NT - 24.10.1985, Blaðsíða 7

NT - 24.10.1985, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 24. október 1985 7 Sameinuðu þjóöirnar-Reuter Kennara- verkfall í Austurríki Vín-Reuter ■ Austurrískir gagn- fræða- og menntaskóla- kennarar fóru í eins dags verkfall í gær til að mót- mæla því að lausráðnir kennarar skuli fá lægri laun en þeir sem eru fast- ráðnir. Kennararnir fóru í verkfall eftir að samninga- viðræður þeirra við stjórn- völd um að jafna launin höfðu runnið út um þúfur. Verkföll eru ákaflega fá- gæt í Austurríki, þar sem sósíalistar fara með völd. Seinast var kennaraverk- fall þar árið 1973 og það stóð aðeins í tvo daga. ■ Karim Lamrani forsætisráð- herra Marokkó tilkynnti í gær að Marokkóstjórn hefði ákveð- ið að lýsa einhliða yfir vopnahléi í Vestur-Sahara þar sem skæru- liðar Polisario berjast fyrir stofnun sjálfstæðs ríkis. Hann sagði að vopnahléð gengi í gildi þegar í stað. Stjórnarherinn myndi ekki berjast við skæru- liða nema á hann væri ráðist. Forsætisráðherrann skýrði frá þessu í ræðu sem hann hélt á allsherj arþingi Sameinuðu þjóðanna í gær í tilefni af fjöru- tíu ára afmæli samtakanna. Hann sagði að Marokkóstjórn væri tilbúin til þess að halda atkvæðagreiðslu í Vestur-Sa- hara um framtíð svæðisins snemma á næsta ári undir eftir- liti Sameinuðu þjóðanna. Skæruliðar Polisariohreyfing- arinnar hafa barist fyrir sjálf- stæði Vestur-Sahara frá árinu 1975 en fram að því hafði’svæðið verið spænsk nýlenda. Polisarío hefur notið stuðnings Alsír- manna í þessari baráttu. Lam- rani sagði að Sameinuðu þjóð- unum væri frjálst að senda full- trúa til að fylgjast með vopnahlé- inu. Hann gaf mjög sterklega í skyn að Marokkómenn myndu samþykkja að Sameinuðu þjóð- irnar fælu Einingarsamtöicum Afríkuríkja að aðstoða við skipulagningu kosninganna um framtíð Vestur-Sahara. Mar- okkómenn gengu úr Einingar- samtökum Afríku í fyrra vegna þess að samtökin viðurkenndu arabíska lýðveldið í Sahara sem Polisario hafði stofnað. Lamrani sagði að það skipti mestu máli að finna lausn á „fölskum vandamálum" í Sa- hara og að kosningar um fram- tíð svæðisins væri eina raunhæfa lausnin. Með því að taka að sér milligöngu í þessu máli myndu Sameinuðu þjóðirnar leggja mikið af mörkum til þess að bæta heiminn. Spænsk mjólkurbú þorna í þurrkatíð Madrid-Reuter ■ Stjórnvöld í Cantabríu, einu helsta mjólkurframleiðslu- héraði Spánar, hafa beðið spænsku stjórnina um að lýsa yfir neyðarástandi í héraðinu vegna langvarandi þurrka sem hafa valdið kúabændum miklu tjóni. Juan Tarim framkvæmda- stjóri landbúnaðarþjónustu Cantabríu segir að aðeins hafi fallið 3,5 lítrar af rigningu á fermetra í september saman- borið við 106 lítra í meðalári. Þetta hafi leitt til þess að mjólk- urframleiðsla hafi dregist saman um sjö til níu prósent í mánuð- inum. Fyrirsjáanlegt sé að sam- drátturinn verði ennþá meiri í þessum mánuði. Héraðsstjórnin í nágranna- héraðinu Austrias, þar sem einnig eru miklir þurrkar, segir að kúabændur þar hafi tapað 2,5 milljörðum peseta (650 mill- jónum ísl. kr.) á þurrkunum. Tapið vegna þurrkanna gerir spænskum kúabændum enn erfiðara en ella að keppa við kúabændur í ríkjum Efnahags- bandalags Evrópu þegar Spán- verjar ganga í EBE í byrjun næsta árs. ■ Riddarar í stjórnarher Marokkó leggja til atiögu. Marokkóstjórn hefur ákveðið að þeir skuli hvíla hesta sína og spara skotfærin í baráttunni gegn Polisario. Norðmenn auka enn á olíuframleiðsluna Aþena-Reuter. ■ Grikkir hafa mótmælt harð- lega við stjórnir Bandaríkjanna og Tyrklands yfir margítrekuð- um brotum flugvéla frá þessum ríkjum í lofthelgi Grikklands undanfarna daga. Talsmaður grísku stjórnar- innar segir að bandarískar her- flugvélar hafi brotið gríska loft- helgi samtals 22 sinnum í fyrra- dag. Tvær sveitir tyrkneskra flugvéla hafi svo flogið inn í gríska lofthelgi í gær og skotið flugskeytum á æfingaskotmörk í Eyjahafi. Bandarísku og tyrknesku flugvélarnar taka þátt í sameig- inlegum heræfingum Banda- ríkjamanna og Tyrkja á umdeildu- svæði í Eyjahafi sem bæði Grikkir ogTyrkirgera tilkall til. Grísk stjórnvöld segjast ekki hafa fengið neina tilkynningu um heræfingar fyrirfram. Grikkir mótmæltu lofthelgis- brotunum við Robert Keeley sendiherra Bandaríkjanna í Grikklandi þegar hann kom í kurteisisheimsókn til Andreas Papandreou forsætisráðherra í fyrradag. ■ Grískar orrustuþotur yfír Eyjahafi. Grikkir ásaka Tyrki og Bandaríkjamenn um heræfíngar í grískri lofthelgi. Grikkir reiðir yfir lofthelgisbrotum Osló-Reuler. ■ Káre Kristiansen olíu- og orkumálaráðherra Norðmanna segir að norsk olíuframleiðsla muni aukast um 40% á næstu fimm árum og verða um 1,1 milljón tunnaádagáriðl990. Kristiansen sagði á ráðstefnu í gær að olíuframleiðslan yrði að minnst kosti komin upp í 860.000 tunnur á dag í árslok. Hann útilokaði allt samstarf við OPEC, samtök olíufram- leiðsluríkja um takmörkun á olíuframboði í heiminum. Kristiansen sagðist samt vera tilbúinn til að ræða við Subroto núverandi formann OPEC, sem jafnframt er olíumálaráðherra Indónesíu. Subroto mun ræða við Peter Walker orkumála- ráðherra Breta síðar í þessari viku en Bretar hafa lýst því yfir að þeir séu ekki tilbúnir til samstarfs við OPEC. Kristiansen taldi litlar líkur á því að aukin olíuframleiðsla Norðmanna myndi leiða til mikillar aukningar á Norður- sjávarolíu þar sem búist er við því að olíuframleiðsla á olíusvæðum Breta í Norðurhafi muni minnka mikið á næsta áratug. Starfsmenn í norska olíuiðnaðinum spá því að olíuframleiðsla Norðmanna muni fara yfir milljón tunnur á dag jafnvel strax á næsta ári þegar byrjað verður að dæla olíu upp úr nýjum olíulindum. ísrael: Eggjastokkalaus kona fæðir barn ■ í fyrsta skipti í sögu læknavísindanna fæddist barn í gær á ísraelsku sjúkrahúsi, af konu sem hefur enga eggjastokka, en komið hafði verið fyrir frjóvguðu eggi í legi hennar. Konan sent er 38 ára fæddi stúlku sem var 2.7 kg að þyngd (6.3 merkur), og heilsast báðum vel. Áður en egginu var kom- ið fyrir f legi konunnar, voru henni gefin hormónin estrogen og prógesterón, hormón sem eggjastokkar myndu framleiða undir venjulegum kringumstæð- um. Pannig reyndu læknar að koma af stað vísi að tíðahring. Var síðan eggi, sem búið var að frjóvga af manni hennar, komið fyrir í leginu. Aðgerðin heppnaðist vel og sagði Joseph Schenker læknir á fæðinga- og kvensjúkdómadeild Hdass- ah spítalans í Jerúsalem, að þessi atburður gæti vakið vonir kvenna um allan heim, sem hafa af einhverj- um ástæðum þurft að láta fjarlægja eggjastokka sína eða eru fæddar með erfðag- alla í kynlitningum að geta eignast barn. & s ~NEWS IN BRIEF October 23, Reuter SOFIA - A Soviel spok' esman dismissed a U.S statement that it was de- ploying mobile SS-25 nuclear missiles as „not corresponding with rea lity.“ He was speaking after a two day Warsaw Pact meeting, attended by Soviet leader Mikhail Gorbachev, which called for the elimination of the threat of nuclear war and improvement in internat- ional relations. • JOHANNESBURG-Se- ven white clergymen seek- ing reconciliation in South Africa decided to meet anti-Pretoria African Nat- ional Congress guerrilias in Zambia. President P.W. Botha’s office said the tríp would amount to defíance of the state aut- hority. • UNITED NATIONS - Morocco announced an immediate unilateral ce- ase-fire in the guerrilla war in the Western Sa- hara, as long as there was no aggression against the territories for which it was responsible, Prime Min- ister Karim Lamrani also asked the U.N. to oversee a referendum next Jan- uary to decide the future. • UNITED NATIONS - Japanese Prime Minister Yashuhiro Nakasone att- acked protectionism and said he was planning make the Japanese market one of the most open in the world. LONDON - South Afr- ica, seeking to reschedule ^ its 24-billion-dollar for- (/) eign debt, presented its á: creditors with a favour- UJ able economic outlook in talks expected to include a request to extend a uni- lateral freezc on repay- ments. • LONDON - Police are investigating an allegation of a 27-million-dollar fraud by officers of the Bank of England, Brita- in’s Central Bank, the Go- vernment said. It was connected with an inquiry into the colapse last year of Johnson Matthey Bankers and its rescue by the Bank of England. • PARIS - Prime Minister Uj Laurent Fabius and De- S s fence Minister Paul Quiles left today for the South Pacific by concorde to witness a nuclear explos- ion at the French test site L|j af Mururoa Atoll, under- ^ lining French determinat- _ ion to press ahead with its ^ test programme in the face ■I of opposition by Pacific ^ nations. IMADRID - Spain began talks with the United Stat- 1 es and is expected to link U.S. troop reductions with government support for continued membership ofNATO. • BANGKOK - Vietnam has appealcd for internat- ional aid to help recover from damage wrought by typhoon Cecii which killed 670 people and left 257 missing, the Vietnam News Agency said. newsinbriefA

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.