NT - 01.11.1985, Blaðsíða 2
UM ÞESSA HELGI
Hverjir fá að lifa
af kjarnorkuárás?
Fjörutíu manns meö öruggt skjól
fyrir áhrifum bombunnar.
Hverjir eru þeir og hvaö ætla þeir
að gera í kjarnorkubyrginu
á Hverfisgötu ef af
kjarnorkuárás verður?
Er Jón Helgason aö tæta
fylgið af Framsókn?
Spilar hann sóló eöa hefur hann
einhverja já-bræður í áfengis-
málunum? Hvaö finnst SÁÁ
um áfengisvarnir Jóns?
Vitfirring og geöveiki
Hvaö er geðveiki og hver
er geðveikur? Ferðast um söguna
í leit aö svörum viö þessum
spurningum
Leo Smith á íslandi
Einkaviðtal NT-helgarblaðs
viö tónskáldið, trompettieikarann
og rastafarann Leo Smith
sem heldur tónleika
hér um helgina
Auk þessa:
Spáöu í spíralinn • Svarti
hatturinn • ...á meðan hjartaö
þykist slá • Myndir Karls
Kvaran • Tveir táningar o.fi. o.fl.
■ Fyrsta konan sem klæðist búningnum við hátíðleet tækifæri, en
það var .17. júní sl. og heitir hún lngileif Ástvaldsdóttir.
Föstudagur 1. nóventber 1985 2
Isafjarðarkaupstaður:
Færður skaut-
búningur
að gjöf
■ Fulltrúar frá kvenfélaginu
Hlíf og skátafélögunum á fsa-
firði mættu á fund bæjarráðs
ísafjarðar þann 14. okt. sl. Af-
hentu þeir kaupstaðnum að
gjöf, skautbúning ásamt fylgi-
búnaði. Skrautritað gjafabréf
fylgdi gjöfinni með eftirfarandi
áletrun.
„Kvenfélagið Hlíf og skátafé-
lögin á ísafirði færa hér með
ísafjarðarkaupstað að gjöf,
skautbúning, bláan kyrtil ásamt
blúndusaumuðu millipilsi, faldi
og gullkoffur, er smíðaður var í
Gullhöllinni í Reykjavík.
Munstur er málað af Erlu
Sigurðardóttur Kópavogi,
saumaskap önnuðust Hlífar-
konurnar, Helga Sigurðardóttir
og Margrét Jónsdóttir.
Um árabil hafa fyrrgreind
félög staðið fyrir þrettánda-
brennu og .álfadansi sem bæjar-
búar hafa stutt með frjálsum
fjárframlögum. Tekjuafgangur
hefur stundum orðið í gegnum
árin og hefur þá verið lagður í
sameiginlegan sjóð og var á-
kveðið að verja honum til að
fjármagna að hluta kapp á
skautbúningi.
Skautbúninginn skal nota 17.
júní og við önnur hátíðleg tæki-
færi á vegum kaupstaðarins.
Farið er fram á að skautbún-
ingnum verði valinn geymslu-
staður við hæfi í samráði við
félögin."
A fundi bæjarstjórnar 17.
október sl. samþykkti bæjar-
stjórn, að búningunum ásamt
gjafabréfi félaganna verði val-
inn staður í væntatilegu stjórn-
sýsluhúsi á ísafirði, almenningi
til sýnis og ánægju. og þakkar
jafnframtgefendum þessa höfð-
inglegu gjöf.
Meiri framlög til Námsgagnastofnunar
- segja kennarar á Norðurlandi eystra
■ Kennarar á Norðurlandi
eystra héldu aðalfund sinn ný-
lega og samþykktu þar að beina
þeim tilmælum til stjórnvalda
aö stórauka framlög til Nánts-
gagnastofnunar svo hægt verði
að standa af myndarskap við
þau ákvæði laga að allir skyldu-
námsnemar fái námsgögn
ókeypis.
Kennararnir eru mjögóhress-
ir meö þann seinagang sem
verið hefur á afgreiðslu náms-
gagna og telja að vegna hans
þurfi kennarar í æ ríkara mæli
að útbúa námsgögn sjálfir. Peir
vilja benda á að þaö sé ekki í
verkahring kcnnara að standa í
námsgagnagerð og þar að auki
kemur sá kostnaður niður á
sveitarfélögunum í stað ríkisins.
Þar sem margir skólar eru nú
að taka upp tölvukennslu og
útbúnaðurinn er dýr vilja kenn-
arar á Norðurlandi eystra beina
þeim tilmælum til fjármálaráð-
herra að hverfa frá þeirri ætlun
sinni að leggja 25% söluskatt á
tölvur og tölvubúnað. Þeir telja
að með því verði það mjög erfitt
fyrir marga skóla að standa
undir þessum kostnaði og geta
þar með ekki veitt þessa nauð-
synlegu þjónustu.