NT - 01.11.1985, Page 1

NT - 01.11.1985, Page 1
) Kjarnorkubyrgi Aimannavarna: Vatnslaust, matarlaust - hvaða 40 fá inni þegar bomban springur? NEWS SUMMARYIN ENGLISH SEEP. 7 Búseti fær lán - Þorsteinn Pálsson fer inn á starfssvið félagsmálaráðherra ■ Húsnæðisstofnun afgreiddi á miðvikudag umsókn Búseta til láns úr byggingasjóði verkamanna og fékk hún jákvæða afgreiðslu. Samkvæmt því hefur Búseti fengið heimild til láns úr Byggingarsjóðinum allt að 80%' af hyggingarkostn- aði til byggingar 40 íbúða í fjölbýlishúsi í Grafarvogi fyrir þá félagsmenn sem teljast til- heyra hópi aldraðra. öryrkja og námsmanna. Á þriðjudag þegar Félags- íbúðarnefnd hafði umsókn Bús- eta til lokaafgreiðslu, kom hraðbréf frá fjármálaráðuneyt- inu, skýrsla sem Jón Steinar Gunnlaugsson hrl. hafði tekið saman fyrir Þorstein Pálsson. um hvort heimilt sé að veita Búseta lán úr Byggingarsjóðin- um. Niðurstaða jóns Steinars er ncikvæð og er vitnað til breyt- ingatillögu, sem Porsteinn Páls- son fékk samþykkta á lögum um Húsnæðisstofnun á síðasta þingi. en með þeirri tillögu var felld niður heimild til annarra sem ekki hafa aðstöðu til að eignast eigið húsnæði við hæfi, sem útilokaði Búseta frá lán- töku. Pað kom nefndarmönnum mjög í opna skjöldu að fjár- málaráðuneytið skyldi vera að hafa afskipti af störfum nefndar- innar, því Húsnæðisstofnun heyrir alfarið undir félags- málaráðherra. Mælti nefndin svo með að Búseta yrði úthlutuö lánin. Alexánder Stefánsson, félagsmálaráðherra, sagði við NT í gær, að það væri Ijóst að fjármálaráðherra gæti ekki haft slík afskipti af Húsnæðisstofn- un. Sagði hann að Húsnæðis- stofnun hefði ákveðin lög til að fara eftir og að hann treysti því fullkomlega að stofnunin væri fullfær um að túlka lögin rétt. Þorsteinn Pálsson, fjármála- ráðherra, þekkti ekki til sam- þykktar Húsnæðisstofnunar, en sagðist hafa átt frumkvæði að því að Jón Steinar gerði lög- fræðilega úttekt á þessu. Hann neitaði því að hann væri með þessu að fara inn á starfssvið félagsmálaráðherra, enda hefði enginn ágreiningur verið á milli ráðuneytanna útaf þessari greinargerð. „Það cr á engan hátt óeðlilegt að svona greinar- gerð sé send á milli ráðuneyta. Þá sagði Þorsteinn að ef Búseta hefur verið veitt lán úr Byggingarsjóði verkamanna án þcss að samþykktum félagsins hafi verið breytt, þá sjái hann ekki annaö en að sú samþykkt eigi sér enga stoö í lögum. ■ Kristján Thorlacius, formaður HÍK, flytur skýrslu sína við setningu aðalfundar HÍK í gær. NT-m>nd: Sverrir Aðalfundur HÍK: Sameining kennara? ■ Aðalfundur Hins íslenska kennarafélags var sett um þrjú leytið í gær, en það stendur fram á laugardag. Sitja um 78 fulltrúar fundinn en auk þess eru gestir frá Norðurlöndunum og einnig formaður og varafor- maður KÍ. Alls eru um 1.100 manns í HÍK. Aðalmál fundarins verður sameining kennarafélaganna og mun stjórn HÍK leggja fram tillögu þess efnis að unnið verði markvisst að þeirri sameiningu og er stefnt að því að hún fari fram seinni hluta ársins 1987. Þó skoðanir séu skiptar meðal fulltrúanna er almennt búist við því að sú tillaga verði samþykkt. Mun sameiningin þá verða með þeim hætti að bæði félögin verða lögð niður og eitt Bandalag kennara stofnað. Samkvæmt heimildum NT eru einnig uppi hugmyndir um aö leggja fram tillögu um úr- göngu HÍK úr BHM og stefna þannig að sameiningu kennara strax en ekki er talið að sú hugmynd eigi mikinn hljóm- grunn á fundinum. ■ Ef til kjarnorkustyrjaldar kæmi þá hafa fjörutíu íslending- ar öruggt skjól fyrir áhrifum þess. Listinn yfir þessa fjörutíu samanstendur af embættis- mönnum, fulltrúum hjálparfé- laga, símastúlkum, radio- amatörum, konum í stjórn Húsmæðrafélags Reykjavíkur ásamt fleirum. Nánar verður greint frá þcssum lista í helg- arblaði NT á morgun. En vist þessa fólks yrði ekki glæsileg ef kjarnorkuárás eða slys henti fyrirvaralaust. Það hefur láðst að búa byrgið ein- angruðum vatnstank svo gestir þess verða að slökkva þorstann með geislavirku Gvendar- brunnavatni ef sprengja spryngi í nágrenni Reykjavíkureðafar- ast úr þorsta ella. Engar matar- birgðir eru heldur í byrginu og virðist vera ætlast til að hjálpar- liðarnir komi með nesti með sér. Þó svo Almannavarnir eigi að vcra undirbúnar undir hverja þá vá scm hugsanleg er hér á landi virðist ekki vera mikii alvara á bak við undirbúning þeirra vegna mögulegrar kjarn- orkuárásar eða slyss. í helgarblaði NT á morgun verður fariö nánar út í þessa sálma. Sviknir hundar á morðfé - enginn hreinræktaður Scháffer á skrá hjá Hundaræktarfélaginu Kasparov með betri stöðu Moskva-Rcutcr ■ Garry Kasparov, áskorandi, stefnir til sigurs í 21. skák einvígis síns við Anatoly Karpov, heims- meistara, sem fór í bið í gær. Kasparov er með hvítt og er með tvo riddara og fimm peð, gegn biskupi, riddara og fimrn peðum Karpovs. Kasparov leiðir 11-9 í einvíginu og nægir einn og hálfur vinningur í viðbót til að hreppa heimsmeistara- tignina. ■ Ræktun á „hreinræktuðum Scháffer-hundum er nýjasti heimilisiðnaðurinn á Islandi. Einn er sá galli á gjöf Njarðar, að hvolparnir eru ekki hreinræktaðir. Þær upplýsingar fengust hjá Hundaræktarfé- laginu að enginn hreinræktaður Scháffer hundur væri á skrá hjá félaginu. Samkvæmt heimildum NT virðist sem fólk selji bland- aða Scháffer-hvolpa sem hrein- ræktaða fyrir allt að fjörutíu þúsund krónur. Algengt verð mun vera 25 þúsund krónur. Heimildarmaður NT sagði að hann vissi allavega um tvær fjölskyldur sem hreinlega hafa ræktað upp blandaða hvolpa og selt sem hreinræktaða. Þá hefur NT heyrt að menn geti fengið allt að hálfa milljón beint í vasann skattfrítt ef tík er nýtt til hins ýtrasta. Nýlegt dæmi. Fjórtán ára drengur keypti hvolp í sumar sem honum var sagt að væri hreinn Scháffer. Kaupverð var 25 þúsund krónur. Nýlega var farið með hundinn til dýralækn- is. Hann fórnaði höndum, því þarna var kominn enn einn, hundur sem hreinlega var seld- ur á fölskum forsendum, þ.e. ckki var hægt að færa sönnur á ætternið. Seljandi neitaði að greiða andvirðið til baka. Helga Finnsdóttir dýralæknir sagði í samtali við NT í gær að hún hefði fengið slík tilfelli til sín, sem getið er um hér að ofan. „Að vonum verða eigend- ur oft sárir. Þetta er svipað því að kaupa sér nýjan Volvo og komast að því að hann er með Trabant vél.“ Guðrún R. Guðjohnsen for- maður Hundaræktarfélagsins sagði að talsvert hefói borið á því að fólk hefði komið með hunda sem það hélt vera hrein- ræktaða Scháffer til skráningar. Enginn hefur uppfyllt skilyrðin. „Það læðist að manni sá grunur að þetta sé gert í ábataskyni. fólk verður að athuga betur þá hunda sem það kaupir og alls ekki taka yngri hund en átta vikna," sagði Guörún. Barðastrandarsýsla: Fé skorið í óþökk bænda ■ í gær var skorið niður fé frá bæjunum Lambeyri, Raknadal og Fjallatúni í V-Barðastrandarsýslu sam- kvæmt skipun landbúnað- arráðherra, án þess þó að hafa samþykki bændanna á Lambeyri og í Fjallatúni, en þeir hafa ekki skrifað undir samning um niður- skurð. Að sögn Stefáns Skarp- héðinssonar sýslumanns í Barðastrandarsýslu er áætl- un um niðurskurð fjár vegna riðuveiki í Barða- strandarsýslu að mestu lokið en hún hefur staðið í tvö ár.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.