NT - 16.11.1985, Síða 18
Laugardagur 16. nóvember 1985 22
ÍTIÍT!--:_______
Bækur og ■'i'l
Sagnaþættir
úr Skagafirði
■ Út er komið hjá sögufélagi
Skagfirðinga annað bihdi Rit-
safns Stefáns Jónssonar á
Höskuldsstöðum. Nefnist það
Sagnaþættir, og eru í því 9
þættir.
Hinn fyrsti nefnist Flata-
tungumenn og er þar fjallað um
ábúendur Flatatungu frá önd-
verðu fram á þessa öld eftir því
sem heimildir greina.
Flatatunga og Bjarnastaða-
hlíð heitir þáttur um Flata-
tungufjalir, og þar er reynt að
skýra með hvaða hætti þessi
forni útskurður barst milli þess-
ara bæja.
Halldór Klaus Brynjóllssun
er aðalpersóna i samnefndum
þætti, auðnulítill smiður af
háum ættum, hagleiksmaður
mikill, en ölkær og brokkgeng-
ur.
Sagnir um Ásmund prest
Gunnlaugsson eru margar og
litríkar, enda var klerkur um-
deildur og stóð einatt í stórræð-
um, hvort sem hann þjónaði
kalli vestur í Dölum eða í Siglu-
firði; bjó lengst prestlaus í Mikl-
ey í Hólmi.
ítarlegur þáttur er af Stefáni
lækni á Egilsá, Tómassyni.
Hann var hæfileikamaður og
lærði talsvert í læknisfræði, en
ýmsar kynjasagnir fóru af hon-
um þegar í lifanda lífi, enda var
hátterni hans sumt ekki af
hversdagslegu tagi.
Þáttur er um Jón Jónasson,
Grundarkots-Jón, sem bjó í
Blönduhlíð á seinni hluta 19.
aldar og átti einatt í mesta basli,
en var góður hagyrðingur.
Sicfáh Jonsson
Höskuldsstoðum
RITSAFN II
SAGNA
ÞÆTTIR
í þætti af Kota-Brandi er lýst
Hildibrandi Jónssyni á Ytri-
Kotum, kynlegum kvisti,
greiðamanni miklum, sem
kunnur varð fyrir sérkennileg
tilsvör sín.
Hannes Hannesson á Reykj-
arbóli var móðurbróðir Steph-
ans G. Stephanssonar, bóndi á
Reykjarhóli og víðar, lífs-
nautnamaður og gekk ekki gró-
inn stíg.
Loks er að geta þáttar um
Hákarlsstuldinn, Jón dauða-
blóð og Guðmund (læking, þar
sem er lýst sérkennilegu þjófn-
aðarmáli í Blöndhlíð og kvæði
sem um það var ort.
Hjalti Pálsson, Sölvi Sveins-
son og Pórdís Magnúsdóttir
önnuðust útgáfuna.
Dreifingu utan Skagafjarðar
annast Bókaforlag Odds
Björnssonar Akureyri.
96 sögur
af Oktavíu
Nýtt skáldverk eftir Véstein Lúðvíksson
■ Vésteinn Lúðvíksson.
. ■ Út er komið hjá Máli og
menningu nýtt skáldverk eftir
Véstein Lúðvíksson og nefnist
það Oktavía. Vésteinn hefur
áður skrifað skáldsögur, smá-
sögur og leikrit. í fyrra kom út
eftir hann bókin Maður og haf,
sem er önnur þeirra bóka sem
tilnefndar eru til bókmennta-
verðlauna Norðurlandsráðs í ár
af íslands hálfu.
í þessu nýja verki Vésteins
segir frá því að félag nokkurt
hyggst ráða sér framkvæmda-
stjóra en meðal umsækjanda
reynist vera umdeildur félags-
maður, Oktavía að nafni. For-
OKTAVÍA
VÉSTEINN
LOÐVÍKSSON
maður félagsins gerir það að
tillögu sinni að stjórnin fjalli um
umsögn Oktavíu með þeim
hætti að hver hinna tólf stjórn-
armanna segi af henni átta stutt-
ar sögur, og rökstyðji þannig
atkvæði sitt. í bókinni eru því
96 stuttar sögur af sömu kon-
unni, og bregða þær skemmti-
legu og oft óvæntu Ijósi á tilveru
okkar og samlíf.
Oktavía er 100 bls. að stærð,
unnin og prentuð í Prentstofu
G. Benediktssonar og bundin í
bókfelli hf. Kápu gerði Robert
Guillemette.
Forstöðu-
maður
Starf forstöðumanns Fjórðungssjúkrahúss-
ins Neskaupstað er laust til umsóknar.
Launakjör samkvæmt kjarasamningum
starfsmannafélags Neskaupstaðar og
bæjarstjórnar. Umsóknarfrestur er til 8. des-
ember 1985. Umsóknirsendisttil bæjarstjór-
ans í Neskaupstað sem einnig veitir allar
nánari upplýsingar.
Bæjarstjóri.
Þróunarfélag íslands h.f.
Stofnfundur Þróunarfélags íslands h.f. verð-
ur haldinn í Átthagasal Hótel Sögu (Lækjar-
hvammi), laugardaginn 23. nóvember n.k.
og hefst hann kl. 13.30. Skrá yfir áskrifendur
liggur frammi til sýnis fyrir áskrifendur í
forsætisráðuneytinu, stjórnarráðshúsinu við
Lækjartorg, Reykjavík.
Hafnarbúðir
Hver hefir áhuga á að vinna í hlýlegu, björtu
og heimilislegu umhverfi í hjarta borgarinn-
ar? Okkur vantarfáeina hjúkrunarfræðinga,
sjúkraliða og aðstoðarfólk. Einnig vantar
sjúkraþjálfara í 1/2 starf fyrir hádegi, starf
sem sýnir fljótt árangur. Upplýsingar veitir
hjúkrunarforstjóri í síma 19600-220-300
og yfir sjúkraþjálfari í síma 19000-266.
Beitusíld
Til sölu er úrvals beitusíld. Til afgreiðslu nú
þegar. Allar nánari upplýsingar veittar í síma
97-8880.
Búlandstindur hf.
765 Djúpavogi
Lífeyrissjóðurinn
Hlíf
heldur aðalfund sunnudaginn 17. nóvember og
hefst hann kl. 14.00 að Borgartúni 18.
Dagskrá: Reglugerðarbreytingar og venjuleg
aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Byggingarfélag verkamanna
Reykjavík
Aðalfundur
félagsins verður haldinn í Hótel Hofi, Rauðarár-
stíg 18, fimmtudaginn 21. nóvember 1985,
kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagsstjórnin.
Til sölu
3 afgreiðsluborð (kjörbúðaborð) seljast ódýrt
með góðum greiðslukjörum.
Upplýsingar í síma 91-72800 og 72813.
Til sölu
2 Offset-fjölritarar, Multilith 750 og Adast.
Lítið notaðir í góðu lagi.
Upplýsingar í síma 686538 Þorgeir.
Garðyrkja
Hafnarfjörður
Hafnarfjarðarbær óskar að ráða verkstjóra til
að annast garðyrkju og ræktunarstörf á
vegum bæjarins. í starfinu felst aðallega
verkstjórn og umsjón með ræktunarverkefn-
um vinnuskóla og fleira. Á veturna verður
starfað að hönnun og öðrum undirbúningi
verka. Óskað er eftir skrúðgarðyrkjumanni í
starfið. Laun samkvæmt kjarasamningum
verkstjóra. Nánari upplýsingar veitir bæjar-
verkfræðingur, Strandgötu 6 á skrifstofu-
tíma. Umsóknum skal skilað á sama stað
eigi síðar en 3. des. n.k.
Bæjarverkfræðingur
FJÖLBRAUTASKÓLINN
BREIÐHOLTI
Fjölbrauta-
skólinn í
Breiðholti
Umsóknir um skólavist í Dagskóla F.B. á
vorönn 1986 skulu hafa borist skrifstofu
skólans Austurbergi 5 fyrir 1. desember n.k.
Nýjar umsóknir um Kvöldskóla F.B. (öld-
ungadeild) á vorönn 1986 skulu berast
skrifstofu skólans fyrir sama tíma.
Staðfesta skal fyrri umsóknir væntanlegra
nýnema með símskeyti eða símtali við
skrifstofu F.B. sími 75600.
Skólameistari.
IÐNSKÓLINN i REYKJAVÍK
Innritun nýnema á vorönn 1986.
Innritun í eftirtaldar deildir skólans stendur
nú yfir og lýkur 6. desember.
1. Samningsbundið iðnnám.
2. Grunndeild málmiðna
3. Grunndeild tréiðna
4. Grunndeild rafiðna
5. Framhaldsdeild vélvirkja/rennismiða
6. Framhaldsdeild rafvirkja/rafvélavirkja
7. Framhaldsdeild rafeindavirkja
8. Framhaldsdeild bifvélavirkja
9. Framhaldsdeild húsasmiða
10. Framhaldsdeild hárgreiðslu
117 Fornám
12. Almennt nám
13. Tækniteiknun
14. Meistaranám
15. Rafsuða
16. Tölvubraut
17. Tæknifræðibraut
Fyrri umsóknir sem ekki hafa verið staðfestar
með skólagjöldum þarf að endurnýja.
Nánari upplýsingar eru gefnar í skrifstofu
skólans. Innritun í einstakar deildir er með
fyrirvara um næga þátttöku.
Skrifstofa skólans er opin virka daga kl.
9.30-15.00.
Iðnskólinn í Reykjavík.
t
Hugheilar þakkir sendum viö óllum þeim er heiðruðu minningu
eiginmanns mins og föður okkar
Sigurðar Páls Gunnarssonar
vélstjóra
Seljabraut 22
og sýndu okkur samúð og hlýhug.
Guðbjörg Bjarnadóttir.
Helðrún Slgurðardóttlr Vignlr Slgurðsson.