NT - 16.11.1985, Blaðsíða 10

NT - 16.11.1985, Blaðsíða 10
 ÍTF Laugardagur 16. nóvember 1985 10 ItU Skák Aukakeppnin um Norðurlandameistaratitilinn: Agdestein meistari á stigum ■ Úrslitakeppni Norður- landamótsins í skák reyndist hcldur flóknara og erfiðara fyrirbæri en mér hafði órað fyrir. Eins og kunnugt er þá lauk hinu eiginlega Norður- landamóti þ.e. kcppni í úrvals- flokki með því að þrír skák- menn stóðu uppi sem sigurveg- arar. Þetta voru auk mín þeir Simen Agdestcin, hin skæra stjarna Norðmanna, og Jóhann Hjartarson. Aukakeppni með hraðskákmótafyrirkomulagi átti að fara fram strax eftir mótið en að því var ekki gengið. Aukakeppni um titilinn var á- kveöin síðar um haustið á sama stað. Tímann á milli þessara móta notuðu keppendur vitaskuld til undirbúnings, en um leið var háð annarskonar barátta. Þó engar reglur væru til í bókum Norræna skáksambandsins varðandi úrslitakeppni af þess- ari tegund settu Norðmenn þeg- ar í stað fram kröfu um, aö ef keppendur yrðu jafnir í cfsta sæti í aukakeppni, skyldu Son- ebqrg-Bcrger stig úr aðalmótinu ráða útslitum. Þessi rcgla hefur verið notuð áður t.d. í auka- keppni um sæti í áskorenda- kcppni sem haldin var að af- loknum millisvæöamótinu í Biel í sumar. Hún gafst illa, því sá scm komst áfram tapaði örugg- lega fyrir manni með jafnmarga vinninga ii:2Vi og komst áfram á stórsigri yfir þriðja manni. Stóð í stappi milli Skáksam- bands Norömanna og Skák- sambands Islands um þetta mál, en niðurstaðan að aflokinni at- kvæðagreiðslu aöildarþjóða Norræna Skáksambandsins varð sú að Simen Agdestein yrði Norðurlandameistari yrði hann jafn í efsta sæti. Mótið hófst svo í Gjövik 2. nóvembcr sl. Við komu þangað urðum við Jóhann þess áskynja að þessi regla var ekki sú eina sem Norömenn hugðust þröngva upp á okkur. Drætti um töfluröð hafði vcriö hagrætt þannig að öruggt var að Simen skyldi tefla í síðustu umferð en slíkt er auövitað gífurlegt hag- ræði. Þegar við bættist að skipu- leggjcndur mótsins höfðu valið okkur Jóhanni koidimmar og ískaidar vistarverur á annars því ágæta hótcli Rica ásamt því sem matar- og vasapeningar voru skornir nijög við nögl brast á mikið óveður á samkomu kcppcnda kvöldið fyrir mótið. Að afloknu miklu þrefi þar sem við lá að við Jóhann tækjum staf vorn og hatt og yfirgæfum stað- inn akváðum við að ganga til leiks. Fyrsta umferðin var tefld snemma laugardag og þar sett- ust við aö tafli Jóhann Hjartar- son og höfundur þessarar grein- ar. Úrslit aukakeppninnar eru flestum skákunnendum kunn. Eftir tvöfalda umferð, samtals sex skákir, urðum við Simen Agdestein efstir, hlutum 3 vinn- inga. Jóhann Hjartarson rak lestina hlaut ekki vinning. Sam- kvæmt áðurnefndum reglum var Agdestein síðan úrskurðaður „Skákmeistari Norðurlanda 1985“. Það er vilaskuld afar ánægjulegt að Norðmenn skuli hafa loks eignast skákmann sem er farinn að gera sig verulega gildan á alþjóðlegum vettvangi. Simen er aðeins 18 ára gamall og jafnframt yngsti stórmeistari heims og eini Norðmaöurinn sem öðlast hefur þann titil. ■ Það áttu eftir að skipast veður í lofti eftir að þessi mynd var tekin undir lok Norðurlandamótsins í júlí sl. Aðalmótið fór aukaúrslitakeppninni var margt ábótavant. Frá vinstri: Jóhann Hjartarson, Simen Agdestein og Helgi Ólafsson. á óaðfinnanlegan hátt fram, en Hinu er ckki að leyna að öll aðstaða hans ámótinu var til muna betri á mótinú og í raun byrjaði hann það með '/: vinn- ings forskot. Ég tefldi nokkuð vel og skákir rnínar við Agdestein voru báðar æsispcnnandi. Frammistaða Jóhanns hlýtur að valda vonbrigðum ekki síst honum sjálfunt. í einstaka til- fellum teygöi hann sig of langt einhvernveginn vjrtist hann aldrei komast í takt við mótið. Það kann að vera að dcilur okkar við Norðmennina hafa haft nteiri áhrif á hann en mig. Hann byrjaði illa er hann tapaöi jafnteflisstöðu gegn mér og eitt tap í svo stuttu moti hefur ævinlega úrslitaáhrif. Skák okkar Jóhanns úr 4. umferö er hér til umræðu. Petr- ovs vörnin scm varð uppá ten- gingum þykir oft jaðra við jafn- teflistilboð en hinar einfaldari stöður geta oft reynst mjög flóknar. Byrjunin varð sú sama og í nokkrum einvígisskákum Kasparovs og Karpovs. í liinu nýlokna einvígi lék Kasparov 10. Rc3 í 10. leik en komst ekkert álciðis eftir 10. - Bxf3! 11. Dxf3 Rxd4 12. Ddl Re6 13. cxd5 Rxd5 14. Bb5 t c6. Jóhann kaus því leið sem tefldist í einni skákinni úr fyrra einvíginu. Hann áræddi þó ekki að endur- taka peðsfórn Kasparovs í 12. leik, Dh3 (12. Dg3 er algengasti leikurinn) og kaus að fara í drottningaruppskiptin. 14. leikur svarts, - Bb4 er geysisterkur en hann kom fyrst fram í skákinni Ljubojevic - Tal, Bugonjo '84 þó mér hafi ekki verið það kunnugt. Eftir 18 lciki er Ijóst að svart- ur hefur a.m.k. jafnað taflið en með 19. leikstnum leggurhvítur gildru fyrir andstæðinginn. Meginafbrigðiö er: 19. - c5 20. Rxd5! Hxd5 ( ekki 20. - Bxel 21. Hxc5 og hvítur má vel við una) 21. He2! cxd4 22. Bf4! Hxc2 23. Hxc7 t Kd8 24. Kxe2 d3 t 25. Kdl og nú er engin leið til að notfæra sér hæpna stöðu hvítu mannanna, t.d. 25. - Hd4 26. Hxf7 eða 25. — g5 26. Bg3 f5 27. Hc4 o.s.frv. 19. - Bxc3 er því besti leikur- inn sem tryggir svör um lítið en þægilegt frumkvæði. Frum- kvæðið eykst jafnt og þétt ekki síst eftir glappaskot Jóhanns í 23. leik, - Hbl. Eftir 25 leiki (sjá stööumynd) er komin upp staða sem Jóhann taldi eina þá verstu með hvítu í háa herrans tíð. Úrvinnslan krefst þó nákvæmi og svartur tekur skakkan pól í hæðina nieð peðaframsókn sinni, því honum yfirsést 33. Ieikurhvíts,-Kg3! Frumkvæðið er auðvitað enn í höndum svarts. Jóhann gerir mistök í 39. leik - Bxc5. Betra var 39. Kf4 með óljósri stöðu. Eftir 41. leik svarts fer skákin í bið. Biðleikur Jóhanns er ekki sá besti og eftir það verður skákinni ekki bjargað. Best var 42. f4! með jafnteflismöguleikum, þó af- brigðin séu mörg ótrúlega flókin og voru enganvegin tæmanleg á þeim takmarkaða tíma, 2 klst., sem var til aflögu fyrir biðstöðu- rannsóknir. Eftir biðleikinn ger- ir svartur engin mistök og eftir 57 leiki gefst Jóhann upp. 4. umferð: Hvítt: Jóhann Hjartarson Svart: Helgi Ólafsson Petrovs- vörn 1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 dfi 4. Rf3 Rxe4 5. d4 d5 6. Bd3 Rc6 7. 0-0 Bg4 8. Hel Be7 9. c4 Rf6 10. cxd5 Bxf3 11. Dxf3 Dxd5 12. Dxd5 Rxd5 13. Be4 0-0-0 14. Rc3 Bb4 15. Bd2 Rf6 16. Bxc6 bxc617. Be3 Rd518. Hacl Hhe8 19. Kfl Bxc3 20. bxc3 c5 21. Bd2 c4 22. h4 Kd7 23. Hbl Hb8 24. Hecl Hb6 25. Hxb6 axb6 26. Hc2 h5 27. f3 b5 28. Kf2 f5 29. g3 c5 30. dxc5 Kc6 31. Bel f4 32. gxf4 Rxf4 33. Kg3 Rd3 34. Bf2 g6 35. Bd4 Kd5 36. a3 Hel 37. Hd2 He6 38. Hg2 Rxc5 39. Bxc5 Kxc5 40. Kf4 Kb6 41. Kg5 Ka5. II 011 11111 iiiii ■liifl 1111 IBi 11 i(| 1 0 B 111IIIA1111 1 111111! 1110 llillllll 42. Hgl Ka4 43. Hbl He3 44. Hcl Kxa3 45. Hbl Ka4 46. Hcl Kb3 47. Hbl t Kxc3 48. Hxb5 He6 49. f4 Kd4 50. Hb8 Hc6 51. f5 gxf5 52. Kxh5 c3 53. Hbl c2 54. Hcl Ke3 55. Kg5 f4 56. h5 f357. h6 Kd2 - Hvítur gafst upp. Bikarmót TR Bikarmót Taflfélags Reykja- víkur hefst á morgun, sunnudag kl. 14. Teflt er eftir útsláttar- fyrirkomulagi og falla keppend- ur út eftir fimm töp, jafntefli talin með. Umhugsunartími er 'A klst. á keppenda hver umferð. Teflt er á sunnudögum kl. 14 og á miðvikudögum kl. 20. Öllum er heimil þátttaka. Úrslit Norðurlandamótsins 1985 Gjðvik2/11 —7/11_______1 2 3 Vinn. R6ð 1. SimenAgdestein ViVi 11 3 1-2 2. HelgiÓlafsson 'k'kt 11 3 1-2 3. JóhannHjarlarson 00 00 0 3 . Helgi Olafsson 4 w stórmeistari skrifar rMr um skák

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.