NT - 01.11.1985, Blaðsíða 13
í Föstudagur 1. nóvember i 985 13
Fréttir
Engin elliglöp
hja jaxlinum
■ Prizzis Honor (Heiður Prizzi-
anna) ★★★★
Bíóhöllin, Bandarísk 1985
Leikstjóri: John Huston
Kvikmyndataka: Andrzej Bartkow-
iak
Handrit: R. Condon og J. Roach
Framleiðandi: John Foreman
Aðalhlutverk: Jack Nicholson, Kath-
leen Turner, Robert Loggia, VVilliam
Hickey o.fl.
Nýjasta mynd hins tæplega áttræða
leikstjóra John Huston sem Bíóhöllin
sýnir um þessar mundir, Prizzis
Honor, þjáist ekki af neinum elliglöp-
um. Þvert á móti er hér um frísklega
frásögn að ræða, byggða á efni, sem
okkur íslendingum ætti að vera
hugstætt, því það gæti verið sprottið
beint úr Islendingasögunum. Sama
má segja um efnistökin, þau eru ekki
ósvipuð þeim sem afkomendum
Snorra og Sturlu hefur verið kennt að
væri aðall góðrar frásagnarlistar,
hvergi er senu ofaukið og hvergi van
og sérhverju smáatriði sýnd fyllsta
alúð þannig að heildarútkoman verð-
ur hunang fyrir öll skynfæri áhorfand-
ans.
John Huston er einn af þessum
gömlu jöxlum, sem ólst upp í drauma-
smiðjunni á mestu velgengnistímum
Hollywood. Hann hafði lagt ýmislegt
fyrir sig áður en hann tók til við að
skrifa handrit fyrir Warner Brothers
og Universal, m.a. verið boxari og
einnig reyndi hann fyrir sér sem
listmálari.
Árið 1941 leikstýrir Huston fyrstu
kvikmynd sinni, Möltu fálkanum,
með Humprey Bogart og Ingrid
Bergman í aðalhlutverkum. Á þeirri
mynd var enginn byrjendabragur
enda telst húii í hópi sígildra kvik-
myndaverka og varð stefnumótandi
fyrir sæg af glæpamyndum á fimmta
og sjötta áratug aldarinnar.
Margar eftirmynnilegar kvikmynd-
ir hafa komið síðan frá Huston, þó
tæpast hafi nein þeirra slegið við
frumrauninni. í flestum kvikmyndun-
um leitaði hann á sömu mið og höfðu
reynst honum svo gjöful við gerð
Möltu fálkans, í heim glæpa, svika og
pretta, þar sem mannlega reisn er ekki
síður að finna en meðal þeirra, sem
skarta geislabaug heilagleikans í skjóli
laga settum af líkum fyrir líka.
Svo fór þó að Huston leiddist út í
gerð stórmynda, þar sem engar krón-
ur voru sparaðar við framleiðsluna og
endaði það ævintýri í því að hann
gerði kvikmynd byggða á hinni
heilögu bók Biblíunni.
í Prizzi’s Honor er Huston aftur á
heimaslóðum, harðgerð veröld
Mafíunnar í stórborgum Bandaríkj-
anna. Viðfangsefnið er heiðurinn,
söguefni sem íbúum sögueyjarinnar
er velkunnugt um úr sögunum sem
gjarnan er vitnað til á tyllidögum.
Slíkt þarf ekki að koma á óvart að
frásögn af Mafíunni minni á íslend-
ingasögurnar. Sikileyingarnir eru
landnámsmenn í nýja heiminum eins
og Ingólfur og þeir hinir hér á landi
og Charley Partanna, sem Jack Nic-
holson leikur, er af öðrum eða þriðja
ættlið innflytjenda eins og Gunnar á
Hlíðarenda.
Vopnfimur maður sem kippir sér
ekki upp við smámuni eins og að vega
mann og annan.
Heiður fjölskyldunnar er í veði og
fyrir hann verður öllu að fórna,
jafnvel því sem mönnum erkærast því
fjölskyldan er kjölfestan í lífinu. Og
konurnar eru örlagavaldar og má
segja um þær eins og sagt var forðum
hér á skerinu kalda, að köld eru
kvennaráð.
Engin ástæða er til að rekja sögu-
þráðinn hérá þessum vettvangi, held-
ur skulu þeir sem ekki hafa þegar lagt
leið sína upp í Breiðholt til að horfa
á Prizzis Honor, hvattir til að gera
það hið snarasta og kynnast þannig
hinni flóknu atburðarás af eigin
raun.
Þó allt hjálpist að við að gera
söguefninu jafn glæsileg skil og hér er
gert verður þó sérstaklega að geta
framlags Jack Nicholson í hlut-
verki Partanna. Það er langt síðan
hann sannaði að hann er í hópi bestu
leikara vestan hafs og lofið sem á
hann hefur verið borið þvílíkt að
óþarfi er að smyrja enn meiru á. Samt
verður að telja sköpun hans á Part-
anna enn einn leiksigurinn því þar er
hann mjög ólíkur því sem áhorfendur
eiga að venjast Nicholson. Ekki laust
við að hann sé farinn að minna á
Brando á efri árum.
Þó allir leikararnir eigi hrós skilið
fyrir frammistöðu sína vil ég þó sér-
staklega geta William Hickey sem
Doninn gamla, guðföður fjölskyld-
unnar, er hann hreint óborganlegur í
hlutverkinu.
Að öllu samanlögðu þá er hér á
ferðinni kvikmyndaupplifun af bestu
gerð, sem minnir á þá gömlu góðu
tíma þegar Huston var upp á sitt
besta og hvers rneira geta menn
krafist. Sáf
Einleikssvíturnar
■ Erling Blöndal Bengtsson er nú
að flytja samstæðurnar sex fyrir ein-
samla knéfiðiu eftir Bach í fjórða sinn
hér á landi. Hvergi segist hann hafa
meira gaman að því að spila þær en
hér, vegna þess hve vel íslendingar
kunna að meta þessi öndvegisverk.
Og hvergi segir hann að sér sé boðið
upp á að flytja þær allar í einu annars
staðar en í Kammermúsíkklúbbnum
- allar aðrar þekktar menningarstofn-
anir telja nóg, eða fjárhagslega
skynsamlegt, að leika eina svítu eða
tvær í senn. En Kammermúsíkklúbb-
urinn hefur aldrei gefið eftir eina
tommu þegar menningin er annars
vegar, og í tilefni Bach-ársins flutti
hann félögum sínum Kunst der Fuge
í vor, og nú knéfiðlusamstæðurnar
sex.
Erling Blöndal flutti hinar fyrri
þrjár í Bústaðakirkju þriðjudagskvöldið
29. október, að viðstöddum fjölda
■ Erling Blöndal Bengtsson. áheyrenda og við mikla hrifningu.
Hinar þrjár síðari verða á sama stað
á laugardaginn 2. nóvember kl. 20.30,
og ættu allir þeir, sem ekki vilja missa
af einstæðum tónlistarviðburði að
freista þess að fá miða.
Erling Blöndal Bengtsson hefur
spilað þessi dæmalausu verk Bachs
ótal sinnum og sífcllt kafað dýpra,
enda má hann núorðið teljast sjald-
gæfur sérfræðingur í flutningi þeirra.
Að dómi undirritaðs hefur hann
aldrei fyrr flutt þær (hér á Iandi) með
slíkum glæsibrag, léttleik, dýpt og
skilningi og nú; þótt okkur þætti hann
góður í fyrri skiptin, ber hann þó af
sjálfum sér núna. Það sem einkum
var ábcrandi var nýr léttleiki - sem
Thorvaldsen hefði líkt við svif
marmaramyndar miðað við þunga
gipsmyndar. Það er ekkert annað um
þennan flutning að segja að sinni:
betur verður þetta tæpast gcrt.
Sig. St.
HJA NÆSTA
UMBOÐSMANNI
Kópavogsbúar - Vesturbseingar
og Þingholsskóla fæddir ‘58, ‘59 ‘60
Mætum öll á stórdansleik í veitinga hús-
inu Rio i Kopavogi föstudaginn 1. nó-
vember. Húsið verður opnað kl. 9.00
9ó8a s“,askai"8' «■*
"a-ríjsr
Hver býður betri kaup?
Úrbeinað hangilæri...... kr. 455,- pr.kg.
Úrbeinaður hangiframpartur . kr. 355,- pr.kg.
Hreinsuð svið........... kr. 118,-pr.kg.
Nýegg................... kr. 128,-pr.kg.
Lambaskrokkar, sagaðir .... kr. 188,-pr.kg.
Hálfir nautaskrokkar.... kr. 198,-pr.kg.
Nýtt kindahakk.............kr. 159,-pr. kg.
Kjötmiðstöðin
Laugalæk 2 Sími: 686511
KJÖTMIÐSTÖÐIN Laugalæk 2.s. 686511
Kostakaup
Hafnarfirði Sími: 53100