NT

Ulloq

NT - 16.11.1985, Qupperneq 22

NT - 16.11.1985, Qupperneq 22
Laugardagur 16. nóvember 1985 26 Íþróttir Keppnin „Sterkasti maður heims": Jón Páll var í öðru sæti Undankeppni HM í knattspyrnu nú að Ijúka: ■ Diego Maradona er líklega heimsins besti knattspyrnumaður. Hér ræðir hann við þjálfara Napóli. Undirbúningur er hafinn - hjá þeim landsliðum sem tryggt hafa sér sæti í úrsiitakeppninni í Mexíkó á næsta ári ■ Nú eru línur mjög teknar að skýrast í undankeppni Heims- meistaramótsins í knattspyrnu og sætin í úrslitakeppninni í Mexíkó óðum að fyllast. Um helgina fara fram tvær úrslita- viðureignir og er þá aðeins þremur sætum óráðstafað ■ keppninni í Mexíkó á næsta ári. Frakkar mæta Júgóslövum í dag og er leikið í París. Platini og félagar þurfa að sigra og líklegt þykir að það hafist, sér- staklega þegar tillit er tekið til slakrar frammistöðu júgóslavn- eska liðsins í upphitunarleikjum fyrir viðureignina. Nú síðast lá liðið fyrir 2. deildarliðinu Ra- dnicki Nis. í Santiago taka Chilebúar á móti liöi Paraguay. Fyrri leik þjóðanna lauk með sigri Para- guay 3-0, og því er stórsigur nauðsynlegur fyrir heimamenn. Paraguay stendur því vel að vígi en rétt er þó að benda á að allt getur gerst í suður-amerískri knattspyrnu og heimavöllur hef- ur oft meiri og víðtækari þýð- ingu en í Evrópu. Þá eru þrjú sæti eftir og kljást Skotar og Ástralíumenn um eitt þeirra. Leikið er heima og heim- an og ættu Skotar að hafa betur. Grannarnir Hollendingarnir og Belgar þurfa einnig að kljást um farseðilinn til Mexíkó. Belgar unnu fyrri viðureignina 1-0 en liðin takast á í Hollandi á mið- vikudaginn. Loks leika svo írar og Sýrlendingar um þriðja lausa sætið og eru lrakar sigurstrang- legri á pappírunum, en þeir eru núverandi Arabaríkjameistarar í knattspyrnu. Mexíkó og Ítalía þurftu ekki að berjast fyrir sæti í úrslita- keppninni þar sem önnur þjóðin er gestgjafinn en hin er núver- andi heimsmeistari í knatt- spyrnu. Báðar þjóðirnar hafa góðum liðum á að skipa og koma vel til greina sem væntan- legir heimsmeistarar. Lið Mexíkó mun treysta á þjóðardýrling sinn Hugo Sanchez, sem leikur með spænska stórliðinu Real Madríd, í framlínunni og Tóm- as Boy mun bera uppi miðju- spilið. Pá mun heimavöllurinn og geysigóður undirbúningur Mexíkana, sem reyndar er haf- inn af krafti, sjálfsagt spila stórt hlutverk í gengi liðsins. ítalir eru núverandi heims- meistarar og þó liðið hafa verið afar dauflegt síðan titillinn vannst hefur sá gamli refur Enzo Bearzot, sem stjórnað hefur ítalska liðinu í tíu ár, ávallt lag á að ná því í toppform þegar mikið liggur við. Frá Suður-Ameríku koma síðan tvö sigurstranglegustu lið keppninnar. Það eru Brasilía, sem orðið hefur heimsmeistari þrisvar sinnum, og Argentína sem skartar líklega heimsins besta knattspyrnumanni Diego nokkrum Maradona. Brassarnir hafa átt í erfiðleik- um með að finna sitt rétta lið. Ljóst þykir nú að treysta verður á einhverjar af þeim stjörnum sem skinu hvað skærast á Spáni 1982. Zico er þar fremstur í flokki þó hann hafi orðið að gangast undir uppskurð á hné nú nýlega. Er sagt að Brasil- íumenn bæti honum nú við í bænirnar sínar á kvöldin. Junior ■ Tómas Boy stjórnar leik Mexíkana. Danir, Englendingar og V- Þjóðverjar eiga þó við ramman reip að draga því í síðustu tveimur Heimsmeistarakeppn- um, Argentínu 1978 og Spáni 1982, og einnig í síðustu tveimur Evrópukeppnum landsliða, hef- ur verið leikið í löndum þar sem latnesk áhrif ríkja og sigurveg- ararnir hafa í öll skiptin komið frá þeim svæðum. Verður því að teljast ólíklegt að þjóð frá N-Evrópu kræki sér í heims- meistaratign á næsta ári. Aðrar þjóðir sem áunnið hafa sér réttinn til að leika í úrslitum Heimsmeistarakeppninnar í Mexíkó eru Ungverjaland, Pólland, Sovétríkin, Búlgaría, Portúgal, Spánn, N-írland, Marokkó, Alsír, Kanada og S- Kórea. ■ Brasilíumenn eru eins og ávallt sigurstranglegir. Jón og Capes í sérflokki Jón Páll sigraði í þessari keppni í fyrra en þá var hún haldin í Svíþjóð. Aðalkeppi- nautur hans þá var einmitt Geoff Capes og nú hafði hann betur þó munurinn hefði ekki getað orðið minni. Fyrir síðasta dag keppninnar var Capes fimm stigum á undan Jón Páli en kappinn minnkaði muninn jafnt og þétt í þrautun- um í gær. Samkvæmt heimildum NT mun tunnuburður einn hafa valdið miklum deilum. Jón fór þar upp með mestu þyngd en fékk ekki fleirri stig en Capes fyrir ómakið. Fréttir herma að Jón Páll sé ekki sáttur við þann úrskurð en úrslitin munu samt sem áður standa. Mjög erfitt er að fá nokkrar fréttir frá keppninni þar sem þagnareiður ku vera í gildi en samkvæmt heimildum NT munu þeir Jón Páll og Geoff Capes hafa verið í nokkrum sérflokki í keppninni. Jón Páll er væntanlegur heim á sunnudagskvöldið og verður vonandi hægt að greina nánar frá keppninni eftir helgi. íþróttir helgarinnar ■ Fjórir leikir eru á dagskrá í 1. deild karla í handknattleik um helg- ina. í dag keppa FH og Próttur kl. 13.00 í Hafn- arfirði og Valur og KA mætast í Laugardalshöll- inni kl. 14.00. Á morgun keppa Akureyringar aftur, nú við Víking kl. 14.00 í Höllinni og Stjarnan og KR eigast við í Digranesi kl. 14.00. í 2. deild er stórleikur á dagskránni. ÍR og Breiðablik keppa í dag kl. 14.00 og er leikurinn í Seljaskóla. Pá leika Afturelding og Þór, Vest- mannaeyjum að Varmá kl. 14.00 í dag. Þrír leikir eru á morgun í 1. deild kvenna. Haukar og Stjarnan keppa í Hafnar- firði kl. 20.00. Fram mæt- ir FH í Höllinni kl. 15.15 og KR og Víkingur eigast við strax eftir. Karfa: Ekkert er leikið í Úr- valsdeildinni vegna utan- farar landsliðsins en Reynir og Þór frá Akur- eyri mætast í Sandgerði á morgun kl. 14.00. BÍak: í dag eru tveir leikir í 1. deild karla. HK og HSK í Digranesi kl. 14.00 og KA tekur á móti Fram á Akureyri og hefst viður- eignin einnig kl. 14.00. Þá leika UBK og Víking- ur í kvennaflokki kl. 15.15 í Digranesi. Á morgun er svo keppt í Hagaskóla. Byrjað er kl. 19.00 með leik Þróttar og Víkings í kvennaflokki. Þá leika Þróttur og Vík- ingur aftur en nú í karla- flokki og loks eigast við fS og HK. Loks skal svo getið meistaramótsins í Shot- okan karate sem haldið er í íþróttahúsi Gerplu í Kópavogi. Keppni hefst þar kl. 11.00 en úrslit eru áætluð byrja um kl. 13.00. leikur einnig afar vel um þessar mundir með liði sínu Tórínó í ítölsku deildarkeppninni og verður örugglega einn af mátt- arstólpum liðsins í Mexíkó. Brasilíumenn virðast þar að auki hafa fundið formúlu fyrir góðum árangri yngri landsíiða sinna - unnu nú síðast Heims- meistarakeppni unglingalands- liða sem fram fór í Sovétríkjun- um í september - og því væri ekki óhugsandi að ungir snill- ingar ættu eftir að láta í ljós sitt skína á liði Brassanna á næsta ári. Argentína hefur Diego Mara- dona í sínum herbúðum en hann þykir aldrei hafa leikið betur en einmitt nú, enda farinn að þroskast nokkuð sem knatt- spyrnumaður. Þessi hæfileika- ríki knattspyrnumaður kom fyrst fram á sjónarsviðið skömmu eftir Heimsmeistara- keppnina í Argentínu 1978 en fyrirliði heimsmeistara Argent- ínu það árið var Daniel Passar- ella. Hann á nú í útistöðum við þjálfara landsliðsins, Carlos Bil- ardo og er óvíst hvort hann leiki með liðinu í Mexíkó. Það yrði mikill missir fyrir Argentínu- menn því Passarella var m.a. almennt álitinn besti varnar- maður keppninnar á Spáni 1982 og hefur lítið gefið eftir síðan. Þau fjögur lið sem nefnd hafa veríð þykja öll líkleg til afreka í Mexíkó en önnur lið sem einnig gætu átt eftir að vera sterk á næsta ári eru landslið Frakka, núverandi Evrópmeistara sem enn eiga þó eftir að tryggja sæti sitt í keppninni, V-Þjóðverja, Dana, Englendinga og Uru- gaymanna. ísland tapadi ■ íslcnska landsliðið skipað leikmönnum 16-18 ára tapaði með Iveimur mörkum gegn engu í knatt- spyrnulandsleik sem háður var í Skotlandi í fyrrakvöld. Þar með er þátttöku liðsins lokið í Evrópukcppninni að sinni og oili lið okkar talsverðum vonbrigðum - tapaði ölluin sínum leikj- um. íslensk glíma: Tímabilið hefst á Minni Borg Fjórðungsglíma Suðurlands er I dag ■ Fyrsta glímumót á þessu skrifstofu Glímusambandsins í tímabili hefst í dag k. 14.00 á síma 83377. Minni-Borg f Grímsnesi og er þar um Fjórðungsglímu Suður- lands að ræða. Þar eru sex þátttakendur skráðir til leiks. Samhliða Fjórðungsglímunni fer fram Drengjaglíma Suður- lands og þar eru einnig sex þátttakendur skráðir til leiks. Nú fer dómaranámskeið að hefjast í glímunni og verður það haldið í íþróttamiðstöðinni. Laugardal dagana 25.-27. nóvember og hefst kl. 20.00 öll kvöld. Þátttaka tilkynnist á Jafntefli ■ Mexíkó og Argentína skildu jöfn í vináttulands- leik í knattspyrnu en leikurinn fór fram í Los Angeles að viðstöddum 43 þúsund áhorfendum. Di- ego Maradona náði foryst- unni fyrir Argentínumenn á 35. mínútu en Tómas Boy jafnaði fyrir Mexíkó á 73. mínútu. - Capes sigraði naumlega - ■ Jón Páll Sigmarsson er næst sterkasti maður heims. Hann var hálfu stigi á eftir aðalkeppi- naut sínum, breska tröllinu Ge- off Capes, í keppninni „Sterk- asti maður heims“ sem lauk í Portúgal í gærkvöldi. Stjörnuhlaup FH ■ Stjörnuhlaup FH verður haldið á laugar- daginn 16. nóv. Hlaupið hefst kl. 13:00 við Lækj- arskóla í Hafnarfirði. Þátttökugjald fyrir eldri flokka er 100 krónur en ekkert fyrir yngri flokka. Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjöl.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.