NT - 16.11.1985, Page 5
ÍFr
J Jj Fréttir
Fiskiþingi slitið í gær:
Kvótakerfi samþykkt
Þorsteinn Gíslason einróma endurkjörinn fiskimálastjóri
■ Tillaga meirihluta sjávarútvegs-
nefndar á Fiskiþingi var í gær sam-
þykkt með 23 atkvæðum gegn 10 en
þar er lagt til að gildistími frumvarps
um fiskveiðistjórnun verði tvö ár í
stað þriggja, veiðistöðvun smábáta
verði einn mánuöur yfir háveturinn
15. des..-15. jan. í stað þeirra tæplega
þriggja sem frumvarpið gerir ráð fyrir
og að veiðileyfi smábáta verði háð
sömu reglum og gildir um skip yfir 10
lestum. Ennfremur er lagt til í þessari
tillögu, að framsalsréttur á aflakvóta
þeirra skipa sem ekki eru gerð út
verði takmarkaður verulega og jafn-
framt segir þar að æskilegt sé að
sóknardögum báta sem stunda þorsk-
veiöar með netum verði fjölgað
eitthvað.
Með samþykkt þessarar tillögu hef-
ur 44. Fiskiþing lýst stuðningi við
grundvallaratriðin í frumvarpi sjávar-
útvegsráðherra, um kvóta á hvert
einstakt skip, en hafnað hugmyndum
um einhvers konar útfærslu á skrap-
dagakerfinu, eða „skrapdagakerfi
með stuðlum og höfuðstöfum", eins
og það var stunduð kallað af þingfull-
trúum.
Tillaga þessi gekk þó ekki snurðu-
iaust í gegn og á þingfundi í gærmorg-
un spunnust miklar umræður um
fiskveiðistjórnunina. Þar var grunn-
tónninn, að þrátt fyrir ýmsa ann-
Leiðrétting
■ Þau meinlegu mistök urðu í frétt
af Fiskiþingi, þar sem fjallað var um
erindi Björns Péturssonar um endur-
nýjun fiskiskipastólsins, að blaðið
eignaði honum ummæli sem hann hafði
orðrétt eftir sjávarútvegsráðherra.
Það sem um er að ræða er að þegar
Björn gerði grein fyrir hinum ýmsu
viðhorfum varðandi þetta mál, vitn-
aði hann m.a. í ráðherra og eru
mistök blaðamanns þaðan runnin.
Ummælin, sem Birni voru eignuð
voru þau, að ekki hafi verið gengið
frá nýjum reglum um endurnýjun
flotans þar sem óvissa ríkti enn um
hver fiskveiðistefnan yrði á næstu
árum, og að fiskveiðistefna til lengri
tíma, þar sem viðmiðun er höfð við
hvert einstakt skip, minnki þörfina á
heimildum til fjárfestingar og endur-
nýjunar.
Hlutaðeigendur eru beðnir
afsökunar á þessum ruglingi.
Revíuleikhúsið:
Æfir Skottu-
leik af kappi
■ Skottuleikur er nafn á nýju
íslensku barnaleikriti sem leikarar
hjá Revíuleikhúsinu æfa af kappi
þessa dagana. Þetta er fjörugt
barnaleikrit með söngvum, göldrum
og dönsum og fjallar um skotturnar
þrjár.
Höfundur leikritsins kallar sig
Móra en söngtextar eru eftir Karl
Ágúst Úlfsson. tónlistina sér Jón
Ólafsson um, Una Collins hannar
búningana en leikstjóri er Brynja
Benediktsdóttir.
Guðrún Þórðardóttir, Saga Jóns-
dóttir og Guðrún Alfreðsdóttir eru
í hlutverkum skottanna þriggja, og
ætlunin er að frumsýna leikritið í
janúar.
marka væri kvótakerfið skásti val-
kosturinn sem í boði væri.
Síðasti dagskrárliður Fiskiþings
fyrir slit þess í gær var kosning
fiskimálastjóra og stjórnar Fiskifé-
lagsins. Þorsteinn Gíslason var
endurkjörinn fiskimálastjóri og Jón
Páll Halldórsson var endurkjörinn
varafiskimálastjóri. Báðir voru kosnir
með kröftugu lófataki þingfulltrúa. í
stjórn voru kosnir eftirfarandi menn:
■ Eigendur Bæjarútgerðar Reykja-
víkur þ.e. Reykjavíkurborg og eig-
endur ísbjarnarins hf. gerðu 8.
nóvember sl. með sér samning um
stofnun hlutafélags sem eignist og
taki við rekstri frystihúsa og togara
BÚR og ísbjarnarins svo og með
öðrum eignum og rekstri þeirra. Nýja
fyrirtækinu hefur verið gefið nafnið
Grandi hf. og á stofnfundi nýja fyrir-
tækisins fy rr í þessari viku var ákveðið
að yfirtaka hins nýja félags yrði 17.
nóvember.
Markmið nýja félagsins að því er
segir í fréttatilkynningu frá því er að
reka útgerð, fiskvinnslu, annan
matvælaiðnað og skylda starfsemi.
Stjórn félagsins er skipuð 5
mönnum. Formaður er Ragnar
Júlíusson, varaformaður er Jón Ing-
varsson en meðstjórnendur eru þeir
Þröstur Ólafsson, Þórarinn Þórarins-
son og Vilhjálmur Ingvarsson.
Endurskoðendur nýja fyrirtækisins
eru Jón G. Tómasson, Árnór Egg-
■ Djassklúbbur Skagafjarðar
efndi nýlega til djassnámskeiðs.
Námskeiðið stóð yfir í fjóra daga og
var Paul Weeden kennari. Alls tóku
um 16 manns þátt og tókst nám-
Úr A deild, Ágúst Einarsson, Eiríkur
Tómasson, Guðjón A. Kristjánsson,
Guðmundur Runólfsson, Hilmar
Bjarnason, Hjörtur Hermannsson og
Kristján Ásgeirsson. Úr B deild voru
kosnir, Árni Benediktsson, Eyjólfur
ísfeld Eyjólfsson, Sigfinnur Karlsson
og Tómas Þorvaldsson.
Fiskimálastjóri og stjórn Fiskifé-
lagsins eru kosin til fjögurra ára.
ertsson og Ólafur Nilsson.
Borgarsjóður Reykjavíkur leggur
fram eftirtalda fastafjármuni BUR:
Fiskiðjuvcr á Grandagarði, frysti-
geymslu á Grandagarði, fisk-
vinnsluvélar og tæki og togarana Ottó
N. Þorláksson, Snorra Sturluson og
Hjörleif. ísbjörninn hf. leggur hins
vegar fram til nýja fyrirtækisins frysti-
hús á Norðurgarði, fiskverkunarhús,
verkstæði og frystigeymslu á Seltjarn-
arnesi auk fiskvinnsluvéla og tækja
og togarana Ásbjörn, Ásgeir og
Ásþór.
Hlutafé Granda hf. hefur verið
ákveðið 200 milljónir króna og segir
í fréttatilkynningunni að það muni
vera með því hæsta sem gerist hér á
landi.
Starfsemin skiptist í 4 meginsvið
sem heyra undir framkvæmdastjór-
ann Brynjólf Bjarnason en sviöin
eru: Fjármálasvið, útgerðarsvið, fisk-
vinnslusvið og tæknisvið.
skeiðið mjög vel. Að kvöldi síðasta
dags námskeiðsins komu allir er
þátt tóku saman f Sælkerahúsinu og
spreyttu sig á djassmúsík, svo að úr
varð heljar djasskonsert.
■ Paul Weeden ásamt þátttakendum í námskeiöinu tóku nokkur lög í
Sælkerahúsinu.
Djassnámskeið á Króknum
Grandi hf.
skal það heita
ísbjörninn hf. og BÚR ganga
endanlega í eina sæng á sunnudag
-----
Laugardagur 16. nóvember 1985 5
Nýjar umbúðír...