NT - 11.10.1985, Blaðsíða 18
M I M M H t i j
Föstudagur 11. október1985 18
Undirbúningurinn fyrir HM í Sviss:
Stórt dæmi
„Kostar um 11 milljónir,“ segir Jón Hjaltalín
hjáHSÍ
■ Pað kom fram í máli Jóns
Hjaltalín formanns HSÍ á blaða-
mannafundi sem HSÍ og OLÍS
boðuðu til í einni af bensín-
stöðvum OLÍS að kostnaður
við undirbúning handknatt-
leikslandslið íslands fyrir HM í
Sviss í febrúar á næsta ári verður
gífurlegur. „Við getum reiknað
með að það kosti um 11 milljón-
ir að undirbúa liðið og taka þátt
í HM,“ sagði Jón. „Hér er um
að ræða marga landsleiki, ferðir
utanlands og sjálfa HM-keppn-
ina í Sviss,“ bætti Jón við.
„Það hafa allir leikmenn sem
við höfum talað við lýst yfír
fullum vilja sínum að vera með
í undirbúningnum fyrir keppn-
ina og undirbúningur okkar
miðast við að ná góðum árangri
í Sviss,“ sagði Jón. Hann bætti
einnig við að styrkur eins og sá
sem OLÍS veitir HSÍ væri
ómetanlegur og auðveldaði
þeim allan undirbúning. Hann
kvað ýmsa aðila hafa tekið
málaieitan HSÍ vel varðandi
undirbúninginn og þar á meðal
stjórnvöld þessa lands.
Jean Tigana hefur átt við meiðsl að stríða að undanförnu og hefur það veikt landslið Frakka. Hann var stórsnjall á EM ’84.
Franska knattspyrnan:
Hallarundanfæti
Landsliðið hefur átt erfitt uppdráttar að undanförnu - Félagsliðin hrundu úr Evrópukeppnunum
■ Frönsk knattspyrna, sem
hreinlega blómstraði í fyrra, á
nú erfítt uppdráttar og gamlir
veikleikar eru aftur komnir upp
á yfirborðið. Aðeins eitt franskt
félagslið komst áfram í Evrópu-
keppnunum og landsliðið, sem
verið hefur stolt þcirra Frakka
undanfarin ár, er alls ekki ör-
uggt með sæti í úrslitum Heims-
ineistarakeppninnar í knatt-
spvrnu.
Já, það er af sem áður var,
því í fyrra var frönsk knatt-
spyrna á vörum hvers einasta
unnanda snjallrar lcikni og
skemmtilegra sóknarflétta.
Michcl Platini og félagar sigr-
uðu í Evrópukeppni landsliða
og sýndu á köflum frábæra
...Martina Navratil-
ova sigraði Steffí Graf frá
V-Þýskalandi í úrslitaleik
á tennismóti í Fort Lau-
derdale í Florida 6-3 og
6-1. Eftir leikinn sagði
Navratilova, scm nú er
skráð sem sú næst besta í
heiminum: „Sigurinn var
enginn léttir fyrir mig en
tap hefði verið hrylli-
legt.“ Martina hafði fyrir
þennan sigur tapað
tveimur úrslitaleikjum í
röð. Á Opna-kanadíska
og Opna-bandaríska...
...Gidamis Shahanga
frá Tanzaniu sigraði í 10
kílómetra hlaupi í Kali-
forníu um síðustu helgi.
Þrátt fyrir mikið rok á
slóðum hlaupsins þa' náði
karlinn upp góðum hraða
og kom í mark nokkru á
undan Steve McCormick
frá Bandaríkjunum. í
kvennaflokki sigraði
Lynn Williams frá Kan-
anda en önnur varð Rosa
Mota frá Portúgal...
...Daginn fyrir 10 km
hlaupið fór fram mílu-
hlaup á sama stað í Kali-
forníu og þar sigraði
Steve Ovett frá Bret-
landi. Hann kom í mark
á 3:55,13 nn'n. Næstur
varð írinn Frank O’Mara
á 3:55, 60 mínútum...
knattspyrnu. Uni haustið hélt
liðið áfram sigurgöngu sinni
undir stjórn nýs framkvæmda-
stjóra, Henri Michel. Liðið sigr-
aði í þremur fyrstu leikjunum í
undankcppninni fyrir Heims-
meistaramótið í Mexíkó og
Frakkar héldu uppá jólin ger-
samlega áhyggjulausir.
Þeir vissu ekki greyin hvað
biði þeirra á nýju ári.
Þetta ár hefur nefnilega
reynst Frökkum hroðalegt í alla
staði. Landsliðið hefur ekki
unnið leik i undankeppninni -
tapað tveimur og gert eitt jafn-
tefli. Gamlirveikleikarfranskra
knattspyrnumanna hafa rétt
einu sinni skotið upp kollinum
m.a. sú árátta að geta ekki
leikið vel á útivöllum. Ósigurinn
gegn Búlgörum í Sofía í maí,
2-0, var reyndar fyrsta tap liðs-
ins í 16 leikjum en Frakkar lágu
líka í Leipzig gegn A-Þjóðverj-
um nýlega og ekkert má nú fara
úrskeiðis í síðustu tveimur
leikjunum í undanriðlinum.
Leikirnir sem eftir eru verða
gegn Lúxemborg á útivelli og
Júgóslövum heima í París. Liðið
þarf að sigra í báðum þessum
leikjum og á gömlu góðu papp-
írunum virðist það vera mjög
svo líklegt. Hins vegar hefur
franska liðinu ekki tekist að
skora í undankeppninni þetta
árið svo breytinga er þörf ef
dæmið á að ganga upp. Að vísu
ber þess að geta að Frakkar
hafa áður lent í svipaðri aðstöðu
og komið út sem sigurvegarar.
Þeir þurftu að vinna Búlgari
1977 og Hollendinga 1981 til að
komast í úrslitakeppnina - það
gerðu þeir.
Einhvern veginn er það svo
að flestir vilja fá Frakka í úr-
slitakeppnina í Mexíkó enda
hefur skemmtileg knattspyrna
ekki alveg yfirgefið liðið þó illa
gangi í stigasöfnuninni. Þar að
auki gæti þetta verið síðasta
tækifærið til að sjá kappa á borð
við Platini, Giresse og Tigana
því þeir, ásamt fleiri frönskum
stjörnum, eru nú yfir þrítugt.
Félagsliðum þeirra Frakka
gengur jafnvel enn verr en
landsliðinu því aðeins eitt þeirra
komst í aðra untferð Evrópu-
keppnanna í knattspyrnu. Það
er lið Nantes sem, eins og
kunnugt er, vann samanlagt
nauman sigur á Valsmönnum.
Jean-Claude Suaudeau, fram-
kvæmdastjóri Nantes, var illur
eftir fyrri leikinn eins og fram
kom í viðtali er franska blaðið
L’Equipe átti við hann: „Þetta
var ótrúlegt. Við fórum til ís-
lands til að tryggja okkur áfram
í aðra umferð en þess í stað
blasir við okkur sú staðreynd að
sigur hér heima er nauðsynleg-
ur." Suaudeáu benti einnig á að
hikandi og ógnunarlaus knatt-
spyrna franskra liða á útivöllum
væri „furðulegt sálfræðilegt
fyrirbæri" sem vinna þyrfti bug
á sem skjótast.
Eins og áður sagði duttu öll
hin liðin úr keppni og var útreið
meistaraliðsins Bordeaux einna
háðlegust. Liðið, sem hefur á
að skipða mönnum eins og Gir-
esse og Tigana, tapaði fyrir
tyrkneska liðinu Fenerbahce.
■ Michael Platini hampar hér Evrópumeistarabikarnum árið
1984. Nú er allt á niðurleið.
HSÍ og OLÍS gera samning:
Safnid í landslið
Hægt verður að vinna sér inn knött með viðskiptum við OLÍS sem aftur
kemur HSÍ tii góða
Enski deildarbikarinn:
United-West Ham
- og City mætir Arsenal í þriðju umferð
■ í gær var dregið í enska
deildarbikarnum í knattspyrnu
þriðju umferð. Nokkrir leikir á
milli 1. deildarliða komu upp og
má sjá stórleiki eins og
Man.City og Arsenal og
Man.Utd. gegn West Ham.
Annars lítur drátturinn þannig
út:
Watfor-QPR.
Derby-Nott.Forest.
Shrewsbury-Everton.
Luton-Norwich.
Birmingham-Southampton.
Man.City-Arsenal.
Portsmouth-Stoke.
Liverpool-Brighton.
Man.Utd.-West Ham.
Swindon-Brentford/Sheff.Wed.
Leeds-Aston Villa
Coventry-West Brom.
Oxford-Nowcastle.
Chelsea-Fulham.
Grimsby-Ipswich.
Orient/Spurs-Wimbledon.
Leikirnir verða spilaðir 28. til
30. október.
Siggi með sex
■ Sigurður Gunnarsson
og Einar Þorvarðarsson hjá
spænska liðinu Coronas
Tres de Mayo urðu að
sætta sig við tap fyrir Atlet-
ico Madrid í spænska hand-
knattleiknum um síðustu
helgi. Sigurður og Einar
áttu þokkalegan dag og
gerði Siggi sex mörk.
Hans Guðmundsson og
félagar hjá Canteras spil-
uðu ekki um helgina.
■ Handknattleikssamband Is-
lands og OLÍS hafa gert með sér
samning sem felur í sér marg-
háttaða samvinnu þessara
tveggja aðila. Fyrst og fremst er
hér um styrk frá OLIS að ræða
til HSÍ en um leið munu báðir
aðilar einbeita sér að því að
styrkja handknattleiksíþróttina
á íslandi og efla útbreiðslu
hennar. Styrkur OLÍS er einn
sá öflugasti sem fyrirtæki hér-
lendis veitir til íþróttamála.
OLÍS mun á næstu fimm
mánuðum veita HSÍ í styrk
fimm aura af hverjum bensín-
lítra sem keyptur verður hjá
fyrirtækinu. Miðað við sölu
ÓLÍS í fyrra þá eru þetta um
800 þúsund til ein milljón króna.
Þá munu allir þeir er kaupa
bensín hjá OLÍS fyrir meira en
500 krónur fá mynd af einum
landsliðsmanni að eigin vali.
Þegar svo safnað hefur verið sjö
leikmönnum þar af einum
markverði þá mun viðkomandi
fá afhentan handknattleiks-
knött. Þannig mun 400 hand-
boltum verða dreift og er víst að
þetta mun ýta undir handknatt-
leiksiðkun á íslandi. Hverjum
bolta mun einnig fylgja mynd
mynd af landsliðinu og miði á
einhvern þeirra landsleikja sem
fyrirhugaðir eru í vetur.
Auk þessa stuðnings þá mun
OLÍS taka þátt í að auglýsa
landsleiki, sjá jafnvel um miða-
sölu og sitthvað fleira er á döf-
inni hjá OLÍS og HSÍ í sam-
krulli.
HalldórtilBeveren
■ Halldóri Áskelssyni knatt-
spyrnumanni frá Þór Akureyri
hefur verið boðið til Beveren í
Belgíu til að líta á aðstæður
með samning við félagið í huga.
Það er Þjóðverjinn Reinke sem
haft hefur milligöngu í þessu
máli og mun Halldór fara utan
á mánudag. Hvað verður er
undir ýmsu komið en Halldór er
einn okkar efnilegasti leikmað-
ur.
Tveirtil Sheffield
■ Tveir knattspyrnuþjálfarar
frá ÍK, Helgi Þórðarson og
Grétar Bergsson, eru á förum
til Englands þar sem þeir fylgj-
ast með æfingum hjá Sheffield
Wednesday, liði Sigurðar Jóns-
sonar. Þeir munu dvelja hjá
félaginu um tíu daga skeið.
Helgi og Grétar eru báðir þjálf-
arar yngri flokka hjá ÍK.