NT - 16.10.1985, Blaðsíða 4
f w Miðvikudagur 16. október 1985 4
lI; j Fréttir
Glæsilegur sigur Kasparovs
Hann hefur nú aftur náð forystunni í einvíginu
■ Garrí Kasparov vann sext-
ándu skákina í einvíginu unr
heimsmeistaratitilinn í gær og
hefur þar með náð forystunni í
einvíginu á nýjan leik. Skákin
var án efa hans besta í einvíg-
inu, allir bestu kostir meistarans
unga komu þar fram og lokin
hreint snilldarleg. Ósigurinn er
stórkostlegt áfall fyrir Karpov
sem hafði hvítt, en undanfarið
hafa menn þóst sjá þau merki
að þróun mála væri farin að
ganga honum í vil að nýju.
Skákin í gær gerir auðvitað út
um allar slíkar bollaleggingar
og kemur Karpov í sömu stöðu
og Kasparov hefur verið í
nokkrum undanförnum
skákum. Hann þarf nú að vinna
skák til þess að eiga von um að
halda titlinum og í augnablikinu
virðist fátt benda til þess að
honum takist að jafna metin
alveg á næstunni því hann virð-
ist alveg hafa gleymt því hvernig
fara á að því að vinna sxák.
Þetta er raunar nokkuð algeng-
ur háttur hjá honum í eivígjum.
Á löngum timabilum gengur
ekkert né rekur þó stundum
komi’ jafnteflin honum prýð-
isvel, en nú horfa málin öðruvísi
við, tíminn er að renna út, tveir
þriðju hlutar einvígisins eru að
baki og aðeins átta skákir eftir.
Spennan er í algleymingi og allt
getur gerst, en Kasparov er í
vígahug þessa dagana og virðist
heldur líklegri til að auka for-
skot sitt nú en að Karpov jafna
metin:
16. einvísisskák:
Hvítf: Anatuly Karpov
Svart: Garrí Kasparov
Sikileyjarvörn
1. e4 c5
2. RI3 e6
3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rc6
5. Rb5 d6
6. c4 R(6
7. Rlc3 a6
8. Ra3
(Karpov hefur haft viku til að
kanna réttmæti peðsfórnarinnar
sem Kasparov kom fram með í
12. skákinni og það er eins og
hann vilji sýna andstæðingi sín-
um fram á að hann sé albúinn í
slaginn. Áhorfendur sem fylltu
Tschaikovskí-höllina biðu
spenntir í nokkrar mínútur eftir
ákvörðun Kasparov. Lætur
hann slag standa, spurðu menn
í eftirvæntingu...)
8. .. d5
(Og ákvörðunin kom furðu
fljótt. Hann treystir betur á
sínar rannsóknirhelduren
Karpovs og hans aðstoðar-
manna sem ekkert hafa fundið
að viti í meira en 10 skákum.)
9. cxd5 exd5
10. exd5 Rb4
11. Be2
(Endurbótin á 12. skákinni
þar sem Karpov lék 11. Bc4 en
hörfaði snarlega til baka með
biskupinn eftir 11. Bg4. Karpov
hefur sjálfsagt átt von á því að
Kasparov myndi krækja sér í
peðið á d5, því eftir 11. Rbxd5
12. Rxd5 Rxd5 13. 0-0ásamt 14.
Bf3 hefur hvítur lítiö en þægi-
legt frumkvæði.)
11... Bc5!?
(En Kasparov hefur aðrar
meiningar. Hann var tiltölulega
fljótur að gera upp hug sinn og
lætur hjá líða að hirða peðið.)
12. 0-0 0-0
13. B(3 Bf5 15. Dd2 b5
14. Bg5 Hc8 16- Hadl Rd3!
(Það er ekki svo gott að segja
hvar hvítum hefur orðið á í mess-
unni í byrjunartaflmennskunni
en leikir hans hafa verið næsta
vélrænir og smátt og smátt lend-
ir hann í óyfirstíganlegum vand-
ræðum. Riddarinn á d3 lamar
allt athafnafrelsi hvítu mann-
anna og þrengslin eiga eftir að
aukast.)
17. Rabl h6
18. Bh4 bl!
(Hrekur riddarann út á kant en
þaðan á hann ekki afturkvæmt
um langt skeið.)
19. Ra4 Bd6
20. Bg3 Hc8
(Enn hafa flóknir útreikning-
ar ekki komið til sögu en yfir-
burðir svarts í rými bæta peðs-
tapið fyllilega upp og gott
betiir.)
21. b3 g5
22. Bxd6 Dxd6
23. g3 Rd7!
(Þangað til í lengstu lög forð-
ast Kasparov að hirða d5-peðið
enda ekkert upp úr því að hafa,
23. Rxd5 svarar hvítur með 24.
Be2! og hefur þá náð að losa um
stöðu sína, ekki 24. Bxd5 Rxd5
25. Rb6 Df3! o.s.frv.)
24. Bg2?
(Hingað til hefur verið erfitt
að benda á beinan afleik af
Karpovs hálfu, en eftir þennan
leik lendir hann í enn meiri
þrenginum en fyrr og var ekki á
bætandi. Nauðsynlegt var 24.
Rb2 og eftir 24.-R7e5 25. Bg2.
Svartur getur náð a2-peðinu
með 25. Rxb2 26 Dxb2 Hc2 27.
Dd4 Hxa2 en hvítur hefur náð
að rétta úr kútnum eftir 28.
Rd2. f stað 24.-R7e5 mátti
reyna 24. R3e5 en hvítur heldur
alltaf velli með 25. Bg2 t.d. 25.
Hc2 26. Dd4. Hvítur er langt í
frá laus úr allri hættu eftir 24.
Rb2 en það er honum lífsnauð-
syn að fá uppskipti til að
létta á stöðu sinni. Hann er
þegar öllu er á botninn hvolft
peði yfir og gæti undir heppileg-
um kringumstæðum látið það af
hendi.)
24. ..Df6!
(Hindrar 25. Rb2 og undir-
strikar yfirburði svarts. Hvítur
getur sig hvergi hrært.)
25. a3 a5
26. axb4 axb4
27. Da2
(Þessi leikur segir meira en
mörg orð um erfiðleika hvíts.
Jafnvel drottningin á í mestu
erfiðleikum að finna reit þar
sem hún getur fengið að vera í
friði.)
27. .. Bg6
28. d6!
(Loksins koma tilburðir hjá
Karpov til að klóra í bakkann.
Eftir 28. Dxd6 29. Rd2 hefur
hvítur náð að losa um sig. En
það hefur áður komið fram í
þessari skák að Kasparov vill
ekkert með d-peðið hafa.)
28... g4!
(Unirbýr peðasókn kóngs-
megin og þrengir enn hvíts
hagi.)
29. Dd2 Kg7
30. f3
(Það er ekki auðvelt að benda
á betri leik. Svartur hafði margs-
kyns sóknaráætlanir á prjónun-
um og hvítur varð að losa um
sig-) ’
30. .. Dxd6
(Loksins féll d-peðið.)
31. fxg4?
(Illskárra var 31. Khl, en
Karpov átti innan við mínútu
eftir. Svartur leikur sennilega
best. 31.Dd4. Kasparov notfær-
ir sér opna kóngsstöðu hvíts til
hins ítrasta. Lokin teflir hann af
snilld.)
31. .. Dd4t
32. Khl Rf6!
(Hótar bæði 33^Rxg4 og 33-
Re4. Hvítur á naumast nema
eitt svar.)
33. Hf4 Re4
34. Dxd3
(Eina von hvíts felst í að gefa
drottninguna fyrir þrjá létta. En
veik kóngsstaðan gerir útslag-
ið.)
34... Rf2t
35. Hxf2 Bxd3
36. Hfd2 De3!
37. Hxd3 Hcl!
(Það er ffreint ótrúlega ósvíf-
ið að skilja drottninguna eftir í
dauðanum en dæmið gengur
alltaf upp fyrir svartan: 38.
Hxe3 Hxdlt 39. Bfl Hxe3! og
vinnur mann til viðbótar.)
38. Rb2 Df2!
Helgi
Ólafsson
stórmeistari
skrifar
um skák
(Hreinræktaður skepnuskap-
ur. Mát á f lvakir fyrir Garrí að
þessu sinni: 39. Hxcl Helt og
mátar.)
39. Rd2 Hxdlt 40. Rxdl. Helt
- og Karpov gefst upp. Allt
ættlaði um koll að keyra í höll-
inni. Stórglæsilega teflt hjá
Kasparov og Karpov var lengst
af sem óvirkur áhorfandi að öllu
saman. Hann má nú aldeilis
fara að taka sig í hnakkadramb-
ið vilji hann ekki falla í flokk
með Botvinnik, Spasskí, Tal og
Smyslov.
Staðan í einvíginu:
Kasparov 8 Vi
Karpov 7 h
KRÓKVOGIR
Maston H
Bíldshöfða 10
S 8 26 55
Húsnæðisstofnun:
Afgreiðir nú þúsund lán
sem sótt var um janúar
■ Alls 944 íbúðabyggjendur
og kaupendur mega nú vænta
glaðnings frá Húsnæðisstofnun
ríkisins í þessum mánuði og
þeim næsta - þ.e. lána að upp-
hæð samtals 253 millj. króna.
Langstærsti hópurinn eru 520
kaupendur gamalla íbúða sem
sóttu um lán til Húsnæðisstofn-
unarátímabilinu frál.janúar
til loka marsmánaðar s.l. Eftir
1. nóvember eiga þessir um-
sækjendur G-lána að fá greidd
út lán samtals að upphæð 113
millj. króna, eða um 217 þús. að
meðaltali hver.
Þrír lánaflokkar koma til
greiðslu nú frá 15. október.
Fyrst er að nefna þá 70
byggjendur sinnar fyrstu íbúðar
sem fokhelt gerðu í ágúst s.l. og
fá nú fyrrihluta nýbyggingarlána
samtals 31. millj. króna, eða
tæplega 443 þús. að meðaltali.
I öðru lagi eru frá sama tíma
greidd lokalán til þeirra sem
fengu fyrsta hlutann eftir 20.
sept. 1984 og 2. hluta eftir 22.
maí í ár. Þar eru um að ræða 65
lán, samtals 13 millj. króna eða
um 200 þús. kr. að meðaltali.
1 þriöja lagi koma nú einnig
til útborgunar lán vegna við-
bygginga og endurbóta á eldra
húsnæði til þeirra sem sendu
stofnuninni fullgildar umsóknir
fyrir 1. júlí s.l. Um er að ræða
75 lán samtals 27 millj. króna,
eða 360 þús. kr. að meðaltali.
Frá 1. nóvember koma til
útborgunar lokalán til þeirra
■ Skákfélag Hafnarfjarðar og
Sparisjóður Hafnarfjarðar
halda skákhátíð helgina 25.-27.
október.
Hefst hátíðin kl. 20 á föstu-
dagskvöldið með fjöltefli en í
því teflir Helgi Ólafsson, stór-
meistari, sem lesendum NT er
vel kunnur af skákskýringum,
sem hann skrifar fyrir blaðið.
Unglingar sem eru 16 ára og
yngri geta tekið þátt í fjölteflinu
og fá þeir sem sigra Helga
veglegt trétafl að launum og
sem fengu 1. lánshluta eftir 1.
nóv. 1984 og 2. hluta í apríl
1985. Þar er um 40 lán að ræða,
samtals 9 millj. króna, eða um
225 þús. kr. að meðaltali.
Frá 10. nóvember verða
greidd út frumlán til þeirra sem
átt hafa íbúðir áður, en gerðu
nýbyggingar sínar fokheldar í
apríl, maí og júní 1985. Alls eru
þeir sem ná jafntefli bókagjaf-
ir.
Á laugardaginn hefst skák-
mót og verður teflt eftir Monr-
ad-kerfi. 20 efstu menn í mótinu
öðlast réttindi til að keppa í A
flokki daginn eftir, en þeir sem
verða neðan við 20. sæti tefla í
B flokki. Um miðjan daginn
verður’gert hlé á taflmennsk-
unni og mun Helgi Ólafsson
halda fyrirlestur.
Á sunnudaginn verða tefldar
11 umferðir eftir Monrad kerfi
það 105 lán samtals 30 millj.
króna, eða tæplega 286 þús. kr.
að meðaltali.
Frá 15. nóvember verður svo
borgaður út fyrri helmingur láns
til þeirra frumbyggjenda sem
gerðu fokhelt í september s.l.
Það eru 70 lán að upphæð 30
millj. kr. eða 428.600 kr. að
meðaltali.
og eru allir keppendur með yfir
2100 stig, auk þeirra tuttugu,
sem öðluðust rétt til að keppa í
A flokki daginn áður. Eftirtaldir
skákmenn hafa tilkynnt þátt-
töku: Guðmundur Sigurjóns-
son, Helgi Ólafsson, Jón L.
Árnason, Karl Þorsteins
Jóhann Hjartarson og Sævar
Bjarnason.
Fyrstu verðlaun í A flokki
eru .25 þúsund krónur, önnur
verðlaun 15 þúsund og þriðju
verðlaun 10 þúsund krónur.
Lítið
af gæs
í Borgar-
firði
Frá M.M. Borgarfírði:
■ Óvenjulítið hefur ver-
ið um gæsir hér í uppsveit-
um Borgarfjarðar í haust.
Virðist sem gæsin haldi sig
meira á hálendinu en hún
er vön.
Ástæður fyrir því eru
e.t.v. margar en þó hefur
spretta verið góð bæði á
grasi og krækiberjum enda
rennur saft niður af gæsun-
um.efþærnást. Þávirðast
þær einnig vera feitari en
undanfarin ár.
Gæsirnar halda sig
minna á túnum en verið
hefur en þess í stað meira
við vötn og ár, þar sem
verra er að komast að
þeim.
Leiðrétting
■ í frétt í NT í gær um kaup
SVFÍ á varðskipinu Þór var
ranglega sagt að Hannes Haf-
stein framkvæmdastjóri félags-
ins hefði skrifað undir kaup-
samning. Það gerði Haraldur
Henrýsson forseti Slysavarnarfé-
lagsins.
Skákhátíð í Hafnarfirði