Sunnudagsblaðið - 14.07.1957, Blaðsíða 11

Sunnudagsblaðið - 14.07.1957, Blaðsíða 11
SUNNUDAGSBLADIÐ 427 j s EHzabeth | Á S s leyndardómurinn hefur umlukt hana og manninn, sem hún kallar frænda sinn . . . Len Blake, sem þér köstuðuð héðan út, vinnur fyr- ir hann. Og það gera fleiri skugga- legir náungar. Enginn veit með vissu, hvað þeir aðhafast, en . . . — Nú, fyrst enginn veit, hvað þeir gera — eða að hverju leyti þaö er viðkomandi Honey, þá ákveðið þér samt, að ég skuli ekki hitta hana. Getið þér nefnt eitt- hvað óhreint, sem þér getið sagt S S S s s s s s t. um hana? Nei, auðvitað getið þér það ekki. Þér getið ekkert um hana sagt, annað en það, að frændi hennar, sem hún kallar svo, hef- ur ekki tilkynnt öllu hverfinu, hvað hann starfi! Ilann strauk yfir hár sitt og fór aftur að ganga um gólf. Honum varð hugsað með nokkrum óró- leika til þess, sem Honey hafði sagt: „Vesalings Anna litla; hún hefur viijað hafa yður út af fyrir Peterson: 4. T 0 G 0 D Æ Ð § sig!“ Hann roðnaði við, er honum varð hugsað um þetta. Þegar hann tók aftur til máls var hann vingjarnlegri en áður. — Þér verðið að reyna að skilja þetta, Anna. Við erum orðnir góð- ir vinir, og ég vona að við höldum áfram að vera það. En ég lofaði bróður Honeyar, að ég skyldi líta eftir henni. Bg get ekki annað en ásakað mig fyrir, að vera að vissu leyti valdur að dauða hans, og geti ég gert eitthvað til þess að bæta henni bróðurmissinn, þá finnst mér sem mér beri skylda til að gera það. Anna hlustaði ekki lengur á það, sem hann sagði. Hún óttaðist, að ef hún yrði kyrr í herberginu stundinni lengur, myndi hún faro að gráta, svo að hún flýtti sér út og lokaði hurðinni á eftir sér. velja sér þar hvað sem hann vildi af leikföngum. En hann var mjög hófsamur, og valdi sér einungis leikföng fyrir tæpar tvöþúsund krónur, — og hvað er það fyrir föður, sem gæti án þess hann mun- áði nokkuð um það, keypt alla leikf angaverzlunina ? I Saudi-Arabiu gilda aðeins ein fög — kóraninn. Saud konungur sþíórnar landinu í samræmi við 0l'ð sjálfs Allahs, en þá er hann iafnframt verndari mesta helgi- öóms múhameðstrúarmanna — ■Mekka, — Hann opnar land sitt áaeð ánægju fyrir peningum Vest- Urlanda — og nýrri tækni. En hann hefur aftur á móti hina uaestu andúð á hugsunarhætti og siðum vesturlandabúa. Nýtízkuleg ar hugmyndir, svo sem lýðræði og kvenréttindi fá ekki aðgang í eyði uaerkurríkinu. Virðingu sína fyrir ti'ú og siðum feðranna, sannar hann meðal annars með klæðnaði sínum. Ennþá hefur enginn séð ^aud konung klæðast á evrópska vísu. Hvort heldur hann er heima í Riyadh eða vestur í Washington, gengur hann alltaf í víðum og síð- um kyrtli, með hvítan höfuðklút. Aftur á móti svignar matborð hans undan vestrænum krásum, sem daglega eru fluttar ferskar og nýj ar til Riyadh af einkaflugvélum konungsins. Hinar sex milljónir þegna kon- ungsins verða að láta sér lynda öllu fábrotnara líf en hann, þrátt fyrir allar olíumilljónirnar, sem streyma til landsins. Og það verð- ur að segjast eins og er, að kjör fólksins og fátækt eru í hrópandi ósamræmi við allan íburðinn í kringum konunginn. En konung- urinn lætur sér þó engan veginn á sama standa um kjör fólksins. Frá því hann varð konungur fyrir um það bil fjórum árum, hefur hann varið miklu fé til félags- og framfaramála, svo sem byggingu skólahúsa og sjúkrahúsa. Hversu fastheldinn hann er við gamlar austurlenzkar venjur varðandi konungdóminn, hefur honum orð- ið ljóst, að ekki er lengur hægt að halda virðingu og ástsæld fólks- ins einungis með því að láta það líta upp til Ijómans, sem umvefur konungsstólinn. Olían hefur smurt hengilásinn að dyrunum til hins lokaða arabiska heims. Og þrátt fvrir allt mun nýr hugsunarhátt- ur smám saman gera vart við sig meðal hinna fátæku verkamanna við olíulindirnar. Þjóðfélagsleg réttindi er ekki ennþá orðið á- berandi slagorð meðal íbúa lands- ins, en það er aðeins tímaspurs- mál hvenær það verður. Og Saud konungur veit áreiðanlega, að þeg ar sá tími keraur, muni vera gott fyrir hann, að geta bent á, að hann hafi varið nokkrum milljónum til framfara- og mannúðarmála. Einvaldskonungurinn er með öðrum orðum þegar byrjaður að láta undan kröfum og þörfum fólksins, og margt bendir til þess, að með Saud muni ríkisleiðtogar af hans sauðahúsi hverfa, og til- heju’a einungis sögunni.

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.