NT - 26.10.1985, Side 7
fff? Laugardagur 26. október 1985 7
uií Útlönd
■ ■ ■ w
Umsáturs-
Argentínu
Buenos Aires-Reuter.
■ Raul Alfonsin forseti
Argentínu lýsti í gær yfir
umsáturslögum næstu 60
daga til að auðvelda löggæslu
í ríkinu þar sem mikið hefur
verið um sprengjutilræði og
annað ofbeldi að undan-
förnu.
Antonio Troccoli örygg-
ismálaráðherra segir að um-
sáturslogin komi ekki til með
að hindra þingkosningar scm
verða haldnar 3. nóvember
næstkomandi. En lögin væru
nauðsynleg til að hægt væri
að handtaka þá sem grunur
léki á að stæðu bak við
sprengjutilræðin að undan-
förnu.
.
Grænlendingar sja
auð í olíudraumum
_______ \
■ Jónatan Motzfeldt formaður
heimastjórnarinnar á Grænlandi.
Hann vill að olíufundir á grænlenskri
grund verði til að auðga Grænlend-
inga en ekki Dani.
Nuuk-Reuter
■ Grænlenskir embættismenn
skýrðu frá því í gær að heimastjórnin
á Grænlandi hefði farið fram á það
við dönsku stjórnina að endursamið
yrði um skiptingu þess hagnaðar sem
kynni að vera af olíuvinnslu á Græn-
landi finnist olía þar.
Grænlendingar fá árlega tvo mill-
jarða danskra króna (8,7 milljarða
íslenskra króna) í opinbera styrki frá
Dönum. Samkvæmt núverandi samn-
ingum um námuvinnslu, sem voru
gerðir árið 1978, fá Danir allan hagn-
að að olíuvinnslu óskiptan uns hann
verður jafnhár styrkjunum. Eftir það
á að semja upp á nýtt um hagnaðar-
skiptinguna.
Jónatan Motzfeldt formaður græn-
lensku heimastjórnarinnar hefur lagt
til að nýir samningar um hagnaðar-
skiptingu hafi samninga kanadísku
stjórnarinnar við stjórn Nýfundna-
lands að fyrirmynd. Samkvæmt þeim
fá Nýfundnalendingar 90% alls olíu-
hagnaðar fyrstu fjögur árin án þess að
ríkisstyrkir séu skertir.
Danskir embættismenn segja að
slíkur samningur myndi gera heima-
stjórninni á Grænlandi auðveldara
um vik að leyfa olíuleit á ýmsum
svæðum þrátt fyrir andstöðu veiði-
manna og fiskimanna. En þeir segja
að sumir danskir stjórnmálamenn
óttist að efnahagslegt sjálfstæði Græn-
lendinga kunni að aukast með slíkum
samningi sem geti ógnað sambandi
Danmerkur og Grænlands.
Olíuleitin við Grænland kemst á
nýtt stig í næsta mánuði þegar olíu-
leitarfyrirtækið Orco Grænland, sem
er dótturfyrirtæki bandaríska fyrir-
tækisins Atlantic Richfield, hefur
olíuleit með jarðlagasýnum á austur-
strönd Grænlands í Jamesonlandi.
Alþjóðaheilsustofnunin:
Ónæmistæring verði
Slegist um
japönsk yen
Tinkreppa
Tinviðskipti stöðvast eftir verðhrun
London-Reuter.
■ Helstu tinframleiðendur heims
hættu að selja tin í gær eftir mikið og
skyndilegt verðfall. Verðfallið kom í
kjölfar yfirlýsingar framkvæmdastjóra
sameiginlegs tinkaupasjóðs tinfram-
leiðenda um að sjóðurinn hefði
ekki lengur fjármagn til að kaupa
umframframleiðslu og stuðla þannig
að háu tinverði.
Sérfræðingar segja að verðlækkun-
in á tini geti numið allt að 50% sem
gerir það að verkum að fjöldi fyrir-
tækja, sem framleiða tin verða gjald-
þrota og tinframleiðsluþjóðir verða
að loka mörgum tinnámum.
Tin er aðallega notað til að húða
stálþynnur sem eru notaðar í niður-
suðudósir eða í aðrar pakkningar. Að
undanförnu hefur ál komið í staðinn
fyrir tin í auknum mæli.
Verðhrunið á tini er gífurlegt áfall
fyrir tinframleiðsluríki sem flest eru
fátæk þróunarríki. Mestu tinframl-
eiðsluríki heims eru Malaysía (28%)
Indónesía (14%), Thailand (13%),
og Bólivía (6%).
■ Rannsóknarmaður í Pasteourstofnuninni í París að rannsaka ónæmistær-
ingu. Ýmislegt þykir benda til þess að þessi geigvænlegi sjúkdómur sé uppruninn
í Afríku og vilja vísindamenn nú koma á rannsóknarstofum þar til að rannsaka
hann.
Á miðnætursýningu íAustur-
bœjarbíói í kvöld kl. 23.30.
Miðasalan í
Austurbœjarbíói opin frá kl.
16.00-23.30, sími 1 13 84
ouo
LEIKFELAG
REYKjAVÍKUR
i AUSTURBÆJARBÍÓI
Tokyo-Reuter
■ Gífurleg eftirspurn var eft-
ir reiðufé í japönskum bönkum
í gær og verðbréf og skuldabréf
lækkuðu meira í verði en dæmi
eru um síðastliðin 40 ár.
Eftirspurn eftir reiðufé eykst
venjulega mikið í Japan í des-
ember þegar fyrirtæki greiða
háar upphæðir í bónus. Jap-
anski seðlabankinn hefur
venjulega brugðist við þessari
seðlaeftirspurn með því að
prenta fleiri seðla sem síðan
eru teknir úr umferð þegar
launamenn leggja bónusinn
inn í banka.
En Seðlabanki Japans hefur
nú tilkynnt að í ár verði fyrir-
tæki og viðskiptabankar þeirra
að útvega rciðufé eftir öðrum
leiðum. Margir bankar óttast
nú að þeir nái ekki að skrapa
saman nægjanlegu reiðufé og
verði að taka okurlán með
refsivöxtum.
Lánastofnanir gripu þess
vegna til þess ráðs að hækka
vexti og selja skuldabréf og
gjaldeyri fyrir yen á hagstæðu
verði. En kaupendurnir voru
fáir svo að skuldabréf og
verðbréf lækkuðu og yenið
hækkaði nokkuð.
Mið-Afríkulýðveldinu verði notaðar
í fyrrnefndum tilgangi.
Ónæmistæring hefur til þessa leitt
um 16000 manns til dauða í 49
ríkjum. Flest fórnarlambanna hafa
verið í Bandaríkjunum og þar hafa
þrír af hverjum fjórum sýktum verið
kynhverfirkarlmenn. Þaðhefurvakið
athygli að mörg tilfelli ónæmistæring-
ar í Mið-Afríku eru rakin til kynferð-
islegra samskipta einstaklinga af
gagnstæðu kyni.
Bangui-Rcuter.
■ Alþjóðaheilsustofnunin, WHO,
hefur mælt með því að rannsóknar-
stofur í þremur ríkjum Mið-Afríku
verði notaðar til þess að samræma
aðgerðir gegn útbreiðslu ónæmistær-
ingar.
Vísindamenn hafa til þessa oft bent
á Mið-Afríku scm upphafsstað sjúk-
dómsins. í>ó svo að yfirvöld í þessum
heimshluta hafi ekki tilkynnt
Alþjóðaheilsustofnuninni um eitt ein-
asta tilfelli ónæmistæringar þá er talið
að sjúkdómurinn sé útbreiddur á
þessum slóðum. Gert er ráð fyrir að
rannsóknarstofur í Zaire, Gabon og
rannsökuð í Afríku