NT - 24.10.1985, Blaðsíða 2
ff¥7 Fimmtudagur 24. október 1985 2
LU Fréttir
Gluggasmiðjan:
Nýjungar kynntar
■ Gluggasmiðjan sýnir um þess-
ar mundir framleiðsluvörur sínar
í Iðnaðarmannalnisinu við Hall-
veigarstíg. Auk þess eru á sýning-
unni kynntar ýmsar nýjungar sem
Gluggasmiðjan flytur inn, m.a.
frá sænska fyrirtækinu SAPA.
Sem dæmi um vörur á sýning-
unni má nefna álkerfi fyrir hall-
andi gluggaveggi, þakglugga og
sólstofur, nýjar eldvarnahuröir úr
áli og sjálfvirkan opnunarbúnað
sem hægteraðtengja viðþær.
Þá geta sýningargestir skoðað
ýmsar gerðir af gluggum á sýning-
unni, allt frá hefðbundnum glugg-
um til álklæddra glugga með nýj-
um opnunar- og þjófavarnaút-
búnaði. Einnig er á sýningunni
kynnt ný framleiðsluvara frá
Gluggasmiðjunni, G-glugginn
sem er veltigluggi. Er hann mun
þægilegri í meðförum en hefð-
bundnir veltigluggar. Lausafagið
rennur á sleða, sem gerir það að
verkum að snúningurinn fer allur
fram utan gluggans.
Sýningin er opin frá 10-18 og
lýkur henni á föstudag 25. okt-
óber.
■ Gissur Símonarson, stofnandi Gluggasmiðjunnar ásamt sonum
sínum, þeim Símoni Má og Gunnari Levý. NT-mynd: Árai Bjarna.
SAMAN
24. október
Mætum allar á útifundinn á Lækjartorgi kl. 14
og leggjum áherslu á kröfuna
um raunverulegt launajafnrétti.
Ávörp:
GUÐRÚN ÁRNADÓTTIR, meinatæknir
HDLDUR KJARTANSDÓTTIR, iðnverkakona
MÁLHILDUR SIGURBJÖRNSDÓTTDR, fiskvinnslukona
ÞÓRA KRISTÍN JÓNSDÓTTIR, kennari
TILHVERS
leikþáttur eftir Helgu Thorberg.
Flytjendur: Helga Thorberg og Rósa G. Þórsdóttir
TÓNLIST
Konur flytja tónlist um og eftir konur.
FUNDARSTJÓRI:
Guðríður Elíasdóttir, varaforseti ASÍ
KVENNASMIÐJAN
sýning 70 stéttar- og fagfélaga á störfum
og kjörum kvenna,
verður opnuð í dag 24. október kl. 11 fh.
í nýju Seðlabankabyggingunni.
Sýnirigin stendur fram til 31. október.
Splúnkunýr Times-
Atlas kominn út
■ Splunkuný útgáfa af Times Atlas
landabréfabók fæst nú í öllum helstu
bókaverslunum landsins en bókabúð
Máls og menningar liefur umboð fyrir
landabréfabókina.
Af því tilefni er staddur hér á landi
Barry Winkleman forstjóri Times-
bókaútgáfunnar og hann sagði frétta-
mönnum frá sögu Times Atlasins hér
á landi.
Þannig var, að þegar frumgerð
Times Atlasins var í undirbúningi hjá
John Bartholomew í Edinborg á
fjórða áratugnum var stefnt að því að
kortabókin yrði hin veglegasta með
ítarlegustu og yfirgripsmestu kortum
sem þá voru til af landsvæðum á
jörðinni. í samræmi við þessa stefnu
var íslandi ætluð heil opna og gert
íslandskort þótt engar landmælingar
væru til á þeim tímum.
Síðari heimsstyrjöldin braust út
áður en af útgáfu Atlasins varð.
Þegar Þjóðverjar hernámu Dan-
mörku og breskar hersveitir gengu á
land á íslandi til að hindra hernám
Þjóðverja hér varð ísland allt í einu
hernðarlega mikilvægt.
Þess vegna ákvað John Bartholom-
ew að gefa íslandskortið út sem
sérstakt landabréf. En kortið var afar
ófullkomið og þýski herinn sat um
Kaupmannahöfn þar sem Geodic In-
stitut var, en sú stofnun sá um gerð
og dreifingu íslandskorta og því varð
hann að leita hjálpar annars staðar.
íslenski ræðismaðurinn í Edinborg,
Sigursteinn Magnússon (faðir Magn-
úsar Magnússonar) gat aflað óútgef-
inna landmælingagagna og hjálpað
Bartholomews. Þetta kort var gefið
út árið 1942 en stuttu síðar bönnuðu
yfirvöld á íslandi innflutning þess á
Íieim forsendum að Landmælingar
slands ættu einkarétt á framleiðslu
íslenskra landabréfakorta.
Eftir stríðið voru uppi nýjar áætlan-
ir um gerð stórrar kortabókar og þar
var enn haldið þeirri stefnu að ís-
landskort væri á heilli opnu. Þegar
þessi veglega kortagerðarbók um öll
iandsvæði í heiminum var síðan gefin
út árið 1955 bönnuðu íslensk yfirvöld
enn innflutning hennar.
Barry Winkleman bætti því síðan
við að sumir teldu að ef menn vildu
láta eitthvað ná vinsældum væri urn
að gera að láta banna það en sjálfur
taldi hann að feikilegar vinsældir Atlasins
á íslandi væru vegna ágætis korta-
gerðarbókarinnar og frábærs smekks
Islendinga.
Þess má geta að frá árinu 1960 var
innflutningur kortagerðarbókarinnar
heimilaður á íslandi.
Kortagerðarbók þessi kom ut á 5
ára fresti og þeirri stefnu er fylgt að
gefa öllum landsvæðum sömu um-
fjöllun. Bókin er gefin út á ensku,
þýsku, frönsku og hollensku og frá
árinu 1967 hafa 600.000 eintök selst.
Kortagerðarbókin nýja kostar 4450
kr. og hægt er að fá hana á sama verði
á afborgunarskilmálum.
■ Árni Einarsson framkvæmda-
stjóri í Máli og menningu og Barry
Winkleman forstjóri Times- bókaút-
gáfunnar.