NT


NT - 01.11.1985, Side 18

NT - 01.11.1985, Side 18
V V Við seljum til versiana af lager, hin vinsælu VIKING stígvél. Mikiö úrvai. Mjög hagstætt verð. Andrés Guðnason heiidversiun Smiðjuvegi 8, Kópavogi Sími 76888 yfeeislai 00 * * TÍMARITIÐ LÍFGEISLAR er f róölegt og fallegt tímarit er fjallar um fyrirbæri ýmisskonar: Drauma, hluldu- fólk, fjarskynjanir, miðilsfyrirbæri, lífiö eftir dauðann, samband við íbúa ann- arra hnatta o.fl. Gerist áskrifendur. Utanáskrift: Lífgeislar, pósthólf 1159,121 Reykjavík. Áskriftasímar 91-40765 og 91-35683 á kvöldin. SNJÓHJÓLBARÐAR Sólaðir og nýir snjóhjólbarðar af öllum stærðum og ýmsum tegundum, bæði radial og venjulegir, sterkir og með góðu gripmunstri. Einnig lítið slitnir snjóhjólbarðar á gjafverði. Snöggar hjólbarðaskiptingar. Vanir menn - Allir bílar teknir inn - Setustofa, alltaf heitt á könnunni meðan hinkrað er við. Komið, skoðið, gerið góð kaup BARÐINN Skútuvogi 2, símar: 30501 og 84844 FRÁKL. 9.00-13.00 25 ára verslunarstúdent óskar eftir vinnu frá kl. 9.00 til 13.00 strax. Flest kemur til greina. Upplýsingar í síma 35872 allan daginn eða 622044 eftir hádegi. Ingólfur. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda alúð og hluttekningu við andlát og útför Sigríðar Gunnarsdóttur og Björns Sigurðssonar Stóru-Ökrum Guð blessi ykkur öll börn, tengdabörn og barnabörn t Móðir okkar Sigríður Vilhjálmsdóttir frá Hánefsstöðum verður jarðsungin frá Egilsstaðakirkju á mórgun laugardag 2. nóvember kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu skal bent á slysavarnardeildina Gró á Egilsstöðum. Stefán Einarsson Vilhjálmur Einarsson Baldur Kristjánsson fTlp Föstudagur 1. nóvember 1985 18 Lul Plötudómar Melody Makers - Play the Game Right í fótspor pabba ■ Sagan segir að Bob Marley hafi látið eftir sig tæplega tutt- ugu börn, en hvað sem satt er í því, þá er það staðreynd að hluti barnanna hefur fetað í fótspor konungsins og stofnað hljómsveit og hana nokkuð góða. Hér er komin til um- fjöllunar platan Play the Game Right, með hljómsveitinni Mel- ody Makers. Marley börnin fjögur sem skipa hljómsveitina hafa greini- lega innbyrt reggae taktinn með móðurmjólkinni. Krakkarnir (sem reyndar eru engir krakkar lengur) kunna sitt fag og höfuð hljómsveitarinnar, David „Ziggy“ Marley er verðugur arftaki föður síns. Platan Play the Game Right er tvískipt. Fyrri hlið hennar er nær því að vera upprunalegt reggae. Takturinn er sterkur, laglínan einföld og hljóðfæra- skipan er lík því sem er á eldri plötum The Wailers. Par eru öll lögin eftir David „Ziggy“ og virðist manni sem reggae tón- listin sé hans heitasta trú og að hana megi ekki menga. í seinni tíð var Bob Marley farinn að auka poppuðum frös- um við reggae tónlistina og fyrir bragðið var tónlistin léttari og melódískari. Þannig er síðari hlið plötunnar, sem hefst á lagi eftir Bob, laginu Children Play- ing In the Street. Hin lögin á plötuhliðinni eru öll eftir David „Ziggy“. Hann leiðir okkur á tónleika og verður hálfgerður rokkari í sumum laganna, en alltaf er reggae tónninn öllu öðru yfirsterkari. David er um margt líkur föð- ur sínum. Raddbeitingin er hin sama þó rödd Davids sé eðlilega ekki orðin eins hrjúf og rödd Marleys var, en þess er ekki langt að bíða að illmögulegt verði að þekkja þá feðga sundur á röddinni. Textar Bob Marleys skiptu alltaf miklu máli og það sama má segja um hlutverk textanna í tónlist Melody Makers. Platan Play the Game Right er alveg ágæt og sjálfum þykir mér fyrri hliðin betri, en hún krefst meiri hlustunar. Platan er ekkert meistaraverk en fyllilega hlust- unar virði og þeir sem ekki hafa smekk fyrir tónlistinni geta bara spilað Ludo meðan hinir hlusta. það fylgir nefnilega spilaborð með plötunni og leiðbeiningar handa þeim sem ekki kunna leikinn. ÞGG (7 af 10) ■ Ég held að það hafi verið árið 1977 sem út kom fyrsta hljómplata ungrarsöngkonu frá Bretlandi, Kate Bush að nafni. Þar voru lög eins og The Man With The Child In His Eyes, Wuthering Heights og fleiri. Platan vakti mikla athygli, ekki síst fyrir sérkennilega rödd söngkonunnar. Nokkur næstu ár á eftir heyrðist af og til í Kate Bush, hún átti nokkur vinsæl lög eins og t.d. Babooshka. Síðan hljóðnaði nokkuð í kring um hana, og síðasta plata hennar, The Dreaming, vakti fremur litla athygli. Nú hefur orðið róttæk breyt- ing á, með nýjustu plötu söng- konunnar, sem nefnist Hounds Of Love. Þessi plata hefur vakið mikla athygli í Bretlandi og hefur setið þar efst á lista í töluverðan tíma. íslendingar hafa hingað til ekki veitt henni eins mikla athygli, en vonandi verður þar breyting á, því að þetta er ágæt plata. Kate Bush hefur þroskast mjög sem söngkona og laga- smiður síðan 1977. Það er eðli- legt, konan er orðin eldri. Plat- an er nær algjörlega hennar verk, hún semur öll lög nema eitt, og texta, útsetur lögin, spilar á píanó og Fairlight-mús- íktölvu, en lætur annan um að mata trommutölvuna. í flestum lögum aðstoða síðan fleiri eða færri hljóðfæraleikarar, m.a. strengjasextett. Helsti aðstoð- armaður hennar heitir Del Palmer, það er sá sem matar trommarann, en hann mun vera núverandi unnusti Kate. Platan byrjar á laginu Runn- ing Up That Hill (A Deal With God), sem er lang þekktasta lagið af plötunni, og kom út á smáskífu. Þetta ergrípandi lag, vel við hæfi til að kynna plötuna í útvarpi. Önnur lög á hlið 1 eru þyngri, ekki eins aðgengileg, en engu að síður mjög góð, sér- staklega The Big Sky og Mother Stands For Comfort. Lagið Cloudbursting, síðast á hlið eitt, er þó sér á parti. Það er gríp- andi, jafnvel meira grípandi en Running Up That Hill, og skart- ar áðurnefndum strengja- sextett. Þetta er sérkennilegt og seiðandi lag, og hefur enda verið gefið út á lítilli plötu. Síðari hliðin er jafnvel enn betri en sú fyrri, þótt ekki séu þar neitt sérlega grípandi lög, þessi hlið er jafnari en sú fyrri. Þarna er m.a. írskt þjóðlag, eina lagið sem ekki er eftir Kate, og fellur það ákaflega vel inn f heildina. Ég verð að segja að þessi plata kom mér nokkuð á óvart, ég átti ekki von á þvílíkum gæðum frá Kate Bush. Þetta er verulega vönduð plata, gerð af miklum metnaði og innlifun. Kate Bush er fyrst og fremst Ijóðrænn listamaður og inn- hverfur, og heldur sig frá megin- straumi popptónlistar nútím- ans, en er þó í honum miðjum. Hún er ein af þeim sem stjórna straumnum, en lætur ekki stjórnast af honum. ÁDJ (9 af 10) Drykkjan eykst og eykst ■ Úr áliti sérfræðinganefndar Alþjóðaheilbrigðisstofnunar- innar (WHO). Þó að meira sé drukkið í heiminum um þessar mundir en nokkru sinni fyrr á 20. öld er mikilvægt að gera sér grein fyrir að í mörgum Evrópulöndum og í Norður-Ameríku var meðal- neyslan á íbúa meiri en hún er nú um og eftir miðja öldina sem leið. Það stafaði að nokkru af því að þá urðu í þeim löndum svipaðar breytingar á sviði fé- lags- og efnahagsmála og nú eru á döfinni annars staðar í heimin- um. Þá tókst að lokum að draga mjög úr þessari miklu áfengis- neyslu og því félagslega tjóni, sem hún olli, með markvísri stjórnun og ýmiss konar löggjöf - svo sem 1) hömlum á sölu áfengra drvkkja. 2) styttingu opnunartíma áfengissölustaða og vínveitingahúsa, 3) hækkuð- um sköttum á áfengi og 4) banni við áfengissölu til ungmenna. Það fór því miður svo þegar fólk hafði gleymt þeirri gífur- legu mannlegu eymd sem drykkjuskapurinn hafði í för með sér og þessi ráð áttu að bæta úr að fariö var að líta á sjálf úrræðin sem ónauðsynlega þvingun. Þar kom að þessar reglur voru margar afnumdar eða dregið úr áhrifum þeirra eða þeim ekki framfylgt einarðlega. Sú undanlátssemi hvað snertir lög og reglur um meðferð áfeng- is, sem hefur verið mikils ráð- andi eftir síðari heimsstyrjöld ina, veldur miklu um það hve mjög drykkja hefur aukist undanfarna áratugi. (WHO Technical Report Series 650, 1980) Áfengisvarnarráð

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.