NT - 16.10.1985, Page 13

NT - 16.10.1985, Page 13
 fíT Miðvikudagur 16. október 1985 17 LlL Fretlir Lestunar- áætlun Þjóðhagsáætlun kynnt í gær: Verðbólgan verður 20% á næsta ári Alþingi: Forsetar kjörnir ■ f gær kom Alþingi saman til fundar og voru kjömir þingfor- setar og skrifarar. Aö auki voru fastanefndir Alþingis kosnar. Litlar breytingar urðu frá þing- inu 1984-1985. í sameinuðu þingi var Þor- valdur G. Kristjánsson kjörinn forseti, Helgi Seljan fyrsti vara- forseti og Olafur Þ. Þórðarson annar varaforseti. í efri deild var Salome Þorkelsdóttir kjörin forseti, Stefán Benediktsson fyrsti varaforseti og Davíð Aðalsteinsson annar varafor- seti. í neðri deild var Ingvar Gíslason kjörinn forseti, Karvel Pálmason fyrsti varaforseti og Halldór Blöndal annar varafor- seti. Nefndakjör fór fyrst fram í sameinuðu þingi og síðan í deildunum. Frestað var kosn- ingu til fjárveitinganefndar og nokkur mannaskipti urðu í utanríkismálanefnd. Þar settist Haraldur Ólafsson í sæti Tóm- asar Árnasonar, Birgir fsl. Gunnarsson í sæti Ólafs G. Einarssonar, og Guðrún Agn- arsdóttir í sæti Sigríðar Dúnu Kristmundsdóttur. Að öðru leyti eru nefndir Alþingis skipaðar á svipaðan hátt og áður. Tveir aukaþingmenn tóku sæti á þinginu í gær. Sighvatur Björgvinsson kom í stað Karv- els Pálmasonar sem er fjarver- andi vegna veikinda og Magnús Magnússon kom í stað Eiðs Guðnasonar sem er erlendis. ef allar forsendur standast ■ Bragi Einarsson í Eden. NT-mynd: Ámi Bjama ■ Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, hélt í gærfund með blaðamönnum þar sem hann kynnti þióðhagsáætlun fyrir árið 1986. I því plaggi er m.a. gerð grein fyrir markmið- um og stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Aætlunin er að þessu sinni nokkuð frábrugð- in því sem áður hefur verið þar sem hún nær nú til ársins 1987 og jafnframt eru nefndar horf- urnar árið 1988 eins og þær virðast frá sjónarhóli höfunda. Þetta er mun lengra tímabil en áður hefur verið miðað við. „Helstu markmið ríkisstjórn- arinnar eru að minnka bæði verðbólguna og erlendar skuldir. Fyrirsjáanlegur hag- vöxtur veldur því að þetta er raunhæfur möguleiki," sagði forsætisráðherra. Þjóðhagsáætl- un gerir ráð fyrir að hagvöxtur verði 2% árið 1986 og 2 Vi% á árunum 1987-1988. Efallarfor- sendur standast eru horfur á að verðbólgan verði um 30% frá upphafi til loka þessa árs og um 20% árið 1986. Á sama hátt er reiknað með að hlutfall erlendra skulda fari lækkandi á árinu 1987 en að umtalsverð lækkun verði ekki fyrr en árið 1988. „Það er ljóst að til þess að ríkisstjórnin geti haldið áfram með svona prógram þarf að halda mjög fast á málum," bætti forsætisráðherra við. í þjóðhagsáætluninni er gert ráð fyrir að þjóðarútgjöld á mann haldist óbreytt en það felur í sér 1% árlega aukningu þjóðarútgjalda í heild. Þetta gæti leitt til l'/6% aukningar einkaneyslu árið 1986. „Ég spái ekki átökum á vinnumarkaðn- um en ég vil ítreka að það er forsenda þessarar áætlunar að ekki verði farið út fyrir þau mörk sem þar eru nefnd,“ sagði forsætisráðherra. „Við munum því hafa náið samráð við aðila vinnumarkaðarins og erum reiðubúnir til þess að ræða við þá um ýmsar leiðir til þess að vega upp kaupmáttinn t.d. frek- ari lækkun tekjuskatts.“ Steingrímur Hermannsson nefndi að það væri yfirlýstur vilji verðandi fjármálaráðherra, Þorsteins Pálssonar, að endur- skoða það fjárlagafrumvarp sem nú liggur fyrir með niður- skurð útgjalda í huga. Forsætis- ráðherra sagði af því tilefni að hann væri í raun sáttur við það frumvarp sem nú liggurfyrir, en hins vegar væru stjórnarflokk- arnir báðir sammála um að veita ætti aukið svigrúm til að draga enn úr ríkisútgjöldum. Hann bætti því við að þó væru framsóknarmenn andvígir því nauðsynlegri opinberri þjón- að draga á nokkurn hátt úr ustu. ■ Steingrímur Hcrmannsson forsætisráðherra kynnti þjóðhagsáætlun fyrir árið 1986 i gær. Þar er m.a. áætlað að verðbólga verði um 20% á árinu 1986. NT-mymi: Ámí b. Hull: Dísarfell ......... 21/10 Jan ............... 27/10 Dísarfell ...........4/11 Jan ............... 10/11 Dísarfell ......... 18/11 Jan ................24/11 Dísarfell ...........2/12 Jan .................8/12 Rotterdam: Dísarfell ..........22/10 Dísarfell ...........5/11 Dísarfell ..........19/11 Dísarfell ...........3/12 Antwerpen: Dísarfell ..........23/10 Dísarfel! ...........6/11 Dísarfell ..........20/11 Dísarfell ...........4/12 Hamborg: Dísarfell ..........25/10 Dísarfell ...........8/11 Dísarfell ..........22/11 Dísarfell ...........6/12 Helsinki: Hvassafell..........17/10 Hvassafell..........15/11 Liibeck: Hvassafell..........21/10 Larvik: Jan ................28/10 Jan ................11/11 Jan ................25/11 Gautaborg Jan ................29/10 Jan ................12/11 Jan ................26/11 Kaupmannahöfn: Jan ................30/10 Jan ................13/11 Jan ................27/11 Svendborg: Jan ................17/10 Jan ................31/10 Jan ................14/11 Jan ................28/11 Aarhus: Jan ................17/10 Jan ................31/10 Jan ................14/11 Jan ................28/11 Gloucester, Mass.: Jökulfell...........30/10 Jökulfell............2/12 New York: Jökulfell...........31/10 Jökulfell............3/12 Portsmouth: Jökulfell............1/11 Jökulfell............4/12 SKIMDEILD SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík Sími 28200 Telex 2101 Mozart, Berg og Schubert - á öðrum fimmtu- dagstónleikum Sin- fóníunnar annað kvöld ■ Aðrir fimmtudagstón- leikar Sinfóníuhljómsveit- ar íslands á þessu starfsári verða í Háskólabíói á morgun fimmtudaginn 17. október og hefjast kl. 20.30. Á efnisskrá tónleikanna eru þrjú verk: Cosi fan tutte, forleikur eftir Wolf- gang Amadeus Mozart, Sieben frúhe Lieder eftir Alban Berg og Sinfónía nr. 9 í C-dúr „Hin stóra“ eftir Franz Schubert. Stjórnandi í tónleikun- um er aðalhljómsveitar- stjóri Sinfóníunnar Jean- Pierre Jacquillat en ein- söngvari Olöf Kolbrún Harðardóttir. Alban Berg samdi söng lögin sjö á æskuárum sínum, en færði þau síðar í þann hljómsveitarbúning sem þau skarta nú. Hann fæddist árið 1885 og á því aldarafmæli á þssu ári og lést árið 1935. Ruslatunna brann ■ Slökkvilið var kallað að Hofsvallagötu, þarsem skrif- stofur Vífilfells eru til húsa, seint á sunnudagskvöld. Eld- ur var laus í ruslatunnu. Þegar slökkviliðið var komið á staðinn, var tunnan brunnin, og ekkert eftir nema öxullinn og hjólin. „Þetta var plasttunna, en okkur er mjög illa við þær. Þær gefa frá sér mikinn svart- an reyk og mikinn hita,“ sagði Arnþór Sigurðsson varðstjóri hjá Slökkviliði Reykjavíkur í samtali við NT í gær. Arnþór benti á að víða í fjölbýlishúsum væru þessar tunnur notaðar, og sagði hann að þeir þyrftu oft að slökkva eld í þeim. Hveragerði: Eden stækkar ■ Þessa dagana standa yfir breytingar og stækkun á Eden í Hveragerði og er áætlað að framkvæmdum sé lokið í byrjun mars. „Það er búið að vera lengi í sigtinu hjá mér að stækka staðinn, og eftir síðasta sumar, sem sló öll aðsóknarmet, ákvað ég að láta hendur standa fram úr ermurn," sagði Bragi Einars- son, eigandi Eden, í samtali við NT. „Stækkunin nemur um 400 fm, en Eden var um 700 fm áður. Stór hluti af þessari viðbót verður lagður undir nýja og betri eldhúsaöstöðu fyrir starfs- fólk en eldhúsið sem hefur verið hingað til, er vægast sagt allt of lítið, raunar er alveg kraftaverk hvernig okkur tókst að vinna við þessar aðstæður í örtröðinni í sumar. Samhliða því að eldhúsið stækkar og starfsliði fjölgar í sumar ætla ég að opna matsölu- stað, en hingað til hef ég bara getað boðið upp á kaffiteríu. Eftir breytingarnar get ég boðið upp á sæti fyrir 450 manns í stað 300 áður.“ Bragi er einn af aðstandend- um Tívolísins sem var opnað síðasta sumar, og var hann spurður hvort áætlaðar breyt- ingar væru á starfsemi þess. „Það er alveg ljóst að það sem átti stærstan þátt í allri umferðinni hér síðasta sumar, ásamt góða veðrinu, varTívolí- ið. Það eru áætlanir um að kaupa fleiri og stærri leiktæki fyrir næsta sumar og jafnvel byggja yfir það að hluta, en ætli það megi ekki segja að þegar umferðin um það var hvað mest síðasta sumar hafi um 15-20.000 manns komið yfir eina helgi. Það er því alveg nauðsynlegt að við komum til móts við allan þennan fcrðamannafjölda, - metað- sokn síðasta sumar enda cr allur bærinn í uppbygg- ingu og undirbúningur fyrir næsta sumar kominn í fullan gang.“

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.