NT - 24.10.1985, Blaðsíða 11

NT - 24.10.1985, Blaðsíða 11
2. árgangur Fimmtudagur 24. október Umsjón: Ari Arnórsson „Bílhjól" Skemmtilegirvinnu- hestar nú líka með drifi á öllum! ■ Sagt er að ekkert sé nýtt undir sólinni, en þá er ekki reiknað með landi hinnar rísandi sólar. Sagt er að Japanar hafi ekki hæfi- leika til að fá hugmyndir, en ef litið er á varninginn sem til sölu er um allan heim, að ekki sé talað um það sem á leiðinni er, virðist þetta líka vera rangt. Frá japönsku vélhjólasmiðjunum komu fyrir fáum árum þríhjól með blöðrudekk og lítilli tvígengisvél. Undir eins rann af stað mikið þrí- hjólaæði í Bandaríkjunum og Ástral- íu. Ástralir sáu strax að þríhjólin voru meira en bara leikföng, og komu þau víða að góðu gagni á víðlendum býlum Ástrala. Næst koma stærri vélar og svo afturfjöðrun í þríbhjólin svipað og hannað hafði verið fyrir torfæru- keppnishjól. Nokkur þríhjól bárust Hvað er þetta, vélhjól, bíll eða kannski jeppi? Eitthvað af öllu þessu og svakalega skemmtilegt. ■ Þessi vinnuhestur er aðeins á þrem hjólum, en gæddur mörgum eiginleikum bflhjólanna. Framljósið er með framlengingarsnúru og má nota sem vinnuljós. ■ Eitt hinna mörgu verka sem bflhjól getur gegnt, sáning, sprautun eða önnur dreifing. Eitt svona tæki gæti sparað stórfé í kaupum og rekstri á fullvaxinni dráttarvél á mörgu íslensku búinu. hingað og eru notuð til vinnu og skemmtunar, en erfitt er að fá þau skráð og nota með öryggi á almennum vegum. Þess vegna þurfa þeir sem ætla að nota þríhjól sér til gamans að eiga kerru og draga þau þangað sem aka á. Enn eitt skrefið var að bæta einu hjóli við. Fjögurra hjóla apparötin urðu nauðsynleg þeim sem vildu sýna þríhjólagæjunum hver væri meiri maður, og aftur fundust not. Þau mátti nota til dráttar. Ognúerþaðnýjasta komið: Fjögur hjól, fjöðrun á öllum og drif á öllum! Það vinsælasta er líklega frá Honda, og heitir TRX 350 4x4. Vélin er fjórgengis eins strokks og skilar 25 hestöflum í rólegheitum gegnum sjálfvirka kúplingu og 5 gíra gírkassa. Að auki er bakkgír eins og á alvöru bíl. Fjöðrun er framan og aftan, og splittað mismunadrif að framan. Óll drifsköpt eru lokuð inni í húsum fylltum smurningu svo ekkert viðhald þarf á þeim frekar en kveiki- kerfi sem er innsiglað og varið þannig gegn vætu. Því ætti að vera hægt að göslast allan daginn í pyttum og mýrum án vandræða, enda eru allar 3 bremsuskálgr líka lokaðar. Eins og á myndunum sést er einna helst gert ráð fyrir því að TRX apparatið (bílhjólið?) sé notað til vinnu, enda hefur það dráttar- beisli og farangursgrindur framan og aftan. Irauninni er erfitt að segja til um hvaða ætt vélknúinna ökutækja þetta tilheyrir. Það er notað líkt og vélhjól, en getur vélhjól haft fjögur hjól og drif á þeim öllum? Flokkunin er það sem skiptir meginmáli varð- andi innflutning, ef það lendir í sama flokki og þríhjólin, bifhjólaflokki, verður verðið mun hærra en áætluð 240.000. TRX 350 er nýkomið á markað erlendis og er von á einu til reynslu nú fljótlega. Ef vel tekst til gætu bændur hér fengið duglegan vinn- uhest og fjölhæfan, tæki sem virðist líklegt til að komast nærri allt. Blöðrudekkin eru víð ög mikil (24 tommur, um 75 sm að ummáli) og loftþrýstingur í þeim er afar lítill. Gróft munstrið ætti að grípa svika- laust í allt sem undir er á ferðum ökumanns (reiðmanns!) um stokka og steina. Vegna blöðrudekkjanna og lítillar þyngdar (260 kg) skilja þessi tæki sjaldnast eftir sig nokkur spor. Má hæglega ímynda sér Hondu TRX í smalamennsku um heiðar eða annað snatt um sveitir án þess að fylgj a vegum eða ná hestum og beisla. Við TRX línuna og raunar þríhjól- in líka er hægt að fá úrval tengitækja, yfirleitt litlar kerrur með blöðrudekk, jafnvel fjögurra hjóla. Þannig verður girðingarvinna á viðkvæmu landi ólíkt auðveldari en að bera allt efni á sér frá flutningatækjum sem ekki komast á staðinn. Smátæki í þessum dúr hafa kannski sumir séð á hrísökrum Asíú, en þau þjóna ekki hinum þúsund störfum sem eru TRX möguleg - þar með talið að skemmta eiganda sínum. Við ætlum að fylgjast með þegar fyrsta tækið kemur og fjalla betur um það þá. AA ■ Bílhjólin ern ekki leikföng. Þau eru fyrir mörgum verðmæt vinnntæki og fjölhæf, og þegar drif er orðið á öllum með sérlega lágan kraft-gír kemst þetta aUt - eða næstum aUt.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.