NT - 24.10.1985, Blaðsíða 4

NT - 24.10.1985, Blaðsíða 4
 Fimmtudagur 24. október 1985 . f'tey^Hdasíða NT hefur nú göngu sína á nýjan leikeftir nokkurt hlé. Fastir liðir neytendasíðunnar verða a sinum stað, eins og t.d. „Svar um hæl“ þar sem lesendur fá tafarlaus svör við spurningum sem þeir koma á framfæri við neytendasíðuna. Þá og^góðralétta^Ha9Vaa9 kynna uPPskriftir ódýrra Frysting, pökkun, geymsla verðlags 3ð W“l*8t á s^SanhátTmeð þróun Auk fastra liða mun neytendasíðan sinna málefn- um neytenda. Allar ábendingar lesenda eru vel þegnar, bæði hvað v^rð^r efnisval svo og húsráð og uppskriftir. Utanaskriftm er sem áður: Neytendasíða NT Síðumúla 15 108 Reykjavík ■ Við byrjum á því að tala um frystingu kjöts og ann- arra matvæla þar sem slátur- tíðinni er víðast að ljúka um þessar mundir og margur hefur eflaust staðið sveittur í sláturgerð og kjötskurði að undanförnu. Frystikistur eru komnar á mörg heimili og þykja mikið þarfaþing, en það er ekki sama hvernig að frystingu er staðið eigi hún að skila rétt- um og góðum árangri. Þeir sem eru margreyndir í þess- um efnum þurfa sjálfsagt ekki leiðbeininga við en þeir sem eru að stíga sín fyrstu skref gætu haft eitthvert gagn af. Frysting Það er ágætt að stilla fryst- inn á mesta kulda daginn áður en frysta á og jafnvel 2-3 dögum ef frysta þarf mikið magn í einu. Yfirleitt er talið að hrað- frysting vöru t.d. kjöts fari fram við 25 stiga frost og venjulega er miðað við að frostið komist í gegnum 5 cm þykkan matarpakka á 2 klst. og fer það þá eftir þykkt vörunnar hversu langan tíma það tekur að hraðfrysta hana og þegar varan er orðin fros- in í gegn er ráðlegt að lækka hitastigið í 18-20 stiga frost, en varist að hafa frostið lægra en 18 stig því þá er hætt við að ýmis gerlagróður fari að búa um sig. Pökkun Það er mjög mikilvægt að VORT DAGLEGA BRAUÐ Fljótleg pizza Hrísgrjónasalat Pain Perdu Fljótleg pizza 1/2 bolli súrmjólk 1. bolli hveiti 1 tsk lyftiduft 1 msk matarolía 1/2 bolli tómatsósa 1/4 tsk basilikum 1/4 tsk oregano 1 tsk sykur 100 gr soðin ýsa 50 gr rifinn ostur Hrærið saman súrmjólk, hveiti og lyftidufti og búið til mjúkt deig. Látið á borð og breiðið út svo það passi á steikarpönnuna. Hitið olíuna á pönnunni, leggið síðan pizzu- deigið á hana. Hafið fremur lágan hita. Blandið nú krydd- inu og sykrinum út í tómatsós- una. Þegar deigið hefur hefast snúið þá pizzunni við og breið- ið tómatsósuna yfir pizzuna. Leggið fiskinn yfir og stráið rifna ostinum þar yfir. Setjið nú lok á pönnuna í smátíma á meðan osturinn er að bráðna og pizzan er að brúnast að neðan. Ef á að brúna ostinn þarf að bregða pizzunni undir grill í 4-5 mínútur. Látið pizzuna yfir á disk og berið fram með salati. Hrísgrjónasalat 1/2 bolli gulrætur í mjög þunn- um sneiðum 1/2 bolli gúrka í teningum 1 1/2 bolli hvítkál í ræmum 1 pikleslaukur, saxaður (má sleppa) 1/8 bolli græn paprika, smásöx- uð 3/4 bolli kökl hrísgrjón 1/4 bolli majones 1/4 bolli súrmjólk sojasósa eftir smekk Nuddið salatskál rneð hvít- lauk ef vill. Blandið saman grænmetinu. Blandið saman í litla skál majonesi og súrmjólk og hellið því síðan yfir salatið. Blandið öllu varlega santan. Smakkið og saltið ef með þarf en prófið að nota frekar soja- sósu í staðinn. Ef það vcröur afgangur af þessu salati er mjög gott að nota það í samlokur til dæmis með köldu kjöti eða þá á salatblaði. Pain Perdu 2egg 1/2 bolli mjólk 1 msk sykur 4 brauðsneiðar kanelsykur Þeytið saman egg, mjólk og sykur. Dýfið brauðinu í og verið viss um að það hafi blotnað vel í því. Það á að drekka nokkurn veginn alla eggjamjólkina í sig. Steikið á vel heitri pönnu þangað til brauðið er vel brúnað á báðum hliðum. Berið fram með kan- elsykri eða sultu. Kostnaður Pizzan kostar um 45 krónur. Salatið kostar um 90 krónur. Pain Perdu kostar um 40 krónur. Samtals fyrir alla máltíðina 175 krónur eða um 43.75 krón- ur á mann. Uppskriftirnar eru allar gerðar fyrir fjóra. búa kjöt og önnur matvæli í góðar umbúðir því þannig er hægt að forða því að varan þorni, eða versni á annan óæskilegan hátt. Auk þess taka margar vörur í sig lykt og bragð úr umhverfinu og ekki er nú beinlínis gott ef perutertan fær tólgar- bragð úr kistunni! Ýmis efni má nota til pökkunar eins og t.d. ál- pappír. Hann leggst mjög vel að vörunni og útilokar þar með allt loft en loftið veldur því að varan er lengur að frjósa. Álpappír þykir sérlega hentugur utan um feitt kjöt eða fisk og einnig utanum matvæli sem hafa sterka lykt eins og t.d. tólg eða mör. Þegar búið er að pakka vörunni inn í álpappírinn er góður siður að setja plast- poka utan yfir, bæði til að hlífa pappírnum og til að útiloka loft enn frekar. Á markaðinum eru til ým- iskonar álform sem hafa þann eiginleika að þau má bæði frysta og hita. Þau þykja hentug undir ýmsa til- búna matvöru og formin má síðan nota aftur ef vel er farið með þau. Margir kjósa að frysta matvæli í plastílátum og þá verður að muna eftir að loka þeim vel. Enn aðrir nota glerílát, en þau hafa ýmsa ókosti, s.s. fyrirferð, brot- hætt og þung. Glerílátin springa ekki ef þau eru fyllt að 9/io hlutum. Merkingar Það er góður siður að merkja allar þær vörur sem í frystinn fara með heiti vöru og dagsetningu og svo er einnig gott að skrifa utan á pakkann þyngd hans svo það verði fljótlegt að velja það sem hentar hverju sinni. Reynið að hafa matar- pakkana í þeim stærðum sem henta fyrir hin ýmsu tæki- færi. Geymslutíminn Hann má ekki vera of langur og almennt er talið að magurt kjöt geymist mun lengur en feitt, eða allt að 12 mánuðum en feitt kjöt ætti ■ Lesandi hafði samband við neytendasíðuna og kvartaði undan því að milli Hafnar- fjarðar og Reykjavíkur séu gamlir og slitnir strætisvagnar og sagði að verðið væri allt of hátt. Honum fannst einnig tímabært að Landleiðir hf. taki upp skiptimiða eins og t.d. Kópavogsvagnarnir og gerðu ferðalög milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar þar með beinni og þægilegri. Lesandinn vildi vita hvort einhverjar breyting- ar væru fyrirhugaðar á akstri og rekstri Landleiða. Svar um hæl Hróbjartur Jónsson starfs- maður Landleiða hf. sagði að farið milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur kostaði 55 krónur og í vögnunum eru til sölu afsláttarkort með 25 miðum og kosta þau 1100 krónur og því er hver ferð með afslættin- um á 44 krónur. Milli Kópa- vogs og Reykjavíkur kostar farið 23 krónur og afsláttarkort með 25 miðum er á 450 krónur. Hann sagði að talsverö endurnýjun hafi átt sér stað undanfarin ár og mest allur bílaflotinn var endurnýjaður 1976. Hann sagði að verðið væri ekkert borgað niður því þetta væri einkafyrirtæki og bæjaryfirvöld taka ekki þátt í kostnaðinum. Þá sagði hann að helstu breytingar sem gerðar hafi ver- ið á akstrinum væru þær að nú er búið að sameina skóla- og almennan akstur, en með því nást mun fleiri ferðir en ella. Ekki er í bígerð að taka upp framhaldsmiða. ekki að geyma mikið lengur í frystinum en í sex mánuði því fitunni hættir til að þrána þó vel sé búið um kjötið í frystinn. Staðsetning kistunnar Ekki er alveg sama hvar kistunni er komið fyrir og langbest er ef hægt er að koma því við að hafa hana í köldu og þurru geymsluher- bergi og góð loftræsting er nauðsynleg. Ekki er heldur talið ráðlegt að hafa frysti- kistuna nálægt hitagjafa eins og ofni eða þar sem sólarljós nær til. Frystikistu húsráð - Gott er að setja angóru- peysur og annan fatnað sem loðir við í frystikistuna í smátíma, þá hverfur loðnan , og hægt er að nota fatnaðinn eins og ekkert sé... 1 - Þámásetjafötsemhafa fengið í sig tyggjó í kistuna og auðvelt reynist að ná því og enginn blettur situr eftir... - Mörgum þykir gott að setja vín í frystinn, sérstak- lega brennivín og þá verður það þykkt og þykir þá gott með síldarréttum, hákarli o.fl. Verðkönnun á Akureyri ■ Frá Neytendafélagi Akureyrar og nágrennis barst verðkönnun á hreinlætisvörum sem félagið gerði 9.-10. október s.l. Verðkönnunin náði til 21 tegundar og fást vörurnar bæði í apótekum og matvörubúðum. Verslanirnar sem verðkönnunin fór fram í eru Hagkaup, Matvörumarkaðurinn, tvær verslanir KEA og Akureyrarapótek og Stjörnuapótek. Verðmunur reyndist talsverður á ýmsum vörum svo sem bleyjum og Johnson's Baby Lotion. Hagkaup reyndist hafa flestar vörur ódýrastar eða 8, þá kom KEA í Hrísaiundi með 7, Akrueyrarapótek hafði 4 og Stjörnuapótek, Matvörumarkaðurinn og KEA í Sunnuhlíð voru hver um sig með eina vöru ódýrasta. En látum tölurnar tala. Verðkönnun N. Hreinlætisvörur A.N. á Akureyri 9.-10.10.1985 KEA Matvöru- KEA Akureyrar- Maan Haakauo Hrisalundi markaöurinn Sunnuhlió apótek Stjörnu- apótek Bamba dagbleyjur 50 stk 185,00 196,30 230,75 196,35 — 231,00 " náttbleyjur 35 3tk 176,00 186,10 — — -- 218,00 Pampers bleyjur normal 28 stk 269,00 281,10 -- 312,40 375,00 351,50 " " maxi 30 stk 409,00 482,60 — — 537,00 558,00 Sjafnar dömubindi venjuleg 18 stk — 41,60 48,75 41,65 51,00 50,00 litil 10 stk 30,90 26,30 30,90 32,80 32,00 31,00 Vespré dömubindi gulur pk. 10 stk 55,90 — 58,55 59,50 50,00 54,00 Tannkrem Colgate fluor 93 ml 56,90 52,00 48,50 52,05 — 62,00 Tannbursti Jordan stór 59,90 58,90 — 62,00 69,00 61,00 Tannbursti Jordan barnastæró 54,90 — — — 55,00 58,00 Kópral sportsjampó 125 ml 41,90 37,40 — 37,40 -- 40,00 Silkience sjampó 200 ml 82,90 88,10 88,10 95,00 90,00 Wellin sjampó, ódýrasti litur 250 ml — 105,40 77,95 75,10 64,00 — Kópral hárnæring " " 125 ml 36,90 32,30 35,35 34,00 — — Wella hárnæring græn 200 ml 116,00 124,80 135,30 131,40 88,00 121,00 Wella sjampó 200 ml 89,90 93,40 97,45 98,40 93,50 98,00 Johnson's Baby Lotion 120 ml 78,90 91,00 86,70 — 63,00 91,00 Hand san handáburður 75 ml 79,90 84,50 89,90 89,00 90,00 91,00 Plástur Hansaplast 20 stk 37,90 40,80 — 43,00 — 37,50 Friskamín 250 ml 66,20 o co co m 76,10 76,10 69,00 — Sanasol án sykurs 500 ml 133,60 111,30 163,10 120,60 Lægsta verð á hverri tegund er undirstrikaó. Tölurnar i könnuninni skýra sig sjálfar , en litió er hægt aö draga nióurstöóurnar saman þar sem fáar tegundir fengust i öllum búóunum

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.