NT - 26.10.1985, Blaðsíða 3
&
eftir
Ólaf Hauk Símonarson
Flugleiðir:
Vetrar*
áætlun
■ Vctraráætlun Flugleiöa tekur aö
fullu gildi á morgun. Daglegar ferðir
verða til Kaupmannahafnar, sex ferð-
ir í viku til Luxemborgar, fjórar til
London og New York og þrjár til
Glasgow. Tvisvar í viku verður flogið
til Chicago, Gautaborgar, Osló,
Stokkhólms og Færeyja. Vikulega
verður flogið til Detroit og fastar
áætlunarferðir hefjast að nýju til
Salzburg þann 21. desember. Vetrar-
áætlun innanlarids hefur þegar tekið
gildi.
lídiandi
Vesturgötu 5. simi 17445
LEiKFRIAC;
REYKIAVÍKIJR
f Austurbæjarbiói
Laugardagur 26. október 1985
Fréttir
Mögulegt að atvinnuleysisbótaávísanir fari beint til fiskvinnslufyrirtækja vegna
tímabundins atvinnuleysis
Skoðaðu ferðatilboð Faranda
um jól og áramót:
Halldór Ásgrímsson á aðalfundi SF:
Fær fiskvinnslan
greiddar bæturnar?
■ Sune Ahlen og Haraldur Steínþórsson með myndina af rúnasteininum.
NT-mynd: Ámi BJama.
Þing BSRB:
Norrænu verkalýðs-
samtökin heiðra Harald
■ Á fimmtudaginn var Haraldi
Steinþórssyni, framkvæmdastjóra
BSRB, afhent gjöf frá Norrænu
verkalýðssamtökunum, í kveðjuskyni
og sem þakklætisvott fyrir vel unnin
störf í þágu samtakanna, en Haraldur
lætur af störfum sem framkvæmda-
stjóri BSRB 1. desember. Auk þess
mun Haraldur ekki gefa aftur kost á
sér í framboði til kjörs annars varafor-
manns samtakanna á þingi BSRB,
sem nú stendur yfir.
Það var Sune Ahlen, formaður
Norrænu verkalýðssamtakanna sem
afhenti Haraldi gjöfina, batikmynd af
fornum rúnasteini frá Gotlandi, gerð
af Heidi Lange. Sune Ahlen hefur
haft töluverð samskipti við BSRB.
m.a. kom hann hingað til lands í
verkfalli BSRB sl. haust, en norrænu
samtökin studdu BSRB bæði fjár-
hagslega og á annan hátt í kjarabar-
áttu samtakanna.
þennan hátt.
Það eru mörg athyglisvcrð atriði
sem koma fram í svörum Halldórs Ás-
grímssonar m.a. að ráöherra lelur
rétt að athuga sérstaklega hvort ekki
mætti koma á öðru formi en ríkir
nú varðandi atvinnuleysisbætur fisk-
vinnslufólks. í áliti hans segir: „Þetta
ætti að gera það mögulegt að fisk-
vinnslufyrirtæki gætu sótt um at-
vinnuleysisbætur f.h. tiltekinna nafn-
greindra starfsmanria sinna og jafnvel
annast dreifingu á atvinnuleysisbótaá-
vísunum til þeirra." Tilgangurinn cr
sá að auðvelda fiskvinnslufyrirtækj-
um að greiða starfsmönnum laun þótt
tímabundinn hráefnisskortur geri
vart við sig.
Að auki kemur fram í minnisatrið-
um sjávarútvegsráðherra að ríkis-
sjóður mun yfirtaka tímabundið 250
millj. kr. afurðalán banka vegna
skreiðarbirgða og greiða vexti af
þeirri upphæð á tímabilinu I. júni
1985 til 31. desember 1988. Hvað
varðar fiskverö segist Halldór Ás-
grímsson reiðubúinn að leggja fyrir
Aiþingi frumvarp þess efnis að hags-
munaaðilar velji sjálfir oddamann í
yfirnefnd Verðlagsráðs og að sjávar-
útvegsráðuneytið sé tilbúið til þess að
taka upp nýjar matsreglur í tcngslum
við fiskverðsákvöröun.
Sikiley
21. desember, 2 vikur.
Flogið er til Lundúna og gist þar í eina nótt.
Sami háttur hafður á í bakaleiðinni. Á Sikiley
er búið á 1. flokks hóteli í La torre Mandela.
Þetta er yndislegt lítið sjávarborp skammt frá
Palermo. Við mælum sérstaklega með þess-
um ferðum fyrir þá sem vilja njóta sólar og
fagurrar náttúru. Ekki má heldur gleyma því
að á Sikiley eru ómetanlegar fornminjar frá
tímum Fomgrikkja og Rómverja, sumar þær
best varðveittu í Evrópu. Boðið er upp á
skoðunarferðir, og íslenskur fararstjóri verður
með í ferðinni.
Filippseyjar
27. desember, 1 mánuður.
Þetta er í 5. sinn sem Farandi fer til
Filippseyja. Ferðin stendur yfir í mánuð, og
á heimleiðinni er 5 daga dvöl í Hong Kong
innifalin. Á Filippseyjum er dvalið í Cebu,
Zamboanga, Baguio, Bauane og í Manilla.
Gist er í 1. flokks hótelum allan tímann.
íslenskur fararstjóri verður með í ferðinni.
FERÐIR FYRIR ÞÁ SEM VILJA REYNA EITTHVAÐ NÝTT!
■ Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðhera lét í gær Samband fisk-
vinnslustöðva í té skrifleg minnis-
atriði sem svör við minnisblaði frá
sambandinu sem afhent var forsætis-
ráðherra. sjávarútvegsráðherra og
viðskiptaráðherra liinn 11.7. sl. þar
sent hagsmunamál fiskvinnslunnar
voru áréttuð í níu liðunt og óskað var
eftir fulltingi stjórnvalda. Nýlunda
þykir að ráðherra ceri grein fyrir
afstöðu sinni til einstakra mála á
Þyrla Landhelgisgæslunnar:
Tilbúin í næstu viku
■ Afliending nýju Dolphin
þyrlu Landhelgisgæslunnar hef-
ur dregist í rúma tvo rnánuði frá
því sem fyrst var áætlað. í
sumar þegar gengið var frá
kaupunum var talað um ágúst-
lok eða septemberbyrjun sem
hugsanlegan afhendingartíma.
Að sögn Gunnars Bergsteins-
sonar forstjóra Landhelgisgæsl-
unnar hafa tæknileg vandamál
komið upp við ísetningu radíó-
tækja. „Þetta er því miður
þannig hlutur, að það verður að
prófa sig áfrant í þessu. Það er
ekki hægt að leysa þetta á annan
hátt," sagði Gunnar.
Vonast er til þess að þyrlan
fari í skoðun hjá opinberunt
skoðunaraðilum á mánudag.
Gunnar sagði að þeir ættu ekki
að þurfa nema tvo daga, og væri
,þá hægt að afhenda þyrluna.
Sökum þess hve iengi hefur
dregist að þyrlan verði afhent er
viðbúið að tafir verði á heim-
fluginu. þar sem allra veðra er
nú von.
Dagur
mannsins
■ Náttúrufræðidagurinn verð-
ur haldinn á morgun í Kennslu-
miðstöð Námsgagnastofnunar,
Laugavegi 166. „Dagurinn er
helgaður manninum sem líf-
veru, til þess að minna á að við
erum hluti af náttúrunni og
umfjöllun um manninn er veiga-
mikill þáttur í starfsemi náttúru-
fræðisafnsins," segir í fréttatil-
kynningu frá áhugahóp um
byggingu náttúrufræðisafns.
Opið hús verður frá klukkan
13:30 til 16 og verður haft heitt
á könnunni allan tímann. Að-
gangur er ókeypis og allir vel-
komnir.