NT - 26.10.1985, Blaðsíða 1
H NEWS SUMMARYIN ENGLISH SEEP.6
Stjórn BSRB
Elín Ólafsdóttir, þingfulltrúi
KÍ, bað þingfulltrúa að láta
þetta mál ekki verða til þess að
deiluaðifar gætu ekki ræðst við
í bróðerni að aflokinni atkvæða-
greiðslu. Sagðist hún tilbúin til
að fallast í faðma við Kristján
Thorlacius, formann BSRB
þegar úrslit yröu kunn, hvernig
sem þau yrðu. Og það gekk
eftir. Kristján og Elín inn-
sigluðu úrslitin með heitum
faðmlögum.
Danir mega
draga mútur
frá skatti
Kaupmannahöfn-Reutcr.
■ Hans Westerberg yfir-
skattstjóri Dana sagði í
viðtali við norrænu frétta-
stofuna Ritzau að dönsk
fyrirtæki gætu fengið
skattaafslátt út á mútur
sem þau greiddu til er-
lendra aðila til þess að afla
sér viðskiptavina.
Westerberg sagði að
dönskum skattayfirvöld-
um fyndist ekkert athuga-
vert við það þótt fyrirtæki
hefðu sérstakan útgjalda-
lið undir yfirskriftinni
„Mútur". En hann benti á
að mútur væru að sjálf-
sögðu ólöglegar innan-
lands í Danmörku.
■ Úrslitin voru innsigluð með faðmlagi tveggja deiluaðila, þeirra Kristjáns Thorlaciusar, formanns
BSRB, sem mælti fyrir tillögu samtakanna um að úrganga KÍ úr BSRB vxri ólögleg, og Elínar
Ólafsdóttur, þingfulltrúa KÍ, sem var ein af þeini sem taldi að úrslit heildaratkvæðagreiðslunnar
væru á þá leið að úrgangan hefði verið samþykkt. Hvað regnhlífin stendur fyrir er svo annað mál.
Hvort skipulagshreytingar þær sem ræddar verða á aukaþingi BSRB í mars muni gjörbreyta
samtökunum þannig að þau verði að rcgnhlífarsamtökum cr enn ósvarað.
NT-mynd: Sverrir.
■ Mikið var skrafað í bakher-
bergjum á BSRB þinginu í gær
um stjórnarkjör það sem fram
fer í dag hjá samtökunum. Var
mjög óljóst með að hvaða niður-
stöðu uppstillinganefnd kæmist
en þó fóru línur að skýrast í
gærkvöldi.
Samkvæmt heimildum NT þá
mun Kristján Thorlacius gefa
kost á sér í enn eitt kjörtímabil.
Kemur sú ákvörðun í sjálfu sér
engum á óvart. í sæti annars
varaformanns BSRB mun Al-
bert Kristinsson nokkuð örugg-
ur um áframhaldandi setu, því
Haraldur Hanncsson frá Starfs-
mannafélagi Reykjavíkur, mun
að öllum líkindum draga mót-
framboð sitt til baka, komist
uppstillinganefnd að samkomu-
lagi um listann til stjórnarkjörs
og að hann sé hafður þar með á
lista.
Mjög óljóst hefur verið hver
verði kjörinn sem annar vara-
formaður BSRB nú þegar Har-
aldur Steinþórsson lætur af
störfum. Þingfulltrúar hafa ver-
ið mjög áfram um að kona
skipaði það sæti, en erfiðlega
hefur gengið að fá konu til þess.
Það mun þó talið næsta öruggt
að Guðrún Árnadóttir frá Starfs-
mannafélagi ríkisstofnana, láti
undan þeim þrýstingi, sem þing-
fulltrúar hafa liaft á hana að
taka þetta sæti.
Aðrir í stjórn verða Einar
Ólafsson, SFR, en raddir hafa
verið uppi um að hann yrði ekki
í framboði. Haukur Helgason
frá KÍ, Ásta Sigurðardóttir frá
Akureyri, Sjöfn lngólfsdóttirfrá
SFR, Ragnhildur Guðmunds-
dóttir frá símamönnum. Að lok-
um munu tveir af eftirtöldum
þrem einnig sitja í stjórn. Har-
aldur Hannesson SFR, Þorgeir
Ingvarsson póstmönnum og Ór-
lygur Geirsson.
í varastjórn verða tveir bæjar-
starfsmenn og 5 ríkisstarfs-
menn. Frá ríkinu verða einn
fulltrúi lögreglu og einn frá toll-
vörslu. Kennarar munu halda
Rögnu Ólafsdóttur inni og frá
bæjarstarfsmönnum er Hclgi
Andrésson talinn öruggur.
Átök verða svo milli fulltrúa
Vestmannaeyja, Kópavogs og
ísafjarðar um seinni fulltrúa
bæjarstarfsmanna.
■ Formaður og varaformenn BSRB undir umræðu um úrsögn
kcnnara á þingi samtakanna í gær. Kristján Thoriacius, formaður
og Albert Kristinsson munu sitja áfram en Haraldur Steinþórsson
inun láta af störfum sem annar varaformaður BSRB. NT-mynd: Sverrir
Kennarar áfram í BSRB:
Úrslitin innsigluð
með heitu faðmlagi
- Tillaga BSRB um að úrsögn kennara sé ólögleg, samþykkt
með yfirgnæfandi meirihluta
■ Tillaga stjórnar BSRB, um
að líta beri svo á niðurstöðu
allsherjaratkvæðagreiðslu
Kennarasambands íslands, að
nægur meirihluti fyrir úrsögn
KÍ úr BSRB hafi ekki náðst, var
samþykkt með yfirgnæfandi
meirihluta á þingi BSRB laust
fyrir klukkan fimm í gær. 165
greiddu atkvæði með tillögunni
40 voru andvígir, tveir seðlar
voru auðir og tveir ógildir.
Áður hafði frávísunartillaga,
sem nokkrir fulltrúar KÍ báru
fram. verið felld með 126 at-
kvæðum gegn 26.
Fulltrúar KÍ, sem hafa verið
meðmæltir úrsögn, voru að von-
um óhressir með útkomuna,
höfðu þeir álitið að málstaður
þeirra ætti meiri hljómgrunn á
þinginu. Það sem næst gerist í
þeirra málum er að fljótlega í
næstu viku verður kölluð saman
stjórn og fulltrúaráð Kennara-
sambandsins og líklega verður í
framhaldi af því kallað saman
þing K1 og á því tekin afstaða til
þess hvort ný allsherjar-
atkvæðagreiðsla um aðild sam-
bandsins að BSRB verði látin
fara fram.
Kristján Thorlacius sagðist
vera mjög ánægður með þessi
úrslit, þegar þau voru kunn
gerð. Áður hafði hann tjáð
blaðamanni NT að það væri
beint vantraust á stjórn BSRB
ef tillagan yrði felld, og þá yrði
það matsatriöi hverjir af stjórn-
armeðlimum gæfu aftur kost á
sér, en í máli hans fyrir at-
kvæðagreiðsluna kom fram að
öll stjórn BSRB hafði verið
einhuga urn að bera þessa til-
lögu upp. Það hefði því getað
farið svo ef tillagan hefði verið
felld, að enginn í núverandi
stjórn hefði gefið kost á sér til
endurkjörs.
Valgeir Gestsson, formaður
KÍ sagði við blaðamann NT
eftir að úrslit voru kunn, að
þetta væri tilraun til að halda KÍ
með valdi innan BSRB og að
þetta væri mjög ólýðræðislegt.
Áður en tillagan var borin
undir atkvæði fóru fram líflegar
umræður, þar sem ýmis rök
bæði með og á móti voru borin
fram. Sagði Valgeir í ræðu sinni
þá, að ef þingið samþykkti til-
lögu BSRB væri það búið að
kveða úr um að úrsögnin væri
ólögleg. Skoraði hann á þing-
heim að fella tillöguna eða vísa
henni frá og koma þannig í veg
fyrir úlfúð innan BSRB.
Evrópubandalag útvarpsstöðva:
fslendingar taka
þátt í Eurovision
- í fyrsta skipti
■ ísland mun taka þátt í
söngvakeppni Evrópubanda-
lags útvarpsstöðva sem hald-
in verður í Bergen þann 3.
maí 1986. Þessi söngva-
keppni hefur verið haldin 30
sinnum og hefur ísland ekki
sótt um þátttöku fyrr, þótt
keppnin hafi verið send út
héðan að jafnaði og í beinni
sendingu síðustu þrjú árin.
Umsókn Ríkisútvarpsins
var samþykkt í þetta skipti,
þótt vafi sé talinn leika á því
að ísland uppfylli öll skilyrði,
svo sem tæknilega möguleika
á að halda keppni hér ef
fulltrúi íslands sigrar.
„Við létum reyna á þetta
núna, í samstarfi við hinar
Norðurlandaþjóðirnar,"
sagði Markús Örn Antons-
son útvarpsstjóri, í samtali
við NT. „Raunar bjuggumst
við við því að það yrði gerð
einhvers konar tæknileg út-
tekt af hálfu Evrópusam-
bands útvarps- og sjónvarps-
stöðva, á aðstöðu hér til að
halda svona keppni. í svar-
skeytinu var hins vegar ekki
fjallað um þessi tæknilegu
skilyrði eða annað í sam-
bandi við að halda keppnina
hér á landi. Þeim vangavelt-
um er eiginlega slegið á frest.
Það hefur líka sín áhrif að
þetta er haldið í Noregi, og
okkur því gefinn kostur, sem
frændum og nágrannaþjóð
að vera með í þetta skipti.
Ekki hefur enn verið á-
kveðið með hvaða hætti full-
trúar íslands í keppnina
verða valdir, en það mun þó
verða afráðið á næstunni.
fullskipuð!