NT - 26.10.1985, Blaðsíða 5

NT - 26.10.1985, Blaðsíða 5
■ „Þau segja í æsku hafi ég borðað frosk, en það er argasta lygi, ég át ýsuflök og þorsk,“ syngur Fúsi froskagleypir. Þótt hann sé hin Ijúfasta sál inni við beinið er hann samt svolítið hrekkjusvín... Davíð Þór Jónsson í hlutverki Fúsa sem þessa stundina situr á lokinu á kolakjallara smiðsins en ofaní kjallaranum dúsir lítill drengur - sögumaðurinn í leikritinu sem er ekki mikið um Fúsa gefið. NT-mynd: Svenrir. Tveir varaþingmenn ■ Tveir varaþingmenn Framsóknarfiokksins sitja nú á Alþingi. Það eru þau Magðalena Sigurðardóttir annar varaþingmaður í Vestfjarðakjör dærni og Sverrir Sveinsson varaþingmaður í Norðurlandskjördæmi vestra. NT-mynd: - Sverrir. Laugardagur 26. október 1985 5 Leikfélag Haf narfjarðar: Texti: Margrét Rún Fúsi froskagleypir og félagar hans NT lítur inn á æf ingu og skemmtir sér konunglega ■ Fusi froskagleypir er ágætis sál. Hann er að vísu á viðkvæmum aldri, á gelgjuskeiðinu. „Pældu íðí, ef þú værir á þessum viðkvæma aldri og litlir krakkar væru alltaf að atast í þér. Fúsi er ekkert vondur strákur, hann kemur bara fram við krakkana eins og fullorðna fólkið kemur fram við hann,“ segir Davíð Þór Jónsson sem leikur Fúsa froskagleypi í samnefndu barnaleikriti sem Leikfélag Hafnarijarðar frumsýnir á sunnudag. Leikstjóri er Viðar Eggertsson, Kristín Reynisdóttir annast leikmyndina, Alda Sigurðardóttir búningana, en lýsinguna Lárus Björnsson. Leikritið er eftir Ole Lund Kirkegaard sem íslendingar ættu að þekkja því hann skrifaði meðal annars leikritið Gúmí-Tarzan og fjölda barnabóka sem komið hafa út á íslensku. Olga Guðrún Árnadóttir þýddi leikritið en Ólafur Haukur Símonarson söngtextana, tónlistina samdi Jóhann Morávek. Við Sverrir ljósmyndari brugðum okkur á æfingu eitt kvöldið í þessari viku. Nokkrir áhorfendur sátu útí sal, lítil þriggja ára telpa á bekknum fyrir framan okkur var ekki sátt við með- ferðina á Fúsa og mótmælti hástöfum. Viðar leikstjóri skellihló út í sal og hvað eftir annað ráku strákar á aftasta bekk upp rokna hláturrokur. „Góðan dag drengur minn,“ segir risastór maður með skegg og hatt.“ „Ert þú að leita.að einhverjum?" „Ha, nei, nei, nei, nei,“ segir Fúsi skelfdur. „Þú ert þó ekki að eltast við litlu dreng- ina?,“ segir stóri kallinn. „Nei, nei, nei, nei,“ segir Fúsi. „Ef þú gerir það, skal ég sjá til þess að þú verðir settur í skóla... í fangelsi, meina ég,“ segir stóri maðurinn en svo er honum skyndilega svo ofboðslega mál að hnerra. „A... tjú!!“ En hvaðan kom hnerrinn? Úr maganum á stóra manninum? Fúsi froskagleypir er enginn asni og hann fattar nokk. „He, he, he, he,“ hlær hann kvikind- islega og ræðst á litlu strákana sem duttu innan úr stóra, stóra frakkan- um. „Það er stundum skelfilega erfitt að vera lítill,“ segir annar þeirra mæðulega, þegar Fúsi hefur bundið hann kyrfilega með snæri, en hinum tókst til allrar hamingju að sleppa í burtu. Sannkallað, ekta, barnaleikrit. Og það sem merkilegt er hlutverk litlu krakkanna, Jakobs og Ég og Fúsa eru frumraun leikaranna hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar. Eins og fyrr sagði leikur Davíð Þór Jónsson Fúsa, Eg leikur Hanna Björk Guð- mundsdóttir og Jakob leikur Jón Sigurðsson. Rúmlega 40 manns taka þátt í sýningunni sem að sögn Viðars átti bara að vera lítið sætt verk og byrjaði þannig en svo bættu þau við hlutverkum og heilli hljómsveit, sem leikur bæði undir söng og svo inn á milli til að skapa stemmningu eins og gengur. Fúsi froskagleypir er áttunda leik- sýningin sem Viðar Eggertsson leik- stýrir, en sjálfur hefur hann leikið í einum átta barnaleikritum. Frumsýning verður á sunnudag og sýnt verður í Bæjarbíóinu í Hafnar- firði. Góða skemmtun. ■ Smiðurinn hlær rosalegum hlátri, uhuhuhu, uhuhuhu, jarmar hann. En stundum gerir Fúsi litli honurn s volítið gramt í geði og þá hlær smiðurinn ekki. l.KiKi’KIAC RKYKIAVÍKUR í Austurbæjarbíói Leikstjóri: Þórhallur Sigurösson. Leikendur: Kjartan Bjargmunds- son, Ása Svavarsdóttir, Valgeröur Dan, Gísli Halldórsson, Jón Hjart- arson, Bríet Héöinsdóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Aöalsteinn Bergdal og Helgi Björnsson. NT-mynd: Sverrir. Svöí”'^ al mmW*'l°"“* ttSSSS**'** - * Resettakki ★ Microsoft Basic 32 KB ROM * Hámarksupplausn 560 x 192 ★ 2MHZ 650ZA Processor ★ Sérstakt talnaborð * Fjöldi lykla í borði 81 * CP/M kerfi fáanlegt * Stækkanlegí 192 KB RAM * Skiptanlegt val, 40/80 stafir í lírtu * RGBútgangur ★ Innbyggt Centronics Parallel prentara interface Gunnar Ásgeirsson hf. Suöuriandsbraut 16 Sími 91 35200 N*&tut&wa

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.