NT - 16.10.1985, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 16. október 1985 23
u
Norðurlandamót í karate hér á landi:
„Ætlum okkur sigra
- í einhverjum flokkum, segir Ólafur Wallevik landsliðsþjálfari sem er
bjartsýnn á árangur íslendinga
■ „Það er ljóst að við ætlum
okkur sigur í einhverjum
flokkum, helst öllum,“ sagði
Ólafur Wallevik, landsliðsþjálf-
ari íslands á blaðamannafundi
sem Karatesamband íslands
hélt í gær. „Þetta verður gífur-
lega sterkt mót en möguleikar
okkar eru fyrir hendi“ bætti
Ólafur við. Ólafur var þarna að
tala um fyrsta Norðurlandamót
í karate sém haldið er hér á
landi um næstu helgi.
Mót þetta verður mjög sterkt.
Norðurlandabúar eru góðir í
karate og sem dæmi þá munu
koma hingað Evrópumeistarar
og keppendur sent eru meðal
þriggja eða fjögurra bestu í
heiminum í þessari íþrótta-
grein.
Keppnin á NM í karate hefst
í Laugardalshöll á lagardaginn
kl. 10.00 en úrslit hefjast um kl.
14.00. Ástæða er til að hvetja
fólk til að mæta í Höllina og
fylgjast með íslensku keppend-
unum i viðreignum við aðra
Norðurlandabúa.
Enskaknattspyrnan:
■ Sheffleld Wednesday
tryggði sér rétt til að spila í
3. umferð ensku deildar-
bikarkeppninnar er liðið
sigraði Brentford 2-0 í gær.
Sheffield leikur gegn
Swindon í 3. umferð. Einn
leikur var í 2. deild. Charl-
ton og Bradford gerðu 1-1
jafntefli.
Handknattleikur 3. deild:
■ ívar Ásgrímsson Haukari stekkur hér hæst en Björn Steffensen er til varnar. ívar átti mjög góðan
leik og féll nafni hans Webster algjörlega í skugga hans. Björn átti hinsvegar dapran leik og skoraði
ekki stig. ÍR-ingar verða að fara að nota hann betur. NT-mynd Árni Bjarna
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Sex í bann
■ Sex frjálsíþrótta-
menn, þar á meðal Lud-
milla Andonova frá Búlg-
aríu sem á heimsinetið í
hástökki kvenna, hafa
verið dæmdir í lífstíðar-
bann frá íþróttakeppnum
vegna lyfjanotkunar. Var
þetta tilkynnt á sunnudag
af Alþjóðfrjálsíþrótta-
sambandinu.
Ludmilla ku vera sú
frægasta af þessu fólki en
aðrir eru t.d. heimsmet-
haflnn í kringlukasti
kvenna Zdenka Silhava
frá Tékkóslóvakíu, og
bandarísku kastararnir
Gary Williky og August
Wolf.
Þótt bannið sé fyrir
lífstíð er vaninn sá að
íþróttamaðurinn cr náð-
aður eftir 18 mánuði.
Nágrannaslagur
Tvö rauð spjöld í Hveragerði
Frá Sveini Helgasyni á Selfossi:
■ Það var allt á suðupunkti í
íþróttahúsinu í Hveragerði þeg-
ar nágrannarnir Hveragerði og
Selfoss áttust þar við í 3. deild-
inni í handknattleik um helgina.
Leiknum lyktaði með jafntefli
30-30 og skoruðu Hvergerðing-
ar jöfnunarmarkið á síðustu
sekúndunum.
Leikmönnum beggja liða var
greinilega heitt í hamsi og fengu
tveir þeirra rauða spjaldið, þeir
Stefán Halldórsson þjálfari
Hvergerðinga og Halldór Morth-
ens Selfyssingur. Sjálfur
leikurinn var frcmur slakur en
Selfyssingar höfðu yfírhöndina
frainan af og voru yfir 18-11 í
hálfleik. í seinni hálfleiksöxuðu
Hvergerðingar síðan smátt og
smátt á forskotið og jöfnuðu,
eins og áður sagöi, á lokasek-
úndunum.
Þá sigarði H.S.K. lið Árvak-
urs með 53 stigum gegn 48 í 2.
deildinni í körfu á laugardaginn.
Leikið var á Selfossi og voru
Skarphéðinsmenn sterkari
mestan hluta leiksins.
Öruggur sigur Hauka
- á ÍR í gærkvöldi 81-72 - Endasprettur ÍR dugði ekki
Haukarnir kræktu sér í tvö
stig, sín fyrstu, í Úrvalsdeildinni
í gærkvöldi er liðið vann sigur á
ÍR 81-72. Sigurinn var
sanngjarn. Haukarnir léku mun
betur framan af leiknum en á
lokamínútunum gerðu ÍR-ingar
harða hríð að þeim með pressu
um allan völl en það dugði þó
ekki. Það var sérstaklega í upp-
hafi leiksins sem vel gekk hjá
Haukunum um leið og IR-ingar
fundu ekki körfuna. Jón Orn
Guðmundsson sem skorað hef-
ur nálægt helming stiga ÍR það
sem af er móti fann sig ekki í
leiknum og má segja að hann
hafi verið skjótandi í tima og
ótíma í upphafi. Hæð Haukana,
og ekki síst ívars Websters,
kom í veg fyrir drippl inní vörn
og skot. Jón Örn hefur stundað
þetta í undanförnum leikjum en
nú var hann stoppaður. Á með-
an ÍR-ingar voru að átta sig á
því hver ætti að skora ef Jón
gerði það ekki þá skoruðu þeir
nánast ekkert.
Eftir tæpar tíu mínútur þá var
staðan orðin 24-8 fyrir Hauka
og illt í efni fyrir Breiðhyltinga.
ívar Ásgrímsson og Henning
Henningsson fóru á kostum á
þessum kafla en Pálmar steig
eitthvað illa niður í byrjun leiks
og var ekki með í fyrri hálfleik.
ÍR-ingar réttu úr kútnum eftir
þessa hroðalegu byrjun og
Ragnar Torfason fór að skora
úr stökkskotum sínum. Þeir
héldu vel í við Haukana eftir
þetta og í hléi var 14 stiga munur
42-28 fyrir Hafnfirðinga.
Síðari hálfleikur var jafn til
að byrja með og sami munur
hélst að mestu. Haukarnir kom-
ust að vísu í 23 stiga forystu á
tímabili en eftir það náðu ÍR-
ingar með pressu sinni að
minnka muninn og lokatölur
urðu eins og fyrr segir 81-72
fyrir Hauka eða einungis níu
stig. Það leit frekar út fyrir að
lokatölur yrðu nálægt 90-60 fyrir
Hauka í byrjun leiksins.
Hjá Haukunum kom ívar Ás-
grímsson einna mest á óvart.
Hann skoraði grimmt og var að
auki mjög góður í vörn.
Webster er öllum liðum nokkur
hindrun en gaman var að sjá
Ragnar Torfason taka skot
beint fyrir framan nef Websters
og hitta. Ragnar var óhræddur
við að skjóta og er það góðs viti
- hann getur hitt vel þegar sá
gállinn er á honum. Eins og fyrr
segir þá var Jón Örn ekki á
réttum skóm og gerði aðeins 8
stig.
Stigin: IR: Ragnar 23, Hjört-
ur og Jóhann 10, Jón Örn 8,
Bragi 6, Benedikt 5, Jón Jör.og
Karl 4, Björn Leósson 2. Hauk-
ar: ívar Ásgrímsson 23, Henn-
ing 17, Pálmar 12, Ólafur 11,
Kristinn 10, ívar Webster 8.
Dómarar voru Jón Otti og
Bergur og voru ekki öfunds-
verðir af starfi sínu. Þeir gerðu
sín mistök ef svo má að orði
komast. Þb
■ Framhaldsskólamótið í frjálsum íþróttum fór fram um
helgina og kepptu fjórir skólar til úrslita. Svo fór að Fjölbraut
Breiðholts sigraði, hlaut 167 stig en Fjölbraut Árniúla varð
í öðru sæti með 146,5 stig. Menntaskólinn í Kópavogi varð
þriðji með 121 stig og Fjölbraut Suðurnesja hlaut 85 stig í
fjórða sæti. Á mynd Sverris sést Gunnar Gylfason, sem
einnig er kunnur knattspyrnumaður, þeyta spjóti á mótinu.
íslandsmet Sigurbjargar
■ Sigurbjörg Kjartansdóttir
setti þrjú íslandsmet í kvenna-
flokki (67,5 kg) á móti í kraftlyft-
ingum sem fram fór í Æfinga-
stöðinni Engihjalla um helgina.
Hún setti met í hnébeygju 115
kg, í réttstöðulyftu 130 og
samanlagt 320 kg. Þá setti Svan-
ur Smith unglingamet í hné-
beygju í 60 kg flokki. Hann lyfti
145 kg.
Staðan í Úrvalsdeildinni
UMFN .................................... 2 2 0 145-132 4
ÍBK...................................... 3 2 1 210-217 4
Haukar................................... 2 1 1 139-131 2
Valur.................................... 3 1 2 213-210 2
ÍR....................................... 3 1 2 222-222 2
KR ...................................... 3 1 2 197-204 2
Tékkar sigruðu enn
■ Tékkóslóvakía sigraði Bandaríkin 2-1 í
heimsbikarkeppni kvennaliða í tennis en þetta
var úrslitaleikurinn í þeirri keppni sem fram fór
í Japan. Tékknesku stúlkurnar vörðu þar með
titil sinn sem þær hafa unnið í fjögur skipti alls.
Þetta var aftur á móti í fjórða skipti sem
Bandaríkin tapa í úrslitaleiknum í þessari svo-
kölluðu „Federation Cup“ keppni en Bandarík-
in hafa unnið ellefu sinnum í allt.
Hana Mandlikova sem nýlega vann sigur á
opna bandaríska meistaramótinu var að venju í
góðu formi. Hún sigraði bandarísku stúlkuna
Kathy Jordan 7-5 og 6-1 og hefur því ekki tapað
leik í þessari keppni síðustu þrjú árin.
Pólverji þjálfar ÍBV
■ Pólverjinn Griegorz Bielatowicz mun þjálfa
1. deildarlið Eyjamanna á næsta keppnistíma-
bili. Bielatowicz var ráðinn um síðustu helgi en
er ekki alveg ókunnur Eyjamönnum því hann
þjálfaði yngri flokka Týs nú í sumar.
getrguna
VINNINGfiR!
8. leikvika - leikir -12. október 1985
Vinningsröð: 21X - X1X - X11 - 12X
1. vinningur: 12 réttir - kr. 768.570.-
104826 (6/11) +
2. vinningur: 11
9941+ 43950+ 85856
38664+ 50400 87353
42486 55278 89389
42941+ 56584+ 91172
réttir - kr. 8.902.-
94393 104824+ 104836+ 86272(^11)
100999 104829+ 105190 88839(íói)+
104320+ 104831+ 105655 101156(%i)
104823+ 104833+
104777(^11)+
Kærufrestur er til
4. nóvember 1985
kl. 12:00 á hádegi.
íslenskar Getraunir, íþróttamidstöðinni v/Sigtún, Reykjavík
Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyöublöö fást hjá umboðsmónnum og á skrifstofunni i
Reykjavik. Vinningsupphæöir gefa lækkaö, ef kærur veröa teknar fil greina.
Handhafar nafnlausra seðla ( + ) verða aö framvisa stofni eða senda stofninn og fullar
upplýsingar um nafn og heimilisfang til Islenskra Getrauna fyrir lok kærufresfs.