NT - 24.10.1985, Blaðsíða 13

NT - 24.10.1985, Blaðsíða 13
flokksstarf -I mr Fimmtudagur 24. október 1985 13 J [yj Spegill Jórdaníu■ prinsessa stundar hestarækt -meðgóðum árangri ■ Hussein Jórdaníukonungur á sjálfur ung börn og nú væntir kona hans 4. barnsins. En afabarmð hans á sinn ákveðna sess í hjarta hans. Sonur Aliu kann vel við sig í fangi afa síns. ■ Hestastóðið hans Husseins þykir stórglæsilegt. ■ Alia prinsessa var ekki há í ioftinu þegar foreldrar hennar skildu. En hún hefur alttaf lagt áherslu á að halda góðu sambandi við þau bæði, egypsku prinsessuna Dinah og Hussein Jór- daníukonung. ■ Kórónu sköpunarverksins vilja dýravinir kalla þá. Olíufurstar og aðrir auðkýfíngar sem ekki vita aura sinna tal, borga gjarna stórar fjárfúlgur fyrir þetta dýrmæti - oft bara til að njóta ánægjunnar af því að horfa á þá. Það er arabíski hesturinn marglofaði sem hér er verið að ræða um. Hussein Jórdaníukonungur setti þegar 1960 á laggirnar hrossa- ræktarstöð, sem hefur það að markiniði að ná fram sem bestum hreinræktuðustum eiginleikum arabíska hestsins og þykir ræktun- in hafa tekist ágætlega vel. Það er Alia prinsessa, 28 ára gömul dóttir konungsins, sem veitir hrossaræktinni forstöðu. ■ Alia prinsessa hefur mikið yndi af því að umgangast hestana. Alia hefur alist upp með þessum göfuga hestastofni frá blautu barnsbeini. í fyrstu um- gekkst hún hestana sem ljúfa leikfélaga, en nú orðið hefur hún mesta nautn af því að fylgjast með glæsilegum hreyf- ingum þeirra. Hún hefur svo mikið yndi af því að umgangast hestana, að hún hefur lýst því yfir að ekkert veiti sér meiri ánægju. Margir þjóðhöfðingjar og aðrir höfðingjar hafa heimsótt hrossaræktarstöðina og hrifist af árangrinum sem þar hefur náðst. M.a. er sagt að Elísabet Bretadrottning, sem sjálf hefur dágott vit á hestum, hafi hrifist svo mjög af stofninum sem þar hefur náðst fram þegar hún kom í opinbera heimsókn til Jórdaníu í vor sem leið, að hún hafi falast eftireinum stóðhesti til að kynbæta eigin hross heima í Englandi. Alia prinsessa er dóttir Husseins og fyrstu eiginkonu hans, egypsku prinsessunnar Dinah, sem hann giftist aðeins 19 ára gamall. Þrem árum síðar skilaði hann henni aftur heim, en hún giftist síðan 1970 einum svarnasta óvini Huss- eins, skæruliðaforingja sem vill allt til vinna að koma Hussein fyrir kattarnef! Það voru því ekki fáar augabrúnir sem lyft- ust þegar Dinah heimsótti dóttur sína fyrir skemmstu í Amman! En Alia hefur alltaf lagt áherslu á að halda góðu sam- bandi við móður sína. Og hún hefur reyndar líka haft gott samband við stjúpmæður sínar og hálfsystkini. Sjálf á hún einn son, sem þegar er farinn að ganga í skóla, en maður hennar er háttsettur embættis- maður stjórnar Jórdaníu og gegndi áður störfum í leyni- þjónustunni. Hann þykir með afbrigðum hlédrægur maður og lítið gefinn fyrir að láta á sér bera. B Allt skal vera í röð og reglu og reiðtygin skulu alltaf vera í besta lagi. Prinsessan hefur sjálf eftirlit með því. Kjördæmisþing á Vesturlandi Kjördæmlsþing framsóknarmanna ( Vesturlandskjördæmi verður haldið í Hótel Borgarnesi þann 1. og 2. nóvember. Dagskrá auglýst síðar. Stjórnin. Konur A-Skaftafelissýslu Landssamband framsóknarkvenna heldur námskeið á Höfn í Hornafirði fyrir konur á öllum aldri. Námskeiðið verður haldið dagana 25., 26. og 27. október n.k. og hefst það kl. 20.00. Veitt verður leiðsögn í styrkingu sjálfstrausts, ræðumennsku, fundarsköpun og framkomu í útvarpi og sjónvarpi. Leiðbein- endur verða Unnur Stefánsdóttir og Þórdís Bergsdóttir. Þátttaka tilkynnist til Erlu í síma 97-8286 og Agnesar í síma 97-8580. Konur eru eindregið hvattar til aö nota þetta sérstaka tækifæri. L.F.K. Viðtalstími borgarfulltrúa og varaborgarfulltrúa Næst komandi laugardag verða til viðtals á Rauðarárstíg 18 milli kl. 11 og 12, þau Gerður Steinþórsdóttir og Sveinn Grétar Jónsson. Gerður á sæti í félagsmálaráði og fræðsluráði og Sveinn í íþróttaráði. Félag framsóknarkvenna í Reykjavík Heldur afmælisgleði 31. október n.k., að Hótel Hofi kl. 19.00. Heitur réttur - kaffi. Skemmtiatriði úr ýmsum áttum, glens og gaman. Mætum allar. Tilkynnið þátttöku til Þórannar í síma 24480. Kjördæmisþing í Suðurlandskjördæmi Kjördæmisþing framsóknarmanna í Suðurlandskjördæmi verður haldið föstudag og laugardag 8. og 9. nóvember n.k. og hefst kl. 17.30 stundvislega á föstudeginum í Félagsheimil- inu Hvoli Hvolsvelli. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Ræða: Stjórnmálaviðhorfið, Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra. 3. Ræða: Framsóknarflokkurinn störf og stefna. Guðmundur Bjarnason alþingismaður. 4. Ávarp gesta landssambanda. 5. Umræður og fyrirspurnir. 6. Þingslit kl. 17.30 á laugardeginum. Gisting og matur á Hótel Hvolsvelli á frábærum kjörum. Félög og einstaklingar tilkynnið þátttöku sem fyrst. Stjórnin Siglfirðingar - Sauðkrækingar Landsamband framsóknarkvenna heldur námskeið í fram- sóknarhúsinu viö Suðurgötu fyrir konur og karia á öllum aldri. Námskeiðið verður haldið dagana 15., 16. og 17. nóvember n.k. og hefst það kl. 20.00 15. nóv. Veitt verður leiðsögn í styrkingu sjálfstrausts, ræðumennsku, fundarsköpum og fram- komu í útvarpi og sjónvarpi. Leiðbeinendur verða þær Inga Þyrí Kjartansdóttir og Guðrún Jóhannsdóttir. Þátttaka tilkynn- ist hjá Halldóru í síma 96-71118 ogGuðrúnu í síma 96-5200. Fólk er eindregið hvatt til að nota sér þetta sérstaka tækifæri. L.S.K.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.