NT - 11.10.1985, Síða 4

NT - 11.10.1985, Síða 4
 > v 4 ►faví Loðnudeilan: Lausn í sjónmáli? Föstudagur 11. október1985 4 ■ Á Siglufirði var SOdarverksmiðjan að stöðvast í gær þar sem engri loðnu hefur verið landað þar. Dræm veiði: Búið að salta í 20 þús. tunnur Mikil síld, en of djúpt ■ Eins og fram kcmur í töflunni „loönuvertíðin í tölum“, var heildaraflinn rétt rúm 146 þús. tonn um síðustu helgi. Um og eftir helgina var lítið að gerast hjá loðnubátunum og það var ekki fyrr en í fyrrinótt og í gær að fjörkippur færðist í veiðarnar. Seinnipartinn í gær höfðu um þrjátíu bátar tilkynnt um afla og var útlit fyrir góða veiði í nótt. Eins og komið hefur fram í fréttum, hafa loðnusjó- menn verið óánægðir með breytta aðferð við sýnatöku til mælingar á þurrefnis- og fituinnihaldi loðnunnar. Breytingin felst í því, að nú eru sýni tekin eftir löndun fisksins, en voru áður tekin um borð í skipunum. Aðferð þessi var tekin upp eftir að lágmarksverð á loðnu til bræðslu var ákveðið 30. sept- ember síðastliðinn. Lágmarksverðið, sem er 1290 kr/tonn, miðast við 16% fituinnihald og 15% fitufrítt þurrefni, og breytist verðið um 81 kr. til lækkunar eða hækkunar fyrir hvert 1% frávik í fituinnihaldi og um 87 kr. fyrir hvert 1% þurrefnismagns. Mælingar- aðferðin getur því skipt máli fyrir það verð sem fæst fyrir loðnuna, og telja seljendur nýju aðferðina óréttláta. I mótmælaskyni hafa loðnusjómenn ákveðið að landa ekki í Krossanesverk- smiðjunni og á Siglufirði og fóru engir bátar þangað í fyrrinótt eða í gær. Flestir sigldu með aflann á Austfirð- ina, Astandið mun þó ekki vera mjög slæmt í Krossa- nesverksmiðjunni og hefur verksmiðjan hráefni til um tveggja sólarhringa loðnu- bræðslu. Á Siglufirði var hins vegar öll vinnsla að stöðvast í gær vegna hráefn- isskorts. Komið hefur fram nokkur undrun meðal sfldarkaup- enda vegna þessara mót- mæla, þar sem þessi mæling- araðferð var ákveðin sam- hliða loðnuverðinu á sínum tínia og þar með voru það fulltrúar kaupenda og odda- maður yfirnefndar sem að baki henni stóðu. Fari svo að deilan dragist á langinn getur það sett strik í loðnuveiðarnar þar sem loðnan er nú fyrir norðan og því þessar tvær hafnir einna næstar miðunum. í gær var unnið að lausn málsins og deiluaðilar rædd- ust við. Þegar NT hafði sam- band við Þorstein Gíslason stjórnarformann Síldarverk- smiðja ríkisins í gær, sagðist hann fastlega reikna með að eitthvert samkomulag um umþóttunartíma, meðan nýrra leiða væri leitað.myndi nást mjög fljótlega. í öllu falli yrði slíkt reynt til þraut- ar áður en til róttækari að- gerða yrði gripið af hálfu fiskimjölsframleiðenda, sem myndi þá væntanlega þýða allsherjar lokun. Ymsar hugmyndir hafa verið uppi um málamiðlun, m.a. frá Guðjóni A. Krist- jánssyni að sýni verði tekin á mörgum stöðum úr aflanum um borð og svo líka í landi, og síðan reiknað meðaltal allra sýnanna. Þegar síðast fréttist í gær- kvöld var fundur hjá Verð- lagsráði sjávarútvegsins, þar sem mál þetta var á dagskrá, en ekki var enn Ijóst hver niðurstaðan yrði. ■ Síldveiði hefur verið frekar dræm nú allra síðustu daga þó svo að menn hafi orðið varir við mikið af síld við Norðaustur- land. Að sögn Reynis Árnason- ar á Vopnafirði virðist svo sem megnið af síldinni sé í Bakka- flóa, Vopnafirði, Héraðsflóa og svæðinu þar út af, en gallinn sé hins vegar sá, að enn sem komið er standi hún of djúpt. Reynir sagði, að þeir bátar sem væru með dýpstu næturnar, eða 90 faðma, hefðu þó náð síldinni og sú síld sem komið hefði á land væri mjög góð. Um 14 bátar voru á síld í Bakkaflóa í nótt en aflinn dreifðist á hina ýmsu staði. Víðar urðu síldveiðibátar varir við síld í fyrrinótt og fékk til dæmis einn bátur góðan afla út af Stokksnesi í gærmorgun. Þó hefur aflinn verið lítill í heild fyrir Suðausturlandi. í gærmorgun var búið að salta síld í 14000 tunnur á landinu og var það nánast allt fyrir austan, á svæðinu frá Hornafirði til Vopnafjarðar. Að sögn Krist- jáns Jóhannessonar hjá Síldar- útvegsnefnd var verið að salta á þessu svæði í allan gærdag og sagði hann að reikna mætti með að búið yrði að salta í 20 þús. tunnur í gærkvöld. Stærsta einstaka söltunar- stöðin er Pólarsíld á Fáskrúðs- firði, en þangað komu Guð- mundur Kristinn og Snæfari með vel yfir 200 tonn af síld í gær. Guðmundur Kristinn var með fullfermi, eina ferðina enn, eða sem nemur 1500 tunnum. Þegar búið verður að vinna þennan afla hafa yfir 6000 tunn- ur verið saltaðar hjá Pólarsíld. Reikna má með að síldin fari að ganga upp hvað úr hverju, en það er ekki óalgengt að hún standi frekar djúpt til að byrja með. Verð á síld til frysting- ar og beitu ■ Á fundi sínum í gær ákvað Verðlagsráð sjávarútvegsins eftirfarandi lágmarksverð á síld til frystingar og frystingar á beitu fyrir yfirstandandi síldarvertíð: 1. Síld, 30 cm og stærri, hvert kg.....................Kr. 4.60 2. Síld, 25 cm að 30 cm, hvert kg.......................Kr. 3.10 Afhendingarskilmálar eru óbreyttir. Verð þetta var ákveðið með atkvæðum oddamanns og fulltrúa kaupenda gegn atkvæðum fulltrúa seljenda. Höfum á boðstól u m Hraðfrystitæki - með láréttum og lóðréttum plötum - af ýmsum stærðum, með og án kælivéla. Allar stærðir af frysti-kælivélum, stimpil og skrúfuþjöppur, fyrir R 22 - R 502 og ammoniak. Ennfremur öll stýritæki f. kæli-frystikerfi. Allt frá leiðandi fyrirtækjum. Framleiðum: Allar stærðir af lausfrystitækjum. Allt á einni hendi Framleiðsla • sala • þjónusta K Wf Kaeling hf Langholtsvegi 109 — Reykjavík Símar 32150-33838 K Wf Loðnuvertíðin í tölum - yfirlit til 5. október kvóti(tonn) fjöldi Landaðurafli Nafn skips og umdæmisnúmer: veiðif. 5.okt Albert GK: 31 9.800 12 6.907.035 Beitir NK: 123 13.300 2 2.316.140 BergurVE:44 9.400 6 3.019.168 Bjarni Ólafsson AK: 70 12.100 1 1.001.937 BörkurNK: 122 12.300 2 1.793.285 Dagfari ÞH: 70 9.500 2 463.338 Eldborg HF: 13 14.400 1 1.368.842 Krling KE: 45 9.000 6 2.622.604 FínilGK: 54 9.900 3 1.171.755 Gígja RE: 340 10.500 3 1.668.141 Gísli Árni RE: 375 9.900 13 8.358.116 Grindvíkingur GK: 606 12.100 8 8.194.905 Guðniundur RE:29 11.300 Guðmundur Ólafur ÓF: 91 9.800 Guðrún Þorkclsdóltir SU: 211 10.500 12 7.497.736 GullbergVE:292 9.800 4 2.188.100 Harpa RE:342 10.000 2 692.048 Hákon ÞH: 2511 10.800 9 5.531.053 Heimaey VE: 54 9.500 1 448.005 Helgali RE:373 9.600 HilmirSU: 171 13.2(81 1 539.651 HilmirllSU: 177 9.700 5 2.751.896 IlrafnGK: 12 10.100 10 6.535.607 Huginn VE:55 9.800 1 558.162 Húnaröst ÁR: 150 10.000 4 2.226.158 Höfrungur AK:95 11.200 3 2.446.716 ísleifur VE:65 10.5(81 7 4.860.987 Jón KjartanssonSU: 111 12.100 3 3.248.363 JúpíterRE: 161 13.100 8 8.667.409 JiifurKK: 17 9.100 Kapll VE:4 10.200 7 4.631.341 Keflvíkingur KE: 10(1 9.400 5 2.651.791 Ljósfari RE: 102 9.700 4 2.041.700 MagnúsNK:72 9.500 8 3.932.060 Pélur Jónsson RE: 14 10.800 5 3.633.007 Rauðsev AK: 14 9.700 8 4.737.116 Sighvatur Bjarnason VE: 81 10.200 3 1.929.579 SigurðurRE:4 13.500 2 2.807.500 SjávarborgGK:60 10.800 Skarðsvík SH: 205 9.800 9 5.759.877 SúlanEA:300 10.800 9 6.731.395 SvannrRE:45 10.2(81 11 7.876.014 SæbergSU:9 9.800 7 3.188.959 Víkingur AK: 100 13.200 1 1.041.690 VíkurbergGK: 1 9.500 Þórður Jónasson EA: 350 9.400 Þórshamar GK: 75 9.800 ÖraKE: 13 9.800 14 8.172.370 Samtals: 508.400 222 146.211.556

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.