NT - 24.10.1985, Blaðsíða 5

NT - 24.10.1985, Blaðsíða 5
 Fimmtudagur 24. október 1985 Borgarspítalinn: Breytt og bætt vinnuaðstaða - m.a. til að laða að hjúkrunarfræðinga ■ Undanfarna mánuði hafa verið framkvæmdar miklar breytingar á skurð- og lyflækningadeildum Borg- arspítalans, sem miðar að bættri vinnuaðstöðu. Er þetta tilraun af hálfu spítalans að laða til sín hjúkr- unarfræðinga. Um tvíþættar breyt- ingar er að ræða, breytingar á hús- næði og stjórnskipulagi deildanna. Vinnuaðstaða hjúkrunarfólks hef- ur verið bætt með því að endurskipu- leggja herbergjaskipan deildanna. Samróma álit starfsfólksins er að breytingarnar hafi tekist vel og gert deildirnar að betri og þægilegri vinnu- stað. Fram að þessu hafa allar sjúkra- deildir verið mjög stórar og dagleg stjórn í höndum eins deildarstjóra. Pað er yfirgripsmikið starf og mikil- vægt að hann hafi yfirsýn yfir sjúkl- inga, starfsfólk, og allt er varðar starfsemina. Eftir skipulagsbreytinguna eru tvær sjálfstæðar deildir á hverjum gangi og deildarstjóri á hverri deild. Hann hefur þá mun færri sjúklinga í sinni umsjá eða um 15-16 í stað 32ja áður. Undanfarið hefur verið mikill skortur á hjúkrunarfræðingum til starfa og því ekki hægt að reka allar deildir spítalans með fullum afköst- um. í Borgarspítalanum eru rúm fyrir 469 sjúklinga, þar af 69 á lyflækninga- deild, 97 á skurðlækningadeild, 20 á Utideild á Akureyri ■ Á Akureyri er nú unnið að því að koma á fót unglingaráðgjöf og úti- deild. Bæjarstjórn hefur gert leigu- samning til eins árs um húsnæði handa unglingaráðgjöfinni og verður hún til húsa að Eiðsvallagötu 18. Forstöðumaður unglingaráðgjafar- innar og útideildarinnar er Hulda Stefánsdóttir . Hjá henni fengust þær upplýsingar að ráðgjöfin væri öllum opin þrisvar í viku frá fimm til tíu þar sem unglingar og aðrir gætu kynnt sér starfsemina rætt sín vandamál og byggt sig upp. Unglingarnir ráða því sjálfir hvort þeir koma til okkar og ef þeir ákveða að starfa með okkur gerum við um það samning,“ sagði Hulda, „og heimilið er þeim þá opið frá þrjú á daginn, þeir gista ekki hjá okkur en meiningin er samt að hafa þetta sem heimilislegast." Aðspurð að því hvort raunveruleg þörf væri fyrir slíka starfsemi svaraði Hulda því játandi og benti á að nefnd á vegum æskulýðsráðs og félagsmálaráðs hefði komist að slíkri niðurstöðu. Undirbúningur að útideild er haf- inn en ekki er á þessu stigi ljóst hvenær hún tekur til starfa. HIH/AK umferðarslys ■ Fanný Porbergsdóttir lést á Borgarspítalanum síðastliðinn laug- ardag. Hún lenti í umferðarslysi á Brúnagötu þann 8. október. Fanný hlaut höfuðmeiðsl, ásamt öðrum áverkum, þegar hún varð fyrir bíl áðurnefndan dag. Hún var 65 ára gömul. gjörgæslu- og gæsludeild, 103 á öldr- unardeild, 91 á geðdeild og 89 á hjúkrunar- og endurhæfingardeild. ■ Eftir herbergi. breytingarnar þar sem vinnuaðstaða deildarritara sést inni í vakt- Fimm þúsund pör af ACT ■ Föstudaginn 11. október var fimm þúsundasta parið af einni gerð af ACT-skóm selt í versluninni Torg- inu í Reykjavík. Hinn heppni kaup- andi fékk að velja sér firnm pör af ACT-skóm til viðbótar í verðlaun. Fessar upplýsingar fengust úr Sam- bandsfréttum sem komu út nýlega og þar segir einnig að þessir umræddu skór séu karlntannaskór nteð reimum og þeir eru fáanlegir í gráu og svörtu. Það er skóverksmiðja fatadeildar Sambandsins á Akureyri sem fram- leiðir þessa vinsælu skó og segja Sambandsfréttir að vinsældir þeirra fari sífellt vaxandi. Drekkum mjólk á hverjum degi * Mjólk: Nýmjólk, létlmjólk. eða undanrenna. Allt frá því að tennurnar byrja að vaxa þurfa þœr - daglegan kalkskammt, fyrst til uppbyggingar og síðan til viðhalds Rannsóknir benda til að vissa tannsjúkdóma og tannmissi á efri árum megi að hluta til rekja til langvarandi kalkskorls. Með daglegri mjólkur- neyslu, a.m.k. tveimur glösum á dag, er líkamanum tryggður lágmarks kalkskammtur og þannig unnið gegn hinum alvarlegu afleiðingum kalkskorts. Tennurnar fá þannig á hverjum degi þau byggingarefni sem þœr þarfnast og verða sterkar og fallegar fram eftir öllum aldri. Gleymum bara ekki að bursta þœr reglulega. Helstu heimikír Bækingurinn Kak og beinþynning efbr dr. Jcm Óöar Ragnareson og Nutriíon and Physical Fitness, 11. útg., eftir Briggs og Caloway, Hoit Reinhaidt and Winston, 1984. SúSsrn* MJÓLKURDAGSNEFND Aldurshópur Ráðlagður dagskammtur afkalkiímg Samsvarandi kalk- skammtur í mjólkur- glösum (2,5dlglös)* Lágmarks- skammturí mjólkurglösum (2,5dlqlös)** Börnl-lOára 800 3 2 Unglingarll-18ára 1200 4 3 Ungt fólk og fullorðið Ófrfskarkonurog 800“* 3 2 brjóstmœður 1200““ 4 3 ■ Hér er gert ráð fyrir að allur dagskammturlnn af kalkl koml úr mjólk. " Að sjálfsögðu er mðgulegt að fá allt kalk sem likamlnn þarf úr öðrum matvœlum en mjólkurmat en sllkt krefst nákvœmrar þekkingar á nœringarfrœðl. Hér er mlðað við neysluvenjur elns og þœr tlðkast I dag hér á landl, ™ Marglr sérfrœðingar telja nú að kalkþðrf kvenna eftlr tlðahvárf sé mun meiri eða 1200-1500 mg á dag. ™ Nýjustu staðlar fyrir RDSI Bandarlkjunum gera ráð fyrir 1200 tlll 600 mg á dag fyrlr þennan hóp. Mjólk inniheldur meira kalk en nœr allar aðrar faeðutegundir og auk þess B-vftamín, A-vítamín, kalfum, magnfum, zink og fleiri efni. Um 99% af kalkinu notar Ifkaminn til vaxtar og viðhalds beina og tanna. Tœplega 1 % er uppleyst f líkamsvökvum, holdvefjum og frumuhimnum, og er það nauðsynlegt m.a. fyrir blóðstorknun, vöðvasamdrátt, hjartastarfsemi og taugaboð. Auk þess er kalkið hluti af ýmsum efnaskiptahvötum. Til þess að líkaminn geti nýtt kalkið þarf hann D-vftamín, sem hann fœr m.a. með sólböðum og úr ýmsum fœðutegundum, t.d. lýsi. Neysla annarra faeðutegunda en mjólkurmatar gefur sjaldnast meira en 300-400 mg á dag, en það er langt undir ráðlögðum dagskammti. Úr mjólkurmat fœst miklu meira kalk, t.d. 800 mg úr u.þ.b. þremur glösum af mjólk.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.