NT - 16.11.1985, Blaðsíða 3
íslenskar stúlkur ein-
oka fegurðartitlana
■ „Ungfrú Skandinavía, Ungfrú
Evrópa, Ungfrú heimur.
Það er skammt stórra högga á milli
hjá íslenskum stúlkum, sem taka þátt
í fegurðarsamkeppnum erlendis. Nú
síðast féllu tveir síðastnefndu titlarnir
íslenskri stúlku í skaut Hólmfríði
Ungfrú heimur:
■ „Þetta er búið að vera eitt óslitið
ævintýri, að vísu er dagurinn í dag
búinn að vera strembinn en hefur
samt liðið eins og í draumi," sagði
Hólmfríður Karlsdóttir eða „Hófí“,
eins og hún er alltaf kölluð, þegar NT
náði tali af henni seinni partinn í
gærdag.
„Ég vaknaði strax í morgun kl. 6 og
undirbjó mig fyrir sjónvarpsupptöku
í beinni útsendingu kl. 8.30 um morg-
uninn. Strax að því loknu fór ég í
myndatökur hjá stórversluninni Top
Shop í London, sem hefur stutt þessa
keppni mikið. Þar beið mín mann-
fjöldi sem hélt á myndum af mér og
bað um eiginhandaráskrift sem ég
veitti þeim hálf ringluð yfir þessu öllu.
Síðan var haldinn fjölmennur blaða-
mannafundur þar sem allir kepptust
við að spyrja og taka myndir, ég verð
■ „Við náðum sambandi við Hólm-
fríði í síma, skömmu eftir að úrslitin
voru tilkynnt, hún var óskaplega
hamingjusöm kannski dálítið ringl-
uð enn,“ sögðu foreldrar Hólmfríðar
Karlsdóttur, þau Ásta Hannesdóttir
og Karl Guðmundsson eftir að úrslit
í keppninni um Ungfrú heim voru
ráðin.
„Hún sagði „þetta er skrýtið, bros-
ið er alveg límt á mig, en allir í
kringum mig eru grátandi af gleði,“
síðan bætti hún við „ég býst við að
heimkomunni seinki,“ en hún ætlaði
■ Hólmfríður átta mánaða gömul í
vagninum heima hjá sér og framtíðin
eins og lokuð bók.
Karlsdóttur, 22 ára fóstru úr Garða-
bænum, fimmtudagskvöld s.l. í Royal
Albert Hall, London.
Hólmfríður hlaut að sjálfsögðu
vegleg verðlaun, fyrst um 290 þúsund-
ir reiknað í íslenskum krónum auk
tryggingu um eina og hálfa milljón
að segja að maður er óvanur svona
blaðamennsku eins og tíðkast hér,
strax eru farnar á kreik undarlegnstu
sögur, þeir segja t.d. að Rod Stewart
liafi verið dómari í Ungfrú ísland
keppninni sem er auðvitað alrangt,
og svo er verið að grafast fyrir hvort
ekki finnist eitthvað vafasamt í fortíð-
inni o.s.frv."
Hólmfríður sagðist samt ekki láta
þetta á sig fá, og hlakkaði til kvöldsins
en þá átti að halda heljar mikið hóf
henni til heiðurs.
Þegar hún var spurð að því hvenær
hún kæmi heim virtist hún vera í
óvissu því áður en keppnin fór fram
undirrituðu allar stúlkurnar samning
upp á ársvinnu við fyrirsætustörf o.fl.
erlendis sem gilti fyrir sigurvegarann.
„Mig langar mest að koma heim í
2-3 daga til að átta mig á þessu öllu
að koma heim daginn eftir keppnina.
Síminn hérna var alveg rauðgló-
andi kvöldið sem úrslit lágu fyrir, og
alveg langt fram á nótt, allir voru að
óska okkur til hamingju og við sjálf
vorum utanvið okkur af gleði, þetta
virtist allt svo ótrúlegt.
Forráðamenn Flugleiða hafa verið
svo elskulegir að bjóða okkur hjónun-
um ásamt Elvari, unnusta Hólmfríðar
út til London strax á morgun, við
erum að undirbúa för okkar og til-
hlökkunin er alveg að fara með
okkur.“
■ 12 ára og meira farín að líkjast
sjálfrí sér. 10 árum seinna átti hún
eftir að komast í heimsfréttirnar.
reiknað í íslenskum krónum, fyrir
fyrirsætustörf næsta árið.
NT hafði samband við nokkra að-
standendur fegurðardrottningarinnar
nýkjörnu, og ekki síst hana sjálfa til
að spyrja hver viðbrögðin voru og
hvað taki nú við.
áður en ég byrja á fullu að sinna
skyldunum sem fylgja þessum titli. Ég
veit ekki hvort af því verður á næst-
unni, en foreldrar mínir og kærastinn
minn koma til London á morgun, ég
hlakka óskaplega til að sjá þau."
Fylgir þessu öllu ekki mikið álag?
„Jú, að vissu leyti, samt er ég búin
að vera miklu afslappaðri en ég hefði
trúað að ég yrði undir svona kringum-
stæðum. Ég fæ aöeins að slappa af
yfir helgina, síðan byrjar allt á fullu
aftur, en ég hlakka til takast á við
verkefnin sem bíða mín. Ég vona
bara að mér takist að leysa þau vel af
hendi og þau verði jafn ánægjuleg og
öll þessi keppni er búin að vera,"
sagði Hólmfríður að lokum.
■ „Ég hélt að hjartað í mér ætlaði
að stoppa þegar úrslitin voru kynnt,
þetta var stærsta stund í lífí mínu,“
sagði Hólmfríður í samtali í gær.
„Stoltur og
yfir mig
hrifinn“
- segir Eivar Gunnarsson
unnusti Hólmfríðar Karls-
dóttur, Ungfrú heimur
■ „Ég er auðvitað yfir mig hrifinn,
þetta kom líka svo óvænt, þótt bjart-
sýnustu menn væru búnir að spá
þessu,“ sagði Elvar Gunnarsson unn-
usti Hólmfríðar Karlsdóttur nýkjör-
innar Ungfrú heimur í samtali við NT
í gær. Elvar er laganemi við háskól-
ann.
„Raunar er ég ekki alveg búinn að
ná þessu enn, þetta er svo ótrúlegt að
mér hefur varla komið dúr á auga í
nótt fyrir spenningi."
„Býstu ekki við að framtíðarplön
ykkar breytist við þetta?“
„Eflaust gera þau það, annars er
engar ákvarðanir búið að taka enn.
Henni bjóðast núna ótal tækifæri
þarna úti, fyrirsætustörf næsta árið
og fleira, hvað hún gerir veit ég ekki,
er ekki búinn að tala við hana enn.
Hún er vön að sakna barnanna á
barnaheimilinu þegar hún fer í ferða-
lög, því hún hefur svo gaman af
börnum og lifir fyrir fóstrustarfið.
Ég er nú að fara út til hennar á
morgun, hún kemur til með að vera
nokkurn veginn í fríi um helgina, við
eigum þá eflaust eftir að spá eitthvað
í framtíðina saman,“ sagði Elvar að
lokum.
„Mín bíða ótelj-
andi skyldur,“
- en hlakka til að takast á við þær, sagði
Hólmfríður Karlsdóttir í samtali við NT
„Býst við að mér
seinki heim“
- sagði nýkjörin Ungfrú heimur í sím-
tali við foreldra sína skömmu eftir úrslitin
COn GRIP ■ GÓÐ ENDINC
rnin
ÖLL HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
FYRIR FÓLKSBÍLA OC SENDIBÍLA
GOOD$YEAR
GEFUR ^RÉTTA GRIPIÐ
IhIH
EKIAHF
Laugavegi 170-172 Sími 21240
* Fastara gríp
* öruggari hemlun
$ Hljódlátari akstur
* r/ieiri ending
DRAUMA
dansdúkkan
sem dansar þrjá dansa.
Verð aðeins kr. 1.295.-
Ódýrustu
snjóþoturnar:
Litlar kr. 369.-
Stórar kr. 570.-
m/bremsum kr. 699.-
Stýrisþotur kr. 2.295.-
Enn eru til leikföng á gömlu verði
Sparið þúsundir og kaupið
jólagjafirnar tímanlega
Póstsendum
LEIKFANGAHÚSIÐ
Skólavörðustíg 10 s. 14806
NJÓTUM LANDS -NÍÐUM El FerðamálaráðJslands