er 8.
Þetta er gott tækifæri fyrir þá er
áhuga hafa á tennisíþróttinni.
■ Tennisnefnd IK stendur fyr-
ir byrjendanámskeiðum í tennis
í íþróttahúsi Kársnesskóla í
Kópavogi og munu þetta vera
sex vikna námskeið fyrir börn
10-14 ára og einnig eru sérstök
kvennanámskeið á boðstólum.
Leiðbeinandi er ein besta tenn-
iskona hérlendis, Margrét Svav-
arsdóttir, en hún er lærður tenn-
isþjálfari og hefur kennt íþrótt-
ina í mörg ár erlendis.
Námskeiðið fyrir börn verður
á sunnudögum kl. 15:15-16:00
og hefst 13. október. Kvenna-
námskeiðið verður einnig á
sunnudögum kl. 16:00-16:45 og
hefst sama dag og barnanám-
skeiðið.
Þátttökutilkynningar skulu
berast Guðnýju Eiríksdóttur í
síma 45991 sem fyrst. Há-
■ Atli Hilmarsson og Þorbjörn Jensson verða í eldlínunni með landsliðinu.
Tínumynd: - Ámi Sxberg.
... Tennisstjarnan John McEnroe varð
að bíta í það mjög svo súra epli að tapa
fyrir Ivan Lendl í sýningarleik í New
Jersey í Bandaríkjunum í gær. Lendl
vann leikinn 7-5 og 6-4. Eins og svo oft
áður þá tók McEnroe úrslitunum illa.
Hann var sífellt að rífast í dómaranum
og kastaði líka óvinalegum kveðjum
að áhorfendum. í lokin varð hann
síðan saltvondur við sjálfan sig og
sagði við fréttamenn eftir leikinn að
hann hefði niðurlægt sjálfan sig með
slíkri frammistöðu...
... Belgíski knattspyrnumaðurinn
Ludo Coeck, sem nú síðast spilaði
með Inter Mílanó á Ítalíu lést í vikunni
eftir að hafa lent í bíislysi. Coeck var
30 ára og hafði leikið 46 landsleiki
fyrir Belga. Hann stóð sig mjög vel á
HM á Spáni ’82 og var eftir það
keyptur til Inter frá Anderlecht. Hann
spilaði þó lítið með Inter vegna
meiðsla...
... Alþjóðahnefaleikasambandið mun
í næstu viku koma saman til að ræða
tillögu þess efnis að hnefaleikaköpp-
um sem staðið hafa sig vel í keppni
verði greidd eins konar eftirlaun eftir
að þeir draga sig í hlé. Formaður
sambandsins, Sulaiman, sagði að það
væri hörmulegt að horfa uppá þessa
glæstu íþróttamenn verða að engu
eftir aö ferlinum er lokið og væri það
yfirleitt lélegri eða svikinni stjórnsýslu
að kenna. „Við viljum vera vissir um
að þessir menn geti lifað með reisn
það sem eftir er ævinnar.“...
... Fyrsta skólamótið í golfi verður
haldið á Grafarholtsvellinum sunnu-
inn 13. október n.k. Ræst veröur út
frá 10-12.
Keppnin er með og án forgjafar og
að þessu sinni einstaklingskeppni.
Keppnisgjald er ekkert og gefur Bóka-
verslun Eymundsson öll verðlaunin...
Stórleikur næsta vor
...Frakkland og Argentína munu heyja
landsleik þann 26. mars n.k. að því er
franska knattspymusambandið tilkynnti í vik-
unni. Leikurinn er hugsaður sem liður í
undirbúningi beggja undir lokakeppni
Heimsmeistaramótsins í knattspyrnu. Að
vísu hefur Frakkland ekki enn tryggt sér rétt-
inn til að leika þar sem Argentína, með
Diego Maradona í broddi fylkingar er þegar
komin í úrslitin og eru knattspyrnuskýrendur
flestir sammála um að þar verði þeir verulega
sterkir...