NT - 13.12.1985, Side 9

NT - 13.12.1985, Side 9
Föstudagur 13. desember 1985 9 3ji bekkur Leiklistarskólans: Vonin og vonleysið - í meðförum Tjékovs ■ 3. bckkur Lciklistarskóla Islands: Þrjár systur eftir Anton Tsékov Leiðbcinandi: Hilde Helgason Tæknimaður: Ólafur Örn Thor- oddsen Aðstoð við leikmynd og búninga: Fríða Rán og Steinunn Harðar- dóttir úr Myndlista- og handíða- skóla íslands. Hlutverk: Stefán Sturla Sigurjóns- son, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Guðbjörg Þórisdóttir (úr 4. bekk) Ingrid Jónsdóttir, Þórdís Arnljóts- dóttir, Valgeir Skagfjörð, Þórar- inn Eyfjörð, Halldór Björnsson, Hjálmar Hjálmarsson, Árni P. Guðjónsson (í framhaldsnámi), Eiríkur Guðmundsson (úr 4. bekk) og Brvndís P. Bragadóttir (úr 4. bekk). Þrjár systur eftir Tjékov er leikrit í fjórum þáttum sem gerist í Rússlandi unt síðustu aldamót. Það segir okkur frá væntingum systranna þriggja Olgu, Maríu og Írínu og bróður þeirra Andréj og samferðafólks þeirra, löngunum. þrám og framtíðardraumum þar sem vonin og vonleysið heyja harða baráttu. Og það er misjafn sauður í mörgu fé, menn eru breyskir og hver hefur sinn djöful að draga, djöful sem hefur sogið sig svo blýfastan við fætur hverrar persónu að örðugt reynist að hrista hann af sér. Leikritið er geysimagnað og Tjékov hefur haft mikið innsæi á mannlegu eðli. Persónur verksins reyna að beygja hvora aðra með- vitað eða ómeðvitað og sumar bogna en aörar brotna og í lok verksins hafa orðið kaflaskil í lífi systranna þriggja. Óttinn nagar hins vegar líf bróðurins sem sækir meðvitað aðstoðar ráðríkrar konu sinnar til að verða undir í lífinu, metnaðarlaus og hlaðinn skuldum. En væntanlega hefði leikritið ekki haft eins sterk áhrif á áhorf- andann ef leikaraefnin hefðu ekki staðið sig svona vel. Þau eru lang- flest mjög sannfærandi í hlutverk- um sínum og áhorfandinn hefur það bókstaflega á tilfinningunni að hann sé kominn inn í stofu á heimili Andréjs og systra hans. Þau halda athygli áhorfandans all- ar mínútur þeirra fjögurra klukku- stunda sem leikritið tekur í flutn- ingi. Þaðverðurgamanaðsjáþessi leikaraet'ni takast á við verkefni sem þeim bjóðast innan leikhús- anna eða annars staðar. Þrjár systur er síðasta verkefnið sem 3. bekkur vinnur alfarið innan skólans. Það sem eftir er skólaárs- ins munu þau vinna að unglinga- leikriti, ljóðadagskrá, kynnast hljóðvarpi og sjónvarpi og fara í námsferð til Helsinki og Moskvu. Mrún ■ Systurnar þrjár: Írína, Olga og María. Ingrid Jónsdóttir. Frá vinstri: Þórdís Arnljótsdóttir, Guðbjörg Þórisdóttir og STRUMPARNIR BJÓÐA GLEDILEG N T-mvnd: Svcrrir JÓL ■ Það hefur ekkert farið eins mikið í taugarnar á mér og lielv. strumpabækurnar hér um árið. Strump. strump og strump í hverri málsgrein. Sem betur fer liðu þess- ar bækur undir lok, enda var mál- tilfinningu þjóðarinnar stefnt í voða. Bækurnar dóu, en strumparnir Fjórða bindi ís- lenskra sjávarhátta ■ Lúðvík Kristjánsson: íslenskir sjávarhættir IV. Bókaútgáfa Menningarsjóðs 1985. 546 bls. Lúðvík Kristjánsson lætur ekki deigan síga og er nú út komið fjórða bindi af stórverki hans um íslenska sjávarhætti. í þessu bindi er fjallað um marga efnisþætti og hefur höfundur frásögn sína með því að fjalla um beitu, beituteg- undir, beituöflun og aðferðir við beitingu. Hann sýnir glögglega fram á mikilvægi beitunnar fyrir allar fiskveiðar á áraskipatíman- um og er einkar fróðlegt að kynn- ast því, hvar hverrar beitutegundar var helst aflað, hvernig beitan var verkuð og vinnubrögðum við beit- inguna sjálfa. Þegar lýkur að segja frá beitu og beitingu er haldið á sjó og segir þar frá veiðum á handfæri og síðan frá veiðum á lóðir og í þorskanet. Þar greinir frá ýmsum áhöldum og verkfærum, sem notuð voru við veiðarnar, frá veiðiaðferðum og greint er frá orðafari tengdu veið- unum. Þessu næst er komið að land- töku, uppsetningu og fjöruburði og því næst er fjallað um aflaskipti, skipleigur og eitt og annað í því sambandi, en eins og Lúðvík legg- ur áherslu á, tíðkuðust ekki alls- staðar sömu reglur um þessi atriði. Landlegur voru fleiri og færri á hverri vertíð og þá gripu vermenn til ýmislegs sér til dægrastyttingar. Margir þreyttu leiki, úti og inni, ýmiss konar störf þurfti að inna af hendi og margir vermenn nýttu tímann til að afla sér fróðleiks. í kaflanum um landlegur greinir frá þessu öllu og er þar ýtarlega sagt frá menningar- og menntunarstarfi í landlegum. Sá þáttur þykir undir- rituðum einna merkastur í bók- inni. að öllum öðrum þó ólöstuð- Mikill fjöldi mynda, korta og skýr- ingarteikninga prýðir bókina og er að þeim góður fengur. Heimild- arskrár eru í upphafi bókar, en í bókarlok er stutt samantekt á ensku, atriðisorðaskrá og listar yfir nokkrar sagnir og orðtök og máls- hætti. Allur frágangur bókarinnar er með mestu ágætum. Jón Þ. Þór. lil'a eftir sem áður góðu lífi, enda skemmtilegar fígúrur. Þeir hafa sést á myndböndum og höfða vel til krakkanna, einkanlega vegna þess að þar tala Strumparnir á tslensku. Reyndar er það kapítuli út af fyrir sig hvernig Laddi gefur þessum persónum líf. Núna eru jólin aö koma hjá Strumpunum og í því tilefni liafa þeir sungið jólalög inn á plötu. Lögin eru öll erlend, en strumpa- textarnir eru eftir Jónatan Garö- arsson og sem betur fer eru þeir lausir við allt ofstrump. Textarnir eru á aðgengilegu máli sem krakk- arnir skilja. Þetta eru textar, ekk- ert bull. Jónatan á reyndar ekki alla text- ana á plötunni. Ólafur Gaukur á einn og svo syngja Strumparnir Heims um ból, sálmaljóð Svein- björns Egilssonar. Á plötunni eru 14 lög, öll erlend. Hljóðfæraleikurinn var tekinn upp í Hollandi fyrir tveimur árum, en Laddi sá um sönginn sem tekinn var upp hér á landi, fyrr á árinu. Og hér leikur Laddi sama lcikinn og á myndböndunum, hann á allar Strumparaddirnar. Lögin á piötunni eru flest gríp- andi og létt yfirbragö útsetninganna ættu að höfða vel til krakkanna og reyndar er þetta óskaplata á mínu heimili. Hitt er svo annaö mál, hvort þeir fullorönu gæ.tu ekki fengið leiö á plötunni á undan börnunum. Viö fáum rcyndar II mánaða frí um áramótin. Krakkarnir skemmta sér, það er fyrir öllu. Gleðileg strumpajól. ÞGG ■ Lúðvík Kristjánsson um. Lúðvík Kristjánsson sýnir þar fram á, að í verum var unnið mikið og merkilegt menningarstarf, sem gaf margfrægri iðju á sveitaheimil- um ekkert eftir. M.a. fengust margir vermenn við uppskriftir fornra handrita og eru birtar myndir af nokkrum slíkum. Þessu næst segir frá vergögnum og síðan frá hagnýtingu fiskifangs og greinir þar ýtarlega frá bæði skreiðar- og saltfiskverkun. Þá er sagt frá ýmsum fisktegundum og heitum á þeim og ýtarlegur kafli er unt verkun og nýtingu á þorskhausum og um lifur og lýsi. Kemur þar fram, hve gjörnýttur fiskui inn var á fyrri tíð. Síðustu kaflar bókarinnar fjalla um verslun með fiskifang innan- lands og greinir þar frá skreiðar- kaupaleiðum. lestum og lesta- mönnum o.s.frv. Um fræðimennsku Lúðvíks Kristjánssonar þarf ekki að hafa mörg orð. Hér er mikill fróóleikur fram reiddur og á þann hátt að vart verður um bætt. Nákvæmni höf- undar er mikil og eins og fyrri bæk- ur hans er þessi afbragðsvel rituð. Austurför Laxness ■ Halldór Laxness: í Austur- vegi. Helgafell 1985. 166 bls. Þessi litla bók, í Austurvegi, kom fyrst út árið 1933 og er eins konar ferðasaga Halldórs Lax- ness úr ferð, er hann fór til Sovét- ríkjanna árið áður. Ekki er þetta eiginlcga ferðasaga í þeim skiln- ingi, sem algengast er að leggja í það orð, höfundur rekur ekki ferð sína frá degi til dags, segir lítt frá þeim stöðum, sem túristar leggja mesta áherslu á að sjá, en lýsir þeim mun rækilegar ýmsum pólitískum og þjóðfélagslegum fyrirbærunt, sem hann kynntist á ferð sinni. Hann segir til að mynda gjörla frá árangri rúss- nesku byltingarinnar og þó eink- um og sérílagi frá fyrstu fimm ára áætluninni, sem raunar var fram- kvæmd á fjórum árum, og birtir heilmikið af alls kyns tölulegum staðreyndum máli sínu til stuðnings. Er þar allt á eins bók lært, höfundurreynirekkert til að dylja aðdáun sína á hinu nýja þjóðskipulagi og ágæti þess. ■ Halldór Kiljan I.axness Þegar bókin kom fyrst út munu margir hafa litið á hana sem hreint áróðursrit og Ijóst er, að hún var að a.m.k. nokkru leyti samin til þess að andæfa áróðri ýmissa þeirra, sem mest horn Itöfðu í síðu Sovétmanna og þess þjóðskipulags, sem þeir höfðu komið á hjá sér. Nú uni stundir, hálfri öld eftir að ritið kom fyrst út, getur fáunt dulist, að það var samið í áróðursskyni og satt að segja hljóma þessargömlu lýsing- ar á sæluríki Stalíns svolítið hjá- kátlegar, svo ekki meira sagt. En til hvers þá að gefa bókina út aftur, er ekki hennar tími liðinn? kynnu einhverjir að spyrja. Útgáfan á vissulega fullan rétt á sér. Feröin í Austurvcgi mark- aði kaflaskipti í sögu skáldsins Halldórs Laxness og er, eins og hann sagði sjálfur, fróðleg sem partur af honum sjálfum. Og bókin er ekki síður fróðleg sem heimild um stjórnmálaviðhorf á öndverðum fjórða áratugnum. Þá var sovéskur kommúnismi enn spennandi valkostur í augum margra menntamanna á Vestur- löndum og raunar eina svarið sem sumir þeirra sáu við sívaxandi gengi fasismans. Þegar litið er á bókina frá þessum sjónarhóli munu flestir á einu máli uni að hún sé um flest athyglisverð. Til upplýsingar um Ráðstjórnarríkin á fjórða áratugnum dugir hún lítt, en þeim mun meira segir hún okkur unt pólitísk viðhorf Hall- dórs og reyndar fjölmargra ann- arra á þessum tímum. Jón Þ. Þór.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.