NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 01.11.1985, Qupperneq 11

NT - 01.11.1985, Qupperneq 11
Föstudagur 1. nóvember 1985 11 ta y Sjávar síðan Nokkrar aflafréttir: Misjafnar gæftir - NT heyrir hljóðið í mönnum út um land Yestfírðir: ■ Á Patreksfirði hefur illa veiðst þessa vikuna. Bátarnir hafa verið með 3-4 tonn á dag, og er það ekki nema um þriðjungur af því sem venjulegt er. Togarinn þeirra, Sigur- ey, landaði um síðustu helgi og því enn vinna í frystihúsinu. Tálknfirðingur landaði 22. október sl. 111 tonnum á Tálknafirði, aðallega grálúðu. Lítið hefur veiðst hjá minni bátum. Á ísafirði landaði togarinn Guð- bjartur um 100 tonnum á mánudag, aðallega þorski. Tveir línubátar, Orri og Guðný, eru á ísafirði og hafa fengið 56 tonn í róðrum. Guðbjörgin, togari íshússfélagsins á Isafirði hefur undanfarið verið í slipp í Þýskalandi. Smábátar eru í veiðibanni til mánaða- móta. Vel hefur veiðst af skelfisk á ísafirði. í Hnífsdal landaði togarinn Páll Pálsson um 80 tonnum sem fóru í frystihúsið og um 36 tonn í gáma. Togararnir á Þingeyri hafa aflað vel undanfarið, á mánudaginn land- aði Framnesið um 60 tonnum í gáma og 25 tonn fóru í frystihúsið. Slétta- nesið landaði á þriðjudaginn 124 tonnum. Smærri bátar á Þingeyri hafa lítið komist út vegna veðurs. Togarinn Gyllir á Flateyri landaði í vikunni um 86 tonnum, þar af fóru um 26 tonn í gáma. Áflinn var blandaður, þorskur, ýsa og karfi. Illa hefur gefið fyrir smærri báta. Togarinn Heiðrún í Bolungarvík landaði á mánudaginn 85 tonnum af þorski og á miðvikudag landaði togar- inn Dagrún um 120tonnum af þorski. Rækjutogarinn Sólrún landaði einnig á miðvikudag 17 tonnum af úthafs- rækju. Loks landaði togarinn Hugrún um 20 tonnum í gær, helmingur aflans var bolfiskur, en hinn rækja. Eru Bolvíkingar ánægðir með þennan góða afla á svo stuttum tíma. Norðurland: Á Norðurlandi hefur afli verið þokkalegur og á Akureyri landaði Sléttbakur á mánudag 168 tonnum af karfa og grálúðu. Hringbakur kom inn með 244 tonn af þorski á miðviku- dag. Lítið er róið á trillum frá Akur- eyri og bátaútgerð er lítil sem engin. Togarinn Núpur landaði á Greni- vík um 40 tonnum af þorski og báturinn Óskar landaði um 3 tonnum í byrjun vikunnar. Dalvíkingar hafa fengið talsverðan fisk, en togarinn Dalborg kom með 90-95 tonn og er nú að fara í siglingu. Bliki landaði um 50 tonnum og hann er einnig að fara í siglingu á næstunni. Togarinn Björgúlfur frá Dalvík hefur landað að undanförnu í Hafnarfirði og hann er væntanlegur inn til Dalvík- ur á mánudag. Togarinn Björgvin landaði einnig um 115 tonnum í Hafnarfirði í gærmorgun. Baldur er nýkominn úr siglingu og er nú sem stendurí slipp. Frá Dalvík hefur lítið verið róið á trillum þessa viku vegna sunnanstrekkings. f Hrísey hafa gæftir verið fremur slæmar og fiskirí tregt, en togarinn Snæfellið kom inn á miðvikudag með 100 tonn af grálúðu og þorski. Togar- inn ísborg hefur legið í slipp á Húsa- vík síðan í júlí, kvótalaus. Eyborgin hefur verið á netum en afli fremur lítill. Rækjubáturinn Svanur hefur verið í slipp á Dalvík að undanförnu. Á Raufarhöfn landaði togarinn Rauðinúpur 76 tonnum af grálúðu og þorski á mánudag. Trillur hafa ekki farið á sjó vegna ótíðar á Raufarhöfn. Til Þórshafnar kom Fagranesið með um 100 tonn af þorski og bátarnir Hafrún og Sólberg fóru í einn róður í vikunni og komu inn með um 700 kg hvor. Togarinn Gullver landaði 75 tonnum og skiptist sá afli á Raufar- höfn, Bakkafjörð og Þórshöfn. Austurland: Á Austfjörðum hafa menn einbeitt sér að síld og loðnu eins og undan- farnar vikur. Þar hefur verið frekar leiðinleg tíð uppá síðkastið. Á Djúpavogi hefur enginn bol- fiskafli verið, bara rækja og síld. Sunnutindur er á rækju og landar á Djúpavogi þar sem rækjan er unnin og seld til Bretlands. Svipaða sögu er að segja frá Höfn í Hornafirði og hefur verið landað þar yfir 3000 tonnum af síld síðustu daga. Togarinn Þórhallur Daníelsson fór í siglingu í fyrradag en Freyr seldi í Hull og Grimsby í gær og fékk þokkalegt verð fyrir aflann sem var þorskur, eða 51,70 kr. á kílóið. Á Austfjörðum hefur verið nóg að gera í loðnu og síld, en gæftir hafa verið lélegar fyrir smærri bátana. Austfjarðartogararnir sigla því með sinn afla. Otto Wathne sigldi til dæmis með 147 tonn af þorski og fékk fyrir það um 47 kr. á kílóið. Suöurland: Frekar dræm veiði hefur verið hjá togurunum að undanförnu. Þrír hafa landað í vikunni, Sindri 100 tonnum, Halkion 75 t. og Vestmannaey 90 t. Vinnan í Eyjum snýst því að mestu um síldina. Fjórir síldarbátar lönd- uðu í gær; Barði 130 t., Dalarafn 90 t., Glófaxi 60-70 t. og Valdimar Sveinsson 150-160 tonnum. Tveir síldarbátar höfu landað fyrr í vikunni og von var á fleirum í dag. Trollbátar landa sínum afla öllum í gáma til útflutnings. í Þorlákshöfn hefur verið mikið gæftaleysi að undanförnu og því sára lítil vinna þar til síldin tók að berast þangað í vikunni, 277 tonn og 110 t. sem Jóhann Gíslason ÁR landaði í gær. í dag er síðan von á einum 5-6 síldarbátum að austan og því nóg að gera næstu daga. Þorlákshafnarbúum þykir veðrið hafa sett leiðinda strik í (síldar)reikninginn, þar sem bátarnir þeirra hafa orðið að landa á Aust- fjörðum vegna veðurs þar til nú. Sem dæmi um gæfta- og aflaleysi síðustu viku má nefna að 7 bátar lönduðu samtals aðeins um 28 tonnum alla vikuna. Reykjanes: Á Reykjanesi hefur veðrið sett strik í veiðar síðastliðinn hálfan mán- uð eða svo. í Grindavík var síldar- löndun góð og menn bjartsýnir þó þeir hefðu misst af síldarævintýrinu í ár. Þar hafa komið um 100-200 tonn úr sjó annan hvern dag undanfarið. I Keflavík og Njarðvík var lítið að frétta, 2 bátar eru á línu, og koma inn með 2-3 tonn mest, 5-6 bátar á netum og koma þeir inn með frá 100 kílóum til 2-3 tonna. í Hafnarfirði er góð atvinna og nóg að gera. Togarar koma daglega með 100-120 tonn hver, mest þorsk og karfa. í Reykjavík eru menn fremur bjartsýnir, sögðu vera ágætis fiskirí. Hjá BÚR hefur komið reytingur af karfa, nóg til vinnslu , og sæmilegt magn miðað við árstíma. Ásgeir RE kom inn með 110 tonn í morgun hjá ísbiminum og koma togararnir þar með um 100 tonn á dag. Togarar Hraðfrystistöðvarinnar eru í siglingu og selja á erlendum markaði. Vesturland: Haustvertíðin hefur gengið illa á Vesturlandi. Bátar sem stunda drag- nótaveiðar hafa síðustu daga verið að kroppa þetta 200 kíló og upp í tvö tonn. Sömu sögu er að segja af línuveiði og netum. Ótíð hefur verið mikil og smærri bátar hafa lítið róið á Snæfellsnesi. Togarinn Krossavík landaði 140-150 tonnum af þorski á Akranesi í gær. í síðustu viku komu rúm 65 tonn af bolfíski á land í Ólafsvík. Þar af átti togarinn Jökull 18 tonn. Eftir að Hraðfrystistöðin hætti að taka við afla, á miðvikudag fyrir rúmri viku hefur aflinn verið unninn í verkunarstöðvum í nágrenn- inu. Eins dauði annars brauð. Grund- firðingar og Hólmarar hafa haldið sig eingöngu við skelina, og voru 13 bátar frá Stykkishólmi að veiðum í gær og 6 frá Grundarfirði. DAGANA IJl'l HELGINA LJúfmeti af léttara taginu verður á boðstólum; hvers konar ostar, auk margra forvitnilegra rétta sem bárust í samkeppnina um „Bestu uppskriftirnar ’85“ „Bestu uppskriftirnar '85" Við kynnum nýjan glæsilegan bækling með fjölda uppskrifta úr samkeppninni. MtÍUtMr SJÁVAKIUVIIIK SJÁVARRÉTTUR „A LA SOFFIA’ I.ÍÍXUSFlSKRÉrrtlH KOLI ÚTOERÐARJ*IANN«' 805 H rrMfi! 09 5iwrn> i V*l •! uAjm * .KW 8 lrn*)i xvct-ir ícckW.1 * l li.iM>r * L'2 SlíAtiunur. 5df-<titia • r> ) ,ci ;:l c.iiiy, * ; 3>*n ýurU 5ö»ki> * : i pipriw. «><wa * 3 fnxui íkarjr l * (jm oi»1)í> fncmn » t >' <1 i-.int <Í4 ikúlt:»l(5CT> * FJ t hfc s-> 1 * t-í Wv • I.'2 t>k p.Ji;iisiKWt * ) IM. Urcl » I >i t»k M.pUuKU'- Mcimí ÍMÁOg fcfcbV»M» t MVt'fl fcimí (V!p»ikaKiii, guaotwwm 09 »«*>■» * tóo a fct>na«s«iúsfcuf * m * IOCki * KO3 rtaswf t Isuiett * i »w3 c3» gtMi pipúKa * Í0 8 ívcppri taslei. fcKrW)Bt.V1U\ l tit, tóíl * i We fcvíwr pi.w * \fl t»k. * t'? Mk. fíxvlircií prrcwacjte * IO SÖSA 105 s tKppmlttt • ICO <t MCtjM»Ui *Cinjii> * 4 n< tr.tfcon » IW) <j 03 iwpp'' i 3*11*8» HifceS xitjöfí, S<*>i3 ItvK pa?ii» í i tKiloia? »irtðlinu. SseriS ýrjn.t ng n.M >n:n <Jm i intmt i 4ut»u» i»9 Ut;8 þntta fcnen* ifctcre. Síljií tJÁUI»»tiw uy Vt.»ki> út > cj Ut»tx P» Kttur át < 03 tátia Lnií tft. |Drr.!» ttetítftxi Itonaiit jt i tíisiuaií 11-3 <*<n Bend irttitin fram mrJ <íWbMl(i: ■rijóntm «8 «.».*. íti054i<ili vjj StUubtíaíi. ímifS. BtiatiiJ IuiaKíIkp sotiuR t hoil* fifl (.ririiá hrtm irc.mrm *rti ll<fcioi Vtjll Mtsno. cúrntjúlfciM í*:3u rjóiC4Rn tJ»:i*lniA ijétTfcúm «8 ataanyinn tS fctytklinu i sMI ng fcrtrriít v<i síim? ttriiiá áwfc yl'.t ííXr'j i fc»rim: »g M»Jí5 »íf'i;- M-.iewt- yi > tfcifcW í ofuf f.i fXTv ( Í5-A? min • Sfctcifíií réitlnif wcS fimðhim 09 siixÍRum ng fcerW fcjtnR fr»rr. m<>5 tnttt»ufc*hr»u.V. Kynntu þér íslenska gæðamatíd Nú hefur þú tækifæri til að kynna þér niðurstöður íslenska gæðamatsins á ostunum sem voru teknir til mats nú í vikunni. Ostameistararnir verða á staðnum og sitja fyrir svörum, um allt sem lýtur að ostum og ostagerð, og bjóða þér að bragða á ostunum sínum. Ostar á kynningarverði Ostarnir verða seldir á kynningarverði OSTADAGANA, notaðu tækifærið. OPIÐ HÚS kl.I-6 laugardag 8t sunnudag “ að Bitruhálsi 2 x * 3 < Verið velkomin OSTA-OQ (D SMJÖRSALAN

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.