NT


NT - 01.11.1985, Side 14

NT - 01.11.1985, Side 14
TONLEIKAR Flauta og gítar í Gerðubergi ■ Kolbeinn Bjarnason flautulelkari og Páll Eyjólfsson gítarleikari munu koma fram á næstu sunnudagstónleikum í Menningarmiðstöðinni Gerðu- bergi. Peir munu leika gömul verk og ný. Þau elstu eru samin við upphaf 18. aldar, en það yngsta var samið í febrúar 1985. Innlend verk eru eftir Atia Heimi Sveinsson og Ey- þór'Þorláksson, en erlend eru frá mörgum löndum, Ung- verjalandi, Austurríki, Þýska- landi, Frakklandi og Ítalíu. Páll Eyjólfsson læröi á gítar hjá Eyþóri Þorlákssyni og stundaði framhaldsnám hjá meistara José Luis Conzales á Spáni. Kolbeinn lærði flautu- leik m.a. hjá Manúelu Wiesler, í Basel og New York. Þeir Tónleikarnir byrja kl. 17.00 félagarhafaspilaðsamaníár. sunnud. 3. nóvember. ■ Kolbeinn Bjarnason og Páll Eyjólfsson segja að flautan og gítarinn séu líkt og sköpuð hvort fyrir annað. Blásarakvintett Reykjavíkur: Tónleikaferð til Austfjarða ■ Blásarakvintett Reykja- víkur mun halda ferna tónleika á Austfjörðum um næstu helgi. Laugard. 2. nóv. kl. 11.00 verður hljóðfærakynning og stutt efnisskrá í Egilsstaða- skóla fyrir nemendur. Kl. 17.00 verða svo tónleikar í Egilsstaðakirkju á vegum Tónlistarfélags Fljótsdalshér- aðs. Tónleikar á Ncskaupstað verða svo kl. 21.00 á laugardag á vegum Menningarnefndar Neskaupstaðar. Sunnudaginn 3. nóv. kl. 11.00 verður hljóðfærakynning og stutt efnisskrá í Tónlistar- skóla Eskifjarðar fyrir nemend- ur á Eskifirði og Reyðarfirði. Á efnisskránni eru verk eftir Beethoven, Þorkel Sigur- björnsson, Ligeti, Sweelinck og Arnold, og auk þess tónlist af léttara taginu eftir Scott Joplin og Rimsky-Korsakóv. Þessi tónleikaferð Blásara- kvintetts Reykjavíkur er að hluta til styrkt af fjárveitingu Menntamálaráðuneytisins til Félags íslenskra tónlistar- manna. ■ Blásarakvintett Reykjavíkur var stofnaður 1981. Hann skipa f.v.: Daði Kolbeinsson, Einar Jóhannesson, Hafstcinn Guð- mundsson, Jósef Ognibene og Bernard Wilkinson. Hljómskálakvintettinn með tvenna tónleika ■ Nú um helgina heldur Hljómskálakvintettinn tvenna tónleika, þá fyrri í kirkjunni í Hveragerði laugardaginn 2. nóvember kl. 16.30 og hina síðari í Háteigskirkju í Reykjavík sunnudaginn 3. nó- vember kl. 17.00. Hljómskálakvintettinn skipa málmblásararnir Ásgeir H. Steingrímsson trompet, Sveinn Birgisson trompet, Þorkell Jóelsson horn, Oddur Björnsson básúna og Friðberg Stefánsson túba. Á efnisskránni þessa helgi er Renaissance- og barrokk- tónlist. ■ Sveinn Birgisson trompet, Oddur Björnsson básúna, Friðberg Stefánsson túba, Þorkell Jóelsson horn, Ásgeir H. Steingrímsson trompet. Föstudagur 1. nóvember 1985 14 Sunnudagsferð F.í. 3. nóv Ferðafélag íslands stendur fyrir dagsferð sunnudaginn 3. nóvember kl. 13: Reykjaborg - Reykjafell - Skammidalur. Ekið að Suðurreykjum, gengið þaðan á Reykjaborg yfir á Reykjafell og komið niður í Skammadal. Brottför frá Umferðarmið- stöðinni. austanmegin. Far- miðar við bíl. Frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna. Ferðafélag íslands. (Jtivistarferðir Ný helgarferð 2.-3. nóv.: Emstur - Ker - Markar- fljótsgljúfur. Notfærð verður sumarfærð á fjöllum til óbyggðaferðar í byrjun vetrar. Ekið heirn um Fjallabaksleið syðri. Einstæður ferðamögu- leiki á þessum árstíma. Gist í góðu húsi. Brottför laugardag kl. 8. Sunnudagsferð 3. nóv. kl. 13.00: Hellisheiði - Draugatjörn, gömul þjóðleið. Varðaða leið- in um Hellisheiði er létt og skemmtileg leið. Brottför frá BSÍ, bensínsölu. Farntiðar við bíl, en frítt er fyrir börn í fylgd fullorðinna. Haustblót á Snæfellsnesi 8.10. nóv: Gist verður að Lýsuhóli. Sundlaug og heitur pottur. Gönguferðir um strönd og fjöll. Afmælisveisla. Farar- stjóri verður Ingibjörg S. Ás- eeirsdóttir. Laugardagsganga Hana nú í Kópavogi Vikuleg ganga Frístunda- nesvegi 12. Gengið í um hópsins Hana nú í Kópavogi klukkutíma. Ungir og gamlir verður á morgun. laugardag- eru velkomnir. Gengið verður inn 2. nóvember. Lagt verður hvcrnig sem viðrar. Klæðist ^f^tað^cL^OJIO^rá^igra^hlýlega^vindsvölutnvetrinunEj SYNINGAR Listakonur í Gerðubergi ■ Sunnud. 3. nóv. verður opnuð í Gerðubergi sýning á myndverkum í eigu Reykja- víkurborgar eftir konur. Alls eru í eigu borgarinnar um 90 verk eftir konur, og hefur því verið ákveðið að hafa sýning- una í tveim hlutum. Fyrri hluti sýningarinnar verður þá opn- aður á sunnudag, og þar verða sýnd þau verk sem Reykjavík- urborg á eftir listakonur sem nú eru látnar. Má þar nefna Barböru Árnason, Eyborgu Guðmundsdóttur, Gerði Helga- dóttur, Gunnfríði Jónsdóttur, Júlíönu Sveinsdóttur, Kristínu Jónsdóttur, Maríu H. Ólafs- dóttur, Nínu Tryggvadóttur, Ragnheiði Jónsdóttur Ream og Vigdísi Kristjánsdóttur. Sýning þessi er gott tækifæri til þess að skoða verk þessara látnu listakvenna á einum stað, en almennt prýða þau veggi á hinum ýmsu stofnunum Reykja- víkurborgar. Sýningin stendur til sunnu- dagsins 1. desember og er aðgangur ókeypis. Seinni hluti sýningarinnar verður síðan í janúar. Veggteppi w i Slunkaríki ■ Laugardaginn 2. nóvemb- er opnar Ólöf Nordal sína fyrstu einkasýningu í Slunka- ríki á ísafirði. Ólöf lauk námi úr vefnaðar- deild Myndlistar- og handíða- skóla íslands síðastliðið vor. Síðan þá hefur hún stundað ýmsa vinnu, en ofið í matar- og kaffitímum. Einnig hafa næt- urnar og almennir frtdagar reynst drjúgir til verka. Af- rakstur þessarar vinnu verður ísfirðingum og nærsveitar- mönnum til sýnis næsta hálfan mánuð. Öll verkin á sýning- unni eru unnin á þessu ári, nema eitt sem var gert í fyrra. Á sýningunni verða ofín veggteppi og myndverk úr ull og silki. Sýningin verður opin á venjulegum opnunartíma gallerísins. ■ Ólöf Nordal við eitt verka sinna. Fjölbragðarokk Tónlistarfélags MH ■ Sunnud. 3. nóv. heldur Tónlistarfélag MH fjölbragða- rokkhátíðina „Veikomin um- borð“. Þar munu koma fram breski gítarleikarinn Fred Frith ásamt hijómsveit sinni, Skeleton Crew, bandaríski blásarinn og söngvarinn Leo Smith ásamt hljómsveit sinni, New Dalta Ahkri, hljómsveit- in Vonbrigði og skáldin Jó- hamar, Sjón og Þór Eldon. Einar Melax mun leika undir á hljómborð. Þetta verður í fyrsta sinn á þessu ári sem hljómsveitin Vonbrigði lætur í sér heyra. 1980 komst Fred Frith hátt á vinsældalista með lagið „Danc- ing in the Street", sama lagi og David Bowie og Mick Jagger syngja nú, og aðrir flytjendur eru einnig mjög vel þekktir. Fjölbragðarokkhátíðin „Velkomin um borð“ hefst stundvíslega kl. 20.30 í hálíða- sal Menntaskólans við Hamra- hlíð. Hátíðin er öllum opin. Forsala aðgöngumiða er í hljómplötuverslunum og í MH. Sýning í Háholti: „Meistari Kjarval 100 ára“ ■ Sýningin „Meistari Kjarval 100 ára" cr opin alla daga vikunnar í Háholti við Reykja- nesbraut, Hafnarfirði kl. 14.00-19.00. Þar eru sýnd 152 Kjarvalsverk úr safni Þorvald- ar Guömundssonar. forstjóra í Síld og fisk. Til sölu er vandað litprentað rit unt Kjarval, en aðgangur er ókeypis. ■ Þann 15. október var opn- uð Kjarvalssýning á Kjarvals- stöðum í tilefni fæðingardags listamannsins. Aðsókn hefur verið með eindæmum mikil og fyrstu vikuna sáu hana um 8.500 manns. Þar eru sýnd 212 verk eftir Kjarval, flest í eigu einstaklinga, og hafa mörg þeirra aldrei verið sýnd opin- berlega fyrr. Á göngum eru sýndir munir úr fórum Kjarvals og stækkaðar ljósmyndir af honum frá ýmsum tímum. í fundarsal er sýndur mynd- bandsþáttur, þar sem rakinn er ferill Kjarvals í stuttu máli. Ókeypis aðgangur er að sýn- ingunni, en vegleg sýningar- skrá á íslensku og ensku er seld á kr. 300. Sýningin er opin alla daga frá kl. 14.00-22.00. Henni lýk- ur 15. desember n.k.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.