NT - 26.10.1985, Page 10

NT - 26.10.1985, Page 10
 nr Laugardagur 26. október 1985 10 ul jl Bridge Bridgesambandið fær stórgjöf: Guðmundur Kr. Sigurðsson gefur sambandinu íbúð - Bridgesambandið er um það bil að kaupa húsnæði Guðmundur Sv. Hermannsson ■ Á ársþingi Bridgesambands íslands, sem haldið verður á Selfossi í dag, mun Guðmundur Kr. Sigurðs- son afhenda Bridgesambandi íslands íbúð og stuðla þannig að því að Bridgesambandinu verði kleyft að kaupa hús undir bridgestarfsem- ina í Reykjavík. Og einnig var búist við því að forseti Bridgesambandsins bæri upp tillögu um að sambandið keypti húsnæði sem því stendur til boða við Sigtún. Það er svo sem líkt Guðmundi Kr. að gefa Bridgesambandinu gjöf af . þessu tagi, og það er ekki í fyrsta skipti sem hann stuðlar að framgangi bridgeíþróttarinnar á íslandi. Hann hefur svo áratugum skiptir sinnt þeim lítt öfundsverða slarfa að stjórna bridgemótum og unnið ýmis sjálf- boðastörf enda er hann heiðursfélagi í Bridgesambandi íslands og a.m.k. einum þrem bridgefélögum til viðbót- ar og Guðmundur hefur sérstaklega barist fyrir því málefni að Bridge- sambandið eignist húsnæði. Bridgesambandið stendur traust- um fótum þessa stundina, og hagnað- ur varð af rekstrinum í ár. Enn bætast bridgefélög við og félagar í Bridge- sambandinu eru nú orðnir um 2500. En, eins og Björn Theodórsson forseti BSÍ, sagði við NT, kemur nú fyrst skriður á málin þegar Bridge- sambandið eignast sitt eigið húsnæði, og bridgeáhugamenn geta því séð fram á bjarta daga. í lokin má geta þess að stjórn BSÍ verður óbreytt næsta kjörtímabil, utan að Björn Eysteinsson kemur inn fyrir Guðbrand Sigurbergsson. Aðrir stjórnarmenn eru Örn Arnþórsson Jón Baldursson, Esther Jakobsdóttir Júlíus Thorarinsen, og Guðmudur Eiríksson.Forseti er Björn Theódórs- son og framkvæmdastjóri Ólafur Lár- usson. Brasilía vinnur og vinnur Brasilíumenn hafa verið óstöðv- andi það sem af er undankeppninni á heimsmeistarmótinu í Sao Paulo og eftir 9 umferðir voru þeir í efs;ta sæti með 183 stig, 28 stigum yfir ísraels- mönnum sem voru í 2. sæti með 155 stig. Argentína og Indónesía voru í 3-4. sæti með 45 stig, Kanada í 5.sæti meö 131 !ó stig, Venezuela í 6. sæti með 109 stig og Nýja Sjáland rak lestina með 93 stig. í kvennaflokki var keppnin mjög jöfn og spennandi því aðeins 16 stie skildu að efstu og sjöttu sveit. Þar var sveit Bandaríkjanna efst með 155 stig. Argentína og Taiwan voru í 2-3. sæti með 148 stig, Ástralía var í 4. sæti með 145 stig, Brasilía í 5. sæti með 140 stig og Bretland í 6. sæti með 139 stig. I áttundu umferð urðu úrslit þau að ísrael vann Venezuela 23-7. Kanada vann Argentínu 18-12 og Brasilía vann Nýja Sjáland 25-5. 1 kvenna- flokki vann Bretland Bandaríkin, 17- 13 Taiwan vann Indland 20-10. Brasi- lía vann Ástralíu 20-10 og Argentína vann Venezuela 10-11. I 9. umferð vann Brasilía Venezu- ela 23-7, Idónesía vann Kanada, 1911, og Nýja Sjáland vann ísrael 16-14. í kvennaflokki vann Bretland Argentínu 18-12, Taiwan vann Brasilíu 18-12. Ástralía vann Indland 25-0 og Bandaríkin unnu Venezuela 25-2. Þrátt fyrir að liðin í undankeppni karlaflokksins séu varla þau sterkustu í heimi, hefur velgengni Brasilíu- manna og hrakfarir Nýsjálendinga komið mest á óvart. Eins og komið hefur fram í NS er sterkasta par Brasi- líumanna, Chagas og Assumpco ekki með, en í stað þeirra komu tveir bræður, sem báðir eru háskóla- stúdentar og aðeins 20 og 21 árs, yngsta par sem tekið hefur þátt í heimsmeistarakeppni. Og ef marka má fréttaskeyti Reuterfréttastofunn- ar hafa bræðurnir borið hitann og þungann af mótinu til þessa. í kvennaflokki getur allt gerst enn, cn þó vekur nokkra athygli hvað brcsku heimsmeisturunum gengur illa að innbyrða stigin. Þó á ég von á því að þær nái öðru sæti og komist í undanúrslitin. I karlaflokki gæti síðan dregið til tíðinda um helgina því nú er viðbúið að Indónesum verði bannað að spila við ísraelsmenn. Eftir fyrri leik þess- ara þjóða var forseti indónesfska bridgesambandsis kallaður á teppið hjá stjórn landsins og krafinn skýring- ar. Ef Indónesía mætir ekki til leiks gegn ísrael eiga bridgemenn þar í landi von á nokkurra ár keppnisbanni og sektum. Og það væri til lítils framdráttar fyrir bridgeíþróttina að slík staða kæmi upp, sérstaklega þar sem öldurnar í kringum fsrael virtust vera að lægja. Atburðir undanfarinna vikna hafa þó greinilega hleypt illu blóði í múhameðstrúarmenn, sem kannski raunar er von, og því skýtur þessi gamli draugur upp kollinum aftur. Undankeppni heimsmeistaramóts- ins lýkur um miðja næstu viku og þá Bandaríkjamönnum og Austurrík- ismönnum í undanúrslitum í karla- flokki og A-sveit Bandaríkjanna og Frökkum í kvennaflokki. Esther og Sigurður íslandsmeistarar: ■ Esther Jakobsdóttir og Sigurður Sverrisson Reykjavík, urðu íslands- meistarar í parakeppni (blönduðum Hestur tapaðist úr girðingu á Kjalarnesi 8. okt. sl., sennilega leitað austur, hann er 6 vetra sótrauður, tvístjörnóttur, sú neðri á flipa, ójárnaður. Þeir sem kynnu að hafa orðið varir við hann, vinsamlegast látið vita í síma 91-66-70-65. Kópavogsbúar - Vesturbæingar^ Fyrrverandi nemendur úr Kársnesskóla og Þinghólsskóla fæddir ‘58, ‘59, ‘60. Mætum öll á stórdansleik í veitinga hús- inu Rio i Kópavogi föstudaginn 1. nó- vember. Húsið verður opnað kl. 9.00. Takið með ykkur gamla góða skólaskapið, makar °g kennarar velkomnir. SkSs6 467o8leS,Ír‘Í,kynnÍ ÞátttÖkU ' Síma: HarDaS-noKA Jana S.54670 ‘59. Óla BJarna S: 78653 “ ^ flokki), eftir keppni 30 para um síðustu helgi. Þau sigruðu einnig í fyrra. Úrslit urðu þessi: Esther Jakobsdóttir - Sigurður Sverrisson.......... 146 Soffía Guðmundsdóttir - Stefán Ragnarsson ........... 123 Kristín Þórðardóttir - Gunnar Þorkelsson.......... 107 Dísa Pétursdóttir - Pétur Guðjónsson............. 103 Ragna Ólafsdóttir- Ölafur Valgeirsson........... 101 Kristín Karlsdóttir- Magnús Oddsson ............... 99 Spiíað var í Gerðubergi, og reiknað var út í barometer-fyrirkomulagi, með aðstoð tölvu. Þátttaka var mjög góð í mótinu, 30 pör. Er Ijóst að þetta mót á mikla framtíð fyrir sér, og hefði þátttakan getað verið meiri. Einnig má benda á, að fyrirhugað er að slíta sundur í framtíðinni þetta mót og íslandsmót kvenna í tvímenning, sem haldin hafa verið með viku millibili. Um árangur annarra para er það helst að segja, að þær Soffía og Dísa ná prýðisárangri, Dísa á móti syni sínum Pétri og Soffía á móti Stefáni Ragn.,gamlafélaganum hans Péturs. Frá Bridgefélagi Reykjavíkur Delta ........................ 62 Úrval ........................ 61 Stefán Pálsson ............... 59 Ólafur Lárusson .............. 55 Jón St. Gunnlaugss............ 52 Bridgedeild Breiðfirðinga Eftir sex umferðir af 19 er staða efstu sveita í aðalsveitakeppninni þannig: Ólafur Valgeirsson............. 126 Alison Dorosh ................. 119 Örn Scheving................... 118 Jóhann Jóhannsson ............. 117 Hans Nielsen .................. 111 Daníel Jónsson................. 105 Stjórnandi er ísak Örn Sigurðsson og er spilað í húsi Hreyfils við Grens- ásveg. Opið hús 20 pör mættu til leiks sl. laugardag í opnu húsi að Borgartúni 18 (hefst kl. 13.30) Spilað var að venju eftir Mitchell-fyrirkomulagi. Úrslit urðu þessi (efstu pör): N/S: Björn Halldórsson - Hrólfur Hjaltason........... 260 Albert Þorsteinsson - Sigurður Emilsson .......... 247 Björn Árnason - Daníel Jónsson ............. 237 Grímur Thorarensen - Þórður Sigfússon ........... 223 A/V: Hermann Þ. Erlingsson - Eymundur Sigurðsson .... 264 Friðrik Jónsson - Guðjón Jónsson.............. 263 Baldur Árnason - Sveinn Sigurgeirsson........ 243 Ásthildur Sigurgísladóttir - Lárus Arnórsson................ 233 Meðalþátttaka í opnu húsi er nú komin yfir 20 pör á dag, sem má teljast gott í viðleitni umsjónar- manna, til að létta á bridgelífinu á höfuðborgarsvæðinu, í komandi skammdegi, dags og sálar. Bridgefélag Breiðholts Síðastliðinn þriðjudag hófst Swiss sveitakeppni með þátttöku tíu sveita. Að loknum þremur átta spila leikjum er röð efstu sveita þessi: Björn Jósefsson............... 61 Bergur Ingimundarson.......... 59 Anton R. Gunnarsson ........... 55 Gústaf Vífilsson .............. 54 Baldur Bjartmarsson ........... 47 Næsta þriðjudag heldur keppnin áfram. Frá Skagfirðingum Reykjavík: Aðalsveitakeppni Bridgedeildar Skagfirðinga hófst sl. þriðjudag, með þátttöku 14 sveita. Spilaðir eru 2x 16 spila leikir á kvöldi. Eftir 2 fyrstu umferðirnar, er staða efstu sveita þessi: Björn Hermannsson.............. 50 Sigmar Jónsson................. 50 Leifur Jóhannesson ............ 34 Bernódus Kristinsson......... 32 Guðrún Hinriksdóttir......... 32 Hjálmar S. Pálsson ............ 32 Opið mót á Hólmavík Arnar Geir Hinriksson og Guð- mundur M. Jónsson, urðu öruggir sigurvegarar á opnu móti á Hólma- vík, sem 22 pör tóku þátt í sl. laugardag. Röð efstu para varð þessi: Arnar Geir Hinriksson - Guðmundur M. Jónsson . . 160 Jakob Kristinsson - Julíus Sigurjónsson........ 128 Gunnar Þ. Gunnarsson - lngibergur Guðmundsson ... 81 Óli Björn Gunnarsson - Ragnar Haraldsson.............. 74 Mótið fór vel fram, undir stjórn Ólafs Lárussonar, Formaður Bridge- félags Hólmavíkur er Friðrik Run- ólfsson. Opnu Samvinnuferða/ Landsýnar-mótin á Húsavík: Mikill áhugi er ríkjandi varðandi Opnu Samvinnuferða/Landsýnar- mótin, sem verða á Húsavík. Fyrsta mótið verður helgina 9.-10. nóv. n.k., annað mótið helgina 7.-9 des- emberog úrslitamótið helgina 15.-16. febrúar. Veitt verða sérstök verðlaun fyrir tvö fyrri mótin (sjá vinningaskrá), en í þríðja mótinu verða veitt heildar- verðalun fyrir áunninn árangur í öll- um þremur mótunum, samkv. sérs- takri stigatöflu sem verður kynnt á fyrsta mótinu. Heildarverðlaun vinninga er kr. 350.000, sem gerir þetta að glæsileg- asta bridgemóti sem haldið hefur verið hér á landi til þessa. Skráning í fyrsta mótið stendur nú yfir hjá flest- um félögum á norð/austur svæðinu, auk þess sem skráð er hjá Bridge- sambandinu og Akureyri sérstaklega. Eins og áður hefur komið fram, er boðinn sérstakur pakki fyrir kepp- endur, sem koma langan veg. Þátt- tökugjaldi er skipt í þrennt. Fyrir þá sem koma að sunnan (flug, gisting 2 nætur m/morgunverði, keppnisgj.) kostar pakkinn 4.200 kr. pr. spilara (3.600 kr. án spilamennsku), fyrir þá sem koma á eigin vegum (gisting 2 nætur m/morgunverði, keppnisgj.) er gjaldið 2.400 kr. pr. spilara og fyrir þá sem aðeins spila á mótinu án alls, er gjaldið kr. 1.000 pr. spilara. Keppnisstjóri fyrsta mótsins er Ólafur Lárusson, en Vigfús Pálsson mun annast reiknishliðina með að- stoð tölvu. Bridgefélag Selfoss og nágrennis Fimmtudaginn 17. október lauk hraðsveitarkeppni félagsins. Níu sveitir spiluðu 14 spila leiki allir við alla. Röð efstu sveita varð þessi: Kristján Blöndal .............. 200 Vilhjálmur Pálsson ............. 160 Brynjólfur Gestsson............ 158

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.