NT - 24.10.1985, Blaðsíða 18
AMERISKUR FOTBOLTI
49urnar halda
áfram að tapa
- nú fyrir Ljónunum frá Detroit
■ Nú er komið að úrslitum í sjöundu leikviku ameríska
fótboltans en áður en þau birtast er rétt að gera aðeins grein
fyrir því í grundvallaratriðum um hvað leikurinn snýst.
í hverju liði eru 45 menn sem taka þátt í hverjum leik.
Aðeins 11 þeirra eru inná vellinum í einu eins og
knattspyrnu. Hverju liði er eiginlega skipt í þrjú lið, þ.e.
sóknarlið, varnarlið og varalið (special team) sem aðeins
spilar undir sérstökum kringumstæðum svo sem þegar
andstæðingarnir sparka boltanum og í upphafi leiks. Sóknar-
liðið er inná þegar liðið er með boltann. Varnarliðið er inná
þegar andstæðingarnir hafa boltann og varaliðið ýmist þegar
boltinn er í höndum liðsins eða andstæðinganna. Athuga ber
þó að aldrei eru fleiri en 11 leikmenn úr hvoru liði inná í einu.
Leikvöllurinn er 100 jardar á lengd og um 50 jardar á
breidd. 100 jardar eru nánast 100 metrar. Völlurinn er
þverstrikaður með 5 jarda millibili. Galdurinn er síðan að
koma boltanum yfir endalínu andstæðingsins (touchdown)
eða sparka knettinum á milli tveggja uppréttra stanga sem
staðsettar eru um 10 jarda fyrir aftan endalínur vallarins
(field goal). Stengur þessar gnæfa nokkuð hátt upp. Þegar
sóknarliðið er með boltann þá fær það fjórar tilraunir til að
koma honum 10 jarda. Ef það tekst í einhverri af þessum
fjórum tilraunum þá fær liðið aðrar fjórar tilraunir og síðan
koll af kolli þar til því mistekst að fara 10 jarda eða skorar
stig (fer yfir endalínu eða sparkar í mark). Varnarliðið getur
náð boltanum t.d. með því að komast inní sendingu eða slá
boltann úr höndum sóknarmanns og ná honum þannig.
í stuttu máli. Lið fær fjórar tilraunir til að koma knettinum
áfram um 10 jarda og ef það tekst þá fær það aðrar fjórar
tilraunir og síðan koll af kolli. Til að skora þá þarf að fara
með knöttinn yfir endalínu andstæðingsins eða sparka
honum milli tveggja marksúlna.
Jæja, þá eru það úrslitin. Á óvart kemur slakt gengi San
Francisco 49ers. Chicago og L.A. Rams eru enn ósigruð og
má skrifa sigra Chicago á frábært varnarlið en sigra Rams á
góða hlaupara (running backs).
Los Angeles Rams-Kansas City Chiefs....................... 16- 0
Frl. Denver Broncos- Seattle Seahawks..................... 13-10
Los Angeles Raiders-Cleveland Browns ..................... 21-20
New England Patriots-New York Jets........................ 20-13
Miami Dolphins-Tampa Bay Buccaneers....................... 41-38
Philadelphia Eagles-Dallas Cowboys......................... 16-14
New York Giants-Washington Redskins....................... 17- 3
Detroit Lions-San Francisco 49ers ........................ 23-21
Houston Oilers-Cincinnati Bongals ........................ 44-27
Pittsburgh Steelers-St. Louis Cardinals................... 23-10
Atlanta Falcons-New Orleans Saints......................... 31-24
Minnesota Vikings-San Diego Chargers ..................... 21-17
sBuffalo Bilkls-Indianapolis Colts........................ 21- 9
Chicago Beers-Green Bay Packers ...................... .... 23- 7
Staðan:
Austurdeild U T J PHL. SS SF
NewYorkJets................... 5 2 0 714 156 104
Miami Dolphins................ 5 2 0 714 186 146
New England Patriots.......... 4 3 0 571 124 129
Indianapolis Colts............ 2 5 0 286 118 159
Buffalo Bills ................ 1 6 0 143 87 172
Miðríkjadeild
Cleveland Browns.............. 4 3 0 571 135 107
Pittsburgh Steelers........... 3 4 0 429 152 118
Cincinnati Bengals............ 2 5 0 286 211 240
Houston Oilers................ 2 5 0 286 129 155
Vesturdeild
Denver Broncoa 5 2 0 714 179 141
Los Angolos Raiders........... 5 2 0 714 159 133
Seattle Soahawks.............. 4 3 0 571 174 182
Kansas City Chiefs ........... 3 4 0 429 141 151
San Diego Chargers............ 3 4 0 429 169 187
Austurdeild U T J PHL SS SF
Dallas Cowboys................ 5 2 0 714 173 115
New York Giants............... 4 3 0 571 160 118
Philadelphia Eagles........... 3 4 0 429 102 104
St. Louis Cardinals .......... 3 4 0 429 155 186
Washington Redskins........... 3 4 0 429 100 151
Miðríkjadeild
Chicago Bears................. 7 0 0 1.000 212 105
Detroit Lions ................ 4 3 0 571 126 159
Minnesota Vikings ............ 4 3 0 500 158 140
Green Bay Packers ............ 3 4 0 429 144 163
Tampa Bay Buccanoers.......... 0 7 0 333 150 218
Vesturdeild
Los Angeles Rams.............. 7 0 0 1.000 149 89
San Francisco 49ers .......... 3 4 0 429 176 140
New Orleans Saints............ 3 4 0 429 150 186
Atlanta Falcons............... 1 6 0 143 151 216
Wá
Fimmtudagur 24. október 1985 18
Vandræði í Sviss:
Bræður á burt
- Rufer-bræðurnir farnir heim án leyfis
■ Wynton Rufer á hlaupum. Hann er nú kominn til Nýja
Sjálands.
H Nýsjálendingarnir og bræð-
umir Wynton og Shane Rufer
eru vandræðagripir. 1 gær kom
í Ijós að þeir höfðu flogið til síns
heima til að taka þátt í undir-
búningi nýsjálenska landsliðsins
fyrir leikana gegn ísrael og Ás-
tralíu í undankeppni heims-
meistarakeppninnar. Þessu
tóku kapparnir uppá í trássi við
félag sitt, svissneska liðið FC
Zurich, sem hafði ekki, og
reyndar vildi ekki gefa þeim
leyfi til að fara.
Varaformaður Zurich Sven
Hotz sagði við blaðamenn í
Sviss að það hefði verið ósann-
gjarnt við aðra leikmenn félags-
ins að leyfa bræðrunum að
fara, því allar bónusgreiðslur
væru bundnar gangi liðsins í
heild og það myndi veikjast við
brotthvarf miðherjans Shane og
varnarmannsins Wyntons.
Auk þess var ekkert í samning-
um bræðranna sem hefði með
leyfi vegna landsleikja að gera.
„Eg hafði á tilfmningunni að
eitthvað væri að gerast og raun-
ar kom svo í Ijós að farseðlar
þeirra höfðu verið pantaðir fyrir
nokkru. Við sendum skeyti til
nýsjálenska knattspyrnu-
sambandsins þar sem sagt var
að þeim yrði ekki gefið leyfi til
að leika með landsliði þeirra,“
HM í kraftiyftingum:
Víkingur og Kári fara
- til Espoo í Finnlandi - Eiga möguleika á verðlaunum
■ HeimsmeLstaramótið í kraft-
lyftingum verður haldið í Espoo
í Finnlandi dagana 6.-10. nóvemb-
er n.k. Kraftlyftingasamband
íslands hefur vaUð tvo keppend-
ur á mótið, báða frá Akureyri.
í 67,5 kg flokki keppir Kári
Elísson og í 125 kg flokki Vík-
ingur Traustason. Af þeim
tveimur á Kári betri möguleika.
Á HM í Dallas í fyrra varð hann
í 4. sæti og í ár hefur Kári betri
möguleika. Á HM í Dallas í
fyrra varð hann í 4. sæti og í ár
hefur Kári unnið til silfurs á
Evrópumóti og gull á Norður-
landamóti og er tU alls Iðdegur.
Víkingur vann 5. sæti á Evrópu-
mótinu í ár og síðan gullverð-
laun á Norðurlandamótinu og á
raunhæfa möguleika á 6.-7. sæti
á HM.
Síðast var Heimsmeistaramót
haldið í Finnlandi 1978, þá í
Turku og vann Skúli Óskarsson
þar til silfurverðlauna, eftir
harða baráttu um gullið. Af
flestum sem til þekkja var mótið
í Turku. talið best skipulagða
HM í kraftlyftingum, sem hald-
ið hefur verið og bíða menn í
ofvæni eftir, hvort mótið nú
verður sambærilegt.
Samhliða HM verður þing
Alþjóða kraftlyftingasamb-
andsins og mun Ólafur Sigur-
geirsson sitja það af íslands
hálfu. Meðal verkefna hans er
að sækja um HM unglinga 1987,
ef núerandi mótshaldari kraft-
lyftingasambandið í Perú missir
af mótinu, sem gæti gerst vegna
skulda þess við alþjóðasam-
bandið.
S-Ameríkukeppnin í fótbolta:
Aukaleikur
- á milli America og Juniors um titiiinn
■ America frá Kólumbíu sigr- þann 8 desember. Leikurinn
endaði 1-0 fyrir Ameríca og
skoraði Ortiz markið á 3 mín-
útu. Fyrri leikur liðanna endaði
1-0 fyrir Juniors svo liðin verða
að eigast við í hreinum úrslita-
leik í dag. Sá leikur verður í
Asuncion í Paraguay.
aði Argentinos Juniors frá Arg-
entínu í seinni leik félaganna
um Libertadores-bikarinn.
Þessi keppni er meistarkeppni
S- Ameríku og sigurvegannn í
henni keppir gegn Juventus,
Evrópumeisturunum, um
heimsbikar félagsliða í Tókýo
Haustmót JSÍ:
Allir nema einn
- af sigurvegurunum úr Ármanni
■ Júdósamband Islands hélt
sitt árlega haustmót í íþrótta-
húsi kennaraháskólans fyrir
stuttu. Keppt var í 6 þyngdar-
flokkum karla. Sigurvegarar
urðu eftirfarandi: f - 60 kg Jón
Trausti Gylfason, - 65 kg Karl
Ó Erlingsson, - 71 kg Davíð
Gunnarsson, - 78 kg Halldór
Hafsteinsson, - 95 kg Bjarni
Friðriksson, yfir 95 kg Sigurður
Hauksson. Sá síðastnefndi er
frá Keflavík en allir aðrir sigur-
vegarar eru úr Ármanni.
Sundbikarkeppni
■ Á þessari mynd sést „hlauparinn“ (ruinning back) Wendel Tyler úr 49unum brjótast með
knöttinn í gegnum varnarmúr Miami og spretta í átt að endalínunni. Sleppi hann yfir línuna þá
fær hann 6 stig fyrir vikið.
■ Bikarkeppni 2. deildar í
sundi verður haldin í Sundhöll
Reykjavíkur um komandi helgi.
Keppnin hefst á morgun kl.
20.00 en á laugardag kl. 16.00.
Á sunnudaginn byrjar keppni
kl. 15.00. Petta árið þá flytjast
tvö efstu liðin í 2. deild upp í þá
fyrstu.
Bikarkeppnin í 1. deild verð-
ur helgina 8-10 nóvember og
hefst föstudaginn 8 nóv. kl.
20.00.
sagði gáttaður Hotz við blaða-
menn í Sviss í gær en málið
hefur þar vakið mikla athygli.
Svissneska félagið bíður nú
eftir því að Nýsjálendingar
sendi þá bræður til baka ellegar
taki allavegana fyrir að þeir spili
landsleikina. Annars gæti málið
farið til Alþjóða knattspyrnu-
sambandsins.
Molar
■ ...Arthur Ashe hefur
verið rekinn sem fyrirliði
liðs Bandaríkjanna í
tennis. Ástæðurnarmunu
vera þær að hann hafði
ekki nógu góð tök á
óeirðaseggjunum
McEnroe og Jimmy
Connors. Það er m.a.
notað sem afsökun fyrir
tapinu gegn Svíum í Dav-
is Cup-
úrslitunum í fyrra...
...Tyrkir hafa sent
Englendingum tilboð um
hvenær leikir þeirra gegn
Rúmenum og N-Irum
skuli fara fram. Tyrkir
vilja spila við Rúmena
þann 13 nóvember kl.
7:30 að sínum tíma sem
þýddi að England og N-
Irland myndu spila kl.
5.30 að enskum tíma.
Eins og greint hefur verið
frá þá hefur FIFA ákveð-
ið að leikirnir skuli fara
fram á sama tíma þar eð
þeir skipta höfuðmáli í
riðlinum. Nú er að sjá
hvort Englendingar fallist
á þetta eða hvort FIFA
verður að skerast í leik-
inn...
...Evrópumeistara-
mótið í karate verður
haldið í Mónackó í júlí á
næsta ári, nánar tiltekið
14-19 júlí. íslenska
karatesambandið hyggst
senda keppendur á
mótið...
...Þrír leikmenn í
landsliði Indlands í hokký
voru dæmdir í fimm ára
bann frá íþrótt sinni eftir
að þeir réðust að ja-
pönskum dómara á Asíu-
leikunum í janúar síðast-
liðinn...
...Bretinn Peter Elliott
sigraði í míluhlaupi í San
Francisco fyrir stuttu.
Hann hljóp bratta braut-
ina á 3:43,3 mín. Annar
varð Steve Ovett frá
Bretlandi. í kvennaflokki
sigraði Lynn Williams frá
Kanada og varð það
fjórði sigur hennar í röð
á millivegalengdargötu-
hlaupum í Bandaríkjun-
um. Hlaup sem þessi
njóta mikilla vinsælda
þarna vestra...
...Pam Shriver sigraði
á opnu kvennamóti í
tennis sem fram fór í
Stuttgart í V-Þýskalandi
fyrir stuttu. Hún sigraði
Catarinu Lindqvist frá
Svíþjóð í úrslitaleik. Eftir
leikinn þá valdi Shriver
frekar að fá í verðlaun
sportbíl af betri gerðinni
heldur en verðlaunafé
uppá 32 þúsund dollara...
...Morten Frost er efst-
ur að stigum meðal bad-
mintonleikara í heimin-
um. Hann er nokkuð á
undan Han Jian frá Kína
sem er í öðru sæti. Eng-
lendingarnir Baddeley og
Yates koma síðan í þriðja
og fjórða sæti.