NT - 16.10.1985, Blaðsíða 17
f- < 'h
Miðvikudagur 16. október 1985 21
Jerry Hall skrifar
endurminningar sínar
- og Bryan Ferry er sár og reiður!
■ Jerry Hall hefur hingað til
liaft lag á því að vekja á sér
athygli, fyrst og fremst nteð
því að velja sér rétta fylgi-
sveina. Og nú hefur hún komið
af stað fjaðrafoki með því að
tilkynna útkomu sjálfsævisögu
sinnar, „Tall Tales“ í október-
mánuði nk. Er ókyrrð farin að
fara um suma við þá tilhugsun.
Jerry er orðin 28 ára göniul
og á sér 10 ára feril að baki sem
ein þekktasta og mest eftir-
sótta fyrirsæta heims. Hún er
þó úr leik í þeim bransa í bili
á meðan hún stendur í barn-
eignum.
Mick Jagger, sambýlismað-
ur hennar um 8 ára skeið (með
smáútúrdúrum) hefur ekki
fengist til að rölta upp að
altarinu með henni af ótta við
að verða fyrir einu fjárhags-
legu áfallinu enn. Hann hefur
slæma reynslu af skiptum sínum
við konur á því sviði, og ber
þar hæst skilnað hans og Bi-
anca, sem var óvægin í fjár-
kröfum sínum, og Mick er
ennþá að sleikja sárin eftir
þann skilnað. En nú hefur
Jerry fætt honum son, sem
■■Mick hafði lengi þráð, svo
kannski rjúka þau nú til og
gifta sig.
Þó að Jerry virðist ekki hafa
fjárhagslegan ávinning af sant-
búðinni við Mick og altarið
virðistenníórafjarlægð, seg-
ist hún vera þess fullviss, að að
því muni koma einhvern tíma
að hann bíði hcnnar þar. Og
sjálfsævisögu hennar hafi hann
hvatt hana til að skrifa og
draga ekkert undan. En það er
annar gamall kærasti Jerry
Hall sem er ekki jafn hrifinn.
Bryan Eerry átti sína fyrstu
metsöluplötu með Roxy Music
fyrir 13 árum en liefur nú sagt
skilið við þá hljómsveit og
nýlega sent frá sér nýja plötu,
„Boys and Girls,“ sem siglir
hraðbyri upp vinsældalista.
Hann varsambýlismaður Jerry
í tvö ár áður en hún sneri sér
að Mick Jagger. Hann er sjálf-
ur dulur maður og orðfár og
kann ekki að meta lausmælgi
Jerry um samband þeirra, t.d.
þegar hún segir frá fóstureyð-
ingunni sem hún gekkst undir
á meðan þau bjuggu saman.
Hvernig myndi þér líka það ef
einhver fyrrverandi elskhugi
þinn setti á prent alls konar
lygasögur urn þig,“ spurði
hann nýlega forvitinn blaða-
mann. „Mérfinnst það í raun-
inni dapurlegt að grípa til þess
ráðs ef harðnar á dalnurn, eða
ef þarf á auglýsingu að halda,
eða ef útlitið er farið að gefa
sig. Og af hverju borgar kær-
astinn hennar ekki fyrir hana?
Af hverju þarf hún að vinna
sér eina milljón dollara á þenn-
an hátt? Það er asnalegt og
smekklaust," segir hann og
bætir því við að hann sé nú
búinn að fá nóg af því að halda
sér saman eins og „sannur
breskur heiðursmaður!"
Bryan Ferry hefur sjálfur
kontið sér upp fjölskyldu.
Hann giftist Lucy Helmore
fyrir þrern árunt. Hún var þá
23 ára en sjálfur er Bryan
farinn að sjá fertugsafmælis-
daginn nálgast. Þau eiga tvo
syni saman, og þó að Bryan sé
ófáanlegur til að viðurkenna
að hann sé fyrirmyndarfaðir
og heimilisfaðir- „ég hef aldrei
skipt um bleiu" - getur hann
ekki stillt sig um að minnast
síns eigin föður með virðingu
og þakklæti, en hann dó í
fyrra. Hann segist vel geta
hugað sér að verða sonum
sínunt jafn mikilvægur og
pabbi hans var honum.
Það er þess vegna ekki ann-
að að sjá en að Bryan Ferry sé
orðinn sáttur við líf sitt og
tilveru, - a.nt.k. ef fortíðin
meðJerry Hallerundanskilin!
■ Bryan rerrj er mi hinnn að eignast I jnlskx Idu sem liann er liarðamegðiir nieð og mII lielsl
gleynia trylllu döguniiin með Jerry. Ilér er liann með eldri syni síiinin, Olis, sem er tveggja ára
ganiall.
% W
■ Jerry Hall helur liingum þott glæsdeg og alt ser marga
aðdáendur. Það er þess vegna ekki úeðlilegt að hiin liafí l'rá!
mörgu að segja í ævisögunni.
■