NT - 26.10.1985, Qupperneq 2
Nemendaleikhúsið:
Hvenær kemurðu aftur
rauðhærði riddari?
- frumsýning á sunnudagskvöld
■ Ólíkir gestir, bæði í útliti, skapi og hvað varðar lífsskoðanir. Leikritið Hvenær kemurðu aftur, rauðhærði riddari? hefur hlotið
fjölda viðurkenninga en það var frumsýnt í Bandaríkjunum árið 1973. N I'-mynd: Árni Bjarna
?-) I O
Varðskipið ÞOR
selt á 1000 krónur
Eina arðbæra fjárfestingin sem við ráðum við er í varðskipunum strákar!
■ Hvenærkemurðuaftur,
rauðhærði riddari? heitir
leikritið sem Nemenda-
leikhúsið frunrsýnir á sunnu-
dagskvöld. Höfundur er
Bandaríkjamaðurinn Mark
Medoff.
Leikritið Hvenær kem-
urðu aftur, rauðhærði ridd-
ari? var frumsýnt í Banda-
ríkjunum-árið 1973 oghlaut
þá Outer Critic’s Circle
verðlaunin og Obie- og
Drama verðlaunin. Síðan
hefur leikritið verið sýnt
víða um lönd og verið kvik-
myndaö. Leikritið gerist í
lok sjöunda áratugarins í
veitingavagni í suðurhluta
Mexico. Að sögn Stefáns
Baldurssonar leikstjóra
sem jafnframt þýddi verkið
gerast mjög einkennilegir
hlutir í veitingavagninunr
sem leiða til straumhvarfa
hjá gestum og starfsfólki
veitingahússins. Leikritið
væri hörkuleikrit enda
bannað börnum, mikið um
átök og tilfinningasveiflur
en leikritið væri jafnframt
meinfyndið.
Mark Medoff er fæddur í
Illinois árið 1940, óx upp í
Miami þar sem hann lagði
stund á háskólanám og
gerðist síðan kennari við
háskólann í New Mexico.
Hann er nú fastráðinn leik-
ritahöfundur og forstöðu-
maður leiklistardeildarinn-
ar við ríkisháskólann í New
Mexico. Þetta er annað
verk höfundar sem flutt er
hér á landi, hitt var Guð gaf
nrér eyra sem Leikfélag
Reykjavíkur sýndi fyrir
tveimur árum.
Með leikritinu hefst ní-
unda starfsár Nemendaleik-
hússins en Nemendaleik-
húsið samanstendur af
fjórða árs nemum í Leiklist-
arskóla íslands og fjórða
árs nemar þessu sinni eru:
Bryndís Bragadóttir, Eirík-
ur Guðmundsson, Guð-
björg Þórisdóttir, Inga
Hildur Haraldsdóttir, Skúli
Gautason og Valdimar
Flygenring. Auk þeirra
leika í sýningunni gestaleik-
ararnir Gunnar Eyjólfsson
og Sigmundur Örn Arn-
grímsson.
Guðný Björk Richards
annast leikmynd og hún og
Halla Helgadóttir búninga
en lýsingu annast David
Walter. Svo má auðvitað
ekki gleyma fyrsta árs nem-
um í Leiklistarskólanum
sem hafa aðstoðað við upp-
setningu sýningarinnar.
Önnur sýning er á þriðju-
dagskvöld en nánari upp-
lýsingar fást í sfma 21971
þar sem líka er hægt að
panta miða en símaþjónust-
an er opin allan sólarhring-
inn.
■ Það gengur víst ábyggilega þó nokkuð á í leikritinu Hvenær
kemurðu aftur, rauðhærði riddari? fyrsta verkefni Nemendaleik-
hÚSSinS í ár. NT-mynd: Ámi Bjarna
Athugasemd
- við forsíðufrétt NT frá 24. október
■ Valdimar Guðmannsson hóndi að Bakkakoti heldur því fram
í umræddri frétt að Jón Helgason hafi lítil eða engin samráð
liaft við bændur um gerð nýju framleiðsluráðslaganna. Tekið skal
fram að eintak af frumvarpinu var sent öllum bændum landsins
til kynningar um ieið og það var lagt fram.
Ritstjóri