Sunnudagsblaðið - 14.07.1957, Side 4
420
SUNNUDAGSBLAÐIÐ
ar, svo hin tveggja manna áhöfn
gæti stjórnað ferðinni upp eða nið-
ur með því að dæla sjónum inn
eða út úr geyminum. Efra hólfið
var aðskilið frá neðra hólfi kúl-
unnar með vatnsþéttri lúgu, og í
undirhólfinu var vélknúin vinda,
þar sem vírunum frá björgunar-
lúgu bátsins var fest, en þessu
öllu var stjórnað frá efra hólfi
kúlunnar. Kl. 11,30 stigu tveir
menn inn í kúluna, og 42 mínút-
um síðar voru þeir komnir niður
á þilfar Squalus. Nú hófst hið
hættulegasta við björgunina. —
Fyrst var kjölfestugeymirinn fyllt
ur, síðan var vindan látin í gang,
og strekkt á vírunum til lúgunn-
ar eins og frekast var hægt, þá var
undirhólfið tæmt af sjó með þrýsti
lofti. Hafið sem hafði verið þeirra
óvinur, var nú vinur þeirra, sem
þrýsti kúlunni ofaná þilfar báts-
ins, svo gúmmíhringurinn undir
kúlunni var orðinn vatnsþéttur.
Síðan opnuðu þeir félagar lúguna
til neðra hólfsins, og létu sig síga
niður á þilfar Squalusar, þar sem
þeir boltuðu kúluna fasta. Björg-
unarkúlan sat nú föst yfir björg-
unarlúgunni sem risa skel. Síðan
opnuðu þeir lúguna, og frá ljós-
inu frá efra hólfi kúlunnar, sáu
þeir hina innilokuðu menn stara
spyrjandi augnaráði til þeirra.
„Halló, þá erum við komnir“, köll-
uðu þeir fjörlega, og réttu þeim
könnu með ilmandi kaffi niður.
Fyrsta ferðin gekk ágætlega, og
kl. 13,42 komu þeir upp á yfir-
borðið með sjö bátsmenn, og 11
mínútum síðar hurfu þeir aftur í
djúpið og komu aftur upp kl. 16,11
með níu menn. Kl. 18.27 í þriðju
ferðinni komu enn níu upp, og aft-
ur fóru þeir niður og tóku þá síð-
ustu af áhöfninni um borð, 8
manns. Kafbátsforinginn Naquin
klifraði síðastur upp í kúluna kl.
19,51. og hafðl þá verið lengur á
hafsbotni en nokkur annar. Frétt-
in um hinar þrjár velheppnuðu
björgunarferðir hafði þegar bor-
izt um allt landið, og í Portsmouth
var fjöldi fólks kominn fram á
hafnargarðinn, til að taka á móti
hinum eftirlifandi. í því er til-
kynna átti um þá, er lífs komust
af úr bátnum, kom skeyti frá Fal-
con: „Kúlan situr föst á 45 metra
dýpi. Vírinn á vindunni er flækt-
ur, við getum ekki hreyft okkur
um tommu“. Þannig hljóðaði til-
kynningin frá kúlunni. Áhöfnin
á Falcon gerði nú tilraun til að
hífa kúluna upp með stjórnvírun-
um, en hann hafði ekki þann styrk
leika, að hann gæti lyft hinni 10
tonna kúlu, og hafði tilraunin það
eitt upp úr sér, að vírinn trosnaði
óhugnanlega upp. Það leit ógæfu-
Lga út fyrir hinum síðustu, mun-
urinn aðeins sá, að verða bjargað
úr einni stálkistunni til að farast
í annarri. Þeir á Falcon gáfu eftir
á vírunum frá kúlunni, og hún
hrapaði niður á hafsbotn aftur.
Síðan kom tilkynning frá björg-
unarskipinu til þeirra í kúlunni.
„Þið verðið að tempra flotmagnið,
svo stjórnvírarnir geti borið ykk-
ur. Blásið vatninu úr geymunum
þar til ég segi stanz“. Er þeir höfðu
þrýst út töluverðum sjó, kom til-
kynning frá Falcon: „Þetta er
nóg“. Uppi á Falcon var áhöfnin
aftur komin að vírunum og reyndi
að lyfta kúlunni, og hún hreyfð-
ist. Var nú halað inn með mestu
varfærni, þar til hinn trosnaði vír-
partur var kominn inn fyrir borð-
stokkinn. Þá var óhætt að nota
kraftana, og fáum mínútum síðar
skauzt kúlan upp, og vaggaði á
bárunni eins og sæskrímsli, star-
andi með sínu eina ljósauga upp
í svartan himininn.
Með þessu var einni sérstæðustu
björgun sæfara lokið, og dagsetn-
ingin er 24. maí 1939. En þar með
er Squalus ekki úr sögunni, því
það tókst að ná honum upp eftir
að hann hafði legið í 113 daga á
hafsbotni. í maí 1940 var hann aft
Vifið þér ...
að fyrir síðustu styrjöld var í
Ósló bifreið á 20 hvern íbúa,
en nú ein bifreið á 9. hvern
íbúa.
að í Burma deyja um það bil "
af hverjum 10 börnum áður en
þau ná eins árs aldri. Algeng-
asta dánarorsökin er malería.
að siður sá að heilsast með handa-
bandi er upprunninn í fornöld,
og var upphaflega sem tákn
um að maður væri vopnlaus.
að allar eyðimerkurjurtir hafa
þyrna; vegna vatnsskortsins a
slíkum stöðum myndu allar
jurtir annars þegar í stað verða
upprættar af dýrum eyðimerk-
urinnar.
að allt til ársins 1901 livíldi þá á
lögreglu hinna ýmsu borga 1
Bandaríkjunum, að vernda for-
setann, en þegar McKinlev vai'
myrtur í Buffalo, var sá háttvu’
upptekinn að forsetinn hefði
sérstakan lífvörð frá leynilög"
reglunni.
að skák er föst námsgrein í skól-
um í Rússlandi.
ur sjósettur undir nafninu Sai*'
fish, og meðal áhafnarinnar von1
fjórir af fyrri áhöfn hans. í stvrj'
öldinni sökkti hann tveim japönsk
um flugvélamóðurskipum °£
fjölda flutningaskipa. Eftir heims
styrjöldina sneri hann aftur ti
Portsmouth, og 1946 var hann val-
inn sem skotmál fyrir kjarnorku-
sprengjutilraunir við Bikini.
er það fréttist, reis upp mótmsel0
alda gegn því, það sterk, að fl°ta
málaráðuneytið varð að beygja s^'
Stjórnturninn af Squalus-Sailfis 1
var síðar fluttur til flotastöðv^
anna, þar sem hann var festur
stóran steinstall, sem ævaran >■
minnismerki um ameríska kafba -
flotann.