NT - 16.11.1985, Side 23
Afmæli Þórs
■ Ellert Schram, formaður KSÍ heiðraði þrjá Þórsara. F.v. Þóroddur Hjaltalín,
Hallgrímur Skaptason og Guðmundur Sigurbjörnsson. mynd: st-
- haldið hátíðlegt á Akureyri - Mikil uppbygging hjá félaginu
Frá Gylfa Kristjánssyni frcttaritara
NT á Akureyri:
■ íþróttafélagið Þór á Akureyri hélt
upp á 70 ára afmæli sitt sl. laugardags-
kvöld með afmælishófi sem um 160
manns sóttu, en afmælisdagur félagsins
var 6. júní í surnar.
í hófinu var Rafn Hjaltalín knatt-
spyrnudómari sæmdur æðsta heiðurs-
merki íþróttasambands íslands fyrir
dómarastörf og margvísleg störf önnur
að íþróttamálum. Sigurður Oddsson
fyrrverandi formaður Þórs var sæmdur
gullmerki íþróttasambands íslands.
Knattspyrnusamband íslands heiðraði
þrjá Þórsara. Guðmundur Sigurbjörns-
son og Þóroddur Hjaltalín fengu silfur-
merki KSÍ og Hallgrímur Skaptason
gullmerki. Þá sæmdi Körfuknattleiks-
samband íslands Eirík Sigurðsson silfur-
merki KKÍ.
íþróttafélaginu Þór bárust margar
gjafir í tilefni dagsins. Akureyrarbær gaf
félaginu 70 þúsund krónur og Kaupfélag
Eyfirðinga færði félaginu veglega pen-
ingagjöf. Þá söfnuðu gamlir Þórsarar
saman álitlegri peningaupphæð.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað á
félagssvæði Þórs undanfarin ár. Malar-
völlur var tekinn í notkun 1975 og 14000
fermetra grasvöllur árið 1980. Þá er nú
unnið að því að þökuleggja tvo nýja
grasvelli og að girða svæðið. Þá er
tennisvöllur tilbúinn til notkunar er hann
hefur verið borinn varanlegu slitlagi.
Félagar í íþróttafélaginu Þór eru hátt
í 2000 talsins, formaður félagsins er
Benedikt Guðmundsson.
PÓST- OG
SlMAMÁLASTOFNUNIN
Auglýsingar í
SÍMASKRÁNA
1986
Gögn varöandi auglýsingar í símaskrá 1986 hafa nú
verið send í pósti til flestra fyrirtækja landsins.
Einnig eru sömu gögn fyrirliggjandi á öllum símstöðv-
um til afnota fyrir auglýsendur. Um er að ræða eyðu-
blöð fyrir auglýsingapantanir þar sem einnig eru upp-
lýsingar um verð og fyrirkomulag auglýsinga í síma-
skrá 1986.
Nýjar pantanir og endurpantanir auglýsinga í síma-
skrá 1986 eiga að vera skriflegar og hafa borist fyrir 1.
desember 1985.
Utanáskrift er: Símaskrá - auglýsingar
pósthólf 3111 - 121 Reykjavík.
Nánari upplýsingar um auglýs-
ingar í símaskrá 1986
í síma 91-29140.
■ Á efri myndinni má sjá Svein
Björnsson, forseta ÍSÍ, afhenda Rafni
Hjaltalín heiðurskross ÍSÍ og á neðri
myndinni afhendir Valur Arnþórsson,
kaupfélagsstjóri, Benedikt Guðmunds-
syni, formanni Þórs gjöf. mynd: gk-
TIL SÖLU
DODGE POWER WAGON 200
Árgerð 79 kominn á götuna ’81, ekinn 20.000 km. 10-11 manna 318 vél. Með honum
fylgir 6 tonna spil, toppljós, Spoke felgur dana 60, aftur og fram hásingar, vökvastýri,
power bremsur, kastarar, driflokur, cargoljós, plussklædd sæti. Bíllinn verður til sýnis í
húsi Hjálparsveitar skáta, Garðabæ við Bæjarbraut á laugardaginn 16. og sunnudaginn
17. nóv. milli kl. 10-19. Hægt er að fá upplýsingar í síma 46860 og 641980 á sama tíma.
Einnig þriðjudaginn 19. nóv. kl. 19-22 í sömu símum.