NT - 16.11.1985, Side 15
Laugardagur 16. nóvember 1985 19
Liggur AIDS-sjúklingur þungt haldinn á Borgarspíftalanum?
Segjum ekki frá ein-
staka sjúkdómstilfellum
- segir Haraldur Briem læknir
■ Samkvæmt heimildum NT liggur
nú sjúklingur á einni af einangrunar-
deildum Borgarspítalans þungt hald-
inn af sjúkdómnum Aids. Maðurinn,
sem starfaði í Afríku um árabil, mun
hafa tekið sýkina þar. Þegar málið
var borið undir Harald Briem lækni á
Borgarspítalanum fékkst hann ekki
til að staðfesta þessa frétt. „Við
höfum það fyrir reglu að segja ekki
frá einstaka sjúkdómstilfellum þannig
að ég get hvorki játað þessu né
neitað. Hið eina sem ég get sagt á
þessu stigi er að nú er vitað um fjóra
einstaklinga hér á landi sent komnir
eru með hin svokölluðu forstigsein-
kenni af Aids og sýktir einstaklingar,
sem vitað er um, fara að nálgast tíu.
Haraldur sagði að eitt af því óhugg-
ulegasta við þennan sjúkdónt er það
að þeir, sem eru að veikjast núna, er
fólk sem smitaðist fyrir 3-4 árurn
þannig að það er ljóst að ekki eru öll
kurl enn komin til grafar í þessu máli.
„Ég rnundi þó segja að það væri
enginn sjúklingur sem enn uppfylli öll
þau skilyrði sem talin eru þurfa að
vera fyrir hendi til að hægt sé að tala
um Aids. En eins og ég sagði þá
höfum við verið sparir á upplýsingar
um einstaka tilfelli," sagði Haraldur.
Hvað snertir sjúklinga sem ekki
hafa enn komið frarn þá hefur hingað
til ekki verið gerð nein meiriháttar
könnun á áhættuhópum úti í þjóðfé-
laginu þó svo að ef til vill sé að komast
skriður á það nú. Þeir einstaklingar
sem þegar hafa fundist hafa flestir
leitað sér lækninga vegna einhverra
óþæginda en flestir sem eru sýktir
hafa engin einkenni. Haraldur sagði
að of lítið væri vitað unt aðstæðurnar
hér á landi til að geta fullyrt nokkuð
um útbreiðsluna. Það væri að koma í
Ijós fólk sem er smitað og það er
auðvitað slæm vísbending.
Haraldur vildi að lokum undir-
strika að hér væri unt kynsjúkdóm að
ræða sem smitast fyrst og fremst við
samfarirog við blóðblöndun. „Aids á
því ekki að geta breiðst út eins og
eldur í sinu og fólk getur varast
sjúkdóntinn."
■ Á myndinni má sjá bflflakið. Á innfelldu myndinni sést hvar afturhásingin á bflnum hefur lent um 50 metrum frá
slysstað. NT-mynd Sverrir
Fyrsta fórnarlamb óveðursins:
Stórslasaður
efftir árekstur
■ Bíll skall harkalega á ljósastaur gekkstfljótlegaundiraðgerð. Farþegi .ungir bræður sem voru á leið frá
við Söluturninn Bita í Garðabæ í hans slapp hins vegar með skrámur Hafnarfirði hafa bræðurnir ekki hag-
fyrrinótt, með þeim afleiðingum að enbíllinnergjörónýtur.leystistsvoað aðakstrinum ísamræmiviðaðstæður,
ökumaður bílsins var fluttur mikið segja upp í frumparta. óku á miklum hraða í ofsaveðrinu
slasaður á slysadeild þar sem hann Okumaðurinn og farþeginn voru sem þá var skollið á.
TIL SÖLU
notaðar dráttarvélar
MF. 135
MF. 35x
MF. 575
IH. 454
IH. 574
árg. 72
árg. ’64
árg. 78
árg. 77
árg. 78
Gott verð og greiðslukjör.
Járnhálsi 2
110 Reykjavík
Sími 83266.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir sem skemmst hafa í
umferðaróhöppum.
Ford Sierra árgerð 1984
Datsun 280 C árgerð 1982
Subaru 4x4 árgerð 1981
Daihatsu Charade árgerð 1980
B.L. Princess árgerð 1979
Toyota Tercel árgerð 1979
Lancer árgerð 1977
Skoda 110 árgerð 1976
Ford Cortina árgerð 1974
Toyota Corolla árgerð 1982
Bifreiðirnar verða sýndar að Höfðabakka 9, mánudaginn
18. nóvember 1985 kl. 12-16. Á sama tíma: í Ármúla 3, í bakgarði.
Man 19240 FA vörubifreið árgerð 1979
í Vestmannaeyjum.
Daihatsu Charmant st. árgerð 1979
Á ísafirði.
Daihatsu Charade árgerð 1979
Á Selfossi.
Daihatsu Charmant árgerð 1978
I Borgarnesi.
Lada station árgerð 1979
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga, Ármúla 3, Reykja-
vík eða umboðsmanna fyrir kl. 12, þriðjudaginn 19. nóvem-
ber 1985.
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ÁRMÚLA 3 108 REYKJAVÍK SÍMI (91)81411
TELEX 2103 SAMVIN IS