NT - 01.11.1985, Side 4
r æ Föstudagur 1. nóvember 1985 4
J Fréttir
Splunkunýtt unglingaleikhús:
Veit mamma hvað ég viH?
útileikhús í dag en flóamarkaður á morgun í Galdraloftinu, Hafnar stræti 9
■ Höfuðborgarbúar hafa
eignast nýtt leikhús-ungl-
ingaleikhúsið Veit mamma
hvað ég vil? og það er víst
ðhætt að segja að ungling-
arnir séu að springa af áhuga
ogeldmóði. I dagætlaþau að
standa fyrir útileikhúsi á
svæðinu milli Hlemms og
Lækjartorgs bæði til að vekja
athygli á leiktelagi sínu og
flóamarkaði sem þau halda á
morgun svona til að öðlast
einhvern pening sem getur
staðið undir rekstrinum til að
byrja með.
En það er fleira að gerast
hjá krökkunum. Þau hafa nú
tekið á leigu upp á háalofti að
Hafnarstræti 9 sal sem Sigrún
Valbergsdóttir framkvæmda-
stjóri Bandalags íslenskra
leikfélaga leigir og í salnum
geta þau æft og líklega haldið
sýningar í. „Salurinn sem
hefur hlotið nafnið Galdra-
loftið er himnasending á
þessum síðustu og verstu
tímum,“ segja krakkarnir og
bæta því við að eins og hún
Helena sagði á fyrsta fundi
eftir framhaldsstofnfund þá
eru það forréttindi sérhvers
leikhúss að eiga eða hafa
húsnæði til afnota.
„Salurinn á að vísu eftir að
taka stakkaskiptum áður en
farið verður að æfa í honum,"
sagði Sigrún Valbergsdóttir á
fundi sem krakkarnir héldu
með fréttamönnum í vik-
unni. Og krakkarnir fara að
æfa á næstunni. Að sögn
Vilhjálms Hjálmarssonar
formanns stjórnar Ieikfélags-
ins ætla þau að reyna að
frumsýna fyrstu leiksýningu
sína um mánaðamótin janú-
ar-febrúar. „Það er mjög lík-
legt að Guðrún Gísladóttir
verði leikstjóri þeirrar sýn-
ingar en hún mun líka að-
stoða okkur við val á leik-
riti“.
Krakkarnir vildu taka
skýrt fram að leikfélagið væri
öllum opið, þetta væri alls
engin klíka. Sjálf eru þau á
aldrinum 14-21 árs en enginn
aldurstakmörk væru fyrir
inngöngu í félagið. Stofn-
fundur félagsins var haldinn í
vor en framhaldsstofnfundur
í haust og þegar liafa 82
unglingar látið skrá sig í
leikhúsið.
7
■ Það vantar ekki áhugann og orkuna í meðlimi nýja leikfélagsins
sem höfuðborgarbúar hafa eignast - unglingaleikhúsið Veit mamma
hvað ég vil? Þau ætla í dag að standa fyrir útileikhúsi á
Laugaveginum og á morgun ætla þau að halda dýrindis flóamarkað
þar sem verða meðal annars á boðstólum leðurvörur frá vcrsluninni
Pilot. Hér eru þau stödd á Galdraloftinu þar sem þau hafa
æfíngaraðstöðu og sýningaraðstöðu síðar meir. Frá vinstri: Sigrún
Valbergsdóttir framkvæmdastjóri BÍL, Birna Imsland, Arni Eiríkur
Bergstcinsson, Anna Karlsdóttir, íris Sveinsdóttir, Vilhjálmur
Iljálmarsson, Már W. Mixa og Kristinn Pétursson.
NT-mynd: Sverrir
Sýnishorn af verkum svissnesku listamannanna í Nýlistasafninu.
NT-mynd: Árni Itjarna..
Nýlistasafnið:
Svissnesk
listaverk
■ Sýning á verkuin átta svissn-
eskra listamanna er að hefjast í
Nýlistasafninu við Vatnsstíg.
Sýning þessi er tilkomin
vegna blómlegra samskipta ís-
lenskra og svissneskra lista-
manna undanfarin ár. Hingað
til lands hafa koinið nokkrir
svissneskir listamenn og haldið
námskeið við Myndlista- og
handíðaskóla íslands, í leiðinni
hafa sumir haldið sýningar á
verkum sínum m.a. í Nýlista-
safninu. Þá hefur íslenskum
listamönnum oftar en einu sinni
boðist tækifæri til að sýna verk
sín á svissneskri grund og enn
aðrir hafa haldið þangað til
námsdvalar.
Allir þeir listamenn sem sýna
á þessari sýningu eru innan við
fertugt og telja aðstandendur
sýningarinnar að hún gefi
nokkra ntynd af því hvað sé um
að vera í svissneskri myndlist í
dag. Þrír þessara listamanna
hafa verið hér á landi, en cinn
þeirra kentur Itingað í vor og
heldur námskeið við MHl. Sýn-
ingin opnar kl. 8.00 á föstudags-
kvöld.
Húsgagnaiðjan Hvolsvelli:
Samvinna við útlönd
■ Húsgagnaiðjan Hvolsvelli
hefur brugðist við aukinni sam-
keppni á íslenskum húsgagna-
markaði, með því að Iterða
sífellt kröfur um framleiðslu-
gæði, og jafnframt tekið upp
aukna framleiðslusamvinnu við
erlend húsgagnafyrirtæki.
Þau fyrirtæki erlendis sem
Húsgagnaiðjan á samvinnu við
er norska fyrirtækið Ekornes,
sænska fyrirtækið Ulferts og
danska fyrirtækið Flemming
Hvid Möblerarkitektfirma, og
samkvæmt leyfi frá þeim fram-
leiðir hún ýmiskonar húsgögn
sem ella væru alveg framleidd
erlendis og síðan flutt inn.
Þessi fyrirtæki tlytja bæði
mikið út og húsgögn þeirra eru
framleidd í ýmsum öðrum lönd-
um en heimalöndunum. Með sam-
vinnunni við Húsgagnaiðjuna
Hvolsvelli hefur Island bæst í
hóp framleiðslulandanna, í stað
þess að vera einungis innflytj-
andi húsgagna frá þessum
kunnu erlendu fyrirtækjum.
Hefur Húsgagnaiðjan lagt
mikla áherslu á að kynna þessa
framleiðslu sína og gerðir hafa
verið tveir litprentaðir bækling-
ar þar sem gerð er ítarleg grein
fyrir framleiðslunni. Annar
fjallar um húsgögn frá Flemm-
ing Hvidt Möblerarkitektfirma
er hinn um Ekornes/Ulferts hús-
gögnin og hefur honum verið
dreift til allra heimila og fyrir-
tækja í landinu.
Hjá Húsgagnaiðjunni Hvols-
velli vinna nú 17 manns og
fyrirtækið er því mikilvægur
hlekkur í atvinnulífi á Hvols-
velli.
■ Sýning á húsgögnum úr nýútkomnum bæklingi Húsgagnaiðj-
unnar stendur nú yfir í JL-húsinu, Hringbraut 121 Reykjavík, og er
þessi stóll þ.á.m.
Lífláti hótað í keðjubréfi
■ Keðjubréf með óhugnan-
legum hótunum um dauða og
limlestingar hafa verið'á ferð-
inni upp á síðkastið. í bréfinu
er viðtakanda hótað að hann
geti átt von á dauða sínum ef
hann geri ekki það sem boðið
er í bréfinu. Fylgi hann hins-
vegar fyrirmælum mun gæfan
blasa við honum.
Eitt slíkt bréf kom nýlega í
póstkassann hjá Önnu Stein-
arsdóttur á Kópaskeri. Hún
sagði í samtali við NT að
bréfið, sem er á ensku, hafi
verið póstlagt á Ólafsfirði. Þar
þekkir hún engan. Anna er
staðráðin í því að slíta keðj-
una. Hún sagðist ekki vera
hrædd við þessar hótanir, en
bréf af þessari gerðinni vekti
hinsvegar reiði hennar sagði
hún.
Bréfið segir að viðtakandi
skuli senda tuttugu önnur bréf
til þess að viðhalda keðjunni.
Engri umbun er lofað í bréf-
inu. umfram það að sá sem
fylgir fyrirmælunum mun
verða lukkunnar-pamfíll í
framtíðinni.
í niðurlagi bréfsins er sagt
frá því hvað hafi komið fyrir
þá einstaklinga sem slitu keðj-
una. Þeir misstu vinnuna, kon-
una og jafnvel lífið. Öll nöfn
þeirra sem fyrir óláninu urðu
eru ensk.
Anna sagði að það væri
augljóst að enginn gæti haft
hagnað af slíkum bréfum nema
þá Póstur og sími.