NT - 16.11.1985, Blaðsíða 1

NT - 16.11.1985, Blaðsíða 1
Grundartangi: Urriðafoss slitnaði upp og rak undan fárviðrinu Göt rifnuðu á olíutanka og olía lak út en sjór inn ■ „Þetta gerðist eins og hendi væri veifað, skipið slitnaði laust að framan og á örfáum mínútum hafði það rekið undan fárviðr- inu upp í fjöru, hundrað til tvöhundruð metra frá viðlegu- kantinum," sögðu félagar í björgunarsveit Slysavarnafé- lagsins á Akranesi á strandstað við Grundartanga en Urriða- foss, skip Eimskipafélagsins slitnaði frá viðlegukantinum á Grundartanga laust fyrir klukk- an fimm á föstudagsmorgun og þrátt fyrir að bógskrúfa skipsins væri keyrð til hins ýtr- asta náðist ekki að halda skipinu við bryggju. Fljótlega eftir að skipið tók niðri rifnuðu göt á olíutanka þess, bæði á stjórnborða og bakborða, og gasolía og svart- olía tók að leka út en í tönkum skipsins er á annað hundrað tonn af olíu. Áhöfn skipsins mun ekki hafa verið í hættu en við birtingu voru skipstjóri og yfirvélstjóri mættir á strandstað en þeir höfðu báðir verið í fríi í Reykjavík þegar óhappið varð. Strax og ljóst var hvað átt hafði sér stað lagði skip Land- helgisgæslunnar og dráttarbát- urinn Magni af stað frá Reykja- víkurhöfn til að freista þess að draga skipið út. Einnig var haf- ist handa að leggja veg að strandstað með það fyrir augum að aka möl að skipinu til að forða því frá frekari skemmdum. Fulltrúi Eimskipa- félagsins á staðnum sagði í sam- tali við NT að Ijóst væri að botn skipsins væri mikið laskaður en erfitt væri á þessu stigi að meta frekari skemmdir. Pétur Bald- ursson hafnarstjóri á Grundar- tanga taldi að skipið hcfði verið óvanalega vel bundið en áhöfn- in mun hafa bætt við landfestum skömmu áður en veðurofsinn sleit það frá viðlegukantinum. Stefni þess sneri upp í vindinn þannig að það var að því leytinu til betur undir áföll búið. Það er þó ekki ljóst af hverju skipinu var ekki siglt úr höfn til að halda sjó á meðan veðrið gengi yfir en eins og áður segir voru skipstjóri og yfirvélstjóri í Reykjavík þeg- ar óhappið átti sér stað. Urriðafoss var nýkominn frá Noregi og beið þess að lesta járngrýtisfarm sem flytja átti til Evrópu og átti vinna við það að hefjast á föstudag. Sjá nánar frétt af ofviðrinu bls. 14 Eimskip varð af þrotabúi Hafskips: Nýtt skipafélag stofnað í samvinnu við Sambandið ■ Á stjórnarfundi hjá Hafskip hf. sem haldinn var um hádegisbil í gær var ákveðið að kanna mögu- leika á stofnun nýs íslensks skipa- félags í samvinnu við SÍS og nokk- ur önnur fyrirtæki. Ef forráða- menn Útvegsbanka íslands fetta ekki fingur út í þessa fyrirætlan þykir líklegt að ekki komi til frekari afskipta Eimskipafélags ís- lands hf. af hinu svokallaða „Haf- skipsmáli". „Það hafa verið í gangi könnun- arviðræður og ef að líkum lætur standa til formlegar viðræður um stofnun þessa nýja félags," sagði Ragnar Kjartansson fram- kvæmdastjóri Hafskips hf. „Við teljum að með stofnun félags af þessari stærðargráðu þá skapist eðlilegra jafnvægi á markaðnum. Samkeppnin verður tryggð og auk- ið frjálsræði verður í siglingun- um.“ „Ákvörðun okkar markast ekki síst af því að hjá Hafskip starfa hátt á fjórða hundrað manns og ef aðstandendur cru taldir með má fullyrða að sá hópur sem treystir á framfæri starfsmanna okkar sé á við meðalstórt þorp hérlend- is,“ sagði Ragnar. „Við höfum vissulega haft áhyggjur af þessari staðreynd og því miður er viðbúið að það komi til einhverrar starfs- mannafækkunar eftir að nýtt fé- lag verður stofnað.“ Ragnar Kjartansson ítrekaði að sú leið sem valin yrði gæti einungis orðið sú sent verndar hagsmuni Útvegsbankans best. Hann sagðist gera ráð fyrir að ef af félagsstofnun yrði myndi það þýða að eignir Hafskips fylgdu einhverjunt hluta af skuldunum í hinn nýja félags- skap. „Þetta verður tekið fyrir á stjórnarfundi Santbandsins á mánudaginn og upp úr því ætti að verða ljóst hvort að menn munu spjalla saman á formlegum grund- velli,“ sagði Ómar H. Jóhannsson framkvæmdastjóri Skipadeildar Sambandsins í samtali við NT. „En meðan engar frekari viðræður hafa farið fram cr ekkert hægt að segja um tilhögun á nýju félagi Ómar kvaðst telja sennilegt að ef af félagsstofnun yrði þá mætti vænta þess að hagkvæmnissjón- armið réðu því að um einhverja fækkun starfsmanna yrði að ræða. Annars yrði það að koma í ljós. „Ég get ekki sagt fyrir unt það hvaða stefna verður tekin varð- andi formið á þessu hugsanlega fyrirtæki," sagði Ómar en hann var spurður um það hvort að Skipadeildin yrði formlega lögð niður. „Það kemur í Ijós að lokn- unt stjórnarfundinum." Hólmfríður Karlsdóttir í NT-viðtali: „Eins ogí Ijúfum draumi“ sjá bls. 3

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.