Lesbók Morgunblaðsins - 11.12.2004, Blaðsíða 14
14 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 11. desember 2004
Oft
var mál
en nú er möst
að mæla.
Með þessum orðum er sleginn tónninn í
nýjustu ljóðabók Sigfúsar Bjartmarssonar,
Andræði, og fylgir þeim síðan heims-
ósómakveðskapur um flest milli himins og
jarðar.
Þó Sigfús rími, stuðli og telji í takt víkur
hann sér líka undan því að ríma, stuðla og
telja eins og eðlilegt hefur talist, þannig að
tæplega er hægt að halda því fram að kvæði
Andræða séu bundin – þau eru öllu heldur
frjáls.
Enda leyfir Sigfús sér að ríma þar sem
honum sýnist, ofstuðla eins og óður maður,
og kviðurnar fjúka fram og aftur að hent-
ugleik svo jafnvel villtustu atómskáldum
hlýtur að blöskra.
Og
aldrei
mun rakki
óður renna
á endurskoðendur
og aðra menn
með viti.
Hortugheit Sigfúsar gagn-
vart hinum innvirðulegu stofn-
anaþjónum þessa lands, svo
sem bílasölum, dagblaða-
skríbentum, skáldbræðrum sín-
um og systrum, bankaráðs-
mönnum, auðmönnum,
skriffinnum, alþingismönnum,
gagnrýnendum og öðrum slík-
um heiðursmönnum, ná auðvit-
að ekki nokkurri átt og minna helst á
óskammfeilni hipp-hoppara og samskonar
ruslaralýðs sem ekki kann að hysja upp um
sig buxurnar. Það er helst að Sigfús telji
horaða lörfum klædda fátæklinga til góð-
borgara! En eins og frjálshyggjan hefur
kennt Íslendingum sveltur enginn maður
nema fyrir leti.
Það er bara verst hvað kvæði Sigfúsar
eru skemmtileg, maður fær hland fyrir
hjartað við að hlæja með hon-
um að þessum ósæmilegu
bröndurum. Og ekki getur
maður beinlínis sett út á hand-
bragðið, þar sem takt-fúskið
flýtur svo hikstalaust niður að
fyrr en varir er maður farinn
að trúa því að pottar og pönnur
liggi í molum í öllum skúma-
skotum og ekki standi steinn
yfir steini í þessu þjóðfélagi
okkar, á sama tíma og maður
vorkennir þeim öðlingsmönnum
sem Sigfús gerir standandi grín
að.
Ef litið er framhjá þeim sið-
ferðisannmörkum sem Sigfús
þarf greinilega að þola sínu eig-
in hjarta, í krafti þess að hér er um að ræða
svokölluð heimsósómakvæði – en þeim er
yfirleitt ætlað að særa og kæta í senn – þá
hljóta Andræði ekki bara að teljast stór-
sókn, heldur stórsigur.
Það verður spennandi að fylgjast með
þessum hortuga en bráðefnilega unga
manni í framtíðinni.
Eiríkur Örn Norðdahl
Hipp-hopp fyrir fullorðna
BÆKUR
Ljóð
eftir Sigfús Bjartmarsson. 202 blaðsíður,
Bjartur 2004
Andræði
Sigfús Bjartmarsson
BILLIE er ellefu ára, fullorðinslegt barn
sem veltir fyrir sér hvort hún sé þroskaheft
og Rafael er ungur og barnalegur hermað-
ur, svo ungur að hann gengst upp í fullorð-
insleikjum. Nýja skáldsagan hennar Krist-
ínar Ómarsdóttur fjallar um þetta sérstæða
par. Þau eru fólk í miðju stríðinu, sett í að-
stæðurnar hér og nú þar sem það eina sem
skiptir máli er að bjarga sér. Hermaðurinn
sest að á sveitabæ stelpunnar eftir að hafa
drepið alla aðra á bænum og fleiri til og á
milli þeirra verður þegjandi samkomulag
um að bjarga sér saman, að láta lífið halda
áfram þrátt fyrir ógnir og tortryggni. Sagan
gerist á óræðum stað þar sem fegurð nátt-
úrunnar og sveitarómantíkin ríkja í öllu um-
hverfinu og veðrið er eins og best gerist.
Kyrrð ríkir á heimilinu daginn út og inn
þegar hermaðurinn breytist í bónda og
barnið aðlagast nýjum aðstæðum. Undir og
yfir og allt um kring um ljóðrænan, fagran
og fyndinn textann hljómar svo dimmur og
óhugnanlegur tónn morða og ógna, angistar
og ótta. Allt er þetta frábærlega vel gert
hjá Kristínu sem sýnir enn nýja hlið með
þessari bók. Formið, sjónarhornið og efn-
istökin eru mjög vel öguð og þjóna hvert
öðru.
Fyrri bækur Kristínar eru stórskemmti-
legar með ærslum sínum og ólíkindalátum
og beittum ádeilubroddi í bland. Það sem
skilur nýju bókina frá hinum er auk áð-
urnefndra þátta hinn alvarlegi undirtónn
óhugnaðar en hann er sleginn á fyrstu síðu
ásamt kyrrlátri sveitastemn-
ingu:
„Einn hermaðurinn skýtur
konuna með bakkann. Mjólkur-
flaskan og glösin splundrast.
Kaffikannan hendist á jörðina.
Úr augum konunnar rennur
blóð svo rígfestir hún sig við
bakkann og fellur, andlitið
leggst rólega ofan í grasið eins-
og ofan á kodda og blóðið lekur
í hann. Yngsta barnið hleypur
til hennar en fellur á leiðinni.
Kýrin baular kunnuglega.
Hænurnar flýta sér að skoða
líkin.“(Bls. 5)
Ósköpin enda með því að ein-
ungis tvær manneskur lifa af,
þau Billie og Rafael, ásamt kúnni og hænsn-
unum sem gefa þeim mjólk og egg. Kyrr-
látum, einföldum og barnslegum stílnum er
haldið alla bókina í raunsæislegum og ná-
kvæmum lýsingum sem þó eru mjög ljóð-
rænar á köflum. Þar nýtur sín vel sú náð-
argáfa Kristínar að sjá heiminn í marglitum
myndum; líkunum er vafið inn í lök í mis-
munandi litum, hermaðurinn fer ekki bara í
peysu heldur í bláa rúllukragapeysu, fötum
stelpunnar er lýst í smáatriðum sem og um-
hverfinu og allt er alltaf fallegt mitt í ljót-
leikanum. Einnig tala hermaðurinn og stelp-
an fallegt mál og ræða um fegurð hlutanna,
sérstaklega hann, og er það allt með ólík-
indum áhrifamikið að lesa slíkar lýsingar
manns sem drepur með köldu blóði; gengur
bara í þau verk eins og önnur.
Sjónarhornið er Billiear sem er heim-
spekingur í sér og leggur út af því sem hún
heyrir og sér, mest með sjálfri sér. Hún
hugsar mikið um foreldra sína og rifjar upp
orð þeirra og samskipti en segir líka her-
manninum frá þeim. En hún
leikur sér líka í Barbí- og
dúkkulísuleik sem hermaðurinn
fær smátt og smátt áhuga á og
eftir því sem á líður taka þau
meiri þátt í lífi, og leikjum,
hvort annars. Hann í dúkku-
leik, hún í byssuleik og þess
háttar. Allt gerist það af sjálfu
sér eftir því sem sögunni vind-
ur fram. Gestir koma og fara
og hverfa en þráðurinn hverfist
áfram um líf parsins hér og nú.
Kristín segir í skemmtilegu við-
tali í Lesbókinni 27. 12. síðast-
liðinn að „… maður sé miklu
háðari þeim tíma sem maður
lifir á en maður getur nokkurn
tíma gert sér grein fyrir“. Og að maður sé
„… hreinlega klipptur út úr dúkkulísubók
okkar samtíma“. Tíminn hér og nú er ein-
mitt annar áhrifamesti þáttur bókarinnar,
það er að segja hvernig maðurinn á ekki um
annað að velja en að aðlaga sig aðstæð-
unum, sama hversu fáránlegar og óhugnan-
legar þær eru. Hinn þátturinn er ævintýrið
í bland við raunveruleika stríðsins sem lam-
ar allt. Enda segist Kristín hafa hugleitt að
hafa undirtitilinn – ævintýri um stríð – en
hætt við það þar sem henni fannst „… stríð
ekki eiga skilið orðið ævintýri“.
Það er ekki vafamál að Hér er besta
skáldsaga Kristínar Ómarsdóttur til þessa
og er þá mikið sagt. Snilligáfa hennar hefur
hingað til verið fólgin í ærslafullum og ljóð-
rænum ævintýrasögum með ádeilu en hér
njóta þeir hæfileikar sín til fulls í sögu þar
sem einnig er sleginn tónn stríðsádeilu með
einkar öguðum efnistökum.
Stríðsbarbí og dúkkulísur
BÆKUR
Skáldsaga
eftir Kristínu Ómarsdóttur.
180 bls. Salka, Reykjavík 2004.
Hér
Hrund Ólafsdóttir
Kristín Ómarsdóttir
ÚR RÖÐUM Nýhilmanna stígur Valur B.
Antonsson fram með sína fyrstu ljóðabók.
Nýhilmenn hafa verið duglegir við að halda á
lífi þeirri goðsögn að annar hver Íslendingur
sé skáld, jafnvel þeir sem ná ekki að stinga
tungunni upp í nef. Þeir hafa gefið út ljóða-
bækur ungskálda, haldið upplestrarkvöld
nokkuð reglulega og þannig skapað sér sinn
eigin vettvang.
Þetta er að sjálfsögðu ekkert nema gott
fyrir okkar rómuðu bókmenntaflóru, sér-
staklega þar sem það reynist ungum höf-
undum oft erfitt að komast að hjá stóru for-
lögunum.
Ljóð Vals eru ort í formleysi og í mörgum
þeirra gefur hann sér lausan tauminn og tek-
ur þá stríður orðaflaumur völd. Umfjöllunar-
efnin eru mörg, það er engin lognmolla hér
og höfundur hefur frá einhverju að segja sem
er einn helsti kostur bókarinnar.
Vandamálið er hins vegar að
einatt reynist erfitt að átta sig á
hvert höfundur er að fara með
þessari orðaofgnótt sinni.
Eins og titill bókarinnar gefur
til kynna eru heimspekilegar
hugleiðingar og tilvísanir rúm-
frekar í bókinni í bland við orða-
flauminn eins og í ljóðinu „Ó, er
ekki ástin karla ljúf“: „Taktu
trúarstökkið með sæðinu/ í boga
gullinsniði/ leitaðu að hvíta
flekknum á hinu nakta landa-
korti/finndu seigfljótandi límið/
snjóinn volga á mynd.“ Valur
ögrar með kláminu, afneitar
rómantíkinni og dettur jafnvel
niður á fallegar myndir eins og í ljóðunum
„Fjöruferð“ og „Fururisarnir“.
Einhvern veginn finnst mér eins og þeir
eigi það flestir sammerkt innan Nýhil að
velta því fyrir sér hvað það sé að vera skáld.
Eru þeir að sanna að formið sé ekki dautt og
að gamla góða bóhemskáldið í flauelsbux-
unum sé enn til? Áleitna skil-
greiningu Vals á skáldinu má
finna í ljóðinu „27 skáld“: „Þú
ert skáld því það er eitthvað að
þér/ og þú ert með minnimátt-
arkennd, skáld/ og þegar aðrir
áttu úlpu og takkaskó/ þá var
þín æska: draumur að degi til/
samt ertu skáld montnari en
hanagal að nóttu/ eins og fyr-
irburi spýttur út úr klofi.“
Útlit bókar er smekklega
unnið, þ.e. kápuvinna og upp-
setning, en það er nokkuð sem
oft er ábótavant í ljóða-
bókaútgáfu.
Ofurmennisþrá er ekki heild-
stætt verk, ljóðin eru bæði ólík
og misjöfn en engu að síður er einhver
hressilegur bragur yfir bókinni sem heillar
og vel hægt að segja að hér sé efnilegur höf-
undur á ferð. Valur er því skáld, „montið sem
skáldar í eyður“.
Milli orða og punkts
BÆKUR
Ljóð
eftir Val B. Antonsson, 47 bls. Nýhil 2004
Ofurmennisþrá, milli punkts og stjarna
Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir
Valur Brynjar Antonsson
Hryllingsmyndavélin er
eftir R.L. Stine. Þóra Sig-
ríður Ingólfsdóttir les.
Garðar grunar að eitt-
hvað sé að gömlu mynda-
vélinni sem hann og vinir
hans fundu. Myndirnar úr
henni misheppnast allar illi-
lega. Á einni þeirra er bíll
pabba hans til dæmis í
klessu – skömmu síðar lendir faðir hans í hörð-
um árekstri. En vinir Garðars trúa honum
ekki, Sara fær hann meira að segja til að koma
með myndavélina í afmælið sitt og taka mynd
af sér. Þegar myndin er framkölluð er Sara
ekki á henni. Er hún út úr myndinni fyrir fullt
og allt? Hver verður næst fyrir barðinu á
hryllingsmyndavélinni?
Útgefandi er Hljóðbók.is. Hljóðbókin er um
180 mínútna löng og kostar kr. 2.190.
Nýjar bækur
Fimmtán af Skemmtilegu
smábarnabókunum eru
komnar út á hljóðbók.
Hanna G. Sigurðardóttir
útvarpskona les.
Hér mætast kynslóð-
irnar, því sumar bókanna
voru fyrst gefnar út um
miðja síðustu öld en aðrar
nú um aldamótin. Af-
bragðsgóðar þýðingar fjögurra þýðenda láta
vel í eyrum ungra sem aldinna og má vel njóta
þess að hlusta á þær aftur – og aftur – og
stytta yngstu kynslóðinni stundir á upp-
byggilegan hátt.
Sögurnar fimmtán eru: Stúfur, Þrír litlir
grísir, Græni hatturinn, Benni og Bára, Svarta
kisa, Geiturnar þrjár, Tommi er stór strákur,
Kötturinn Branda, Litla rauða hænan, Hjá afa
og ömmu, Villi hjálpar mömmu, Þegar Kolur
var lítill, Kolur í leikskóla, Mamma er best, Ari
og Ása leika sér.
Útgefandi er Hljóðbók.is. Diskurinn er um
75 mínútur á lengd. Verð er kr. 1.790.
Mig mun ekkert bresta –
bók um sorg og von er eftir
Jónínu Elísabetu Þorsteins-
dóttur, prest við Akureyrar-
kirkju.
Á gleðilegum tímamótum
í lífi höfundar knúði sorgin
skyndilega dyra. Lesendur
skyggnast inn í huga hennar
og fylgjast með því hvernig
hún glímir við söknuð og sig sjálfa í óvæntum
aðstæðum. Minningarnar hrannast upp og les-
endur spyrja með höfundi um tilgang lífsins.
Lífið birtist henni í nýju ljósi, hún leyfir sorg-
inni að tala og voninni að svara.
Þetta er bók sem styrkir öll þau sem missa
sína nánustu og hjálpar þeim að takast á við
sorgina af raunsæi og æðruleysi. Hughreyst-
andi frásögn, ljóðræn og vonarrík, þar sem
horfst er í augu við sorgina sem heimsækir
okkur öll einhvern tíma.
Útgefandi er Skálholtsútgáfan. Verð kr.
2.490.
Af hverju, afi? er eftir Sig-
urbjörn Einarsson biskup.
Í þessari bók talar afi við
börn sem hlakka til jólanna.
Börnin spyrja afa um jólin í
gamla daga og um fyrstu
jólin þegar Jesús fæddist.
Þau spyrja um gjafir,
gamla jólasiði og gömul orð
úr Biblíunni og kunnum
jólasálmum eins og meinvill sem lá í myrkr-
unum.
Afinn hjálpar einnig foreldrum að svara og
uppfræða börnin. Orð hans bera með sér hlýju
og kímni ásamt visku hins aldna.
Bókin svarar ekki síður spurningum fullorð-
inna um tíma sem er liðinn og skildi svo margt
eftir handa börnum á öllum aldri.
Útgefandi er Skálholtsútgáfan. Verð kr.
2.380.
Annað tækifæri er eftir
Mary Higgins Clark. Atli
Magnússon þýddi.
Nicholas Spencer er
frumkvöðull og forstjóri í
lyfjarannsóknafyrirtæki er
vinnur að þróun krabba-
meinslyfs. Hann ferst í
flugslysi og lík hans finnst
ekki. Um leið og Nicholas
Spencer hverfur berast þær fregnir að lyfið fái
ekki samþykki heilbrigðisyfirvalda. Strax á
eftir uppgötvast að Spencer virðist hafa stolið
gífurlegum fjárhæðum úr sjóðum fyrirtæk-
isins. Þar á meðal er ævisparnaður fjölda fólks
sem lagt hefur aleiguna í fyrirtækið.Er Nich-
olas Spencer látinn eða í felum? Var hann sek-
ur eða fórnarlamb samsæris?
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er 310 bls.
Verð kr. 3.980