NT - 24.10.1985, Blaðsíða 24

NT - 24.10.1985, Blaðsíða 24
HRINGDU ÞÁ í SÍIX/IA 68-65-62 Við tökum við abendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrir hverja abendingu sem leið ir til fréttar i blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt NT, Síðumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300 Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687598 • íþróttir 686495 .. -...................." ■— ■ I ■■■■■■— ■■■■■■■XH, ' . ■ .....................—" — ■ Arnarflug: Rauðglóandi símalínur Aukaferð til Amsterdam í dag ■ Flugfreyjur mæltu á þingpalla í gærkvöld til að hlýða á löggjafann setja á þær lög og senda þær aftur til vinnu. NT-mynd Svenír. Flugf reyj uverkf all ið: Flestir þingmenn Alþýðuflokksins styðja ríkisstjórnina ■ Símalínurhjá Arnarflugi voru rauðglóandi í gær, á það jafnt við á skrifstofum flugfélagsins innanlands og erlendis. Var fólk að forvitn- ast um áætlanir félagsins, og einnig var töiuvert meira um pantanir en venjulega. Að sögn Magnúsar Odds- sonar, markaðsstjóra Arnar- flugs, var ekkert flug til Am- sterdam í gær, hinsvegar verður bætt við einni ferð í dag og því flognar tvær ferðir til borgarinnar. Sagði hann að þeir hugsuðu stutt í þessu máli og létu hverjum degi nægja sínar þjáningar. Mjög óljóst væri hvað gerðist á næstu dögum, hvort ríkis- stjórnin setti lög á verkfall flugfreyja, eða hvort með einhverjum hætti mætti ná samkomulagi. Hvað innanlandsflugið áhrærði gerði flugfélagið ekki meira en að anna áætl- unarflugi sínu í gær, vegna þess að allt innanlandsflug hafði legið niðri á þriðjudag. BSRB þing: Óvissa í stjórnar- kosningu ■ Samkvæmt heimildum NT leikur vafi á því hvort Einar Ólafsson, formaður Starfsmannafélags ríkis- stofnana, gefi kost á sér í stjórn BSRB, en þar hefur Éinar átt sæti. Mun Einari þótt að sér vegið á þinginu, og náði m.a. ekki kjöri til uppstillingarnefndar þings- ins. Enn er óljóst með fram- boð til embættis annars vara- formanns bandalagsins, en Haraldur Steinþórsson mun ekki gefa kost á sér aftur. Hafa tvær konur, þær Guð- rún Árnadóttir, SFR, og Síg- urveig Sigurðardóttir, HFI, helst verið nefndar til starfans. Þá segja heimildarmenn NT að Haraldur Hannesson, sem er í framboði til fyrsta varaformanns bandalagsins, gegn núverandi varafor- manni, Albert Kristinssyni, sé tilbúinn til að draga fram- boð sitt til baka, ef honum er tryggt sæti í stjórn banda- lagsins. Bjóst hann ekki við neinni aukaferð í dag þó pantanir höfðu aukist töluvert. Viðræður milli Arnarflugs og flugfreyja fóru mun seinna af stað en við Flug- leiðir, og því hafa flugfreyjur ekki enn boðað verkfall hjá Arnarflugi. Hefur Arnarflug boðið sömu hækkun og Flug- leiðir, 18,75% ogvarsíðasti fundur með flugfreyjum á mánudag. BSRB: Aukaþing að vori -eingöngu um skipulagsmál? ■ Miklar líkur eru taldar á því að kallað verði saman aukaþing Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, n.k. vor, og þá eingöngu til að ræða skipulagsmál banda- lagsins, en mikil umræða er á vfirstandandi þingi um skipu- lagsmál. Það var Haukur Helgason, skólastjóri sem lagði fram til- lögu þess efnis í fyrrakvöld, og viðmælendur NT á þingi BSRB í gær, töldu miklar líkur á að hún yrði samþykkt. Samkvæmt tillögu Hauks, verður starfandi fram að auka- þinginu nefnd til að endurskoða þessi mál, og kynna þau á vinnu- staðafundum. Meðflutningsmenn Hauks voru þau Ögmundur Jónasson, Guðrún Árnadóttir og Sjöfn Ingólfsdóttir. ■ Síðast er fréttist áður en NT fór í prentun benti allt til þess að stjórnarfrumvarp um að vísa kjaradeilu Flugfreyju- félagsins og Flugleiða til kjaradóms yrði samþykkt sem lög frá Alþingi aðfaranótt fimmtudags eða þann dag. Fundur neðri deildar Al- þingis var stuttur í gær, hófst kl. 14 og lauk hálfri klukku- stund síðar. Þá var ljóst að lagasetning ríkisstjórnarinnar var væntanleg og þingflokk- arnir ákváðu að bera saman bækur sínar. Frumvarpið var lagt fram síðdegis og fundur hófst aftur í deildinni kl. 17.30 og var þá fjöldi flugfreyja á áheyrendapöllum Alþingis. Að loknu matrarhléi þing- manna skilaði samgöngu- nefnd álitum sínum og kom þá í ljós að nefndin var þríklof- in í afstöðunni til frumvarps- ins. Það vakti athygli að þing- flokkur Alþýðuflokksins ákv- að að styðja umrædda laga- setningu að Jóhönnu Sigurð- ardóttur undanskilinni, en hún hafði áður lýst yfir harðri andstöðu sinni við samþykkt frumvarpsins. Fundur í neðri deild hófst aftur kl. 21.45 og urðu þá töluverðar umræður um málið eins og fyrr um daginn. I greinargerð að frumvarp- inu segir: „Af fyrri reynslu er ljóst að stöðvun stærsta hluta farþegaflugs veldur því að fjöldi ferðamanna þarf að breyta ferðaáætlunum sínum. Slíkt ástand leiðir einnig af sér verulega skert traust á íslensku áætlunarflugi og stefnir í voða .árangri af víð- tæku erlendu kynningarstarfi. Vinnustöðvun þessi teflir því mun víðtækari hagsmunum í tvísýnu en þeirra sem í deilu eiga þ.á m. hagsmunum allra þeirra launþega sem með ein- um eða öðrum hætti starfa við flug- og ferðaþjónustu hér á landi". í frumvarpinu er kveðið á um að deilunni verði vísað til kjaradóms. Gert er ráð fyrir að Hæstiréttur tilnefni þrjá menn í dóminn sem skal ákveða fyrir 1. desember 1985 kaup og kjör félagsmanna í Flugfreyjufélaginu sem starfa hjá Flugleiðum. Kjaradómur skal við ákvörðunina hafa til viðmiðunar við úrskurð sinn síðast gildandi kjarasamning aðila, almennar kaup- og kjarabreytingar sem orðið hafa síðan hann tók gildi svo og breytingar á launum annarra starfsmanna Flugleiða. Ákvarðanir kjaradóms munu verða bindandi og verkföll, verkbönn eða aðrar aðgerðir sem ætlað er að knýja fram aðra skipun kjara- mála en lögin kveða á um eru óheimilar. Brot á lögunum verður farið með að hætti opinberra mála. „Við höfum barist fyrir því að fá greitt vaktaáiag síðan 1973 og við munum svo sann- arlega ekki gefast upp þó að lög virðist ætla að verða sett í þetta skiptið," sagði Margrét Guðmundsdóttir formaður Flugfreyjufélagsins í samtali við NT. Litlu flugfélögin græða: Eins dauði er annars brauð Flugfélög á landsbyggðinni anna farþegaflutningum innanlands ■ Flugfélög á landsbyggð- inni anna svo til algjörlega farþegaflutningum innan- lands. Voru í gær flognar margar aukaferðir frá Akur- eyri, Egilsstöðum og ísafirði og voru framkvæmdastjórar flugfélaganna almennt sam- mála um að verkfal! flug- freyja væri lyftistöng fyrir litlu flugfélögin, eða eins og einn þeirra orðaði það: „Eins dauði er annars brauð.“ Hjá Flugfélagi Norður- lands fengust þær upplýsing- ar að í gær hefðu verið farnar átta ferðir til Reykjavíkur. Eru þeir með tvær vélar og tekur hvor um sig 19 farþega. Sögðust þeir algjörlega hafa getað annað þessum flutn- ingum. Undir venjulegum kringumstæðum fer ein vél einusinni á dag frá Akureyri til Ólafsfjarðar og Rvíkur. Hjá Flugfélagi Austur- lands á Egilsstöðum sögðu þeir að það hefði verið líflegt í gær. Alls flutti flugfélagið 70 manns í gær. Var flogið fimm sinnum til Reykjavíkur á tveim 7 sæta vélum. í dag verða farnar 2-3 ferðir til Reykjavíkur auk þess verður flogið tvisvar til Hornafjarð- ar og einnig þaðan til Reykjavíkur. Flugfélagið Ernir á ísafirði flaug tíu ferðir til Reykjavík- ur í gær með tveim vélum. Tekur önnur vélin 10 farþega og hin fimm. Alls voru því fluttir 150 farþegar í gær. Sagði framkvæmdastjórinn að mjög hefði dregið úr far- þegaflugi eftir að skólar byrj- uðu og kæmi þetta því sem lyftistöng núna.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.