NT - 01.11.1985, Blaðsíða 7
Föstudagur 1. nóvember 1985 7
Útl önd
Þýskur bóndi:
Ræktaði
kannabis
fyrir hænsni
Dusseldorf-Reutcr
■ Vesturþýskur maður, sem
var liandtekinn fyrir að rækta
kannabis, sagði lögreglumönn-
um að .hann hefði ræktað það
vegna fræjanna sem hann notaði
sem hænsnafóður. Hann sagðist
ekki hafa áttað sig á öðrum
eiginleikum jurtanna fyrr en
ungmenni hefðu farið að stela
úrgarðinum.
I Vestur-Þýskalandi er löglegt
að kaupa blöndu af sólblóma-
fræjum og kannabisfræjum sem
fuglafóður en það er ólöglegt að
rækta kannabis.
Lögreglan segir að kannabis-
plönturnar í garði mannsins
hefðu vegið tæp sex tonn en það
nægir til að búa til 58 kíló af
kannabisefnum sem lögbrjótar
reykja til að komast í vímu.
■ Bandaríski leikarinn Rock
Hudson, sem lést fyrir nokkrum
vikum, kyssti Lindu Evans í
sjónvarpsþáttunum „Dynasty"
jafnvel eftir að hann vissi að
hann var með ónæmistæringu.
Margir hafa gagnrýnt þetta
kossaatriði þar sem þeir telja að
með því hafi Linda Evans verið
látin taka á sig þá hættu að
smitast af ónæmistæringu.
■ Þrátt fyrir miklar vinsældir á Rajiv Gandhi samt ófáa óvini. Hér sést hann halda ræðu í skotheldu búri á fjöldafundi.
Ár liðið frá morðinu á Indiru Gandhi:
Indverjar ánægðir
með Rajiv Gandhi
Nýja Delhi-Reuter
■ Indverjar eru almennt mjög
ánægðir með stjórn Rajivs
Gandhis forsætisráðherra ef
marka má skoðanakönnun sem
dagblað í Kalkútta hefur látið
gera í tilefni af því að nú er liðið
eitt ár frá því að Rajiv Gandhi
tók við stjórnartauminum.
Skoðanakönnunin náði til
1.050 kjósenda, sem valdir voru
úr öllum stéttum þjóðfélagsins í
nokkrum stærstu borgunr
Indlands. Af þeim sögðu 77%
að Rajiv Gandhi hefði staðið sig
jafnvel eða betur en þeir höfðu
búist við. Um það bil 55%
sögðust álíta að samningur
Gandhis við hófsama leiðtoga
sikha í júlí síðastliðnum væri
mikilvægasti árangur stjórnar
hans. Tæpur helmingur taldi
Rajiv Gandhi betri forsætisráð-
herra en móðir hans, Indira
Gandhiyhefði verið.
Indverjar minntust þess með
minningarathöfnum víðsvegar
um Indland að nú er liðið eitt ár
frá morðinu á Indiru Gandhi.
Mörg hundruð þúsund menn
söfnuðust saman á minningar-
fundi í Nýju Delhi og mikill
mannfjöldi var einnig saman-
kominn á minningarathöfnum í
öðrum borgum.
En óvinir Indiru Gandhi
héldu hins vegar fagnaðarhátíð
í Gullna hofinu í Amritsar sem
er helsti helgistaður sikha. Þar
söfnuðust um fimm þúsund rót-
tækir sikhar saman og héldu
lofræður um morðingja Indiru.
Ættingjar morðingjanna voru
klæddir í hátíðarskikkjur og
þeir fengu peninga og heiðurs-
peninga úr gulli.
Leikarar óttast
ónæmistæringu:
Kossa-
samningar
íUSA
Los Angeles-Reuter
■ Samband bandarískra kvik-
mynda- og sjónvarpsleikara hef-
ur krafist þess að leikarar fái
aðæ vita fyrirfram hvort hlut-
verk sem þeir taka aðæ sér feli
í sér kossa með opnum munni
þar sem ónæmistæring getur
smitast með slíkum kossum.
Mark Locher talsmaður leik-
arasambandsins segir að leikar-
ar hafi ekki kvartað yfir kossa-
flensi heldur sé hér fyrst og
fremst um varúðarráðstöfun að
ræða. Sambandið hefur sent
bréf til sjö þúsund kvikmynda-
framleiðenda og umboðsmanna
þeirra þar sem skýrt er frá því
að framvegis verði að skýra
leikurum frá því hvort þeir verði
látnir kyssast áður en þeir
skrifi undir samninga.
Engin lækning er til við
ónæmistæringu sem brýtur nið-
ur ónæmiskerfi líkamans. Sér-
stök hætta er sögð á því að
hommar fái þennan sjúkdóm en
það er áætlað um það bil tíundi
hver félagi í Sambandi banda-
rískra kvikmynda- og sjón-
varpsleikara hafi samkynja ást-
hneigð en félagar í sambandinu
eru alls 58.000.
Suður-Afríka:
■ Hvítir lögreglumenn í Suður-Afríku eru vel vopnaðir enda
halda hvítir íbúar ríkisins fast í forréttindi sín.
Hvítir kjósa
aðeins hvítt
Jóhannesarhor^-Reuter
■ Harölínumenn, sem eru á
móti öllum umbótum sem
skerða vald og forréttindi
hvítra, juku mjög fylgi sitt í
aukakosningum sem haldnar
voru í Suður-Afríku nú í vik-
unni.
Stjórnarflokkurinn, sem að-
hyllist hægfara umbætur á að-
skilnaðarstefnunni, tapaði einu
þingsæti og meirihlutafylgi í
fjórum öðrum einmennings-
kjördæmum minnkaði mikið.
Kosningarnar eru sagðar sýna
að stór hluti hvítra íbúa Suður-
Afríku er á móti því að nokkrar
breytingar séu gerðar á aðskiln-
aðarstefnunni. P.W. Botha
forsætisráðherra segist samt
ætla að halda áfram að minnka
kynþáttamisréttið smám saman.
Leiðtogar blökkumanna
segja umbætur stjórnarinnar á
aðskilnaðarstefnunni yfirborðs-
kenndar og algjörlcga ófull-
nægjandi. En úrslit kosning-
anna benda til þess að hvítir
menn telji jafnvel þær smávægi-
legu umbætur sem þegar hafa
verið gerðar of miklar.
Umbæturnar hafa m.a. verið
fólgnar í því að nú er ekki
lengur ólöglegt fyrir fólk af
mismunandi litarhætti að eiga
kynmök saman og stofnað hefur
verið sérstakt kynblendinga-
þing.
Stjórnmálaskýrendur segja
að stjórnin, sem þarf ekki að
boða til almennra þingkosninga
fyrr en árið 1989, muni nú lík-
lega grípa til harkalegri aðgerða
gegn andstæðingum aðskilnað-
arstefnunnar en hingað til.
~NEWS IN BRIEF
October 31,-Reuter
WASHINGTON
President Reagan said he
would make an announce-
ment on East-West arms
_ control later today. The
ly presidential statement
g
50
b
s
36
Uj
s
Ul
follows a proposal by Sovi-
et leader Mikhail Gorbac-
hev earlier this month that
the superpowers reduce
their arsenals of strategic
missiles by half.
•
MOSCOW-The offici-
al Soviet news agency
TASS said that President
Reagan’s interview with
the British Broadcasting
Corporation (BBC) pro-
ved the United States was
bent on winning military
superiority over the Soviet
Union.
•
SASOLBURG, South
Africa - Hard-line
advocates of apartheid
defeated the ruling Nat-
ional Party in a key by-el-
ection result by proclaim-
ing to voters: „The white
nation is the kingpin of
the South African order.“
•
THE HAGUE - The
Netherlands rejected a So-
viet offer of direct arms
talks if the Dutch put off a
decision due tomorrow in
favour of deploying Cruise
missiles.
•
LONDON - At least
six rival groups formally
bid to build a multi-bil-
lion-dollar fixed Channel
link between Britain and
France and realize a dre-
am dating back nearly 200
years.
•
WASHINGTON - The
United States reported a
record overseas trade def-
icit of 15.S5 billion dollars
in September, outstripp-
ing the previous biggest
shortfall of 13.8 billion in
July last year.
•
VIENNA - The vigil
for Soviet dissident And-
rei Sakharov’s wife Yel-
ena Bonner, who has been
given permission to leave
the Soviet Union, went on
for a third day with no
definite sign of her where-
abouts.
•
ALGIERS - Polisario
guerríllas fighting Mor-
occo for control of West-
ern Sahara have set new
conditions for peace in the
desert territory, the offici-
al Algerian news agency
APS said.
•
LONDON - The
London Metal Exchange,
the world’s premier metals
trading forum, said it ill
open for business despite
failure to resolve the
week-old crísis in the int-
ernational tin industry.
•
BEIRUT - Three Sovi-
et kidnap victims released
exhausted, barefoot and
bearded last night after a
month’s captivity in Le-
banon were under close
I medical surveillance at the
heavily fortified Soviet
Embassy.
•
PARIS - French Nazi-
hunter Serge Klarsfeld
said that Syria was prepar-
ing the way for the expuls-
ion of Alois Brunner, a
former SS officer held
responsible for sending
over 100.000 Jews to Nazi
death camps.
• ,
NEWSINBRIEFl