NT - 12.12.1985, Page 18

NT - 12.12.1985, Page 18
LlL Umsögn/Bókmenntir Annað bindi Gests ■ Gils Guðmundsson. Gestur. íslenskur fróðleikur gamali og nýr II. Gils Guðm'undsson safnaði efninu. Iðunn 1985. 223 bis. ■ í þessu bindi Gests kcnnir niargra• grasa, ekki síðuren í fyrsta bindi, sem út kom í fyrra. Hér er safnað saman efni, sem telja má til þjóðlegs fróð- leiks og hefur nrest af því birst áður á prenti. Er þess ávallt getið í Gesti hvort ritsmíð, sem í honum birtist, liafi verið prentuö áður og þá hvar og hvenær. Hið elsta af efni sem Gestur tlytur nú er frá 18. öld, en mest af því er frá 19. og20. öld. Efniöeraf margvísleg- um toga og má þar nefna grein eftir Klemenz Jónsson um lífið í Reykja- vík á 19öld, grein eftir Þórð Jónsson á Eyrarbakka, sem nefnist Fcrö í verið 1896, grein eftir Gils Guðmundsson um deilurnar vegna sálmabókarinar Leirgerðar, grein cftir Svein Guð- mundsson um hákarlaveiðar á Ströndum, þá er grein, sem ekki er Ijóst unt hötund að og fjallar um íslensk matvæli. Er það elsta ritsmíðin í bók- inni. Enn má nefna „sjálfsævisögu“ Brynjulfs Jónssonar frá Minna- Núpi, frásögn sr. Sveinbjarnar Hall- grímssonar um vígslu dómkirkjunnar í Reykjavík og þannig mætti áfram telja. I bókarlok eru svo „Smá- munir", þ.e.a.s. stuttarsögur, margar í gamansömum tón. Ekki er því að ncita, að gaman var að lesa Gest þennan ekki síður en hinn fyrri. Þjóðlegur fróðleikur hvers konar nýtur enn mikillar hylli ís- Ienskra lesenda og meðan svo er, er sjálfsagt að gefa slík rit út. Efniðerog vel valið og þótt mest af því hafi áður birst á prenti er því ekki að neita, að oftast er þaö í ritum, sem ekki eru al- menningi tiltæk nema á söfnum. Þannig efni er sjálfsagt að prcnta upp, en hins vegar finnst mér að stöku sinn- um seilist Gils fullnærri samtímanum, þegar hann prentar upp á nýtt efni sem birtist fyrir svo sem tveim áratug- um. Slíkt er þó ávallt matsatriði og því er ekki að neita, að það efni, sem hér er um rætt og birtist svo nýlega, stendur vel fyrir sínu, svo ekki sé meira sagt. Allur frágangur ritsins er með ágæt- um og vonandi verður Gestur þessi árlegur viðburður á bókamarkaðnuni næstu árin. Jón Þ. Þór NOKKRIR ÞÆTTIR Emil Björnsson: IVlinni og kynni. Frásagnir og viðtöl. Örn og Örlygur 1985. 144 bls. ■ Þessi bók Emils Björnssonar, Minni og kynni, hefur að geyma átta frásagnir og fjögur viðtöl. Frásagnirn- ar eru af fójki, sem höfundur hefur kynnst á lífsleiðinni og hefur a.m.k. flest af því orðið vcl þekkt, þótt með misjöfnum hætti væri. Hér cr sagt frá Jónasi Jónssyni frá Hriflu. Halldóri Laxness, Maríu Maack, Hcndrik Ottóssyni, Aöalbjörgu Sigurðardótt- ur, Jóhönnu Egilsdóttur, sr. Vigfúsi Þórðarsyni í Eydölum, Guðlaugu H. Þorgrímsdóttur. og viðtöl cru við Sig- urð Nordal prófessor, Brynjólf Bjarnason fyrrvcrandi menntamála- ráðherra. Gylfa Þ. Gíslason prófessor og Óniar Ragnarsson fréttamann. Frásagnirnar átta eru mjög misjafn- ar að lengd, grcinarnar um Jónas og Halldór eru vænar ritgerðir, en liinar ■ Sr. Emil Björnsson, frásagnirnar miklurn mun styttri, en að ýmsu leyti hnitmiðaðri. Viðtölin eru hins vegar öll viðlíka löng og a.m.k. þrjú þeirra, við Sigurð, Bryn- jólf og Gylfa, munu vera byggð að mestu, ef ekki öllu leyti á viðtalsþátt- um höfundar við þessa menn í sjón- varpinu, sem báru heitið „Maður er nefndur". Er flestum sjálfsagt enn í fersku minni viðtalið við Gylfa, sem var flutt fyrir skömmu og vakti verð- skuldaða athygli. Ekki ætla ég mér þá dul að fara að draga þættina í þessari bók í dilka eft- ir efni eða „gæðum". Þeir eru allir at- hyglisverðir aflestrar, vel samdir og uppbyggðir og í frásögnunum tekst höfundi vel að draga fram þá þætti í fari þeirra sem hann fjallar um, er honum þykja mikilsverðir. Um við- töldin gegnir sama máli, þótt viðmæl- endur hafi þar vitaskuld mikið að segja. Þetta er skemmtileg bók aflestrar og fróðleg fyrir margra hluta sakir, þótt því skuli ekki neitað að sá sem þessar línur ritar kunni best að meta viðtalið við Brynjólf Bjarnason. Jón Þ. Þór Reykjavík á fyrri hluta aldarinnar Guðjón Friðriksson: Reykjavík bernsku ininnar. Nítján Reykvíkingar segja frá. Setberg 1985. 212 bls. ■ Margir þeirra, sem enn gefa sé tíma til að hlusta stöku sinnum á útvarp, muna vafalaust eftir viðtals- þáttum, sem Guðjón Friðriksson blaðamaður átti sumarið 1984 við nokkra borna og barnfædda Reykvík- inga og nefndust Reykjavík bernsku minnar. Nú eru þessir þættir komnir út á bók og gefst þeim, sem vilja geyma þá betur en í minninu einu, færi á að lesa og rifja upp Þeir, sem hér segja frá, eru nítján Reykvíkingar, við skulum ekki segja gamlir Reykvíkingar því margir þeirra eru enn á besta aldri. Þeir eru allir fæddir á árunum 1900-1930 og þekktu því í bernsku sinni allt aðra Reykjavík, en þá sem við höfum nú fyrir augum. Og einmitt þess vegna er mikill fengur að frásögn þeirra, þeir ■Guðjón Friðriksson. kunna að greina frá umhverfi, at- vinnu- og heimilisháttum, lífsmáta og lífsviðhorfum, sem eru á margan hátt gjörólík þeim, sem nú eru algengust. Guðjón Friðriksson er þekktur af blaðamennsku sinni og þá ekki síst fyrir skemmtilega þætti um Reykja- vík og Reykvíkinga. Hann hefur haft lag á að velja sér að viðmælendum fólk úr ýmsum stéttum og úr flestum hverfum borgarinnar, eins og hún var þá Þetta fólk kann frá mörgu skemmti- legu og fróðlegu að segja og þótt vita- skuld megi ekki líta á þessa bók sem neins konar sögu Reykjavíkur á þeim árum, sem hér er fjallað um, fer það ekki á milli mála, að hún er gagnlegt innlegg í Reykjavíkursögu. Hér er safnað saman munnlegum heimild- um, sem allar eiga það sameiginlegt að greina frá daglegu lífi í bænum og segja því oft meira í stuttu máli langar ritgerðir, unnar eftir rituðum heimild- um. Þetta er fróðleg bók aflestrar, ágæt- lega frá gengin af höfundarins hálfu og allur frágangur er með ágætum. Er þess að vænta, að fólk sem man Reykjavík á fyrri hluta þessarar aldar hafi bæði gagn oggaman af lestrinum, ekki síður en þeir sem yngri eru. Jón Þ. Þór Fimmtudagur 12. desember 1985 18 Amnesty International Fangar desem- bermánaðar ■ Mannréttindasamtökin Amnesty International vilja vekja athygli almennings á máli eftirfarandi samviskufanga í des- ember. Jafnframt vonast samtök- in til að fólk sjái sér fært að skrifa bréf til hjálpar þessum föngum og sýna þannig í verki andstöðu sína við að slík mannréttindabrot eru framin. íslandsdeild Amnesty hefur nú byrjað útgáfu póstkorta vegna fanga mánaðarins. A kortunum er prentuð áskorun til stuðnings fanganum, og heimilisfang hlut- aðeigandi stjórnvalda. Kortin verða seld í áskrift, og það eina sem áskrifendur þurfa að gera er að undirrita kortin og koma þeim í póst. Þeir sem hafa áhuga á áskrift eða nánari upplýsingum hafi samband við skrifstofu sam- takanna. Túnis. Beshir Essid er 42 ára gamall lögfræðingur sem er í haldi vegna tveggja greina sem hann ritaði og sendi dagblöðum í Túnis í janúar 1984. Tilefni grein- anna voru óeirðir sem brotist höfðu út í kjölfar verðhækkana, en stjórnvöld höfðu þá nýverið lækkað niðurgreiðslur á brauði og öðrum brýnum nauðsynjavör- um. í greinum sínum gagnrýnir Essid stjórnvöld fyrir það með hvaða hætti tekið var á óeirðun- um, og einnig gagnrýnir hann stjórnarstefnuna sem hann telur orsök uppþotanna. Essid var gert að mæta fyrir dómi 22. mars sama árs, og var þar borinn margvísleg- um sökum, s.s. að hafa talað illa um forsetann og aðra úr ríkis- stjórn, og hvatt til ofbeldis. Þrátt fyrir það var Essid dæmdur sekur, og hlaut tveggja ára fang- elsisvist, en dómnum var breytt í eitt ár við áfrýjun til Hæstaréttar. Kína. Xu Wenli ritstýrði til skamms tíma vinsælasta óháða dagblaðinu sem gefið var út í norðurhluta Kína, April Fifth Tribune, en það hætti útgáfu vor- ið 1980 vegna þrýstings frá stjórn- völdum. Xu Wenli hélt þó áfram ritstjórn tveggja lítilla blaða, og aðstoðaði við dreifingu frétta- bréfs, Study Bullettin. Hann var dæmdur í 15 ára fangelsi í júní 1982 fyrir „andbyltingarsinnuð" lögbrot sem tengjast starfsemi hans við útgáfu og sambandi hans við ritstjóra annarra óháðra tíma- rita. Xu Wenli var um marga mánaða skeið haldið langdvölum í klefa sínum, og sá dagsljós að- eins einu sinni til tvisvar á mán- uði. Eftir að hann var dæmdur er hann einn í klefa sem er aðeins 2m2. Að eigin sögn er hann vel hraustur, en óttast að bíða and- legt tjón af langvarandi einangr- un. Xu Wenli er meðlimur í „lýðræðishreyfingunni“, og undirstrikaði í viðtölum sem er- lendir fréttamenn áttu við hann árið 1980 þörfina á lýðræði og umbótum undir stjórn Kommún- istaflokksins. S-Afríka. Mbulelo Goniwe er framamaður í hverfissamtökum svertingja í austurhluta Höfða- borgar (Cradock Resident’s Ass- ociation, Cradora). Hann hefur verið í haldi án dóms eða ákæru síðan 25. júlí, með skírskotun til neyðarlaga frá 20. júlí. Þau gefa öryggislögreglunni frjálsar hend- ur við fangelsun og yfirheyrslur, og leysir hana undan þeirri kvöð að þurfa að svara til saka fyrir mistök sem hana gætu hent við embættisverkin. Talið er að Gon- iwe hafi hlotið illa meðferð í fangavistinni, og er m.a. sagður hafa gat á hljóðhimnu. Mbulelo Goniwe sat einnig inni án ákæru eða dóms í 6 mámuði á síðasta ári, ásamt þremur öðrum framá- mönnum hverfissamtakanna, þ.á m. formanninum, Matthew Goniwe, frænda Mbulelo. 28. júní í ár voru Matthew Goniwe og 3 aðrir framámenn í Cradora (sem hefur samvinnu við ýmis samtök andstæð apartheid stefn- unni) numdir brott og myrtir. Sterkur orðrómur er á kreiki um að „dauðasveit" sú sem ber ábyrgð á glæpnum sé runnin und- an rifjum stjórnarinnar, en hún afneitar allri hlutdeild að málinu. Þeir sem vilja leggja málum þessara fanga lið með bréfaskrift- um eða áskrift póstkorta, eru vinsamlegast beðnir að hafa sam- band við skrifstofu íslandsdeildar Amnesty, Hafnarstærti 15, Reykjavík, sími 16940. Skrifstof- an er opin frá 16.00 til 18.00 alla virka daga. Þar fást nánari upp- lýsingar sem og heimilisföng þeirra aðila sem skrifa skal til. Einnig er veitt aðstoð við bréfa- skriftir ef óskað er.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.