NT - 12.12.1985, Blaðsíða 10

NT - 12.12.1985, Blaðsíða 10
■ Sigurður Sigurjúnsson vcrður kynnir á tónleikunum en hann lék Mozart með eftirminnilegum liætti í uppfærslu Þjóðlcikhússins á leikritinu Amadeus eftir Peter Schaffer. i.jósmynd Jóhannn óiafsdótiír Stjörnutónleikar Sinfóníunnar: Amadeustónlei kar í Háskólabíói - einsöngur, einleikur og kórsöngur á tónleikunum ■ Næsta fimmtudag, 12. des- ember verða þriðju Stjörnutón- leikar Sinfóníuhljómsveitar ís- lands haldnir í Háskólabíói. Á tónleikunum verða eingöngu flutt verk eftir Wolfgang Amade- us Mozart. Stjórnandi verður Jean-Pierre Jacquillat en kynnir verður Sigurður Sigurjónsson í hlutverki Amadeuss sem hann fór eftirminnilega með á fjölum Þjóðleikhússins. Tónleikarnir hefjast með sin- fóníu nr. 1 sem Mozart samdi að- eins 7 ára gamall. Að loknum for- leik að óperunni „Brúðkaup Fíg- arós“ syngur Katrín Sigurðar- dóttir aríur Cherubinos. Gísli Magnússon píanóleikari leikur síðan einleik í 2. þætti píanó- konserts nr. 21. Þá syngur Katrín aríu Zerlínu úr óperunni „Don Goivanni". Hljómsveitin leikur 1. þátt úr sinfóníu nr. 39 og Lang- holtskórinn syngur „Ave verum“. Þá leikur Einar Jóhann- esson einleik í þriðja þætti klarin- ettukonserts Mozarts en Einar vakti mikla athygli er hann flutti þetta verk í Frakklandsferð Sin- fóníuhljómsveitarinnar í sumar. Tónleikunum lýkur með „Lacr- ymosa“ úr Requiem, það var síð- asta verkið sem Mozart samdi og hann lést árið 1791, áður en verk- ið var fullgert. Mozart fæddist árið 1756 og var skírður Johannes Chrystomos Wolfgang Theophilus Mozart. Amadeus nafnið er þýðing á The- ophilur „sá sem guðirnir elska". Hann var undrabarn og ólst upp á sífelldum ferðalögum um Evr- ópu. Auk þess að vera tónlistar- snillingur hafði hann óvenju- mikla hæfileika á sviði stærð- fræði. Hann var félagslyndur, mikið fyrir skemmtanir og kúlu- spil af öllu tagi, en hafði ekkert viðskiptavit og var í sífelldum fjárkröggum. Þegar hann Iést, aðeins 35 ára gamall hafði hann samið nær 700 tónverk. Wagner sagði um Mozart: „Ég trúi á Guð,1 Mozart og Beethoven, en næst Guði kemur Mozart." í tilefni tónleikanna hefur Fálkinn gefið út 5 hljómplötur með verkum Mozarts. Þessar plötur verða merktar ákveðnum sætum í Háskólabíói og hinir heppnu fá því eina plötu að gjöf. ______________________ Fimmtudagur 12. desember 1985 10 Fréttir Háskólakennsla ut- an Reykjavíkur? BHM efnir til opins fundar á laugardag kl. 13.30 í Odda ■ Bandalag háskólamanna efnir til opins fundar um háskólakennslu utan Reykjavíkur laugardaginn 14. desember kl. 13.30 í stofu 101 í Odda, húsi félagsvísindadeildar Háskóla Islands. Framsöguerindi flytja Sigmund- ur Guðbjarnason háskólarektor, Tryggvi Gíslason, skólameistari M.A. og Valdimar K. Jónsson prófessor. Að loknum framsöguer- indum verða frjálsar umræður og fyrirspurnir. Gunnar G. Schram formaður BHM sagði á blaðamannafundi í vikunni að mál þetta væri mjög umdeilt og allt benti til þess að það yrði tekið til umræðu á Alþingi í vetur. BHM tæki hins vegar enga afstöðu í þessu máli en gengist fyrir þessum fundi þar eð eitt af hlut- verkum BHM væri að standa fyrir umræðu um mennta- og menning- armál. Á fundinum yrðu allar hlið- ar þessa máls til umræðu og búast mætti við að umræðan tengdist spurningunni um opinn háskóla, sem Háskóli íslands stæði fyrir í samvinnu við hljóðvarp og sjónvarp. Háskóli íslands væri nú sem stæði í miklum fjársvelti og sumir væru þeirrar skoðunar að íslendingar hefðu ekki efni á að deila kröftum og fjármagni í að stofna nýjan háskóla utan höfuð- borgarinnar en beina þess í stað kröftunum að Háskóla fslands. Launakjör kennara væru líka slæm og takmarkaður fjöldi manna gætu auk þess sinnt háskólakennslu. Ennfremur væru skiptar skoðanir á nauðsyn annars háskóla en í tillög- um nefndar sem fyrrverandi menntamálaráðherra, Ingvar Gíslason, skipaði árið 1982 er gert ráð fyrir að í háskóla sem staðsett- ur yrði á Akureyri yrðu kenndar tónmenntir, listir, auk annars náms sem er að sumu leyti frá- brugðið því sem gerist í Háskóla íslands s.s. frjálst háskólanám með aðstoð sjónvarps og hljóðvarps frá Reykjavík og Akureyri er nýtast myndi öllumlandsmönnum. Áhugamenn um háskólamálefni eru eindregið hvattir til að koma á fundinn. ■ Framsögumenn á fundinum í Odda verða Sigmundur Guðbjarnason háskólarektor, Tryggi Gíslason skólameistari M.A. og Valdimar K. Jónsson prófessor. Búast má við að umræðurnar verði mjög líflegar því skiptar skoðanir eru um nauðsyn og staðsetningu háskóla utan höfuðborgarsvæðisins. Lúsíuháfíð í Naustinu - margt nýstárlegt til skemmtunar ■ íslensk-sænska félagið efnir til Lúsíuhátíðar á föstudaginn 13. desember nk. Sú gamlasiðvenja að fagna Lúsíu þennan dag hefur leg- ið niðri hjá félaginu í nokkur ár, en nú hefur verið ákveðið að taka upp merkið að nýju. Lúsía hefur enda verið önnur aðalhátíð félags- ins, sem hélt mjög fjölsótta Val- borgarmessu í vor og minntist síð- an aldarafmælis skáldsins og vísna- söngvarans Birger Sjöbers í haust. Lúsíuhátíðin verður haldin í veitingahúsinu Nausti og til skemmtunar verður sitthvað bæði nýstárlegt og hefðbundið. Húsið verður opnað kl. 18 fyrir matargesti, en um kl. 21 kemursvo Lúsía með þernum sínum og Lúsfa er Katrín Sigurðardóttir óperu- söngkona. Henni fylgja einnig stjörnustrákar og þar verða á ferð- inni nokkrir þjóðkunnir menn. Atli Heimir Sveinsson tónskáld sér um tónlistina og Steinunn Sig- urðardóttir spjallar um gildi Ijóssins. Boðið verður upp á jóla- glögg og piparkökur og að lokum stiginn dans. Nýr for-, maður FIR ■ Félag íslenskra rithöf- unda hélt aðalfund sinn 23. nóvember og var Sveinn Sæmundsson kosinn for- maður félagsins, Baldur Óskarsson varaformaður, Indriði Indriðason ritari, Gunnar Dal, Ingimar Er- lendur Sigurðsson og Indr- iði G. Þorsteinsson voru kjörnir meðstjórnendur. Áður en gengið var til dagskrár var látinna félaga minnst, en það voru þeir Axel Throsteinsson, Guð- mundur G. Hagalín, Har- aldur Á. Sigurðsson og Jón- as Guðmundsson, sem var formaður félagsins. Á fundinum voru máiefni félagsins og rithöfunda rædd. Nú eru rúmlega 80 starfandi rithöfundar í fé- laginu. í vetur mun Félag ís- lenskra rithöfunda halda uppi öflugu félagsstarfi og verður fyrsta bókmennta- kynning félagsins 12. des- ember að Hótel Esju. Nýr sýningarsalur: Gallerý Lækjarfit í Garðabæ ■ Splunkunýr sýningarsalur var opnaður fyrir skömmu, Gallerý ■ Helga Ármannsdóttir, Einar M. Magnússon, Magnús Þór Jóns- son og Guðrún Elín Ólafsdóttir sýna nú í nýja sýningarsalnum - Gallerý Lækjarfit - sýningin stend- ur til 5. janúar. Þar má finna ol- íumálverk, dúkristur, sáldþrykk, akrílmálverk blýantsteikningar og verk unnin at blandaðri tækni. Lækjarfit,sem er til húsa að Lækj- arfiti 7 í Garðabæ. Salurinn var opnaður með málverkasýningu fjögurra ungra Iistamanna, þeirra Guðrúnar Elínar Ólafsdóttur, Ein- ars M. Magnússonar, Magnúsar Þórs Jónssonar og Helgu Ár- mannsdóttur. Allir eru þessir lista- menn af Stór-Reykjavíkursvæð- inu. Gallerý Lækjarfit er glæsilegur 120nr og fyrirhugað er að opna franska kaffistofu til hliðar við salinn, síðar í vetur. Sýningin sem nú stendur yfir er sölusýning og stendur til 5. janúar. Hún er opin alla virka daga vik- unnar frá kl. 10-21 en á laugardög- um og sunnudögum frá kl. 13-23. Forsvarsfólk gallerísins ætlar að leigja salinn út til fundahalda fyrir félagasamtök og fleira. Þeir sem áhuga hafa á að nota salinn hafi samband við skrifstofuna í síma 651633 eða komi í salinn í Lækjar- fit 7 á skrifstofutíma.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.